Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1992, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1992, Síða 3
DAVÍÐ STEFÁNSSON IggHálg H11H ® E H u E ® |»! [g ID ® [fi Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. i Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjór- ar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunn- arsson. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðs- son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 691100. Forsíðan Myndin er eftir Hjörleif Sigurðsson, listmálara, og heitir Lófótströnd. Hún er máluð 1980, þegar málar- inn bjó í Lofoten í Noregi. Myndin og viðtal við Hjörleif á bls 6-7 í blaðinu eru birt í tilefni þess að nú á Listahátíð standa yfír sýningar til heiðurs lista- manninum. Á heimleið Nú held ég gamall heim til þín og heilsa þér. I lotnum herðum liggur það, sem liðið er. Fordómar stafa af þekkingarleysi á því sem fordómamir bein- ast gegn. Ekki er það sízt hinni fjölmenni hópur geðsjúkra eða geðfatlaðra, sem fordómamir hafa beinzt gegn og nægir að minna á rótgróin orð í málinu eins og „klepptækur". Um þetta efni skrifar Magnús Skúlason, geðlæknir á Geðdeild Landsspítal- ans. Klassík Hannes Sigurðsson, listfræðingur, veltir fyrir sér nútíma notkun á hugtakinu „klassískur", sem upp- haflega vísar til listræns arfs Fom-Grikkja. Nú er aftur á móti hvaðeina orðið klassískt. Framleiddar em kvikmyndir, sem eiga að heita „klassískar á augabragði" og jafnvel pylsur geta orðið klassískar. Afrek Sigríður Jónsdóttir frá Stöpum í Tungusveit er nú orðin 95 ára. Hún hefur rifjað upp þegar Guðmund- ur Hannesson, þá nýbakaður læknir, kom að Stöpum og bjargaði lífí Jóns bónda, sem lá með banvænt fótarmein. Guðmundurtók fótinn af og notaði til þess ljá, gæruhníf og fyrir sáraumbúðir notaði hann dýjamosa. Ég fór of langt um lífsins veg að leita að þér. Við dægurglaumsins gullnu veigar gleymdi ég mér. Og því kem ég með þorrinn sjóð og þrotið afl. Eg henti minni hæstu mynt í hæpið tafl. í lotnum herðum liggur það, sem- liðið er. Nú held ég gamall heim til þín og heilsa þér. Davíö Stefánsson (1895-1964) var löngum kenndur við Fagraskóg við Eyjafjörð, þar sem hann fæddist og ólst upp. En lengst af bjó hann á Akureyri. Davíð vakti geysi- lega athygli með fyrstu Ijóðabók sinni, Svörtum fjöðrum, 1919 og var ástsælt skáld upp frá þvi. B B Eyðslukynslóðin og dekurbörnin hennar Kynslóðabil hefur ugg- laust alltaf verið til, en mörkin milli kynslóð- anna hljóta að vera skarpari á þessari öld en áður. Tæknibylting- in á sinn þátt í því. Áður lærðu böm og unglingar vinnubrögð- in af eldra fólkinu; hér á íslandi lifðu og dóu tugir kynslóða án þess að breytingar yrðu á vinnubrögðum, húsakosti eða fatn- aði. Á þessari öld hafa flestir hlutir verið á hverfanda hveli; hver ný kynslóð hefur þurft að tileinka sér tækni, sem ekki varð lærð af þeirri eldri. Aldamótakynslóðin gat engri þekkingu á vélatækni miðlað til sona sinna og dætra og kreppuára- eða lýðveldiskyn- slóðin náði ekki nema rétt í skottið á tölvu- tækninni, sem mótar samtíma vinnubrögð í ríkum mæli. Aðstaða kynslóðanna á þessari öld hefur verið svo misjöfn að hún verður engan veg- inn borin saman. Aldamótakynslóðin ólst upp í þjóðfélagi, sem átti nóg með frumþarf- irnar; fólk var mótað af þeim hugsunar- hætti að gott væri að hafa í sig og á, en setti samt markið hærra og trúði á framfar- ir og vaxandi menningu í lundum nýrra skóga. En hún safnaði ekki eignum. Eg var svo lánsamur að alast upp með afa og ömmu af aldamótakynslóðinni og eftir langan búskap voru jarðneskar eigur þeirra nokkur reipi og reiðingar ásamt am- boðum, einu rúmi, kommóðu, útvarpstæki og dálitlu púlti; hirzlu þar sem afi geymdi ýmislegt smálegt. Giftingarfötin dugðu hon- um alla ævi og komst hann þó á níræðisald- ur. Önnur kynslóð aldarinnar hefur stundum verið nefnt kreppukynslóðin og fékk það erfiða hlutskipti að byija sinn búskap til sjávar og sveita, þegar allt var í kaldakoli kreppunnar á fjórða áratugnum. Sú kynslóð upplifir byltinguna þegar vélaöld hefst og segja má, að bændaþjóðfélagið hafi fyrir alvöru tekið að gliðna. Þetta er sú kynslóð sem réttir úr kútnum og kemst eitthvað í álnir, borið saman við það sem áður hafði verið. Þá eignuðust margir bændur jarðir sínar og þéttbýlisfólk eignaðist hús. Kreppu- kynslóðin skilaði að minnsta kosti einhveiju búi, þó oft væri það ekki umtalsvert. Þriðja kynslóð aldarinnar, sem tekur við boðhlaupskeflinu uppúr miðri öldinni, er kannski sú fyrsta sem gat átt von á að erfa einhveijar eignir. En á yngri árum hennar var aðstaða foreldranna yfírleitt með þeim hætti, að skólanám kom ekki til greina, nema unga fólkið gæti kostað það sjálft. Ef það hugði á skólagöngu, var vart um annað að velja en að unginn flygi úr hreiðr- inu. Menn fóru beint frá prófborði á síld eða í vegavinnu og foreldrarnir sáu krakkana sína varla nema í mýflugumynd upp frá því. Þessi kynslóð sótti takmarkaðan fjárst- uðning til foreldranna af þeirri einföldu ástæðu, að þar var yfirleitt ekkert lausafé til skiptanna. Nemendur lögðu ekki eigin bíl fyrir framan skóladyrnar eins og nú tíðk- ast. Þeir áttu einfaldlega ekki bfla; ekki einu sinni þeir sem komnir voru í Háskólann. Ferð til Grikklands eða Spánar að prófi loknu hefði verið fjarstæðukennd hugmynd, enda engir aurar til þess. Þetta var kynslóðin sem varð að læra að lifa með verðbólgunni, en hagnaðist líka á að taka lán, sem urðu að engu á örskömm- um tíma. Vandamálið var að fá lán. En meðan þessi óvera af sparifé foreldranna og kannski afa og ömmu einnig, brann upp á eldi neikvæðra vaxta, eignaðist þessi kyn- slóð ekki aðeins þak yfir höfuðið á fremur auðveldan hátt, heldur er hún fyrsta kyn- slóðin sem gerir bílinn að sjálfsögðu og ómissandi heimilistæki. En ekki aðeins bílinn, heldur og sjón- varpstækin, myndböndin og allt þetta góss, sem við höfum í kringum okkur. Og þetta er kynslóðin sem fyrst fór svo um munaði til útlanda í sumarleyfinu; ferðalög til út- landa hættu að þykja munaður, heldur sjálf- sagður hlutur og eins var um sumarbústað- inn og lúxusjeppann. Þetta hefur verið mik- il eyðslukynslóð, en hvernig hefur hún alið upp bömin sín? Það uppeldi er á ýmsan hátt glórulaust. Gagnstætt því að þriðja kynslóðin þurfti að kosta sjálf sína skólagöngu og vera jafnvel staurblönk í allmörg ár þar á eftir, virðast börnin hennar vera furðulega vel íjáð. Þetta unga fólk er dugmikið og vinnur hvar sem það getur með skólanum til þess að standa undir lúxuslifnaði. En æði oft standa foreldr- amir undir honum. Oftar en ekki lendir það á þeim að kosta bílakaup og það er orðin talsverð útgerð, þegar kannski þarf að kaupa tvo bíla handa svo til uppkomnum börnum í framhaldsskóla ofan á þá tvo sem bóndinn og húsfreyjan þurfa. Þeir elztu af þessari fjórðu kynslóð aldar- innar, sem nú er að taka við boðhlaupskefl- inu, hafa lokið framhaldsnámi, eða em langt á leið komnir með það; sumir þegar búnir að koma sér vel fyrir, „eiga allt“ og eru dæmigerðir uppar. Þeim þykir alveg sjálf- sagt og eðlilegt að geta átt allt það sama og foreldrarnir eiga eftir áratuga búskap. Eyðslukynslóðin hefur alið upp dekur- böm. Þau em því vönust að þurfa ekki að horfa í hveija krónu og þekkja sjaldnast vemleika skorts og fátæktar. Það er samt langt í frá að allir sitji við sama borð að þessu leyti, sízt nú þegar atvinnuleysi sverf- ur að. Ótrúlegur fjöldi skólanemenda fer samt utan nú í vor og sumar ferðaskrifstof- urnar hafa sannarlega uppgötvað þennan markhóp og beita ótæpilega fyrir hann. Að loknu prófi, til dæmis úr menntaskóla, er svo farið til Rhodos eða Mallorca, en nýbak- aðir viðskiptafræðingar létu sér ekki duga minna en Suður-Ameríku. Um 80% þeirra sem útskrifuðust frá Verzlunarskólanum höfðu efni á að halda uppá prófið með utan- landsferð. Að vísu heitir svo, að nemendur séu með eigin íjáröflun vegna þessara ferða. En móðir stúdents sem var að útskrifast og að sjálfsögðu á leið í dýrt ferðalag, sagði: Hver haldið þið að hafí keypt handa þeim rækjurnar, sem þau vom að selja til fláröfl- unar? Og hver haldið þið að hafí bætt við 40 þúsundum til að endar næðust saman? Ekki batnar í búi hjá eyðslukynslóðinni, þegar dekurbömin fara í framhaldsnám til útlanda og engin námslán fyrr en sýnt er eftir dúk og disk, að árangur hafi orðið af náminu. Nemendur hafa að vonum venð ákaflega svekktir yfír þessari afturfor og því er að sjálfsögðu harðneitað, að námslán- in hafi stundum farið í bflakaup, eða þá til að kaupa heilu innbúin. Haft er á orði, að nú muni margir gugna á framhaldsnámi, en dettur einhvetjum það í hug í alvöru? Þá væri Bieik bmgðið, að ef eyðslukynsóðin brúar ekki einnig þetta bil fyrir dekurbörn- in sín. En dekrið er dýrt og flestir verða að fjár- magna það með óheyrilegri vinnu. Það er þrælað til að geta borgað fyrir „böm“ á fertugsaldri, því það vantar fyrir útborgun í íbúð, eða afborgun af láni, eða bara til þess að þau komist til útlanda í fríinu. Mæðurnar fara verst og slitna mest af þessu, því þær taka á sig alltof mikla vinnu fyrir utan heimilisstörfin. En ég hef á tilfinning- unni, að þetta sé líka mun meira þeim að kenna en körlunum. Mæðmm finnst dekrið aldrei nóg, jafnvel þótt krakkamir séu orðn- ir harðfullorðið fólk. Karlarnir malda svolít- ið í móinn og tuða dálítið í barminn um þessi óendanlegu útgjöld. En samþykkja þau svo að sjálfsögðu; hvað gera menn ekki til að halda friðinn. GÍSLI SIGURÐSSON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13.JÚNÍ 1992 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.