Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1991, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1991, Side 10
Enska bjórkráin Heimsþekkt fyrirbæri frá sjónarhomi Lundúnabúans FLESTIR hafa heimsótt enska bjórkrá, jafnvel þeir sem aldrei hafa komið til Englands. Eftirlíkingar af þeim finnast um allan heim, á Islandi sem og annars stað- ar. En hvernig lítur innfædd- ur Lundúnabúi, Richard Þór Lee á fyrirbærið? „Við endum þar fyrr eða síðar,“ segir Richard Þór. „Fyrir okkur skiptir það engu máli hvort sól skín í heiði eða helli- rignir. Við förum þangað til að hitta vini og kunningja; til að borða ódýran mat; til að hlusta á dæg- urtónlist og eiga góða stund eftir eril dagsins. Margar breskar hljóm- sveitir hafa byijað feril sinn á bjór- krám. Hvergi er betri staður til að kynnast Bretanum en á kránni. Hvort sem þið gangið inn í troðfulla Lundúnakrá í hádegishléi skrifstofu- fólksins; eða friðsæla sveitakrá við þjóðveginn munið þið allt- af sjá litríkt mannlíf í hnot- skurn. Á vetrarkvöldum er góð hvíld að sitja við arineld og sötra brúnt froðuöi. Og á heitum sum- arsíðdögum er róandi að setjast utan við krána með einn léttan og brauðkörfu. Notaleiki gamla tímans Nýlega hafa innviðir bresku kránna tekið gagngerum breyt- ingum. „Nýtísku“krár í kringum 1960- voru skreyttar með plasti og framreiddu bjór, fuilan af kemískum efnum. Nú eru krárn- ar í hefðbundnari stíl. Samtök stærri kráreigenda hafa staðið fyrir því, að í kránum séu viðar- gólf, borð og stólar sem gefa hlýlegra yfirbragð. Eftirprent- anir málverka frá Viktoríu- tímanum og gömul hljóðfæri eru vinsælar skreytingar. Nokkrar krár brugga eigin Bjórnum tappað af svo milljónum iítra skiptir. bjór sem er yfirleitt alltof sterk- ur. í einum stað í Norður-Eng- landi er t.d. boðið upp á hálfan lítra fyrir um kr. 260. En þessi sérstaka tegund er svö sterk að jafnvel hálfur lítri getur fengið þig til að dansa á borðunum. Hinn svonefndi eiginlegi bjór „real-ale“ er sterkur, aðeins sírópskenndur og alveg lífrænn. En áhrif hans geta valdið meiri skynvillu en ölvun. Hvað er bjór? Bjór er samsettur úr malti (gefur bragðefni, styrkleika og krydd), humlum (gefur beisk- leika til að vega á móti malt- inu), sykri (gefur styrkleika og sætleika). Korntegundir eru stundum notaðar til að drýgja og bragðbæta. Gerlar breyta sykri í áfengi og koltvísýrings- gas mestu af ölkelduvatninu. Jafnvel sterkustu bjórtegundir innihalda 90% af vatni. Besta ábending um styrkleika er uppr- unaleg þyngd (O.G.) sem er oft- ast merkt á bjórdælunum, frá O.G. 1030 til O.G. 1070. Því þyngri O.G. þeim mun sterkari bjór. Best er að velja bjór (O.G. 1040-1050) sem er þægilega sterkur án þess að valda of mikl- um áfengisáhrifum. Utilokað er að telja upp allar þær hundruð bjórtegunda sem eru á boðstólum. Oft er bannað að selja vissar tegundir utan svæðamarka bjórverksmiðjunn- ar. Sem Lundúnabúi er ég hrifn- astur af Fullers sem er fram- leiddur í London. Stolt framleið- enda Fullers er hefðbundni bjór- inn (O.G. 1042) en þeir fram- leiða einnig „E.S.B.“, mjög sterkan bjór. Guiness-bjórinn er líka í uppáhaldi, dökkur með hvítan froðukoll, litur og bragð Bjórkönnum klingt með bros á vör. kemur að hluta vegna þess að byggið er mulið og brennt. Guin- ess er meðalsterkur, bragðmikill og fyllandi. Hvað veita krárnar meira? Flestar krárnar selja kaffi og allar bjóða úrval gosdrykkja og ölkelduvatns. Nýlega er búið að lengja opnunartíma kránna í tengslum við nýja löggjöf. Gömlu lögin voru sett í fyrri heimsstyijöld til að tryggja að verkamenn við vopnaframleiðslu kæmu tímanlega í vinnu. Tónlistarkrár hafa oft opið til kl.1.00 eftir miðnætti og klúbb- ar langt fram á nótt. Hægt er að fá góðar, ódýrar máltíðir, einkum hádegisverð. Má glöggva sig á matseðli utan- dyra. Mikil samkeppni er á milli kránna og staðgóð krármáltíð getur verið miklu ódýrari en á miðlungs veitingahúsi. Aldursmörk og misjafnt verð Börn innan 16 ára fá ekki inngöngu. Og samkvæmt lögum má enginn undir 18 ára neyta áfengis. Unglingar, 16-18 ára, mega setjast inn, en aðeins neyta óáfengra drykkja. Fyrir ungar fjölskyldur er betra að heimsækja krámar yfir sumar- mánuðina þegar allir geta setið utan dyra. Og stundum er ekki amast við börnum inni á krán- um, ef þau eru stillt og lítið að gera við afgreiðslu. Bjórinn er mæltur í 1 „pint“ (568 ml) og hálfum „pint“ (284 ml) og hægt að fá hann fram- reiddan í bjórkönnu og glasi. En áfengir drykkir em fram- reiddir einfaldir, tvöfaldir o.s.frv. Vín hússins má fá í glös- um og yfirlejtt bundið við eina tegund af hvítu og rauðu víni. Á krám er mjög dýrt að kaupa heila vínflösku. Hagstæðara á veitingahúsi sem er með meira úrval. Dýrasti hálfur lítri (pint) af bjór er nú um kr. 165; einn „einfaldur" um kr. 104; vín í glasi aðeins dýrara. Verð er misjafnt, en himinhátt verð þarf ekki að óttast, nema stefnt sé á næturklúbb. O.Sv.B. Ævintýraeyjan Madeira Sundlaugargarðurinn Lido. kvöldverð um borð í skrautlýstu eldra lystiskipi, með gljáfægðum látúnshandriðum og þykkbólstr- uðum sætum í gömlum stfl. Eða ganga eftir flotbryggju og vera út af fyrir sig í litlum báti. Og flug- eldasýningar á fallegum kvöldum skemmta matargestum. En, æ, þessi veitingahús eru í garigvegi efnaðra farþega af lystiskipunum sem alltaf lóna hér úti fyrir. Það má gæta sín á ólíku verðlagi. Les- ið á matseðla sem stillt er út og berið saman verð. Frægasta veit- ingahúsið á Madeira er Villa Cliff við hið sögufræga Reid’s hótel. Nei, það er gamla hverfið hand- an við gamla tollhúsið sem á engan sinn líka, (nema ef vera skyldi gamla hverfíð í Porto, höfuðborg N-Portúgal). Athugið, gæðastimp- ill veitingahússins er við dyr eða á glugga. Annars flokks veitingahús- in reyndust okkur betur, með alveg eins góðan mat, skömmtuðu rífleg- ar og voru töluvert ódýrari. Á Restaurante Sao Jósé fæ ég bestu máltíð mína hingað til „Espada" eða sverðfisk, bein- og roðflettan, steiktan í smjöri og cay- enna pipar, með lauk, sveppum, ijóma og eggjarauðu. Og kokkur- inn leggur lokahönd á fiskinn fyrir framan þig, hellir koníaki og grænu víni yfir og eldsteikir. Að óreyndu hefði ég ekki haldið að fiskur gæti verið betri en súkkulaði. Og mæla má með risarækjum með hvítlauks- kryddi í forrétt. Þú sérð sverðfískinn á fískmark- aðinum í Funchal, forljótan og margtenntan, en mjúkan og bragðmikinn. Og fiskast aðeins við strendur Madeira og við Japan. Djúpfiskur sem lifir ekki í grunnu vatni. Og það er sannarlega þess virði að fara á markaðinn. Til að sjá allar ólíku fisktegundirnar, sjá alla ávextina öll blómin og körfum- ar. Blómasölukonur á Madeira verða að klæðast þjóðbúningum við blómasölu. Að ganga inn á leiksvið Hér er elsta byggðin í Funchal. Við njótum þess að sitja í miðju iðandi mannslífsins allt í kring. Mér fínnst ég vera stödd á leik- sviði. Inni í andrúmslofti sólar, sjávarseltu og lífsgleði. Á bak við gamla tollhúsið er almennings- ströndin. Þeir fullorðnu sólbaka sig á sjávarklöppum. Krakkar safna kröbbum og kuðungum í lífríki fjör- unnar. Veðurbarinn sjómaður að greiða úr neti, á meðan frúin hrýt- ur á bedda í aðgerðarkofanum. Rétt hjá hópur sjómanna yfír spil- um á tunnuloki. Alls staðar blaktir þvottur og forvitin konuandlit í opnum gluggagáttum. Og biðröð við brunninn. Gamall maður rogast fram og aftur með stóra vatnsfötu — engin vatnslögn í hans húsi. Skyndilega er athygli allra vak- in. í hliðargötu stendur hópur karla yfír tveimur bíldruslum sem hafa snerst lítillega. Það sér ekki á þeim, en bílstjórarnir fá tækifæri til að sýna sig á sviðinu. Sjaldan hef ég séð leikrænna sjónarspil. Þarna standa þeir andspænis hvor öðrum og ýfa sig eins og reiðir hanar, setja sig í ótal bardaga- og glímu- stellingar vel meðvitaðir um konu- andlitin sem beinast að þeim. Og það er ekki hvíslað, en hvert orð látið hljóma áhersluþrungið. Sjálfur Macbeth hefði ekki gert betur. „Leikritið” gengur á annan tíma. Allir skemmta sér vel. Litlu strák- amir sitja álengdar, drekka í sig hvert orð og bíða þar til þeirra tími kemur. KJaustur og- kirkjur heilagra kvenna Árla á sunnudagsmorgni klíf ég upp bratta hæðina að klaustrinu, en nem fyrst staðar við minnis- varða Zarco, portúgalska sæfarans sem fann Madeira, gerðist ríkis- stjóri hér og stofnsetti klaustur heilagrar Klöru, Convento de Santa Clara. Ofan við klaustrið er hús Zarco, Quinta das Cruzes eða „hús krossanna" listmuna- og málverka- safn og stór tijágarður í kring með áhugaverðum kirkjuhöggmyndum innan um blómaskrúðið. Eftir sólarhitann og erfíðið er gott að eiga hljóða stund í svala klausturkirkjunnar. Nunnurnar liggja hreyfingarlausar á hnjánum framan við altarið. í hálfrökkrinu renna líkamar þeirra næstum sam- an við kirkjulíkneskin. Og svona geta þær kropið svo klukkutímum skiptir. Og áfram uþp í hæðirnar. Gleymið ekki að heimsækja fjallabæinn Monte ofan við Funch- al. Blómagarðurinn í árgilinu er yndisfagur. Leggið líka endilega á ykkur að klífa tröppustíginn að kirkju heilagrar Maríu (þeir trúar- heitu ganga á hnjánum með talna- band í höndum.) Eftir klifíð upp, þótti erfítt að ganga niður fyrir daga bílsins. Þá brugðu Madeira-búar á það ráð að flétta körfusleða fyrir breska aðal- ínn og renna sér á fleygiferð með þá niður í Funchal. Körfusleða- brautin er enn til staðar nú aðdrátt- arafl fyrir ferðamenn. Gætið ykk- ar, hún er ekki fyrir lofthrædda eða hjartveika og slys hafa orðið á fólki. Eldgígur nunnanna Ég sit uppi í tærum, hlýjum fjallasal, Poiso (1412 m) en þaðan sér yfír alla eyjuna. Héðan liggja gönguleiðir um landslag sem minnir á Landmannalaugar að lit- auðgi, en hillingar í hitamóðu fá það til að líkjast dulrænu, kínversku málverki. Madeira er eld- fjallaeyja eins og ísland. Héðan sést ofan í eldgíginn þangað sem nunnurnar flúðu og földu sig fyrir innrásum Spánveija 1580. Víða eru tjaldbúðir í fjöllunum ofan við skóglínu, enda öruggt og friðsælt, aðeins kanínur, fiðrildi og fuglar á vappi. Skógarverðir eru alltaf á vakt „uppi“ eins og Ma- deira-búar nefna fjöllin. Landn- ámsmenn létu skóglendið loga glatt til að ryðja fyrir akurlendi og hús- um sumar sagnir segja að skógar- eldar hafi geisað í 5 ár, aðrar í 7 ár en hér vex allt jafnóðum aftur. Sykur og vín Eyjan dregur nafn sitt af þéttu skóglendi, en Madeira þýðir „timbureyja" þó að margir álíti nafnið eiga skylt við hin frægu Madeira-vín. Portúgalar þóttu him- in höndum tekið hafa þegar Mad- eira fannst. Aðrir Evrópubúar fögnuðu ekki síður, því héðan flæddi þessi stórkostlegi sykur yfir alla Evrópu. Hingað voru fyrstu Afríkuþrælarnir fluttir á plantekr- urnar. Öllum sykrinum var skipað út frá Funchal. Segja má að „borg sykursins" hafi breyst í „borg vínsins". Madeira-vínin eru heims- þekkt fyrir gæði og auðvitað er vínsafn í Funchal í gömlu klaustri frá 16. öld. Jafnvel Shakespeare skrifaði um vínin okkar, segja Madeira-búar. Blómaskreytingar fyrir páfann Orkideur og rósir standa í fullum skrúða í jurta- og skrúðgarði Mad- eira, þó að portúgalskur vinur hafi sagt, að búið væri að klippa þær allar vegna páfaheimsóknar í vor. Allar götur, allar gangstéttir í Funchal voru þaktar afskornum blómum þegar páfinn kom. Þá hefði verið gaman að vera hér. í Madeira er margt að una sér við. Eyjan er ekki stór, en nátt- úrufegurð mikil. Best er að leigja sér bfl, ef þið eruð ekki hrædd við að aka eftir þröngum, bröttum fjallvegum. Fólkið hér er svo inni- lega ánægt með eyjuna sína. Hvert farið þið í frí, spyr ég leiðsögu- manninn? „Við förum til Porto Santo (klukkutímaferð með bát). Þar er svo friðsælt og góð sand- strönd.“ Farið þið ekki til Portúg-al? „Stundum" er svarið. Oddný Sv. Björgvins.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.