Tíminn - 20.11.1966, Qupperneq 3
SUNNUDAGUR 20. nóvember 1966
3
TÍMINN
Bobby Moore, kapteinn enslia
landsliðsins, sem sigraði á
heimsmeistarakeppninni í sum
ar sér nú um sjötíu mínútna
helgistundir í enska sjón
varpinu. Segist Moore ekki
fara reglulega í kirkju, en hann
trúi samt á guð. — í búnings
klefanum áður en úrslitaleikur
inn hófst, bað ég guð um sig-
ur, segir Moore.
59 ára gömul bandarfsk móð-
ir gerði fyrir skömmu örvænt-
ingaríulla tilraun til þess að
skjóta son sinn til bana. Ástæð
an: \Joe sonur hennar hafði
verið kvaddur til flugherþjón-
ustu í Vietnam. Þetta skeði á
Eins og bunnugt er, var
Jolhnson Bandarikjaforseti.
Skorinn upp við æxli í hálsi.
Þessi mynd er tekin við sjúkra
beð forsetans þar sem hann
ræðir við Maðamenn eftir upp
heimili þeirra í Los Angéles
um kvöld þá er Joe fór upp
stigann sem lá að svefn-
herbergi hans. Móðir hans
fylgdi honum eftir. Þegar hún
miðaði byssu sinni að honum
sagði hún með grátstafinn í
kverkunum. „Ég vil ekki að
þú verðir tekinn höndum og
pyntaður af kommúnistum“.Síð
an skaut hún tveimur skotum
að syni sínum. En sem betur
fer hæfði annað skotið ein-
kennisnafnspjald úr málrni,
sem hann bar um háls sér, svo
það geigaði, en hitt fór í hönd
hans. Á eftir ætlaði hún að
fremja sjálfsmorð, en tengda-
sonur hennar og dóttir, sem
höfðu heyrt skotin gátu afstýrt
því.
Brigitte Bardot er mikiil dýra
vinur eins og kunnugt ~r, og
þegar hún eitt sinn las það í
einu dagblaði Parísarborgar að
drepa ætti 300 hunda þar sem
ekki fyndust eigendur að þeun
tók hún sig til og ók á aftöku-
staðinn og kom heim aftur með
bílinn fullan af hundum, _ ails
15 stykki af ýmsu kyni. í tii-
efni þessa sagði Brigitte við
aðdáendur sína: Sá sem elskar
jmig tekur að sér munaðar-
Lausan hund.
Það hefur tíðkazt að undan-
förnu að griskar unglingsstúlk-
ur hafi komið til Svíþjóðar og
dvalizt þar nokkurn tíma og
þá aðallega unnið á sænskum
heimilum. Að því er sagt er
í Aþenu um þessar mundir,
þurfa Svíar ekki að vænta bess
að fá húshjálp frá Grikkiandi
á næstunni, og það er enginn
annar en Ingmar Bergman
hinn fraegi leikstjóri, þeirra
Svía, sem á sökina á því. flafa
griskir foreldrar, sem annað
hvort hafa séð eða heyrt um
kvikmynd hans „Þögnina" bann
að dætrum sínum að fara til
Svíþjóðar, þessa „siðferðis-
lausa lands í norðrinu."
Þess er skemmst að minuast,
að Lyndon B. Johnson, fór í
heimsókn til Suðaustur-Asíu. Á
þeirri ferð sinni kom hann einn
ig til Ástralíu og þegar hann
kom til Camberra, kom i ljós,
að hann þurfti ekki að feriSast
í venjulegri bifreið, eins og
búizt hafði \verið við þvi, að
sérstök flugvél hafði komið mcð
hina skotheldu bifreið forset-
ans frá Bandaríkjunum og beið
eftir forsetanum, þegar hunn
kom til landsins.
Moise Tshjombe, fymer-
andi forsætisráðherra í Kongo
og sem dæmdur var að hon-
um fjanverandi fyrir landráð,
hefur enn verið auðmýktur og
það enn meir en nokkru sinni
áður að sögn, og er það núver-
andi ríkisistjórn Kongó, sem er
þar aÖ verki. Hefur landbún-
aðarráðherra landsins tilkynnt
að skítugasti og ljótasti sim-
pansínn í dýragarði höfuðborg-
arinnar, hafi verið skírður Tshj
om-be. í lögum í Kongó er
hins vegar bannað að kalla
Kongóbúa apa!
Elizabeth Taylor hefur nú
fylgt fordæmi Sophiu Loren
og klæðist ekki kjólum sam-
kvæmt stuttu tízkunni. Ástæð-
una segir leikkonan vera þá,
að hné hennar séu svo stór
og Ijót, að hún telji ekki ástæðu
til þessað sýna þau.
Frank Sinatra á ekki upp á
pallborðið hjá Hollywood-
stjömum um þessar mundir.
Hafði Frank lýst því yfir
opinberiega fyrir skemmstu,
að um 30% allra kvikmynda-
leikara þar væri með gervi-
tennur, 15% hefðu hárkollur og
60% af öllum karlleiburunum
gengju í lífstykki af eihhverri
gerð. \
Borgarstjóri New York borg
ar hefur nú hugsað sér að gera
eins konar bót á broturn sín-
um og fara til Vínar ti’. þess
að reyna að bæta miskiið þá,
sem ríkir á milli þessara tveggja
stórborga um þessar mundir
en Vínarbúar eru mjóg sárir
út af þeim móttökum, sem ut-
anríkisráðherra Austurrikis,
fékk hjá borgarstjóranum' fyr-
ir skemmstu. Hafði utdnrikis-
ráðherrann farið til New York
til þess að vera viðstaddur
vígslu hinnat nýju Metró-
pólitanóperubyggingar. Hafði
Lindséy þá látið ráðherrann
bíða í 25 mínútur fyrir utan
skrifstofu sína og þykir Vínar
búum þetta ekki viðeigandi,
framkoma af borgarstjóranum.
★
George Hamilton, hinn trúi
og dyggi fönusveinn Lyndu
Joihnson á nú að fara að leika
í kvifcmynd sem gerð er í sam-
Ivinnu miilli Bandaríkjamanna
og Þjóðverja og er þetta að
sögn í fyrsta skipti, sem þessar
þjóðir vinna saman að kvik-
mynd. Annars ræða Bandaríkja
menn ennþá mikið um það,
að Hamiltton hafði ekki verið
kallaður í herinn og á hann
að hafa sótt um undanþágu þar
sem hann þyrfti að sjá fyrir
móður sinni. Einnig er farið
að hafa orð á þvi að Lynda sé
farín að sj'ást með öðrum föru-
naut.
★
Stutta tízkan ryður sér nú
æ meira til rúms og virðist nú
í þann mund að ná hámarki
sínu. Myndin er tekin í Kal:-
forníu og það er Maryke de
Ruyter, sem hér ber brúðar-
skart sitt og er ekld annað
hægt að segja en að kjóllinn
sé anzi stuttur. Eftir brúðkaup
ið, sagði Maryke, að hún yrði
nú að viðurkenna það, að ’nún
hefði nú verið hálfrög við að
ganga í þessu skarti sínu inn
kirkjugólfið. Hins vegark ippti
brúðguminn sér ekberi upp við
þessa útrústingu og sagði bara
að þeim geðjaðist ósköp vel
að stuttu tízkunni.
I