Lesbók Morgunblaðsins - 14.08.1993, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 14.08.1993, Side 10
Fjölskylda í Súdan fyrir utan hýbýli sín. finna á þessu. Fáir af kjömum fulltrúum þjóð- arinnar, sem fjalla um málefni þróunarland- anna, taka þau mál föstum tökum og margir þeirra standa enn í þeirri bamalegu trú að ríku löndin og harður gjaldeyrir þeirra eigi að vera mikilvægasta aflið í þróunarstarfí í fátækum löndum. Þeim virðist það hins vegar ekki ljóst að öll þróun verður að koma innan frá. Erfitt Að Taka Upp NÝJA STEFNU Þó að gagmýnisraddir í þróunarlöndunum séu margar er erfítt að taka upp nýja stefnu. Margir íbúar þróunarlandanna sem eru vel menntaðir hafa mátt upplifa mikla lækkun rauntekna sinna síðustu tvo áratugi. Hvað afkomu varðar er eftir litlu að slægjast fyrir þá að starfa í heimalandinu, hvað þá á Iands- byggðinni. Misræmið er himinhrópandi og ríku löndin hafa mikið aðdráttarafl. Menn verða að vera miklir hugsjónamenn og þijósk- ir til að eiga ekki þann draum að komast burt og nær kjötkötlunum. Nokkur dæmi lýsa þessu: Nýlega hitti ég tvo gamla nemendur mína frá Tanzaníu á námskeiði. Juma vinnur úti á landi í heimalandi sínu og mánaðarlaun hans eru 350 NKR. Bekkjabróðir hans, Bariki, vinnur hjá alþjóðlegri stofnun og mánaðarlaun hans eru 20.000 NKR. Juma fær laun í mynt Tansaníu og greiðir skatt af laununum en Bariki fær greitt í bandarískum dölum og greiðir ekki skatt. Leiga fyrir íbúðarhús í háum gæðaflokki til sérfræðinga alþjóðalegra stofnana í Kamp- ala í Uganda var árið 1990 2-3.000 dalir á mánuði. Það samsvarar femum árslaunum háttsettra embættismanna í Uganda. Þeir sem leigja út hús á þessum kjörum komast yfír óhemjumikla flármuni, þeir valda verðhækk- unum á venjulegum neysluvörum í heima- landi sínu og þeir ijárfesta gjaman í bygg- ingu fleiri lúxushúsa. Afleiðingin verður fjár- festing og gervikaupmáttaraukning sem er víðs fjarri raunverulegum þörfum landsins. Fimmtíu daga utanlandsferð landbúnaðars- érfræðings gaf jafnmikið í aðra hönd í dag- peningum og ellefu og hálf árslaun í heima- landinu. Er við því að búast, með þetta í huga, að sérfræðingar í fátækum löndum kjósi öðru fremur að takast á við verkefnin heima fyrir? Einnig í austur-evrópu. í Sovétríkjunum fyrrverandi og Austur- Evrópu eru lík öfl á ferð. Þar er einnig lögð mikil áhersla á að framleiðslan miðist við að afla trausts gjaldeyris, hvað sem það kostar. Þessi töfragjaldeyrir er lykillinn að drauma- landinu, með aðgangi að myndbandstæki, gallabuxum, æfingaskóm, bílum og öðmm vestrænum neysluvömm. Til að afla gjaldeyris spýta þessi lönd nú inn mikilli niðurgreiddri orku í framleiðslu á áli og öðmm orkufrekum framleiðsluvöram. Þau leitast einnig við að selja landbúnaðaraf- urðir með undirboðum til Vesturlanda á sama tíma og stórir þjóðfélagshópar heima fyrir búa við lítinn kaupmátt og matvælaskort. í þessum löndum er það einnig fyrst og fremst forréttindahópur sem efnast hefur af innflutningnum og græðir á hinni einhliða áherslu á niðurgreiddan útflutning. Mikill hluti fólks, ekki síst eftirlaunaþegar og fólk í dreifbýli, verður útundan þegar lítil áhersla er lögð á framleiðslu fyrir heimamarkað og svartamarkaðsbraskarar ráða yfír heima- markaðnum. A „gráa svæðinu" milli þessara hópa, hinna ríku og fátæku, milli miðsvæðis valds og peninga og útjaðars áhrifaleysis og fátæktar, em klókindi hins vegar mikilvægari eíginleíki en uppbyggjandi starf. Þar eins og í þróunar- löndunum gátu þeir sem höfðu rétt sambönd til skamms tíma skipt rúblum fyrir dollara á opinbem gengi á sama tíma og raungengið á rúblum var miklu lægra. „40%-ÞJÓÐFÉLAG“ I Austur-Evrópu og Rússlandi má vænta þess að upp rísi „40%-þjóðfélag“. Fjölmargt efnaðasta og best menntaða fólkið snýr baki við sínu eigin landi. Nýleg könnun sýnir að 13,5 milljónir manna í Austur-Evrópu æskja þess að flytja vestur á bóginn og 2,5 milljón- ir manna em með raunvemlegar áætlanir um að gera það. Þar kemur í ljós vandamál dreif- býlis og jaðarbyggða. Eldri kynslóðin, bam- margar íjölskyldur og þeir fátæku verða eft- ir heima, en hinir ungu, menntuðu og efnuðu flytja burt. Jafnvel hér í Noregi er okkur ljóst að tölu- vert stór hópur fólks „situr eftir“, þar sem kjörorð nútímans er sérhæfíng, afköst, góð samkeppnisaðstaða og aðlögun að Efnahags- bandalaginu. Þetta birtist í auknu atvinnu: leysi og sífellt fleiri örorkubótaþegum. í þessu sambandi er rætt um „2A-þjóðfélag“ eða „3A-þjóðfélag“. PÓLÍTÍSKUR FLÓTTI Nú á tímum fá menn e.t.v. einnig að kynn- ast pólítískum flótta. Heima í héraði er ástandið erfítt og þar er við vandamál að stríða. Stjómmálamenn sem sækja hémðin heim mæta gagnrýni, óánægju og fá á sig nærgöngular spumingar. Þá er miklu þægi- legra og einfaldara að starfa á alþjóðavett- vangi, þar sem menn geta rætt almennt og án skuldbindinga um það hvemig heimurinn ætti að vera. Síðan er hægt að upplýsa þjóð- ina á sjónvarpsskermi. Ég held að margir af stjómmálamönnum okkar, bæði í suðri, austri, vestri og norðri, ættu að beina sjónum sínum meira inn á við að eigin landi og þeim innri vandamálum sem þar er að fínna. Þetta er auðvitað erfítt og getur verið óþægilegt, en ég held að það sé nauðsynlegt og gagnlegt. Matthías Eggertsson, ritstjóri búnaðarblaðsins Freys, þýddi. Höfundurinn, Trygve Refsdal, er Norðmaður og skógfræðikandídat frá Land- búnaðarháskóla Noregs á Ási. Hann starfaði um fjögurra ára skeið í Tansaníu og Eþíópíu. Hvetju á að brenna þegar skógurinn er eyddur? Húsmóðir í Gambíu eldar matinn. Helnwein. Einog yfirgefin Örsaga eftir BRAGA SKÚLASON Klara leit yfir dagstofuna, sem hún var nýbúin að þrífa. Hún reyndi að halda reglu á hús- verkunum til þess að þurfa ekki að gera mjög mikið í einu. Auk þess var heilsan farin að bila. Svona var ellin. Það var annars ergilegt að hitta eng- an. Kaffíbollinn og sjónvarpið voru föstu félagamir, sem viku aldrei í burtu. Hún leit á fjölskyldumyndirnar í homi dag- stofunnar. „Svo margir era farnir," sagði hún upphátt. Hún heyrði fuglana syngja fyrir utan. Já, vorið var víst öragglega komið. En einhvern vakti það ekki sömu kenndir og fyrram. Skyldi einhver koma í heim- sókn? Það var nokkuð um liðið síðan nokkur leit inn. Kannski garðyrkjumað- urinn kæmi í dag? Klara settist niður og nú helltist ein- manaleikakenndin yfír hana. Aldrei hefði hún trúað því, að efri árin yrðu svona. Stundum langaði hana bara til að sofna og vakna aldrei aftur. Dauðinn yrði velkominn gestur í þessu húsi. Hún fór inn í eldhús að sækja sér meira kaffí. Sólin skein og allt var kyrrt og hljótt. Þá fann Klara undarlegan og sterka sting í hjartanu. Garðyrkjumaðurinn hirti um garðinn hennar Klöra þetta sumar. Hann var vanur að fá hjá henni kaffisopa og spjalla við hana um stund. Þannig hafði það verið mörg undanfarin sumur. Þetta sumar hitti hann hana aldrei. „Hvert skyldi hún hafa farið,“ hugsaði hann. En verkefnin vora mörg óg hann leiddi ekki frekar hugann að því. Um haustið sendi hann henni reikning fyrir unnu verki. Veturinn gekk í garð. Tíminn þegar sumarið leggst í dvala og hrædýr fara á stjá og leita sér ætis og athvarfs. Þessi vetur reyndist þeim góður.- Vorið kom og birtan tók völdin á ný. í húsi Klöra ríkti sama þögnin og áður. Garðyrkjumaðurinn kom á ný. Hann knúði dyra til að inna Klöru eftir van- goldnum reikningi. Enginn svaraði. „Hvaða lykt er þetta?“ hugsaði hann með sér. „Jæja, ég kem seinna,“ sagði hann upphátt og hvarf á braut. Nokkram dögum síðar kom hann aftur. Enn ekkert svar. Enn þessi undar- lega lykt. Hann ákvað að hafa samband við lögregluna. Þeir fundu líkama Klöra í húsinu. Sjálf var hún löngu farin. Þeir fundu hrúgu af gluggapósti á gólfinu. Reikn- ingar. Lokanatilkynningar. Engin bréf. Engin póstkort. Konan var öllum gleymd. Eða hvað? I blaðinu var greint frá því á síðu nokkuð aftarlega, að öldrað kona hefði fundist látin. Og í blaðinu var líka minn- ingargrein. Lokaorð greinarinnar vora þessi: „ ... Klara var alla tíð kona, sem hafði frá mörgu að segja. Hún naut þess að vera innan um annað fólk. Hún var sjálfstæð og fór allra sinna ferða þar til heilsa hennar leyfði slíkt ekki framar. Syni hennar og tengdadóttur er hér með vottuð samúð. Karl Jónsson, vinur og nágranni." I minningu Claire Campbell. Höfundur pr sjúkrahúsprestur. 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.