Lesbók Morgunblaðsins - 04.02.1995, Qupperneq 7
Tafia 4 LYSINGAR Á REYKHOLTSHVER
1752-7: Reykholtshver gýs sjóbandi vatni ýmist tvo eða þrjá faðma í loft upp. Hann breytir tré og jurtum í stein en ekki nema á löngum tíma. Hvít skorpa, sem líkist kalki, sest í kringum hann eins og aðra hveri. Eggert Ólafsson: Ferbabók Eggerts og Bjarna. Útg.: Haraldur Sigurbsson og Helgi Hálfdanarson 1943
1857: Við skoöuöum þá Reykholtshver sem er fast viö bæinn. Sagan segir aö hann hafi gosið jafnhátt og Geysir og meb því drepib fjölda fjár. Þess vegna var op hans stfflaö meö stórgrýti, svo ab nú skvettir hverinn aðeins 1/2-1 alin upp í loftið. Þó var næsta athyglisvert aö sjá þennan mikla suðupott í jöröinni meö sínu sjóöbullandi vatni. Nils Olson Gadde. Hörpuútgáfan 1983
1881: ... kemur vatnið með miklu aflí upp um norðurenda. Hverinn var hreinsaður nokkru eftir landskjálftana og fengu gosin þá betri framrás; sumarib 1897 voru þau 20-30 fet á hæö, stóöu í 2-3 mínútur og á milli þeirra var venjulega 2-3 mínútna hlé. Þorvaldur Thoroddsen: Lýsing íslands, 1931-7, ísafoldarprentsmibja hf.
1961: Sést nú holt allmikiö fram undan til hægri, Reykholt, og er hver uppi á holtinu, Reykholtshver. Hann er afar vatnsmikill. Gýs hann mjög reglubundiö á um það bil 10 mínútna fresti, og stendur gosið jafn lengi. Gróðurhús eru þarna geysimikil, og er hverinn einkar hentugur; þarf ekki aö dæla vatninu, heldur rennur þaö sjálft inn í húsin. Haraldur Matthíasson: Árnessýsla (Grímsnes og Biskupstungur). Árbók Ferbafél. íslands 1961
1991: Reykholtshver í Biskupstungum hefur löngum verib einn af virkustu goshverum landsins. Enn gýs hann á um 10 mínútna fresti þannig að vatn og gufa brýst upp í nokkurra metra hæö meö miklum krafti. Gosin sjást þó ekki því hverinn hefur veriö byrgöur. Björn Hróarsson, Sigurbur Sveinn jónsson: Hverir á islandi. Mál og menning 1991
BLESI í Haukadal. Ein af fáum nátturuperlum meðal hvera sem ekki hefur
verið eyðilögð og nýtur þar nálægðar við Geysi. Mynd úr bókinni Hverir á
Islandi eftir Björn Hróarsson og Sigurð Svein Jónsson.
Tafla i: HVERIR OG ÞJOÐARVITUNDIN
Fræg örnefni tengd hverum og heitum laugum: Deildartunga, Geysir, Grímsvötn, Hrafntinnusker, Hveradalir, Hvera- gerði, Hveravellir, Krísuvík, Kverkfjöll, Landmannalaugar, Laugarás, Laugardalur, Laugarnes, Laugarvatn, Mývatn, Námaskarð, Nesjavellir, Reykir, Reykholt, Reykjanes, Reykjavík, Svartsengi, Víti.
Skírskotun til fegurðar, fögur örnefni: Bláhver, Fagrihver, Grænihver, Gullhver, Hverinn eini, Hvermóar.
Alþjóöamál: Geyser, geyserít.
Tækni og framfarir: Bláhver, Fagrihver, Grænihver, Gullhver, Hverinn eini, Hvermóar.
Persónugerö örnefni: Bræðrahver, Gunnuhver, Hrekkur, Kátur, Pínir, Sóöi, Skjótandi, Svaði, Vigdísarhver, Öskurhóll.
Nýting: Baðlaugarhver, Baðstofuhver, Bláa lónið, Brennisteinsfjöll, Fremri Námar, Námaskarð, Gufubabshver, Heimilishver, Húshver, Hægindishver, Sláturhver, Kartöfluhver, Ketill, Fata, Pottur, Þeystareykjarnámur, Þvottahver, Þvottalaugar.
Sagan: Eyvindarhver, Grettislaug, Krosslaug, Snorralaug, Vígöalaug, Þorlákslaug.
Þjóötrú: Móri, Draugahver, Grýla, Óþerrishola, Víti.
Horfnir hverir: Reykjarhóll í Fljótum, hverir í Mosfellssveit, Þvottlaugarnar.
Tafla 3: GOSHVERIR
Goshverir- niburstaöa: (1) Virkir 5 Þaraf 3 í óbyggöum. (2) Byrgöir/yfirbyggöir... 3 (3) Lítt virkir/sápa 3 Samtals 11
Haukadalur: Geysir (3). Aö mestu óvirkur. Stokkur (1). Endurvakinn með bortækni 1963.
Reykjahverfi: Ystihver (1). Gýs ööru hverju 10 m. Með sápu 30 m. Sybstihver (2). Byrgðu, gos stöðvað. Uxahver (2). Byrgður, gos stöbvuð.
Hveravellir: Gjósandi (1). Áþekk gos og í Strokki en minni. Grænihver (3). Gýs einn metra er vel lætur.
Biskupstungur: Reykholtshver (2). Byrgbur.
Ölfus: Grýla (3). Gos sjaldgæf, gýs með sápu.
Hrafntinnusker: Stórihver (1). Kátur (1).
taxti á heitu vatni til sundlauga. Gott ef
hann er ekki enn við lýði. Leyfisgjöld snúast
upp í skattlagningu og leiga upp í vildar-
greiða. Stýringarmarkmið gleymast með
nýjum valdhöfum. Margir hafa vantrú á að
fyrirheit séu efnd t.d. þegar stungið er upp
á mengunargjöldum.
Reykholtshver í Biskupstungum er ein-
stæð náttúrperla sem nágrannar og ferða-
menn hafa dáðst að í aldanna rás. Sennilega
eru það goshverir og laugar landsins sem
gert hafa Island að forvitnilegu ferðamanna-
landi og rofið einangrun þess. Og gera enn.
Mynd 4.
Hverinn í Reykholti eins og aðrar auðlind-
ir hafa framleiðslugildi. Hverinn skapar mik-
mi sem leið. í minningargrein um hver-
„Þegar ég var barn, heyrði ég um það
ir-ÞingeyjaarsýsIa væri þekktust fyrir,
'SS og Uxahver í Reykjahverfi...Þess er
'Jxahver í sinni fornu mynd, geri sér í
i í hjarta þess fólks, sem beztþekkti til.“
inn verðauka fyrir byggðarlagið. Með
ákvörðun sinni um að byrgja hverinn og
gjörnýta hefur eigandinn og sveitarfélagið
ákveðið að einoka hann, njóta hagnaðarins
út af fyrir sig." Og hafa upp úr krafsinu
ódýra hitaorku - ekki annað.
Við virkjun hversins er öðrum verðmætum
fórnað, sem erfítt er að meta til fjár - feg-
urð náttúruundurs sem ekki á sinn líka,
skoðunargildi, aðdráttarafli ferðamanna,
ræktarsemi við gjafir náttúrunnar, náttúru-
minjar. Vel má vera að öll þessi gildi séu
slík að hitagildið verði harla lítils virði í sam-
anburðinum. Það liggur a.m.k. beint við að
álykta að þeir Reykhyltingar gætu sparað
sér ferðamannaátak sitt ef hverinn fengi að
skarta sínu fegursta.
Hverir sem krauma og goshverir sem
vekja hrifningu hafa gildi. Sjálfir eru þeir
undur, ekki sérstaklega hitinn sem úr þeim
fæst. Hans má afla með ýmsu móti. Kannski
má nýta hitann að einhveiju leyti án þess
að spilla hvernum? Það er gert í Deildar-
tungu. Þar sjá menn sambland náttúruund-
urs og tækni. Við það þarf samt að gæta
itrustu varfæmi og fullkomnustu vemdarað-
gerða. Ekki er verið að mæla með slíku því
enga áhættu má taka. Við höfum yfir nægri
orku að ráða úr brennsluefnum og fallvötn-
um á skaplegu verði.
Með því að fá hitann úr hvemum við lágu
verði er samkeppnisaðstaða gróðurhúsaeig-
enda í Reykholti óeðlileg miðað við það sem
annars staðar gerist, t.d. þar sem borað
hefur verið með ærnum kostnaði. Þó er af-
koman ekki alltaf góð. Gróðurhús eru hér í
niðurníðslu eins og víðar og rekstur stöðva
í ólestri. Happdrættisvinningur og fljóttekinn
gróði eru skammgóð gæði.
Lágt orkuverð getur leitt til þess að of
margir sæki í ræktun, að of margir vilji
setjast að og byggja of stór hús, vanræki
einangrun og hitanýtingu. Sá dagur rennur
upp að stjórn veitunnar sér fram á að enn
meira vatns sé þörf en hverinn gefur. Sagan
mun endurtaka sig nema aðflutningur fólks
og atvinnurekstrar sé stöðvaður, kvóti settur
á eða meiri orku aflað. Aður spilltu menn
stundum hverum vegna illra hvata eða fá-
fræði. Nú gerist það vegna harðra pólitískra
og efnahagslegra lögmála með fulltingi sölu-
mennsku og háþróaðrar tækniþekkingar.
SJÁ NÆSTU SÍÐU
LAUGARVATNSHVER. Ekki sést lengur hvernig hann var áður en mann-
virkjagerð hófst, en þar ber nú ekki annað fyrir augu en steinsteyptar þrær,
pípur og vírnetsgirðing í kring.
KLEPPJÁRNSREYKJAHVER í mynni Reykholtsdals er einn vatnsmesti hver
á Islandi, en umhverfið er sóðalegt og dæmigert fyrir það sem víða má sjá
í kringum hveri. Ur Hverir á íslandi.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. FEBRÚAR 1995 7