Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1991, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1991, Síða 10
Brautryðj andijiútíma leikritunar á íslandi au leikrit sem nú hafa verið nefnd eru mikið til áhrifalaus í íslenskri leiklistarsögu. Það verður þó ekki með réttu sagt um þau tvö verk, sem næst verður fjallað um, leikrit Sigurðar Péturssonar. Þau eru afsprengi þeirr- viTLEUT ^a/rícUjLK JC .*f«* . ' ■ ! f* Sigurður Pétursson. Leikrit hans, „Slaður og trúgirni” var fyrst fíutt 5. desemb- er 1796. Kafli úr nýrri bók um sögu íslenzkrar leiklistar, 1. hluta, sem út kemur hjá Menningarsjóði bráðlega. Þar Qallar Sveinn um ræturnar og fyrstu leikhúsverkin, en annað bindi um tímann frá 1890 er nú þegar í smíðum. Eftir SYEIN EINARSSON ar hefðar, sem hér hefur verið lýst, en jafn- framt boðar nýrra hugmynda, brúa bilið til erlendrar gamanleikjahefðar og vísa veginn, í rauninni ryðja veginn fyrir nútí- maleikritun á íslandi. Áhrif þessara verka má sjá í því, að fram eftir 19. öldinni eru þau einu leikritin, sem aftur og aftur eru tekin til sýninga og lífsmagn þeirra er þess konar, að enn á síðustu árum atvinnu- leiklistar hafa þau skotið upp kollinum með öðrum „sígildum” verkum. Slaður og trúgimi er samið fyrst. í margtilvitnuðum inngangi séra Árna Helgasonar að fyrstu útgáfu á verkum Sigurðar segir svo: „Gáfur hans, lærdóm, og að nokkru leiti þeinkingarhátt, má gjöra ráð fýrir að flestir geti þekkt af hans verk- um, sem nú koma á prent. Þess vil jeg að eins geta, að bæði það sem hann ritaði í ljóðum, og eins hans gleðispil, voru í flýti samin. Skáldið hefir sjálft í mannsaung seinustu Stellurímu lýst því, hvemig kvæði hans eru tilorðin; enn gleðispilin samdi hann með mesta flýtir. Lærisveinar í Reykjavíkurskóla feingu hann til þess, og mun vinur hans, Geir biskup, hafa í þeirri grein lagt til með þeim, við vin sinn . . . Ámi Helgason mátti trútt um tala, því að hann er meðal þeirra sem fmmflytja þessa „Comædia í þremur flockum, uppfærð í Reikjavíkur Skóla þann 5ta Decembr. 1796”. Þannig hefur viljað til, að leikenda- skráin, þessi okkar elsti „teaterseðill”, eins og leikskrámar vom síðar kallaðar, hefur varðveist; af honum sést að Árni hefur leikið Sigríði konu Auðunar lögréttumanns, Bjarni Þorsteinsson, síðar amtmaður og aldavinur Árna, er Una dóttir þeirra og sjálfan Hrólf leikur Einar Þorsteinsson frá Krossi í Landeyjum, efnispiltur, sem dmkknaði á Breiðafirði árið eftir að hann brautskráðist úr skólanum. Leikurinn kom fyrst á prent í Sýnishomabók Rasks 1819, undir nafninu Áuðunn lögréttumaður, en í útgáfu séra Áma fær hann heitið Hrólf- ur, og oftast hefur hann gengið undir því nafni síðan. Svo er að sjá, sem leikurinn hafi verið endurtekinn 1798’ og hjá Rask er þess getið hann hafí enn verið sýndur í Reykjavík 1814 og verður vikið að því síðar. Slaður Og Trúgirni Efnið er í stuttu máli þetta: Fyrst ber fyrir áhorfendur vinnukonuna Möngu með ljós í hendi. Hún fræðir þá á því að rökkur- svefninn sé blessaður og ella væri ekki gott að vera vinnuhjú, jólin séu væn vegna kertisins, því að rökkrið sé nú einu sinni hennar hátíð — tekur það fram, að hún sé skikkanlegt og trútt vinnuhjú, sem vek- ur vantrú, sem síðar á og eftir að sann- ast, — og segist ætla að bregda sér í hjá- leiguna til hans Jóns síns til að gleðja hann með sínum „rökkurshandafla”. Jón þessi þykir henni of deigur, enda hafí hann ekki verið í stórstöðunum eins og hún. En ekki verður af því; barið er og inn „sprangar á nýjum mussufötum”, Hrólfur ferðamaður að norðan og hefur um fætur „sokkabönd með löngum dinglandi skúfum ... Upp úr vasanum hangir langt talnaband úr pyngju hans, eins og úrkeðja”. Er nú skemmst af því að segja, að hann tekur Möngu með trompi, enda segist hann hafa verið „for- maður í öilum veiðistöðum syðra, bæði undir Eyjaíjölium, í Grindavík, á Bátsend- um, í Keflavík, í Njarðvík, undir Stapa, í Garði, á Ströndum og víðar — og víðar”. Auk þess þykist hann kunna fyrir sér í silfursmíði og til lækninga. Brátt ber þar að þau hjón Auðun og Sigríði og dóttur þeirra Unu, og Manga er fljót að lýsa fá- gætum kostum mannsins og bæta þvi við að hann sé ógiftur. Er ekki að sökum að spyrja að fleiri falla fyrir raupi Hrólfs, enda reynist Auðun mesti einfeldningur, sem lætur hafa sig að fífli'í hestakaupum við Hrólf og höndlar af honum ónýtt skran. Og ekki líst honum heldur, að Hrólfur væri óálitlegt mannsefni fyrir Unu dóttur sína. Una er reyndar annars sinni3 og sú eina sem sér í gegnum komumann; sjálf ann hún fátækum bóndasyni, Andrési. í lok fyrsta þáttar hefur Hrólfur sig á brott, þó að stúlkan kynni að vera í boði, því hann treystir ekki á framhaldið. En síðari þáttur- inn snýst síðan mikið til um þessi ástamál Unu og Andrésar og þar kemur inn nýtt þema — sem Margrét var trúlega að ýja að í upphafí leiks — er hún stelur úr skemmu Auðuns og kemur sökinni á Andrés. í upp- hafi þáttarins koma þeir í heimsókn Gissur faðir Andrésar og Andrés sjálfur og tyggur Auðurt þar lygarnar úr Hrólfi um þann kaupskap sem í boði er, en Gissur er raun- særri og segir hann vaði „með tukt að segja, rassinn upp í ána”. Ög Sigríði þykir hann þá irafa komið vitinu fyrir mann sinn. En ekki er öll auðtrú á enda, því nú tekur Auðun að kenna blásaklausum manni, Jóni Jónssyni í Heiðarkoti, sauðaþjófnað, og hefur hann það einnig upp úr samtalinu við Hrólf. Gissur gengur og í það mál og sannast þá sakleysi Jóns. Þykir rétt að Auðun greiði Jóni í sakarbætur 10 ríkisd- ali eða þeir Hrólfur í sameiningu. Þetta er Auðuni ekki útbært og barmar sér mjög, en Gissur telur honum mátulegt að láta af hendi rauðskjöldótta kvígu til fátækra og þá kveðst Jón ætla að leiða til Eifíks bónda á Aumalæk það sama kvöld. Síðan þakka þau Andrés, Una og Sigríður Giss- uri sættina, en Auðun er ær, hafandi misst fé og kvígu og besti sauðurinn burtu stol- inn. Litlu síðar ber að Eirík á Aumaiæk, sem hefur frétt hvaða hamingja falli honum í skaut, kona sé nýbúin að ala barn og nú muni hýrna í koti. Nú lætur Auðun sefast. — í þriðja þætti bíða menn afturkomu Hrólfs og Una stríðir lítillega Andrési sín- um og segist munu láta að vilja föður sins í kvonbænarmálum. Margrét kemur síðan og segir tramp hafa verið kringum skem- muna, Auðun skyggnist eftir því og kemur síðan sótsvartur inn eins og Harpagon í Aurasálinni og segir öllu stolið, þar á með- al nýja klútnum og silfumálunum Hrólfs og bendir „út í hópinn sem við er”, líkt og Harpagon: „Þú, þú, þú, þú hefur stol- ið.” Margrét ber nú þjófnaðinn á Andrés og verður klútur, sem hann segist nýlega hafa keypt af Jóni litla í Hjáleigunni sönn- unargagnið, sem fær Auðun umsvifalaust til að trúa þjófnaðinum á Andrés. „Þú skalt hengjast, þó 100 Gissurar væru þínir feð- ur.” Sigríður húsfreyja feilst á þetta, en Una trúir á sakleysi Andrésar. Áuðun er fljóthuga og vill flengja og hengja, en Sig- rfður stingur upp á því, að skotist sé til Jóns í Hjáleigunni og hann spurður út úr. En nú ber að Gissur, sem hefur liaft upp á Hrólfi, fengið af honum kiárinn aftur og tvo ríkisdali, sem ofgreitt hafði verið fyrir nálina og klútinn, — og að auki hefur hann hjálpað Möngu, sem dottið hafði á svelli Hólavallaskóli í Reykjavík. Þar voru skólaleikirnir fluttir á Herranótt. 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.