Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.1991, Page 14
Hvers vegna
íslandsdagnr?
Því svarar María Guðmundsdóttir
í DAG er mikið um að vera í Bankastræti 2, eða Torfunni, þar
sem Upplýsingamiðstöð ferðamála er til húsa. Glóðvolg upplýs-
ingarit liggja frammi. Boðið er upp á myndagetraun með ferða-
vinningum og skoðunarferðir um borgina með leiðsögn. „I dag
höldum við íslandsdag fyrir íslendinga sem stefna í ferðalag
um eigið Iand,“ segir María. „Ferðaþjónusta á íslandi hefur gjör-
breyst á örfáum árum. Erlendar og islenskar ferðaskrifstofur
hafa rutt veginn í nýjum ferðamöguleikum og í raun er svo
margt sem útlendingar nýta sér betur en íslendingar. Með Is-
landsdegi viljum við hvetja landann til ferðalaga um eigið land
og til að kynna sér nýjungar. Og athugið, að þjónusta okkar er
ókeypis!
íslendingar eru duglegir að ná
í upplýsingarit fyrir erlenda vini
og ráðstefnugesti en gleyma
sjálfum sér! Þegar von er á sólar-
helgi, stökkva Reykvíkingar í
flýti upp í bílinn, æða út úr bæn-
um, en átta sig svo á áfanga-
stað, að þá skortir upplýsingar
um gistimöguleika, hvar hægt sé
að fá staðgóðar máltíðir eða kom-
ast í afþreyingu," segir María
(lýsingin á landanum hljómar
kunnuglega)! „Hvernig væri að
gefa sér tíma til að heimsækja
okkur með góðum fyrirvara,
skipuleggja innanlandsferð eins
og um utanlandsferð sé að ræða
og fá þannig miklu meira út úr
ferðinni?
Flestir erlendir ferðamenn
koma við hjá okkur og skipu-
leggja ferðina út frá okkar upp-
lýsingum," heldur María afram.
Vissulega orð að sönnu. í miðri
viku, þegar Ferðablaðið lagði leið
sína upp í „gömlu komhlöðuna",
nú prýði miðbæjar Reykjavíkur
(guði sé lof fyrir Torfusamtökin!)
Var vart þverfótað fyrir ferða-
mönnum sem streymdu ýmist út
úr Upplýsingamiðstöðinni eða
stóðu í biðröð á torgi Torfunnar.
Allir voru þeir vel skóaðir og
minntu á úlfalda með forðabúr á
baki — ótvírætt erlendir ferða-
menn! ,
Islendingar og
ævintýraferðir
Eru útlendir ferðamenn betur
búnir en íslendingar?
„Þeir hafa verið það, en íslend-
ingar eru að verða meira úti-
vistarfólk sem þeysa ekki lengur
í hringferð á bílnum heldur stefna
á vit ævintýra í íslandsferð, líkt
og útlendingar. Nú er víða hægt
að komast í jökla- og bátsferðir,
göngu- og náttúrulífsferðir sem
útheimta góðan skjólfatnað. Enn-
þá spilum við eftir veðri og eltum
sólina sem er ósköp eðlilegt —
lítið hægt að skoða í úrhellisrign-
ingpi — en mesti munurinn að nú
skuli vera hægt að skjótast í
ódýra gistingu ef veður skipast í
lofti.“
„Landið okkar er náttúruperla,
sem við kunnum oft ekki að meta
fyrr en eftir langdvalir erlendis.
Hve lengi getum við ein notið
þessarar perlu? ísland er ekki
bara „rigning og dýrtíð". Óvíða
fmnum við stórbrotnari náttúru,
meiri kyrrð, frið og öryggi á stór-
um opnum svæðum, hreinna loft
eða betra vatn. Hugsið ykkur
bara útisundlaugamar um allt
land! Gleymið ekki að taka ,já-
kvæðni“ með í farteskið!"
Rofin íslandstengsl?
„Og við megum gæta okkar
að ijúfa ekki tengsl við landið.
Skelfilegt að hugsa sér, að mikið
af ungum íslendingum skuli
þekkja Spán betur en landið sitt.
Nú fara borgarböm ekki eins
mikið í sveit og áður. Bein tengsl
við atvinnuvegina em að rofna.
En við getum heimsótt bænda-
býli og sjávarpláss. Farið í mennt-
andi ferðalög með bömin okkar.
Reykvíkingar hafa gott af að
hvfla sig á kapphlaupi við tímann.
Vera með börnunum sínum úti í
náttúranni. Læra að hlusta á
kyrrðina."
— Þú mælir þá ekki með
ferðasjónvarpi í farteskið?
„Það er margt annað sem rýf-
ur kyrrðina. Innan dyra á ham-
borgarastöðum og sjoppum við
þjóðveginn er oft ókyrrð og allir
að flýta sér. Lítil hvíld að stoppa
þar. Ágætt er að taka með sér
nesti og gefa sér tíma til að
snæða í fallegum lautum úti í
náttúrunni. Ég hvet líka ferðafólk
til að nýta sér sumarréttamatseð-
il sem stöðugt fieiri veitingahús
bjóða. Þar býðst holl, staðgóð
máltíð á hagstæðu verði. Stakar
máltíðir á ferðaþjónustubæjum
eru líka hagstæðar."
Bókasafn í bílnum!
„Ég hvet fólk til að hugleiða
nýjan ferðamáta; að skilja bílinn
eftir og fara í ferðir úr frá vissum
útgangspunktum. Hægt er að
fara með rútu í Laka frá Kirkju-
bæjarklaustri, í ferð upp á Vatna-
jökul frá Höfn, í siglingu um
Breiðafjörð frá Stykkishólmi, um
Það ætti enginn
að villast, því
þarna stendur
hún María Guð-
mundsdóttir við
Torfuna og bíður
eftir íslensku
fer ðamönnun u in.
Við erum til þjón-
ustu reiðubúnar!
Djúp frá ísafirði, út í Hrísey og
Grímsey frá Akureyri, í Kverk-
fjöll og Öskju frá Mývatni. Alla
þessa valkosti og miklu fleiri finn-
ið þið á einum stað hjá okkur.
Og upplýsingar um gistingu,
veiði- og hestaferðir, flug og feij-
ur.
Flestir eru með vegahandbók-
ina og vegakort í bflnum. Nýja
upplýsingaritið „Á ferð um Is-
land“ og ferðahandbókin Land
era líka með kort og leiðarlýsing-
ar. Safnið upplýsingum í fartesk-
ið. Hafið alla valkosti meðferðis
svo að þið getið flett upp í „bóka-
safni bílsins"! Verið búin að und-
irbúa ykkur vel svo að þið njótið
ferðarinnar til fullnustu — jafnvel
þó að veður fari úrskeiðis. Og
með alla valkosti í höndunum,
getið þið líka sett upp kostnað-
aráætlun fyrir innanlandsferðina
— hvað þið ætlið að eyða miklu
í máltíðir, í gistingu, í skoðunar-
ferðir."
Oddný Sv. Björgvins
eyða peningum á veitingahúsum,
oft námsfólk eða barnafjölskyld-
ur. Herbergi eru ýmist stórir salir
eða 6-8 manna herbergi. Koddi
og værðarvoð fylgir hveiju rúmi.
Þeir sem nýta þessa gistingu, taka
oft með sér lakpoka, sérhannaðan
fyrir kodda og sæng — aðrir nota
svefnpoka. Athugið, á farfugla-
heimilinu í Reykjavík má ekki
nota svefnpoka.
Tjaldsvæði
Skráð og skipulögð tjaldsvæði
eru um 96 á íslandi, ýmist í eigu
og umsjón einkaaðila, sveitarfé-
laga, ferðafélaga og Náttúra-
vemdarráðs. í bæklingi yfir tjald-
svæði kemur fram A-, B- og C-
flokkun eftir aðstöðu og þjónustu
á hveijum stað. A: Besta aðstaðan
435, flest með sérsnyrtingu.
Morgunverður er innifalinn. Þau
bjóða öll sumarréttamatseðil.
Ferðaþjónustubæir eru 130.
Þrír verðflokkar í gistingu m/upp-
búin rúm kr. 1.600-2.450 á mann.
Svefnpokagisting í herbergi kr.
1.050. Morgunverður kr. 600.
Hádegisverður kr. 850. Kvöld-
verður kr. 1.200. Sumarhús: 4
verðflokkar. Vikuleiga, 6 manna
hús: kr. 25-34.000. Vikuleiga, 4
manna hús: kr.22-29.500. Sólar-
hringsleiga, 6 manna hús: kr. _
3.950-5.350. Sólarhringsleiga, 4
manna hús: kr. 3.450-4.650.
Hestaleiga á klst. með leiðsögn
kr.1.100.
íslensku farfuglaheimilin eru
24, en 6.000 úti um heim. (Far-
fuglaheimilið, Sundlaugarvegi 34,
Ekki amalegt að
geta skellt sér í
heita útisundlaug
hvar sem er úti á
landsbyggðinni
eftir útiveru dags-
ins.
og þjónustan t.d. Laugardals-
tjaldsvæðið. B: Þjónusta og að-
staða í meðallagi. C: Þjónusta og
aðstaða í lágmarki. Tjaldsvæðin
era yfirleitt opin í júníbyijun fram
til ágústloka eftir veðri og stað-
setningu.
Edduhótel era 17, með 670
herbergi öll m/handlaug, en 70
með sérsnyrtingu. Verð fyrir hjón
í herbergi m/handlaug er kr.
3.800. Svefnpokagisting í her-
bergi án handlaugar kr. 850.
Morgunverður kr. 650. Edduhót-
elin bjóða öll upp á sumarrétta-
matseðil.
íslensku hótelin era 12, öll
heilsárshótel. Herbergi samtals
selur bækur yfir farfuglaheimili í
Evrópu og utan hennar á kr. 600).
Félagsskírteini á kr. 1.100 lækkar
gistingu í kr. 960, sem kostar kr.
1.200 fyrir utanfélagsfólk. Fé-
lagsskírteinið gildir um allan heim
og reynt er að samræma verð í
ólíkum þjóðlöndum. Einstaka far-
fuglaheimili bjóða ódýrar máltíðir
ef pantað er fyrirfram. Morgun-
verður er á kr. 500. Leiga á lak-
poka kr. 240.
Tjaldsvæði eru um 96. Verð
fyrir tjald, tjaldvagn og hjólhýsi
kr. 115-175. Gjald fyrir tjaldbúa
(eldri en 12 ára) kr. 115-175.
Sameinað tjald- og persónugjald
kr. 230-350.
Sumarréttamat-
seðill ferðamannsins
fyrir fjölskyldur á ferð
„Tourist Menu“ (matseðill
ferðamannsins) er þekkt til-
boðsverð hjá veitingahúsum
erlendis. Á matseðlinum er
yfirleitt staðgóð, einföld
máltíð á hagstæðu verði. ís-
lenski ferðamanna-matseðill-
inn ber nafnið „Sumarréttir"
(í gildi frá 1. júní til 15. sept-
ember) og er í boði hjá 58 stöð-
um innan Sambands veitinga-
og gistihúsa allt í kringum
landið.
„Með Sumarréttamatseðli vilj-
um við koma til móts við ferða-
fólk sem áður þorði varla að stíga
inn á hótel og veitingahús, af
ótta við hræðilega háa bakreikn-
inga,“ segir Ema Hauksdóttir,
framkvæmdastjóri hjá Sambandi
veitinga- og gistihúsa. „Nú get'á
bamafjölskyldur á ferð gert sér
dagamun öðru hveiju. Sumar-
réttir eru ókeypis fyrir börn inn-
an 5 ára og 50% afsláttur fyrir
6-12 ára.
Sumarréttir era yfírleitt mat-
seðill dagsins, eða það sem veit-
ingahúsin bjóða best og hag-
kvæmast hveiju sinni, hvort sem
það er nýr fískur eða kjötmeti.
En með „Sumarréttamatseðili"
er tryggt fast verð og hollur,
almennur matur — engin skyndi-
bitamáltíð. Við byijuðum með
„Sumarrétti“ fyrir ferðamenn
1989,“ segir Erna. „Þá buðu 35
veitingahús upp á ferðamanna-
matseðil, 42 í fyrra. í ár bætast
öll Edduhótelin við (nema Eddan
á Akureyri) svo að 58 hótel og
veitingahús era nú með þetta
tilboðsverð.
Það er samdóma álit allra sem
selja erlendum ferðamönnum ís-
landsferðir, að „Sumarrétta-
matseðillinn" sé besta söluaug-
lýsingin. Við höfum haft það orð
á okkur, að matur sé svo dýr
að útilokað sé að ferðast hingað.
Og það hefur verið mjög erfítt
að sannfæra fólk um að hægt
sé að kaupa staðgóðar máltíðir
á hagstæðu verði. En bæklingur-
inn okkar sýnir nöfn og heimilis-
föng veitingastaða allt í kringum
landið sem bjóða máltíðir á til-
boðsverði, svo fólk hlýtur að
trúa.“
— Hafið litla bæklinginn
„Sumarrétti“ með í farteskinu. í
honum eru nöfn allra veitinga-
staða sem bjóða kvöldverð á kr.
1.050-1.600 og hádegisverð á
kr. 800-950.
O.Sv.B.
Leiðrétting
í ferðablaðinu 27. apríl
birtist grein undir nafninu
„Ódýr gisting í London".
Því miður kom ritvilla í
fax-númer undir upplýs-
ingum. Rétt fax-númer hjá
skrifstofunni er: 81540
2733.