Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.1991, Qupperneq 7
um 1920 og þ.ó.tti mikill skýjaglópur þar sem
hann stikaði um Vesturbæinn. Á Bræðra-
borgarstíg 25 var húsið Akur sem brann
árið 1925. Þaðan voru söngmennirnir Dan-
íel og Sveinn Þorkelssynir runnir.
Á nr. 26 var lítið hús sem kallaðist Mó-
berg og þar bjuggu lengi fomeskjuleg hjón
sem hétu Guðjón Bjömsson pakkhúsmaður
hjá VBK — hann hafði þann strfa að selja
verkaðar nautshúðir til skósmiða — og Guð-
laug Jónsdóttir, kölluð Lauga á Móbergi.
HÚn ar sérkennileg að því leyti að hún tók
í nefið eins og svæsnasti karlmaður. Þau
hjón höfðu jámpott á hlóðum í kálgarði
sínum og suðu þar hvalspik og selspik svo
að lyktin lagðist yfir hverfið.
Á nr. 27 var Bræðrapartur, þar sem Ingi-
mundur Ólafsson bjó en hann reri frá Sels-
vör og seldi fisk og úr handvagni á götum
úti. A nr. 28 var svo Syðraholt.
Jafetshús Og Gvendur
DÚLLARI
Á nr. 29 stendur svo ennþá Jafetshús en
þar bjó Jafet Sigurðsson skútuskipstjóri frá
Litla-Seli við Vesturgötu, af gömlum
Reykjavíkuraðli. Afi hans var Jafet Einars-
son, bræðmngur við Jón Sigurðsson forseta
og bróður Ingibjargar, konu forsetans. Jafet
hafði á efri árum seglaverkstæði í skúr sem
enn stendur á bak við Jafetshús. Kona Jaf-
ets var Guðrún Kristinsdóttir sem seldi mjólk
og brauð úr skúrnum. Fyrir sunnan húsið
var Rólutúnið þar sem bömin léku sér og
hafði Jafet gaman af því að láta krakkana
snúast í kringum sig. I skúrnum fengu þau
líka stundum að færa upp leikrit og þar
skemmti Gvendur dúllari, einn af karakter-
um bæjarins sem allir þekktu, en Guðbrand-
ur Jónsson prófessor lýsti list hans svo:
„Það er ekki unnt svo vel sé að líkja
dúllinu, sem Guðmundur kallaði svo, við
nein önnur hljóð, sem úr mannlegum barka
koma, en eigi það að heita eitthvað, var það
einna skyldast sönghljóðum Tyrolbúa, þeim
sem kölluð eru ,jodl“ á þeirra máli. Þegar
Guðmundur dúllaði settist hann niður, kross-
lagði fætuma, hallaðist fram á vinstri oln-
bogann, stakk fíngri í vinstra eyrað og tók
svo til. Um leið og karl söng var neðri skolt-
urinn á sífelldu iði, og fingurinn titraði í
eyranu. Var það einhvers konar lagnefna,
sem hann sönglaði, og veit ég ekkert hvað-
an úr barkanum hljóðið kom, en það var
allt skjálfandi, mjög hátt og heldur en ekki
ófagurt. Ekki var neinn texti undir þessum
söng, en legði maður eyrað við, virtist at-
kvæðamnan „hagldagldagldagldalgd" koma
fyrir oft og endurtaka sig í sífellu."
Sennilega mundu jassistar nútímans taka
því fegins hendi að jassa eða spinna undir
dúlii Gvendar en aðgangurinn að skúrnum
bak við Jafetshús á nr. 29 kostaði 5 aura.
Á nr. 31 er lítið timburhús sem heitir
Blómsturvellir. Þar bjó lengi Einar Jónsson
steinsmiður og síðar Þorsteinn sonur hans,
vallarvörður og KR-ingur. Á nr. 32 er
Stakkagerði eða Stakkahlíð og á 34 var
lítill steinbær sem yfirleitt var kallaður Al-
bertsbær. Þar bjó lengi Þórður Breiðfjörð
sótari, afi Atla Heimis Sveinssonar tón-
skálds. Þórður Breiðfjörð var dugnaðarkarl
en þótti fljóthuga. Einu sinni var hann eitt-
hvað lasinn karlinn og var búinn að biðja
Ingibjörgu, konu sína, að koma með eitt-
hvað að drekka handa sér. Svo allt í einu
æpti hann upp úr bælinu: „Fljót, fljót, Ingi-
björg! Búinn að taka tvö! Fljót!“ Þá þóttist
hann vera að taka andvörpin og ætti bara
eitt eftir af því að hún var svo lengi á leið-
inni. Á 35 er Tómasarhús og á 37 Bergs-
kot, upphaflega byggt af-Bergi-Pálssyni sem
var afí Emilíu Jónasdóttur leikkonu og lang-
afi sr. Bolla Gústavssonar í Laufási. Á nr.
39 var svo Pálsbær en þann bæ byggði
faðir Bergs í Bergskoti.
BaslÍBergskoti
Að lokum skal þess getið að einu sinni
var haft viðtal í dagblaði við Þóranni Elínu
Sveinsdóttur, konu téðs Bergs í Bergskoti
á Bræðraborgarstíg 37, þégar hún var orð-
in gömul og er frásögn hennar til marks
um lífsbaráttuna fyrir hundrað áram. Hún
var systir Helga Sveinssonar bankaútibús-
stjóra á ísafírði, síðar í Reykjavík. Þórunn
sagði um basl sitt og Bergs:
„Við flúðum héðan á fískleysiáranum
1880 og 1890 Vestur á Dýrafjörð. Fyrst fór
Bergur vestur og áður en hann fór, bað
hann bæjarstjórnina að sjá til þess að ég
sálaðist ekki úr hungri með börnin 6 í
ómegð. En svo skrifaði hann mér, þegar
hann kom vestur, og bað mig að selja kotið
okkar og bátinn, borga það, sem ég væri
búin að fá frá bænum — sem ekkert var —
og koma svo vestur með hópinn. Þetta gerði
ég og bærinn fékk kotið og bátinn fyrir að
borga farið fyrir mig vestur. Þegar ég seldi
fasteignina, fór ég fram á það, að fá ein-
hverjar flíkur utan á börnin mín, en þá var
mér sagt, að ég ætti ekkert inni! Eg gat
nú ekki fallist á það, og til að jafna málið
bróðurlega, fékkk ég eina þríhyrnu, sem ég
hafð á hana Kristjönu mína sálugu. En síðan
ég fékk þríhyrnuna þá hefí ég aldrei átt
neina fasteign hér í heimi!“
BJÖSSI í búðinni, Villi í
SkálholtiO.fl.
Á nr. 12 stendur Ingibjargarhús. Þar
bjuggu þau Ingibjörg og Jón Bjömsson
skipasmiður. Hún hafði brauðsölu. Sonur
þeirra var þekktur borgari, Björn Jónsson
kaupmaður á Vesturgötu 27, kallaður Bjössi
í búðinni. Hann spilaði í lúðrasveit og var
einn af helstu stofnendum Tónlistarfélagsins
í Reykjavík. Og áður en varði var Bjössi í
búðinni búinn að loka verslun sinni og gaf
sig tónlistinni heill og óskiptur. Hann gerð-
ist framkvæmdastjóri Tónlistarfélagsins og
„um hann lék hressandi blær ákafans" eins
og stóð í afmælisgrein. Á bak við Ingibjarg-
arhús á nr. 12 var skósmíðaverkstæði. Um
það sagði Magnús skipstjóri frá Miðhúsum:
„í skúrnum bak við Ingibjargarbakarí var
samkomustaður okkar strákanna. Þar hafði
Ólafur frá Eiðsstöðum (þ.e. Bræðraborg-
arstíg 23) skóverkstæði og stóðum við yfír
honum meðan hann var að sóla, göntuð-
umst og sögðum brandara. Þar á meðal
voru bræðurnir Gvendur og Villi frá Skál-
holti. Við fengum Villa til að yrkja en Gvend
til að syngja því að hann var óspar á það.
Hann söng heilu aríumar í skúrnum. Þar
var oft mikill hávaði og margt brallað."
Á Bræðraborgarstíg 13 var bærinn Hlíð
og á nr. 15 fallegt íbúðarhús sem Jóhannes
Magnússon yfirverkstjóri hjá Duus átti. Jó-
hannes var bróðir Jóns í Lindarbrekku —
en það hús tilheyrir nú Vestui-vallagötu —
og voru þeir bræður taldir meiri háttar
menn í hverfinu. Þeir voru viðriðnir útgerð
og fiskverkun og höfðu kýr í fjósi. Þar sem
áður var Hlíð og Jóhannesarhús er nú stór
blokk. Á nr. 16 reisti Jón Símonarson bak-
ari eitt fullkomnasta brauðgerðarhús síns
tíma árið 1930 og var með brauðútsölur
um allan bæ. Þar er nú bókaútgáfan Iðunn.
Höfundur er sagnfræðingur.
Verkamannabústaðir og samvinnubústaðir setfa svip sinn á syðsta hluta Bræðra-
borgarstígs. Hér er hús Eysteins Jónssonar, fyrrverandi ráðherra, á horni Ásval-
lagötu og Bræðraborgarstígs, og er það eitt af fáum samvinnuhúsum sem algjör-
lega halda upphaflegum svip sínum.
ARI GÍSLI BRAGASON
New York
í.
Hormónafylltur kjúklingur
til sölu á einn dollar
Bragðast vel með
gerfifrönskum
Diet-Coke sem grennir
er gott með.
Verði þér að góðu.
2.
Róninn lúllar á bekknum
með Wall Street Journal
oná sér.
Markaðurinn ku víst vera
spennótöff núna á Wall Street
en best er að lúlla á bekknum.
3.
Á miðju Time Square
Það er kvöld, smá þoka
Gömul svört kona
með lítið barn
í fanginu
I gave up
I gave up
Fuck it
I gave up.
4.
Staldra við í miðasölu á klámbíói, Gamall negri
með bréfpoka er að öskra á dyravörðinn:
„I want my money back, I didn’t call her bitch“.
Miðasölukonan kemur og gamli negrinn heldur föstum
höndum um bréfpokann, brosir breitt og öskrar: „Bitch“.
Honum er fleygt útá götu og heldur hlæjandi og mumlandi
í humátt að næstu miðasölu á klámbíói.
5.
Ég er ánægður á göturölti:
„Mig vantar tvo dollara uppá krabbameinsaðgerð“
segir róni einn
og er hæstánægður
o Þegar ég rétti honum klínkið mitt
„Guð blessi þig Jesúbam”.
Bar í USA
12.
í villtu Vestur Virginíu
er John Denver Guð
almáttugur
og á barnum Mac’s
eru augnablikin
búin til
af þartilbúinni
peningaaugnabliksneyslupakkamaskínu
Einungis einungis
Þegar Jim í Doors syngur
„The end“
verður Error í
peningaaugnabliksneyslupakkamaskínunni
mannskapinn setur hljóðan
eitt augnablik
Svo er fingri smellt
meiri bjór
meiri drinks
og meiri money.
Kvöldstund í USA
8.
Saddam var að skjóta
eldflaugum á Tel Aviv
og við strákarnir
erum að fara á körfuboltaæfingu.
Þegar ég kem til baka:
I sjónvarpinu
litlar gyðingastelpur
að máta gasgrmur
Ég kaupi mér flögur og kók.
Bráðfallegt kvöld
í USA.
Höfundur stundar háskólanám í Bandaríkjunum og hefur gefiö út 2
Ijóðabækur.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 25. MAl 1991