Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1992, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1992, Side 7
Hjörleifur hefur ekki haldið eins margar einkasýningar og margir aðrir, en verið með á mjög mörgum samsýningum. Hann hefur mestan part haldið sig við þá abstrakt mynd- sköpun, sem hann gekk á hönd fyrir 40 árum. Síðan hefur margar stefnur rekið á fjörur og ein sú nýjasta krefst þess, að inn- takið í myndlist eigi umfram allt að vera hugmyndafræðilegt, eða jafnvel heimspeki- legt. Á málþingi um myndlist, sem fram fór í Reykjavík á útmánuðum, sagði einn frum- mælenda: Myndlist er heimspeki. Sé ekki um heimspekilegt eða andlegt inntak að ræða, er ekki heldur um myndlist að ræða, heldur hönnun. Þetta er ekki orðrétt haft eftir, en boðskapurinn var þessi. í fram- haldi af þessu langaði mig til að heyra, hvað gamall framúrstefnumaður og form- byltingarmaður segði um þennan erkibis- kups boðskap, eða hvort hann væri ráðinn í að hafa hann að engu eins og Jón Loftsson í Odda. Hjörleifur:„Ég hef alltaf hallast að því að myndlist sé heimspekileg. Hörður Ágústsson skrifar formála í sýningarskrá vegna þess- ara sýninga minna, sem nú standa yfir, og hann kemur einmitt að þessu. Mér fínnst líka, að þetta eigi sérstaklega við um ab- strakt myndlist." „En þegar ungir myndlistarmenn tada um abstrakt myndlist, þá heyrist mérþeirgjarn- an tala um formalisma og jafnvel um geld- an formalisma og mér skilst að þeim þyki sú list lítið heimspekileg. “ „Mér finnst alveg öfugt. Ég hef kallað mínar myndir „fílósófískar myndir“ þegar ég hef sent þær á sýningar og einmitt gert það til að undirstrika þetta viðhorf mitt.“ „En svo komið sé að staðhæfingu fram- sögumannsins á myndlistarþinginu um að mynd sé bara hönnun, ef ekki er í henni heimspekilegt inntak, - getur einhver ákveð- ið þetta nema listamaðurinn sjálfur?“ „Já, ég held að fjölmargir þjóðfélagsborg- arar séu svo vel að sér um þetta, að þeir geti alveg skynjað inntak myndar - þó margt geti það að vísu verið umdeilanlegt." „Geturðu útskýrt í fáum orðum þína hug- myndafræði?" „Ég er fyrir löngu hættur að styðjast við eitthvað svona - maður gerði það kannski á unga aldri. Það er ljóst, að mynd verður að vera meira en litur og form. Og ég hef fýrst og fremst bundið myndsköpun við þjáningu og ég á von á, að myndlistarmenn upplifi list sína sem sársauka eða þjáningu. Það sem ég meina er að listamaðurinn hljóti að upplifa sinn eigin samtíma og samfélag sem vissa þjáningu og þeir fínna henni far- veg í sinni myndlist. Þannig upplifi ég þetta. „Á þjáningin að vera sýnileg?" „Oft er hún það ekki. Það er líka undir móttakaranum komið. Ég held samt að þetta geti aldrei orðið augljóst." „En er þá ekki erfiðara að miðla þessari þjáningu í abstrakt myndum en ffgúratíf- um?“ „Ég tel að það sé léttara - ég held að þessi áhrif frá náttúrunni trufli bara, og þá er ég að tala um manninn sem hluta af náttúrunni." „Maðurinn hefur aldrei verið þér mynd- efni?“ „Jú, ég hef málað fáeinar mannamyndir á meðan ég var í París og örfáar síðan.“ „París já, hvað vakti mesta athygli þína, þegar þú komst þangað 1949?“ „Ég tel að það hafí verið að upplifa alla þessa móderne meistara, sem maður hafði ekki séð nema að litlu leyti. Ég málaði fíg- úratífar myndir í Stokkhólmi og einnig í París. Prá fyrstu tíð var ég mjög upptekinn af Cézanne; hann var mitt „idol“. Síðan Seurat og svo Mondrian. Maður yfirgefur þá aldrei þó þeir séu ekki hafðir sem fyrir mynd. Picasso var mjög dáður sem málari í París, en á þessum árum gat ég ekki séð mikil Picassoáhrif á unga málara. Þau voru meiri annarsstaðar, til dæmis í Bandaríkjun- um, og komu meira í ljós hjá þeim af okkar mönnum, sem fóru til náms vestur um haf. í París var líka við lýði þessi lýríska grein innan abstraktlistarinnar; sú stefna sem Cobra-mennimir aðhylltust. Og þeir áttu þar heima sumir. Ég held samt, að þeir hafi ekki verið áhrifamiklir almennt séð. Flestir aðrir, að minnsta kosti í hópi yngri kynslóðarinnar, voru í því að nálgast hrein- geómetríska list, sem var síðan orðin ofaná um 1950. í fyrstu fannst okkur þetta vera köld list og hörð, en hún vann á með tíman- um. Og þetta varð mjög sterk hreyfing. „Þú gekkst henni heils hugar á hönd, en hefur samt gert einhverjar undantekningar, ef ég man rétt. “ „Já, það er rétt. Við hjónin fluttumst til Lofoten í Noregi 1979 og þegar maður Aldos, 1966-68. Olíulitir á striga. upplifir svo tignarlegt landslag þá fer ekki hjá því að það hefur áhrif á mann. En fyr- ir utan þessi tvö ár í Lofoten má segja, að ég hafí haldið mig við abstraktið." „Hafði þessi áratugur, sem þú bjóst í Noregi, einhver áhrif á þig sem málara?“ „Já, það er ekki hægt að neita því. En þessi fígúratífa tilhneiging hófst raunar ekki í Noregi, heldur í Kína 1977. Þar vann ég j)tjár fígúratífar myndir og síðan 12 til viðbótar hér heima með kínversku mynefni, sem ég sýndi 1978. Það var geysilegur munur í Noregi að geta unnið óskiptur að myndlist, en hér heima hafði ég unnið við ýmislegt annað meðfram, til dæmis verið starfsmaður hjá Menningar- og fræðslusambandi alþýðu, stjórnað Listasafni alþýðu, séð um sem ég sá um listasafnið, bæði fjármál, fjármál, bókhald og allt annað. Svo var ég um tíma í því að fara með skólafólki í söfnin, en það virðist nú vera gleymt, því einhvetjir hafa sagt það vera nýmæli núna. Eg vann baki brotnu við þessi nýju skil- yrði í Lofoten og síðan í Lier, 40 km suð- austur frá Osló. En svo gerðist það úti í Noregi 1983 að ég fékk skyndilega astma. Heilsuleysi af hans völdum hefur háð mér mikið og ég verð að fara eftir mjög ströng- um reglum og ýmsu þurft að breyta frá því sem áður var. Ég sakna þess til dæmis mjög að geta ekki farið á konserta eða í leikhús, en það get ég ekki. Þetta er astmi á háu stigi, sem öll aukaleg áreynsla kemur af stað og maður er alveg háður meðölum; án þeirra væri maður dauður". „Og þetta hefur auðvitað háð þér við myndsköpun?" „Ég hef tímunum saman ekkert getað gert. Það er helzt að ég geti málað með vatnslitum og ég hef líka notað litblýanta; hef þá að miklu leyti unnið að litlum myndum og margar þeirra eru á sýningunni. Olíulitum hef ég ekki snert á, því terpentínan er mjög vafasöm og gæti hugs- anlega hafa komið astmanum af stað. Fleiri málarar hafa átt við þetta að stríða og nægir að minna á Ásgrím Jónsson." „En þú hefur einnig skrifað talsvert um myndlist.“ „Já, svo til jafn lengi og ég hef málað. Fyrst skrifaði ég grein um verk Harðar Ágústs- sonar í Tímann 1949 og í Líf og List skrifaði ég á sjötta tugn- um, og þá stundum einnig gagn- rýni í Morgunblaðið í fjarveru Valtýs Pétursonar. Mér er sér- staklega minnisstætt, að einu sinni skrifaði ég um Kjarvals- sýningu og komst að þeirri nið- urstöðu, aþ draumurinn væri megin uppspretta málarans, - og mér fínnst raunar enn að það geti staðizt í aðalatriðum. Kjar- val virtist samt ekki vera sáttur við þetta. Hann kom til mín þar sem ég var að starfa í sýningar- nefnd og tók að bauna ýmsu á mig svo margir heyrðu. En seinna jafnaðist það allt saman. Á þessum árum skrifaði ég líka í Birting og seinna gagnrýni í Vísi og Fijálsa þjóð og ýmis- legt fleira, til dæmis greinar í tímarit". „Ég sé að þú hefur aðeins lít- ið vinnuborð heima hjá þér. Áttu ekki von á því að geta unnið neitt í stærri verkum? „Jú, ég er frekar bjartsýnn og hef von um að geta unnið meira í myndum á næst- unni. Nú hef ég ekki þurft að vera á sjúkra- húsum í meira en ár. Mér hefur fundizt áberandi hvað fólkið í heilbrigðisþjónustunni hér fýlgist vel með, og ég verð að segja mun betur en í Noregi eins og ég kynntist því þar. Ekki sízt þessvegna finnst mér sárt að heyra nú, að sparnaður og niður- skurður eigi að koma mjög harkalega niður á starfi þessa góða fólks.“ „En hver var að öðru leyti reynsla þín af því að búa í áratug í Noregi?“ „Mér leið vel í Noregi, en ef ég á að segja alveg eins og er, þá líkar mér betur að vera hér heima.“ GÍSLI SIGURÐSSON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13.JÚN11992 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.