Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1991, Page 11
M
B 1 L A R
Alþjóðlega bílasýningin í Frankfurt:
Mikið um nýjungar og margir
bílar fá andlitslyftingu
Nú um helgina Iýkur í Frankfurt í Þýskalandi alþjóðlegu bílasýningunni sem þar
er haldin annað hvert ár. Um 1300 sýnendur frá 30 löndum kynntu þar nú í 54.
sinn allt það nýjasta sem þeir höfðu upp á að bjóða, bæði bílaframleiðendur og
þeir sem framleiða hvers kyns aukahluti og annað er tilheyrir bílgreininni. I þetta
sinn' voru þó atvinnubílar og tæki ekki með, nógu umfangsmikil var nú sýningin
samt, en slík tæki verða sýnd næsta vor í Hannover. Yfirskrift sýningarinnar var
um hreyfanleika og áreiðanleika bíla og það var áberandi hversu margir framleið-
endur fjölluðu á einhvern hátt um umhverfismál og héldu fram möguleikum á endur-
vinnslu bíla sinna. Blaðamaður Morgunblaðsins skoðaði sýninguna og verða i dag og
á næstu kynntar helstu nýjungar sem þar bar fyrir augu.
Isjö sýningarsölum voru sýndar um 40
gerðir bíla, flest merki sem við þekkj-
um af íslenskum bílamarkaði en einn-
ig bílar frá nokkrum framleiðendum
sem sjaldan eða aldrei sjást hér, Ferrari,
Lotus og Yugo og allt þar á milli. Framleið-
endur tóku sér mismikið rými til að sýna
gripi sína, allt frá heilum sýningarsal eins
og Mercedes Benz niður í nokkra fermetra
en á öllum básum var lögð áhersla á að ná
athygli með skemmtilegri framsetningu.
Nýir bílar sem þarna voru sýndir í fyrsta
sinn voru m.a. Golf frá Volkswagen, Astra
frá Opel, Mazda MX-6, Toyota Camry,
Toledo frá Seat, Volvo 850, Peugeot 106
og Honda Civic. Þá má nefna skutbíl í 500
línunni frá BMW, Citroen XM skutbíl, nýja
blæjubíla frá Mercedes Benz, Renault 19
og margir framleiðendur sýndu ýmsar minni
háttar breytingar á útliti eða bjóða nýjar
vélar. Þá mátti einnig sjá allmargar frum-
gerðir og sportbíla, bíla sem eru allt að því
hrein leikföng en eru þó framleiddir til að
kanna rækilega ýmsan nýjan búnað sem
oft er tekinn upp í hinn venjulega íjölda-
framleidda fjölskyldubíl. jt
Ég vil bíl sem veldur umferðarhnútum sagði einn af forstjórum Chrysler við
hönnunarmenn sína og hann fékk Chrysler 300 sem er vægast sagt dálítið
óvenjulegur - og áreiðanlega til þess fallinn að fá menn til að reka upp stór
augu. Vélin er 8 lítra VI0 og 450 hestafla með fjögurra þrepa sjálfskiptingu.
Hún á einnig að geta brennt metanoli eða bensínblöndum sem þýðir minni
mengun. BíIIinn er búinn þjófavörn þannig að eigandinn verður að renna per-
sónuskilríkjum sínum gegnum skynjara ef gangsetning á að vera möguleg.
Meðal þeirra bíla sem frumsýndir voru í Frankfurt var Honda Civic.
Toledo er nýr bíll frá Seat í 11 grunngerðum og með 6 vélargerðum, 1,6 til
2,0 lítra, 70 til 128 hestöfl. Hann er af millistærð, er 4,32 m langur og vegur
kringum 1.000 kg.
Subaru Justy með sjálfskiptingu
Subaru Justy er meðal smábíla frá Subaru-umboðinu Ingvari Helgasyni hf. sem
selst hafa vel en meira hefur þó selst af Legacy frá Subaru sem fyrst kom fram
fyrir tveimur árum. Justy er orðinn næstum gamalgróinn en þessi fjórhjóladrifni
smábíll stendur fyrir sínu. Fyrir nokkru var tekið að bjóða hann með sjálfskipt-
ingu, stiglausri sjálfskiptingu og með henni kostar bíllinn í staðgreiðslu 923 þúsund
krónur. Sjálfskipting er að verða sífellt vinsælli, ekki síst í smábílum sem helst eru
notaðir í akstri í þéttbýli. Við kynnum í dag Justy með þessari skiptingu.
Morgunblaðið/Sverrir
Subaru Justy hefur um nokkurt skeið verið fáanlegur
með sjálfskiptingu.
j
Mælaborð er sniðum. einfalt í
M 1
Framsætin fá góða ein-
kunn en rými í aftur-
sætum dugar vart fyrir
marga í Iangferðum.
Subaru Justy er eins og fyrr segir
íjórhóladrifinn 5 manna smábíll og
er honum við venjulegar aðstæður
ekið einungis í framhjóladrifi. Með
rofa í gírstöng er hægt að skella honum í
ijórhjóladrifið þegar á þarf að halda. Justy
er snoturlega hannaður bíll, stuttur með
löngu hjólhafi og litlu skottrými.
Fer vel um ökumann
Bíllinn er eiginlega hvorki of rúnnaður
né of kantaður, stuðarar og klæðningin með
sama sniði á hliðum bílsins setja á hann
sterkan svip. Framendinn er nokkuð niður-
byggður og þar taka framluktir mesta at-
hygli en vatnskassahlífin er fínleg. Homin
eru nokkuð ávöl og í gráum bíl sem ekið er
á gráleitu malbiki getur verið erfitt að vita
hvað langt má hætta sér.
Justy er með 68 hestafla og 1200 rúms-
entimetra vél sem hefur honum sæmilega
góða vinnslu. Bíllinn vegur 875 kg. Hann
er 3,69 m langur, 1,53 m breiður og 1,42
m hár. Hjólhafið er 2,28 metrar. Bíllinn er
með nokkuð hefðbundnu sniði hið innra, er
reglulegur smábíll en þó fer furðu vel um
ökumann sem farþega og sérstaklega er
höfuðrými ágætt. Varla myndu þó þrír far-
þegar endast aftursætinu í löngum ferðum.
Mælaborð er mjög einfalt i sniðun en eigi
að síður vel búið og þar er að fínna alla
nauðsynlega mæla og aðvörunarljós.
Stiglaus sjálfskipting
Sem fyrr segir er Subaru Justy með stig-
lausri og rafeindastýrðri sjálfskiptingu. Er
það í fyrsta sinn sem hún er boðin í al-
drifsbíl. Skiptingin fer fram með stálreim
og þrepalaust, þ.e. ekki finnst að bíllinn
skipti raunverulega um gír. Snúningshraði
vélar verður þó aldrei of mikill og þegar
ekið er t.d. á 80 km hraða er hann rúmlega
2.200 snúningar. •
Stiglaus skipting þýðir að hún gerist með
meiri mýkt en almennt í venjulegum skipt-
ingum en þó er eins og að bíllinn taki örlít-
inn kipp þegar fyrst er ekið af stað. Hægt
er að velja milli tveggja gíra, hins venjulega
ferðagírs og síðan viðbragðsgírs sem gripið
er til þegar þörf er á góðu viðbragði og
skipta má einnig í þegar hægja skal á. I
þessum gír verður snúningur vélarinnar
aldrei minni en 3000. í öllum venjulegum
akstri er þó aðeins notaður ferðagírinn.
Kostirnir við þetta eru einkum einfaldleik-
inn í sjálfum akstrinum. Ökumaður hefur
bílinn í áfram eða afturábak' og ekur leiðar
sinnar. Hann þarf að öðru leyti ekki að
hugsa um skiptingar. Þetta er kannski eink-
um hentugt fyrir þá sem vilja hafa akstur
sem einfaldastan en þeir hafa gaman af að
aka myndu fremur kjósa venjulegri sjálf-
skiptingu eða handskiptan bíl.
Mætti vera liprari
í akstri er Subaru Justy nokkuð lipur en
þó kannski ekki eins léttleikandi og ætla
mætti miðað við svo lítinn bíl. Skiptingin
gerir aksturinn vissulega, þægilegan og við-
bragðið er þokkalegt. Á vissum snúningi
og t.d. þegar ekið er fremur rólega upp í
móti er eins og vélarhljóð verði óþarflega
hátt, allt að því þungur niður. Að öðru leyti
er Justy auðveldur í meðförum og meðfæri-
legur og hann er sérlega fótviss.
Subaru Justy fimm hurða með sjálfskipt-
ingunni kostar kr. 923 þúsund í stað-
greiðslu en 961 þúsund sé hann tekinn á
afborgunarkjörum. Ryðvörn og skráning eru
ekki innifalin í þessu verði. Þriggja hurða
útgáfan kostar kr. 920 þúsund í stað-
greiðslu. Vilji menn ekki sjálfskiptingu kost-
ar þriggja hurða bíllinn 848 þúsund krónur
en fimm hurða 851 þús. kr. jt
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. SEPTEMBER 1991 1 1