Lesbók Morgunblaðsins - 04.02.1995, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 04.02.1995, Blaðsíða 9
Naut hún stuðnings sjálfstæðismanna á þingi og hluta Framsóknarflokksins. Ekki hafði hún setið nema rúmt ár þegar gengið var til kosninga um kjördæmamálið (16. júlí 1933) og galt þá Framsóknarflokkurinn afhroð. Um þessa stjórn Ásgeirs segir í íslandssögunni: „Fáar stjórnir Jiafa síður verið öfunds- verðar en stjórn Ásgeirs Ásgeirssonar sem sat þegar dekkst var í álinn 1932-34. Ekki bætti það úr skák að frá nóvember 1933 sat hún sem minnihlutastjórn milli þinga. Neyddist hún því til að halda að sér höndum á hveiju sem gekk þann tíma. Þó herti hún með bráðabirgðalögum höft á verslun með gjaldeyri.“ Enn var kosið 24. júní 1934 eftir því nýja fyrirkomulagi sem samkomulag hafði tekist um. Mynduðu þá Framsóknar- og Alþýðuflokkurinn stjórn sem af fylgismönn- um sínum var kölluð „stjórn hinna vinnandi stétta“. Hékk meirihluti hennar á einu at- kvæði og ekki hafði hún öruggan meiri- hluta í báðum deildum þingsins fyrr en utanflokkamaðurinn Ásgeir Ásgeirsson gekk til liðs við hana og síðar Magnús Torfason úr Bændaflokknum. Fiskiráð - Fiskimálanefnd Milliþinganefnd hafði starfað í sjávarút- vegsmálum og var að vonum upptekin af áhrifum heimskreppunnar á útveginn. Lagði hún fram tillögur sínar um skulda- skil útgerðarinnar og skil milli gamals og nýs tíma með eflingu Fiskveiðasjóðs og um reksturslánafélag útgerðarmanna. Þá um haustið flutti Ólafur Thors frumvarp á Al- þingi um skipan 7 manna Fiskiráðs. Ekki náði það fram að ganga, en Arnór Sigur- jónsson telur „ ekki ólíklegt að það frum- varp hafi átt einhvern þátt í að kalla fram“ frumvarp stjórnarflokkanna um Fiskimála- nefnd. Það frumvarp var svo afgreitt sem lög frá Alþingi og staðfest af konungi 29. des. 1934. Formaður nefndarinnar varð Héðinn Valdimarsson, skjótráður maður og ódeigur til framkvæmda. Fiskiráð Ólafs Thors hafði verið hugsað sem hugmyndabanki forsvarsmanna at- vinnulífs, atvinnurekenda, launþega og stjórnmálamanna. Fiskimálanefnd varð hins vegar mikið framkvæmdaapparat með tölu- verð fjárráð (eina milljón úr ríkissjóði) og fasta tekjustofna (Vi - % % fiskimálasjóðs- gjald af útfluttum fiskafurðum) og gat því haft allmikið umleikis. Má raunar segja að undir forystu Héðins fór nefndin langleiðina í að jafngilda aukaráðuneyti fyrir Alþýðu- flokkinn. AtökUmSölumál Fiskimálanefnd lét flest svið íslensks sjávarútvegs til sín taka. Þó var eftir lang- varandi deilur veturinn 1935 á það sæst að saltfiskverslunin skyldi áfram vera í höndum SIF og löggilti atvinnumálaráð- herra (Haraldur Quðmundsson) SÍF sem aðalútflytjanda á því sviði með bráðabirgða- lögum í maí 1935. Byggist allt tal um einok- uríaraðstöðu SÍF í sölumálum saltfísks síðan á þessari ráðstöfun alþýðuflokksráðherrans. Enn var þó tekist á um verksvið þessara tveggja stofnana næstu ár og hlutdeild þeirra í útflutningsversluninni. Lyktaði þeim deilum með því að SÍF annaðist salt- fiskverslunina eingöngu en Fiskimálanefnd fryggði sér einkarétt á útflutningi frysta físksins með því að skuldbinda þau hrað- frystihús, sem upp komust með hennar aðstoð, til að fela sér einkasölu á afurðum sínum. Fiskimálanefnd hafði forgöngu um fleira en hraðfrystingu. Hún fékk hingað norska menn til að kenna íslendingum skreiðar- verkun og studdi einstaka útgerðarmenn til að koma upp skreiðarhjöllum með hag- stæðum lánveitingum og beinum styrkjum. Hún stuðlaði að stórfelldum karfaveiðum til mjöl- og lýsisframleiðslu. Hún studdi og við bakið á fyrstu rækjuveiðunum og niðurs- uðuverksmiðjunum, sem komust á fót á þessum árum, stuðlaði að auknum fiski- rannsóknum og leit nýrra fískimiða, styrkti skipasmíðar innanlands og tilraunir með ný veiðarfæri og stóð fyrir margháttaðri markaðsleit erlendis. Ekki hefði þó árangur hennar á þessum sviðum nægt til að halda nafni hennar á lofti um ókomin ár fremur en annarra opinberra nefnda, sem skipaðar hafa verið í tuga- og hundraðatali fyrr og síðar. Það er árangur Fiskimálanefndar á sviði fyrstu uppbyggingar hraðfrystiiðnað- arins og sölu frystra fiskafurða, sem haldið hefur nafni hennar á loft, svo að hennar er enn minnst í útflutningssögu landsins. Strax á fyrstu fundum nefndarinnar í byijun janúar 1935 er hafín stefnumótun í þessum málum. Reynt er að koma á sam- starfí við bæði frystihúsin, sem fyrir eru, Sænska frystihúsið og Skyrfrystistöð Esp- hólíns við Norðurstíg. Komst nefndin fljótt að þeirri niðurstöðu, að hún þyrfti sjálf að ráða yfír frystihúsi til tilrauna og fram- leiðslu upp í sýnishornasendingar og í lok janúar er skrifstofustjóranum, Olafi Briem, falið að semja við Esphólín um kaup á frystistöð hans. Var frá kaupunum gengið í lok mars 1935. Jafnframt var Esphólín ráðinn í þjónustu nefndarinnar til að vinna að hraðfrystingu í Reykjavík, kenna hrað- frystingu úti á landi og leiðbeina um upp- setningu á hraðfrystivélum. Einnig skyldi hann vinna að markaðsleit erlendis. Fyrsti Sölusamningurinn í júlí þetta sama ár var hér á ferð sendi- maður frá bresku físksölufyrirtæki, H. Smethurst í því skyni að leita fastra samn- inga um kaup á ferskum físki til frystingar í Grimsby. Fiskimálanefnd komst í samband við þennan mann og benti honum á að lít- ill vegur væri að koma físki héðan óskemmdum til hraðfrystingar erlendis, en bauð í staðinn að sjá um hraðfrystingu á umsömdu magni af ýmsum fisktegundum. Fljótlega tókst að ganga frá uppkasti að samningi, en eftir undirskrift kom fljótlega í Ijós að margir endar voru óhnýttir. í ág- úst þetta ár komst að vísu á talsímasam- band við útlönd, sem hlýtur að hafa valdið byltingu í samskiptum inn- og útflytjenda við viðskiptaaðila sína. En í þessu tilfelli varð sérfróður maður að kynna sér aðstæð- ur á staðnum. Ingólfur Esphólín var sendur til Grimsby í september til að kynnast fryst- ingu þar og ræða nánar útfærslu samnings- ins. Fór raunar svo að í samningum stóð við breska fyrirtækið í nærri ár, eða til júníloka 1936. Annars vegar varð fljótlega ljóst að hrað- frystistöðin var of afkastalítil til að geta uppfyllt samninginn, sem gerður var til tveggja ára. Var þó boginn ekki hátt spenntur: Afhenda skyldi 120 tonn fyrra árið, en 180 tonn hið síðara, mánaðarlega í sem jöfnustum sendingum. Kom þá að hinum þröskuldinum sem var í veginum. Samgöngum var verulega áfátt. Tryggja þurfti að kæliskip ætti leið um Hull eða Grimsby mánaðarlega. Stóð í langvarandi samningum við Eimskipafélagið um þetta atriði og náðust ekki endanlegir samningar fyrr en 1 og Vi ári síðar eða í nóvember 1936. í millitíðinni flutti Brúarfoss frysta fiskinn til Leith og þaðan fór hann til Grimsby í kælivögnum. í lokasamkomulag- inu var ákveðið að Dettifoss annaðist þess- ar ferðir og veitti Fiskimálanefnd Eimskipa- félaginu 25 þúsund króna styrk til að útbúa skipið kælivélum til að sjá þessum viðskipt- um borgið. Að þessu leyti var til dæmis ólík aðstaða okkar og Norðmanna, sem gátu sett sinn físk strax í járnbrautarvagna og sent hvert sem var á meginlandinu. ÞORSKUR í LITLUM METUM Fyrra atriðið leysti nefndin með því að taka á leigu íshús Kveldúlfs, ísbjöminn, við Skothúsveg fyrir starfsemi sína og búa það ýmsum nýjum tækjum, sem ýmist voru keypt frá Ámeríku eða framleidd hér heima. Gat stöðin þá afkastað 2 tonnum á sólar- hring af flökum. Fór svo að þegar á fyrra ári samningsins við Smethurst tókst að afhenda þau 180 tonn, sem afhenda skyldi síðara árið. Þetta magn skiptist þannig á fisktegundir að þriðjungur skyldi vera þorskur, tæplega helmingur rauðsprettu- og sólkolaflök, og rúmlega fimmtungur ýsu- og lúðuflök. Það verður því tæpast sagt að markaðurinn hafi gert meginuppi- stöðunni í afla landsmanna, þorskinum, hátt undir höfði til að byija með. Var það enda svo framan af að reyna varð að þröngva kaupendum til að taka við vissu hlutfalli af þorski með hinum eftirsótta flat- físki. Smethurst sendi hingað tvo menn til að leiðbeina við flökun og frystingu á árinu 1936. Vann annar þeirra hér í sex vikur en hinn í 5 mánuði. Smethurst gaf líka nákvæm fyrirmæli um pökkun og allan frá- gang á fiskinum, sem leiddi til róttækra breytinga frá þeim háttum sem áður höfðu verið á hafðir. Hér hafði það löngum tíðk- ast að sjómenn og útgerðarmenn töldu sitt hlutverk að ausa sem mestum fiski í land og verka eftir því sem aðstæður leyfðu. Annarra beið svo það létta hlutverk og löðurmannlega að selja þennan „besta físk í heimi“ á erlendum mörkuðum. Hér var það frá upphafí markaðurinn sem gaf fyrir- mæli um verkun og útlit vörunnar. Þegar önnur frystihús risu með aðstoð Fiskimála- nefndar fékk hvert þeirra sitt sérstaka merki sem auðkenni á hveijum pakka, auk þess sem hver pakki hafði sérstakt númer, svo að rekja mátti hveija skemmd eða galla á vörunni til þess starfsmanns sem pakkann hafði búið út og handfjallað. Stuðningur nefndarinnar við uppbyggingu frystistöðv- anna tryggði henni svo nálega einkarétt á sölu afurðanna. Var framleiðslan þannig frá upphafí stöðluð og löguð að ítrustu kröfum markaðarins. „Ein Sé Stjórn FlSKSÖLUMÁLANNA“ Hver sem svo er skoðun manna á ríkis- rekstri og einkaframtaki má telja að það hafi gert gæfumun að frá upphafí var freð- fisksalan öll á einni hendi. Um það voru reyndar ekki svo skiptar skoðanir heldur á þessum árum, fremur hitt á hverra hendi hún væri. Vorið 1936 segir Ólafur Thors á aukafundi SIF í apríl, þar sem hörð átök urðu um tilraunir þess félagsskapar til að koma á sölu með frystan fisk til Bandaríkj- anna: „Það sem skeð hefur í þessu máli sýnir nauðsynina á því að ein sé stjórn físk- sölumálanna í landinu ... Til þess að skapa fólkinu atvinnumöguleika þarf að finna nýjar leiðir; við þurfum að brúa fjarlægðina milli auðugustu fiskimiða heimsins og þeirra milljóna manna, sem vilja kaupa fiskinn." Það tók menn hins vegar nokkurn tíma að átta sig á að þessi fjarlægð varð kannski ekki tryggilegast brúuð með einni brú. Því að hraðfrystingin er ekki bara aðferð til að geyma físk. Með henni skapaðist alger- lega ný markaðsafurð, sem átti ekkert sér- stakt sammerkt með saltfisksölu til suð- rænna landa. Markaðirnir lágu annars stað- ar og kröfðust greiðra samgangna með sérútbúnum farartækjum; frystikeðjan varð að vera samhangandi frá verstöðinni heim í íbúð neytandans. Viðskipti með frystan físk áttu því meiri samleið með viðskiptum með fryst matvæli yfírleitt en með hinni gamalgrónu saltfiskverslun. Jafnvel þótt framleiðendurnir væru í báðum tilfellum hinir sömu hlutu þeir að sérhæfa viðskiptin í höndum aðgreindra fyrirtækja. Höfundur er blaöamaöur. VARLA höfðu veizluglamrið og skálaræðurnar hljóðnað eftir Alþingishátíð- ina 1930, þegar nýr og kolsvartur veruleiki heimskreppunnar helltist yfir þjóðina með almennu verðhruni á útflutningsvörum hennar. Myndin er tekin í Reykjavík 1935, afli landhelgisbrjóts á uppboði næst á myndinni. HAUKUR SIGTRYGGSSON Snjóflóðin í Súðavík Þegar fjallið í fírðinum speglar og fannir við efstu brún hylja hvassbrýnda kletta, kaldar, þó minni á dún, en veturinn stefnir til vorsins, þó vegurinn sé ekki fær, sólin á Kofranum sýnir að sumarið færist loks nær. En þó að byljir á bresti svo bátar fari’ ekki á sjó, fólk dvelur í húsunum heima með hugann svo fullan af ró. Það veit að veðrinu slotar og vegur til byggðanna nær, allt verður einhvernveginn eins og það var í gær. En þó svo að kvöldið sé kynlegt, það hvessi og bæti í hríð, fólkið það fer allt í háttinn með fullvissu um batnandi tíð, en nóttin, nóttin hún felur nálæga hættu og vá, því fannir í tjallabrúnum festingu tæpri þar ná. Frá óttu miðar til morguns — misjafnt í draumana ber — enginn veit ævina sína eða hvenær hann fer. Hver andrá reynist sem eilífð, allt verður kynlega hljótt þó fárviðrið áfram æði og öllu það breyti í nótt. En fylling úr fjallinu hrynur og fer með drunum á slóð, ægilegt snjóflóð öskrar þó enn sé byggðin öll hljóð. Fólkið það uggir ei að sér, allt það nú sefur í ró, en byggðin, byggðin er horfin, þó brak standi upp úr snjó. Nú dagur af degi er liðinn með dapurleg sorgarský, en fólkið sem lifði a f flóðið það fer til starfa á ný, það veit að veðrinu slotar og vegur til byggðanna nær, þó allt verði einhvernveginn öðruvísi’ en í gær. Höfundur er ráðsmaður hjá Hafnarfjaröarbæ. KRISTJANA EMELÍA GUÐMUNDSDÓTTIR Á örlaga- stundu Svo agnarsmá við erum í alheimsskauti allt okkar hugvit og afl fá þar engu breytt með ógnarkrafti er öll okkar tilvera skekin — við skellum og undrumst það afl sem á okkur dynur á örskotsstundu ævistarfið hrynur en sáðkorn í jörðu spíra og vaxa að vori — vonin glæðist með tímanum sárin gróa við hlúum að blómum á látinna ástvina leiðum lítil sáðkorn í mannlegum jarðargróða. Höfundur er bókavörður í Kópavogi og hefur gefið út tvær Ijóðabækur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. FEBRÚAR 1995 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.