Lesbók Morgunblaðsins - 14.08.1993, Page 6
— síðasta vígi gamla vestursins
Montana - óendanlegar víð-
áttur, fjalllendi, skógar og
vötn.
ar náttúrusenur kvikmyndarinnar hafa vak-
ið slíka athygli að Montanabúar óttast nú
að ár og vötn verði undirlögð af aðkomu-
mönnum næsta sumar.
Þrátt fyrir rómantískt yfirbragð fylkisins
út á við er daglegt líf meirihluta íbúanna
ekkert sældarbrauð. Tekjur Montanabúa eru
undir meðallagi á bandarískan mælikvarða
og einn af hverjum sex Montanabúum telst
lifa undir fátæktarmörkum. Versta fátæktin
er á indíánasvæðunum. Á Pine Ridge-svæð-
inu fyrirfinnst hlutfallslega mesta fátækt í
Bandaríkjunum. Fylkið státar ekki af nein-
um arðsömum þungaiðnaði og samkvæmt
bandarískum mælikvarða á efnahagslega
afkomu flokkast meirihluta íbúanna undir
„verkamannastétt". Allt frá upphafi hvítra
manna byggðar hafa innflytjendur verið af
fátæku bergi brotnir, eins og reyndar var
hvað algengast í gamla vestrinu. I Montana
hafa hinsvegar ekki fundist neinar náttúru-
auðlindir sem gætu leitt til ríkidæmis á
bandaríska vísu.
VIÐBURÐARÍK SAGA
Saga Montana, frá því að fylkið var keypt
af Frökkum árið 1804 fram á fyrsta tug
tuttugustu aldarinnar, var að mestu leyti
sköpuð af ævintýramönnum í leit að skjót-
fengnum gróða. Á fyrri hluta nítjándu aldar
voru bjórfeldir einstaklega vinsælir í Banda-
ríkjunum. Montana iðaði af bjór og arðsemi
dýrsins dró að mikinn fyölda manna sem
Ameríkanar kölluðu einu nafni „fjalla-
menn“. Þeir áttu það oft sameiginlegt að
hafa brennt allar brýr að baki sér í ævintýra-
leit. Oft skildu þeir við fjölskyldur sínar í
austri eða suðri fyrir fullt og allt og eyddu
ævinni í að reika um fjöll og firnindi Mont-
ana. Algengt var að þeir tækju sér indíájia-
konur, lifðu í samfélagi við indíánana og
tækju þátt í innbyrðis deilum þeirra. Sjaldan
urðu þessir menn ríkir af skinnasölu; eirðar-
leysið var of ríkt í fari þeirra og hrifningin
á hinu óháða, villta lífi vestursins kom í veg
fyrir að þjóðfélagsmyndun ætti sér stað.
Hvítar konur voru sjaldséðar á þessum slóð-
um. Þær voru oftast einstæðingar og örlög
Montana-fylkið er í norðvesturhluta Bandaríkj-
anna, á milli Idaho og Norður- og Suður-
Dakóta. Landamæri þess í norðri liggja að
Kanada og í suðri að Wyoming. Veðráttan
er í samræmi við legu fylkisins; þar er ískalt
Gamla villta vestrið er
skammt undan í
Montana. Af þeim
ástæðum er eðlilegt að
Montanabúar nútímans,
margir hverjir
afkomendur „íjalla
manna“ og kúreka, trúi
því af hjartans einlægni
að sveitalíf og veiðar séu
forréttindi fremur en
nauðsyn og að verald-
legar eignir skipti ekki
höfuðmáli.
á veturna, allt niður í 30 stiga frost, en
hinsvegar sjóðheitt á sumrin. Montana er
fjórða stærsta fylki Bandaríkjanna, stærra
en Þýskaland, en jafnframt það sjötta fá-
mennasta með aðeins um 778.000 íbúa.
Fylkið er tiltölulega ungt að árum og var
ekki tekið inn í ríkjasambandið fyrr en 1889.
Montana var ætíð útjaðar gamla vestursins
og er raunar enn þann dag í dag útjaðar
bandarísks þjóðfélags.
Ástæður fámennisins eru margvíslegar;
veðráttan er til dæmis erfið og hér er lítið
um atvinnumöguleika því að þungaiðnaður
og stórfyrirtæki hafa ekki tekið sér bólfestu
í fylkinu. Atvinnutækifæri eru fremur fólgin
í námugreftri, skógarhöggi eða landbúnaði.
Allt eru þetta störf sem gefa af sér lág laun
í Bandaríkjunum og draga því ekki að inn-
flytjendur af því tagi sem enn koma til
Kaliforníu í leit að „bandaríska draumnum".
Montana hefur sem sagt lengi verið svo
til óþekkt fylki innan Bandaríkjanna. Ferða-
menn eru flestir veiðimenn og náttúruunn-
endur sem koma á hveiju ári til að njóta
stórfenglegrar og óspilltrar náttúru og dýra-
lífs sem þekkist varla á fjölmennari og þró-
aðri svæðum Bandaríkjanna. Og það má til
sanns vegar færa að Montana sé sannkölluð
náttúruparadís þar sem hrikalegt fjalllendi
gnæfir yfir gullnum sléttum, sundurskorn-
um af tærum ám og stórfljótum.
„SÍÐASTIBESTI STAÐURINN“
Montana færist þó stöðugt nær sviðsljós-
inu. í Bandaríkjunum hafa birst fjölmargar
blaðagreinar sem fjalla um fylkið sem eins
konar griðland í þeim ofsaveðrum sem hijá
bandarískt þjóðfélag; glæpum, óöryggi og
taugaálagi — afleiðingum hraðans og sam-
keppninnar sem fylgja lifi á stórborgarsvæð-
unum.
Montanabúar eru ekki hissa á þessari
þróun. Þeir segjast alltaf hafa vitað að þeir
væru heppnastir allra Bandaríkjamanna.
Eftir ELLEN
GUNNARSDÓTTUR
Veiðar þykja sjálfsagðar í Montana. Hér er ung móðir með son sinn á veiðum
og sýnir honum bráðina.
Við búum á „síðasta besta staðnum", segja
þeir stoltir um fylkið sitt. Með því vilja þeir
meina að Montana sé eina fylki Bandaríkj-
anna þar sem kleift sé að lifa í samræmi
við draum hins bandaríska brautryðjanda,
þ.e. sjálfstæður og óháður öðrum, þar sem
náttúran gefur hið daglega brauð. Banda-
ríkjamenn virðast upp til hópa vera sam-
mála þessari skoðun því yfirvöld í Montana
telja að á árinu 1992 hafi um 20.000 manns
flust til fylkisins, þar af fjöldinn allur af
ungu fólki sem hafi komið í blindri von um
rólegra og einfaldara líf en hvorki tekist
að verða sér úti um vinnu né húsnæði.
Auk blaðaskrifa hafa fjölmargir þættir
kúreka“, eins og Newsweek kallar það í
gamni, en aðrir eins og Mel Gibson og Jane
Fonda virðast hafa einlægan áhuga á naut-
griparækt.
Áhrifaríkasta auglýsingin fyrir Montana
á síðasta ári var þó nýjasta leikstjómarafrek
Roberts Redfords, „Á River runs through
it“, sem byggist á frægri sögu Normans
MacLeans um æskuár og fluguveiðar á
þriðja tug aldarinnar í Montana. Sagan og
kvikmyndin kalla fram hrífandi ímynd sak-
leysis og einfaldleika sem mörgum Banda-
ríkjamönnum finnst vera að hverfa úr þjóð-
lífínu. Frásögn höfundarins af sambandi
fluguveiðimannsins við náttúruna og falleg-
aukið hróður fylkisins innan Bandaríkjanna.
Hollywoodstjömur uppgötvuðu það fyrir
mörgum árum. Frægir leikarar á borð við
Peter og Jane Fonda, Whoopi Goldberg,
Dennis Quaid, Mel Gibson, Glenn Close o.fl.
hafa keypt sér stóra búgarða í Montana.
Sumir þeirra skemmta sér við að „leika