Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1994, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1994, Blaðsíða 1
O R G U N L A Ð S Stofnuð 1925 10. tbl. 12. MARZ 1994 — 69.árg. SPORÐAKÖST UNDIR JÖKLI Sjór er sléttur en undiralda nokkur. í norðri sýn- ast skriðjöklar ná í sjó fram en ofan þeirra renna himinn og hvít jökulhvel í eitt. Nokkrir múkkar og fáeinir skúmar renna sér yfír glampandi haf- flötinn. í órafjarska, beint í suður, er Suðurskauts- landið. Veröldin er mjög hljóðlát að undan- skildum taktföstum slætti dísilvélar í hæga- gangi. Menn halda næstum niðri í sér andan- um og þá ... allt í einu ... blæs hann. Dynk- ur, þungur hvinur og vatnssúia fellur. Svo rennur svart bakið hægt og hljóðlega með- fram skipshliðinni uns stór, sveigður sporður Nú þegar verulegar vonir eru bundnar við ferðaþjónustu er mikilvægt að finna nýja og fjölbreytta valkosti handa ferðamönnum. Hér segir frá áhugaverðri dagsferð þar sem sameinuð er jöklaferð, hvalaskoðun og sigling á Jökulsárlóni. Eftir ARA TRAUSTA GUÐMUNDSSON stendur beint upp. Hann er hvítskellóttur af hrúðurkörlum. Svo hverfur hann líka í djúpið. Hnúfubakurinn kafar. Nú líða nokkr- ar mínútur þar til hnúskóttur haus stingur upp kolli á ný. Einn Hópur Af Fjórum Þessi sýn blasir við nærri 30 manna hópi erlendra ferðamanna sem komnir eru í hraða og ævintýralega helgarferð í september til íslands til þess að kynnast jöklunum, líta eftir hvölum og skoða mannlífið hér. Þeir eru staddir um borð í mb. Sigurði Ólafssyni frá Höfn nokkurn spöl út af Tvískerjum, á þrít- ugu djúpi undan Vatnajökli; stærsta hvel- jökli heims utan heimskautasvæðanna. Með í för er þekktur breskur dýrafræðingur og rithöfundur, Islandsvinurinn Mark Carward- ine, sem leiðbeinandi. Hópurinn er hér á vegum ferðaskrifstofunnar Discover the World en hún er dótturfyrirtæki Arctic Ex- perience. Sú ferðaskrifstofa sendir fleiri ferðamenn hingað en aðrar slíkar á Bret- landseyjum. Með hópnum er Kka lítill hópur myndgerðarmanna ftá Sagafilm, þ.á m. und- irritaður, að búa til 15 mín. kynningarmynd- band handa nokkrum aðilum, t.d. Jöklaferð- um sem skipuleggur ferðina og sér um alla þjónustu við hópinn hérlendis, í samvinnu við heimamenn á Höfn. Ferðahópurinn er annar í röðinni af fjórum með sömu ferðatil- högun en búist er við allt að 10-15 hópum næsta haust. Að Skoða Hvali Karlinn í brúnni sér til þess að leitað er á líklegum slóðum að einhverjum hinna 5-7 hvalategunda sem helst má búast við undan Suðausturlandi. Bretarnir eru spenntastir fyrir háhyrningum og hnúfubökum. Hvala- skoðararnir standa við lunninguna nær allan daginn, á útkíkki. Svo er kallað, hlaupið og bent þegar hvalur sést; menn mynda í gríð og erg og skoða dýrin i sjónaukum. AUt er þetta áhugafólk um hvers konar villt dýr, allt gegnir dýraverndunarsinnar og einhverj- ir kenna sig við World Wildlife Fund sem vinnur að brýnni verndun villidýra og land- eða hafsvæða um alla veröld. í augum þessa fólks eru hvalir ekki nytjadýr heldur hluti náttúrunnar, eingöngu til að skoða og dást að. Og hvalirnir sérstaklega eru sumpart orðnir að tákni alls þess sem þarf að friða gegn rányrkju og bjarga frá mengun. Það er víst ærinn fjöldi dýra þótt nokkrir hvala- Myndatökumenn Sagafilm í „návígi“ við hnúfubak. KvíárjökuII í baksýn. Á útkíkki í stýrishúsi mb. Sigurðar Ólafssonar. Hvalaskoðarar við lunninguna svip- ast um eftir hrefnum undan suðausturströndinni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.