Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.1993, Blaðsíða 8
I
i
Eftir þetta fer Þórður á fund Ólafs og segir honum að Stígandi mun eigi langt
þaðan í brott, biður hann til fara með sína menn og ná honum.
Ólafur bregður við skjótt og fer í Hundadal. Er þá ambáttin heimt til tals við hann. Spyr
Ólafur hvar bæli Stíganda værí. Hún kvaðst það eigi vita. Ólafur bauð að kaupa að henni
hún kæmi Stíganda í færí við þá. Þessu kaupa þau saman.
Um daginn fer hún að fé sínu. Kemur þá Stígandi til
móts við hana. Hún fagnar honum vel og býður að skoða
í höfði honum.
Hann leggur höfuðið í kné
henni og sofnar skjótlega.
Rauf var á belgnum og getur Stígandi séð öðrum megin í hlíðina. Þar var fagurt landslag og
grasloðið. En því var líkast sem hvirfilvindur komi að. Sneri um jörðunni svo að aldreigi síðan
kom þar gras upp. Þar heitir nú á Brennu.
Þá skreiðist hún undan höfði honum og fer til móts við þá Ólaf og segir þeim
hvar þá var komið.
Fara þeir til Stíganda og ræða um með sér að hann skal eigi fara sem bróðir
hans að hann skyldi það margt sjá er þeim yrði mein að, taka nú belg og draga
á höfuð honum. Stígandi vaknaði við þetta og bregður nú engum viðbrögðum
því að margir menn voru nú um einn.
Líður nú hinn næsti vetur eftir dráp Kotkels. Um vorið eftir hittust þeir bræður,
Ólafur og Þorleikur. Spurði Ólafur hvort Þoríeikur ætlaði að halda bú slnu. Þorieik-
ur segir að svo var. Ólafur mælti:
5.
T
cr
Síðan berja þeir Stíganda grjóti
í hel og þar var hann dysjaður.
Ólafur efnir vel við ambáttina
og gaf henni frelsi og fór hún
heim í Hjarðarholt.
Hallbjöm slíki-
steinsauga rak upp
úr brími litlu síðar
en honum var
drekkt. Þar heitir
Knarrames sem
Eftir þetta skilja þeir bræður með mikilli blíðu.
Þorleikur selur nú jarðir sínar og ver fénu til utan-
ferðar. Hann kaupir skip er uppi stóð í Dögurðar-
nesi. En er hann var búinn með öllu sté hann á
skip út og kona hans og annað skuldalið. Skip
það verður vel reiöfara og taka Noreg um haustið.
Þaðan fer hann suður til Danmerkur því að hann
festi ekki yndi í Noregi. Voru látnir frændur hans
og vinir en sumir úr landi reknir. Síðan hélt Þorleik-
ur til Gautalands. Það er flestra manna sögn að
Þorieikur ætti lítt við elli að fást og þó mikils verð-
ur meðan hann var uppi. Og Ijúkum við þar sögu
frá Þorleiki.
Þórbjöm skrjúpur var þá
andaður og svo Melkorka.
Þau liggja bæði í kumli í
Laxárdal en Lambi son þeima
bjó þar eftir. Hann var garpur
mikill og hafði mikið fé. Meira
var Lambi virður af mönnum
en faðir hans fyrir sakir móð-
urfrænda sinna. Vel var í
frændsemi þeirra Ólafs.
Þórleikur mælti:
Þá hefir þu vel af þessu
máli ef þú gerir eftir bæn
minni. Ætla ég mér það
að gera héðan í frá sem
hingað til er Bolla kemur
og vera til hans eigi verr
en til minna sona.
Ekki kviði ég því að ég geti eigi
haldið mér réttum fyrir Hrúti og
sonum hans og mun ég eigi fyrir
því af landi fara. En ef þér þykir
miklu máli skipta frændi og þykist
þú þar um í miklum vanda sitja þá
vil ég gera fyrir þín orð því að þá
undi ég best mínu ráði er ég var
utanlendis. Veit ég og að þú munt
ekki að verr gera til Bolla sonar
míns þó að ég sé hvergi í nánd og
honum ann ég mest manna.
Hins vildi ég beiða þín frændi að þú breyt-
ir ráðahag þínum og færir utan. Muntu þar
þykja sómamaður sem þú kemur. En ég
hygg um Hrút frænda okkar aö hann þyk-
ist kulda af kenna af skiptum ykkar. Er
mér lítið um að hætta til lengur að þið sitj-
ist svo nær. Er Hrútur aflamikill en synir
hans ofsamenn einir og garpar. Þykist ég
vant við kominn fyrir frændsemis sakir er
þér deilið illdeildum frændur mínir.
•i
ri
8