Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1991, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1991, Page 5
sem hljómsveitarstjóra. Hann komst eitt sinn svo að orði um konu sína: „Ég held að ég hafi aldrei kynnzt neinum sem var jafnmikill tónlistarmaður að eðlisfari og hún. Eðlisávísun hennar var fullkomin. Hún sá tvær nótur, skynjaði þær út í hörg- ul og lék þær þannig að maður varð orð- laus.“ Stöðug Ferðalög — Versnandi Heilsa Árið 1970 var þess minnzt að 200 ár voru liðin frá fæðingu Luswigs van Beet- hoven og Barenboim-hjónin fluttu verk hans um víða veröld það ár auk annarra verkefna. Þau léku tvö tríó eftir hann ásamt Pinchas Zuckerman með slíkum ágætum að þeim var líkt við Rubinstein, Piatigorsky og Heifetz. Þetta svokallaða „súper-tríó“ lék inn á fimm stórar hljóm- plötur öll píanótríó meistarans auk ann- arra verka á mettíma þetta ár. í ágúst hafði Jacqueline leikið sónötur Beethovens með Barenboim fyrir troðfullum húsum í Toronto, Los Angeles, Brighton, Tel Aviv, London og Edinborg. Hún hafði einnig leikið konserta eftir Haydn og Saint-Saéns í San Francisco og New York og á árlegri tónlistarhátíð í London lék hún mörg verk eftir Beethoven og kammermúsík eftir Bach. í september fór hún aftur í langferð til Ástralíu ásamt manni sínum til að taka þátt í hátíðahöldum vegna afmælis Beet- hovens. Þar fengu þau konunglegar mót- tökur og fjölmiðlar fjölluðu mikið um „undrabörnin tvö og dýrlegt hjónaband þeirra“. Einn gagnrýnenda komst svo að orði eftir tónleika þeirra að þeir hefðu verið „endumærandi lífreynsla og höfðu þau áhrif á mig að mér fannst heimurinn ekki svo slæmur þrátt fýrir allt“. Eftir Ástralíuferðina lá leið Jacqueline til London, Toronto, New York, Michigan og aftur til New York og í árslok fóru fram tvær viðamiklar upptökur á leik hennar með bandarískum hljómsveitum undir stjóm Barenboims. Þrátt fyrir stöð- uga sigra var henni ljóst að heilsu hennar fór hrakandi. Hún þreyttist fljótt og stund- um greip hana þvílíkt magnleysi að hún gat varla opnað ferðatösku eða lokað glugga. Hún fann fyrir doða í fingmm og varð stundum fyrir skyndilegum sjóntmfl- unum. Hún leitaði til lækna en engin skýr- ing fannst. Hún leit vel út þótt hún væri þreytt og taldi sig knúna til að standa við gerða samninga en hún var sem fyrr bók- uð langt fram í tímann. Hún fylltist þung- um áhyggjum og þar sem engin sjúkdóms- greining lá fyrir, töldu ýmsir, m.a. hún sjálf, að sjúkleiki hennar stafaði af sálræn- um rótum. Hún var að vísu mjög þunglynd um þessar mundir en það var afleiðing sjúkdómsins én ekki undirrót hans. Áður hafði. hún getað fengið útrás á sellóið fýr- ir tilfinningalega vanlíðan en nú var sú leið torfærari en áður. Að lokum tók hún sér hvíld og kom ekki fram í 16 mánuði. Barenboim var orðinn áhyggjufullur vegna konu sinnar og tók sér frí um stund- arsakir hennar vegna. Þau höfðu nýlega fest kaup á góðu húsnæði og komu sér þar fyrir og Jacqueline leitaði til dr. Walt- ers Joffe sálfræðings til að freista þess að fá bót meina sinna. Á þessum tíma þótti mikil skömm að því að leita til sál- fræðings og ekki fór hjá því að ýmsar miður skemmtilegar sögur bærust út um andlegt heilsufar listakonunnar. Og ekki gekk það þrautalaust fyrir hana að tjá sig með orðum því að slíkt var henni algerlega framandi. Eigi að síður náði hún góðu sambandi við dr. Joffe og hvíldin hafði góð áhrif á hana. Reiðarslagið Dynur Yfir í júlí 1972 fór hún að leika opinberlega að nýju og stundum tókst henni vel en stundum miður. Þótt hún gæfi sig alla tónlistinni á vald fann hún sjálf að eitt- hvað var að. Hún, sem hafði ævinlega elsk- að tónleikapallinn, fylltist öryggisleysi og skelfíngu þegar hún kom fram. Það eina, sem hún hafði átt með öruggri vissu, var trúin á eigin snilligáfu, en nú gat hún ekki reitt sig á hana lengur. Gagnrýnandi New York Times skrifaði eftirfarandi um tónleika hennar í Fílharmóníuhöllinni í New York 25. janúar 1973 og kvað þar við annan tón en þann sem undrabamið og snillingurinn átti að venjast: „Einstaka tónhendingar voru undurfagrar en það skorti heildarmynd og rökræna uppbygg- ingu í leikinn. Verkin voru keyrð áfram af heljarafli sem virkaði eins og vanhugs- aður og tilgangslaus æsingur." Með hijómsveitarsljóranum Sir John Barbirolli í hljóðveri EMI eftir upptöku. Með eiginmannin um, Daniel Barenboim, eftir tónleika í Pálskirkjunni í London 1976. Enn sem fyrr var talið að mistökin stöf- uðu af andlegu álagi og hún flaug rakleið- is til London til fundar við sálfræðing sinn og sótti hjá honum styrk til að halda tón- leika í Festival Hall, sem reyndust þeir síðustu þar. Ferli hennar í þessum tónleika- sal lauk með sama verki og hún hafði heillað áheyrendur með, 17 ára gömul, þ.e. Elgar-konsertinum. Allt gekk vel, aðdáendur fögnuðu henni hjartanlega og gagnrýnandi Guardian hrósaði henni sér- staklega fyrir að hafa náð fram þeim áhrif- um sem svifu yfír vötnum í þessu loka- verki Elgars og tályia sársauka og sjálfs- vorkunn, — vissu þess að birtan er á undan- haldi og myrkrið að skella yfir. Án þess að gagnrýnandinn gerði sér það ljóst áttu þessi orð við um ævi- og listaferil undra- bamsins sem slegið hafði í gegn á þessum stað fyrir tólf árum og unnið hug og hjörtu listunnenda um víða veröld. Myrkrið var að skella á. Nokkrum dögum síðar fór hún til New York þar sem hún átti að koma fram ásamt Pinchas Zuckerman og Fílharmóníuhljóm- sveitinni í New York. Þegar hún mætti til æfínga gat hún ekki opnað sellókassann, hafði litla stjórn á boganum og fann varla fyrrir strengjum hljóðfærisins. Þótt allt færi í handaskolum og hún vildi helzt af- lýsa tónleikunum gat stjórnandinn, Leon- ard Bernstein, talið hana á að láta slag standa. Tónleikarnir vora gersamlega mis- heppnaðir og þótt listakonan væri alger- lega miður sín fór ekki hjá því að hún fyndi fyrir vonbrigðum áheyrenda. Daginn eftir fór Bernstein með hana til læknis og enn á ný var sjúkdómsgreiningin sú sama — taugaálag. Sjö skelfilegir mánuðir liðu þar til Jacqueline du Pré komst að raun um að það var ekki andlegt heilbrigði sem hafði brugðist henni heldúr líkamlegt. Það vora læknar á St. Mary’s-sjúkrahúsinu í Paddington sem kváðu upp úrskurðinn — MS-sjúkdómur eða mænusigg. Hjónabandið Fjaraði Út MS-sjúkdómur veldur truflun á tauga- boðum og skemmd í hvíta efni heilans. Hann er ólæknandi, ágerist með mismun- andi hraða, veldur þreytuköstum, mátt- leysi í höndum og fótum, skjálfta, sjón- traflunum og sársauka. Smám saman hætta sjúklingar að hafa vald á hreyfing- um sínum og eru bundnir við hjólastól. Þegar Jacqueline var leidd í allan sann- leika um hvað biði hennar fann hún samt til léttis. Óvissan hafði gengið svo nærri henni. En að sjálfsögðu var skelfilegt að horfast í augu við þennan bitra raunveru- léika og gera sér ljóst að glæsilegur listfer- ill var á enda kljáður. Barenboim var niður- brotinn maður, aflýsti tónleikum og vildi allt fyrir konu sína gera, en eigi að síður tókst þeim ekki að sameinast framipi fyr- ir örlögunum. Olga Rejman, tékknesk kona, sem þau fengu til að annast heimilis- haldið, fer mörgum fögrum orðum um þá umhyggju sem Barenboim auðsýndi konu sinni: „Hann var eins og engill — færði henni gjafir, bækur, blóm og hringdi til hennar daglega. Hann verðskuldaði geislabaug um höfuðið ... Hún var af- brýðisöm yfir því að hann naut frægðar áfram en ekki hún. Þegar hann lék á píanó- ið sagði hún: — Ekki spila, ekki spila. Hún þoldi ekki að hlusta á hann. Hún var mjög afbrýðisöm. Þess vegna hlustuðum við á plöturnar hennar...“ Eigi að síður þótti Olgu mjög vænt um Jacqueline og var henni eins og móðir í mörg ár. Og ekki vandaði Olga fjölskyldu sjúklingsins kveðjurnar. „Hún þurfti að múta þeim til að koma í heimsóknir. Þau komu í neyðartilvikum en stundum létu þau ekki sjá sig í heilan mánuð .. . það ríkti engin ást _og skilningur innan þessar- ar fjölskyldu. íris var tilfinningalaus eins og grýlukerti.“ Vinir þeirra hjóna segja einnig að Bar- enboim hafi lagt sig fram um að sýna konu sinni skilning og kærleika en ekki náð til hennar. Og nú gátu þau ekki notað mál tónlistarinnar til að slaka á spennunni sem hlóðst upp á milli þeirra. Árið 1974 var Barenboim boðið að taka við stöðu list- ræns framkvæmdastjóra Orchestre du Paris. Hann þáði boðið, ekki sízt fyrir áeggjan konu sinnar, og fyrir bragðið dvaldist hann a.m.k. fjóra mánuði árlega í París en kom reglulega heim, a.m.k. í fyrstu. Jacqueline vildi ekki leggja stein í götu manns síns og vera honum stöðug byrði. Sjúkdómurinn hafði einnig sína lam- andi hönd á samlíf þeirra og hvorugt eygði nokkra leið út úr vandamálunum. Næstu ár var hún viðstödd tónleika hans í Lon- don og heimsótti hann jafnvel til Parísar en smám saman fjaraði hjónabandið út. í París tók Barenboim upp sambúð við Hel- enu Bachirov píanóleikara og átti með henni tvö börn. Það fór að vísu leynt og ekki er vitað hvort Jacquelina hafði hug- mynd um það þótt sjálfsagt grunaði hana sitt af hveiju. í lokin má líta svo á að hjónabandið hafi einungis verið til á pappírnum sem fjárhagsleg hagkvæmni- ráðstöfun. Dapurleg Endalok Jacqueline reyndi að njóta lífsins eftir föngum þrátt fyrir sjúkdóminn. Hún hélt framhaldsnámskeið fyrir nemendur í selló- leik við og við fram til ársins 1980. Hún gat að sjálfsögðu alls ekki haldið á hljóð- færi en söng og blístraði og sagði fyrir um tæknileg atriði. Þetta var raunar í fyrsta sinn á ævinni sem hún talaði um tónlist sína. Áður fyrr hafði hún látið sér nægja að leika, en núna varð hún að grípa til málsins í samskiptum við nemendur og þar kom sér vel sú þjálfun sem hún hafði hlotið með viðtölum við sálfræðinga. Enn- fremur tók hún nemendur í einkatíma allt fram til ársins 1986 og þeir minnast henn- ar með kærleika 'og virðingu. Hún var ófeimin við að láta sjá sig á mannamótum og vinir hennar tóku hana með sér á tón- leika þegar tækifæri gáfust. Hún vakti hvarvetna athygli, glæsilega klædd í hjóla- stólnum sínum og gamla brosið lék enn um varir hennar. Hún kom jafnvel fram með Ensku kammersveitinni löngu eftir að hún hætti að leika. Að þessu sinni var hún í hlutverki sögumanns í verki Prokofi- efs, Pétur og úlfurinn, sem flutt var til ágóða fyrir styrktarsjóð sem þau Barenbo- im höfðu stofnað í nafni hennar, og fór með textann af mikilli innlifun. Margir háskólar veittu henni heiðurs- nafnbætur. Hún hafði unun af því að taka á móti gestum og sýndi þá venjulega af sér kæti. En sú kæti var oft uppgerð. Það er ekki rétt, sem haldið hefur verið fram, að hún hafi mætt örlögum sínum með fullkomnu jafnaðargeði. Iðulega þyrmdi yfir hana. Hún átti í miklu sálarstríði og ekki bætti það úr skák að sumir nera henni því um nasir að hún hefði sjálf kallað yfir sig sjúkdóminn með því að ganga af kristinni trú. Þar á meðal var hjúkranarkonan sem hún var algerlega háð síðustu árin. Gamlir vinir héldu tryggð við hana en mörgum reyndist erfítt að horfa upp á hrörnun hennar og komu því ekki eins oft og skyldi. Fjölskyldan sneri nánast við henni baki og annað samferða- fólk hvarf smátt og smátt af sjónarsvið- inu. Að lokum var hún nær algerlega ein- angruð, eins og hún hafði verið í æsku, og það var einveran sem lék hana verst. Hún lét spila fyrir sig plöturnar sínar aft- ur og aftur en ekki gat hún fengið úrás með því að gráta. Sjúkdómurinn gekk svo nærri henni að hún megnaði ekki að gráta síðustu árin. MS-sjúkdómurinn er ekki banvænn en hann veikir mótstöðu sjúklinganna og þeir verða sjaldan langlífír. Oft er það lungna- bólga sem verður þeim að aldurtila og svo var einnig um Jacqueline du Pré, 13 árum eftir að sjúkdómurinn var greindur. Við dánarbeð hennar var meðal annarra gamli kennarinn hennar, William Pleeth, sem Carol Easton þakkar sérstaklega fyrir samvinnuna við gerð bókar sinnar. Áður en Jacqueline skildi við brá hann á fóninn plötu þar sem hún túlkar sellókonsertinn eftir Schumann á sinn einstæða hátt og endirinn kallar bæði fram harm og hug- svölun. Guðrún Egilsson tók saman. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. SEPTEMBER 1991 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.