Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1996, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1996, Side 7
SÆLUHÚS Ferðafélags íslands á Hveravöllum. Nýja skálann sem séstá myndinni tilhægriá aðrífa ogfjarlægja samkvæmt nýja deiliskipulaginu. Ljósm.-.Kristján M. Baldursson. fjarlægja nýja Ferðafélagsskálann og fleiri mannvirki. Sveitarfélagið sem stóð að skipulaginu hafði aldrei minnsta samráð við Ferðafélagið meðan á gerð skipulags- draganna stóð og voru Ferðafélagsmenn því óviðbúnir því að þessi drög væru tekin til endanlegrar afgreiðslu. Þeir höfðu ekki ávæning af því að til stæði að skerða að- stöðu félagsins á Hveravöllum með þeim hætti sem raun ber vitni um, því að ann- ars hefðu þeir andmælt kröftuglega á sín- um tíma. Mistök Ferðafélagsins voru hinsvegar þau, að beðið var eftir sérstöku samráði um breytingar og svo fór að fresturinn rann út án þess að félagið gerði athuga- semd. Eftir þeim upplýsingum sem ég hef fengið, var þetta mjög lítið borið undir Náttúruverndarráð, en starfsmaður ráðs- ins fylgdist þó með framvindunni. Þarna hefði Náttúruverndarráð átt að láta veru- lega til sín taka í ljósi þess að Ferðafélag- ið og Náttúruverndarráð hafa haft með sér náið samstarf árum saman um endur- bætur svo sem göngustíga á Hveravöll- um.“ Ég spurði Kristján M. Baldursson, fram- kvæmdastjóra Ferðafélags íslands, hvernig bæri þá að líta á „Drög að deiliskipulagi" sem send voru í nafni Ferðafélags Islands til Skipulags ríkisins í janúar 1995. Fyrir þeim er skrifaður Pálmar Kristmundsson arkitekt og það er afar líkt hinu umdeilda deiliskipulagi Svínvetninga. Um það sagði Kristján: „Innan Ferðafélagsins hefur verið hugað að ýmsum hugmyndum og tillögum er varða starfsemi félagsins á Hveravöllum, og þá með það að leiðarljósi að hún verði þar til frambúðar. Þær skipulagshugmynd- ir fyrir Hveravelli sem Pálmar Kristmunds- son arkitekt kom með, eru ekki gerðar að frumkvæði stjórnar F.í og hún hefur aldr- ei afgreitt þær. Þetta eru hugmyndir arkitektsins og hann fór af stað með þær að beiðni þáver- andi formanns byggingarnefndar félags- ins. Á þeim eru byggingar óskilgreindar að stærð, en allavega mun minni en þær byggingar sem koma fram í skipulagshug- myndum Svínavatns- og Torfalækjar- hreppa. Áf þessu má sjá að Ferðafélagið hefur ekki sjálft látið skipuleggja Hveravalla- svæðið. Hugmyndir Pálmars um Hvera- velli ásamt hugmyndum sem snertu önnur svæði voru kynntar á stjórnarfundi F.í. í febrúar 1995, en engin afstaða var tekin til þeirra og þær voru aldrei afgreiddar frá stjórn félagsins." Góð Byrjun - Lakara Framhald Það er vel skiljanlegt að Ferðafélagið taki því ekki þegjandi ef nota á skipulags- lögin og misskildar hugmyndir um eignar- hald til að skáka því út af staðnum. Sé litið á starfsemi Ferðafélagsins á Hvera- völlum, þá nær hún aftur til 1938. Ferðir félagsins þangað hófust raunar fljótlega eftir 1927 að félagið var stofnað. Skömmu síðar var farið að beita sér fyrir vegarlagn- ingu norður á Kjalarsvæðið og merkir áfangar voru brúin á Hvítá og bygging fyrsta sæluhússins í Hvítárnesi árið 1930. Fá eru þau hús í óbyggðum sem fara eins vel í umhverfi sínu og skálinn í Hvítár- nesi, sem Jón Víðis teiknaði. Af einhveijum ástæðum var sæluhúsið sem byggt var á Hveravöllum 1938 í öðrum stíl, sem ekki fer eins vel við umhverfið og er auk þess nær hverasvæðinu en nú þætti æskilegt. En húsið var upphitað og þangað var stór- fenglegt að koma blautur og kaldur; það þekki ég sjálfur frá þeim árum er ég var íjallmaður á afrétti Tungnamanna. Það er miður að húsið hefur verið málað í litum sem eiga líklega að vekja sérstaka athygli á því í stað þess að láta liti þess falla að umhverfinu. Timburklæðning að utanverðu fer auk þess betur á svona stað en málaðir fletir. Það verður að viðurkenna að skálar Ferðafélagsins á Hveravöllum eru langt í frá að vera eins og æskilegast þætti núna. Hvað sem líður framtíðar ákvörðunum um yfirráð og eignarhald á Hveravöllum, þykir mér líklegast að þeim muni fundið fegurra form og betri staðsetn- ing. Aðeins eru um 6 ár síðan Ferðafélagið byggði nýrri skálann við bílastæðið, mun Ijær hverasvæðinu en þann gamla. Þar er sérstakt salernishús, rotþrær hafa verið gerðar og síðast en ekki sízt er að geta um timburklæddan göngustíg frá bílastæð- inu og uppá hverasvæðið með afleggjurum að einstökum hverum, svo og Eyvindart- óft. Þessir stígar, lagðir í sameiningu af Ferðafélaginu og Náttúruverndarráði, skipta sköpum og vegna þeirra þolir svæð- ið mikla og vaxandi umferð gangandi fólks. Stígurinn er ekki til prýði; hann er nauðsyn- legt neyðarúrræði og hvort hann á að vera úr timbri eða einhvetju öðru, náttúrulegu efni, getur verið vafamál. Þess má svo geta að lokum að Ferðafélagið hefur haft forgöngu um kynningu á Hveravöllum með bæklingi sínum, „Hveravellir - Dvalarstað- ur á fjöllum - Þar eru í stuttu máli upplýs- ingar um náttúru staðarins og söguleg atriði ásamt uppdrætti með helztu örnefn- um. Mannvirki á Hveravöllum sem öðrum tilheyra en Ferðafélaginu eru veðurat- hugunarstöð Veðurstofu íslands; óþarflega áberandi hús á hæð norðaustanvert við hverasvæðið. í aðalskipulagi var gert ráð fyrir að flytja það, en deiliskipulag Svín- vetninga gerir ráð fyrir því áfram á sama stað. Þá er og á staðnum smáhýsi í eigu sauðfjárveikivarna, sem gert er ráð fyrir að hverfi. Eru Stórbyggingar í SlGTI? Haukur Jóhannesson jarðfræðingur og varaforseti Ferðafélags íslands hefur verið að fara yfir þau drög að deiliskipulagi Hveravalla sem auglýst hafa verið og telur að samkvæmt þeim geri Svínvetningar nú ráð fyrir 600-900 fermetra húsi í fyrsta áfanga og síðan er gert ráð fyrir 1500 fermetra viðbótar byggingarreit. „Þennan mikla húsakost á að hita upp með af- rennsli frá hverunum“, sagði Haukur, „en áætlun um nýtingu er ófullnægjandi, reikn- ingar rangir og allt bendir til að ekki sé nægilega mikið til af heitu vatni á svæðinu miðað við þá nýtingu sem áætluð er. Á hinn bóginn á svo að taka hitann af eldri skála Ferðafélagsins. Þarna á að verða veitingarekstur og gistiaðstaða fyrir '70-80 í fyrsta áfanga, en það er kallaður hótel- rekstur á mannamáli.“ Hér virðast miklar fyrirætlanir vera á prjónunum. Um þær sagði Páll Sigurðs- son: „Ljóst er að hugmyndir Svínvetninga eru í reynd mun stórtækari en hingað til hefur verið látið í veðri vaka. Ekki fer milli mála, að mjög er vafasamt, hvort þessi viðkvæmi staður í hjarta óbyggðanna muni þola þau miklu mannvirki Svínvetn- LAUGIN við eldriskála Ferðafélagsins erfrumstæð en vinsæl. Ljósm. greinarhöf. um 1960. Eru Hveravellir Að Drabbast Niður? ÖSKURHÓLSHVER er einna sér- stæðastur hveranna á HveravöIIum. inga sem drög að deiliskipulagi gera ráð fyrir og einnig má leiða hugann að því, hverskonar ferðamennsku eða ferðaþjón- ustu skuli reka á Hveravöllum í framtíð- inni. Víst er einnig, að ekki var Seyðisá norðan Hveravalla brúuð nýlega í þágu þessara náttúruunnenda. Sú brú var óþörf; það ævintýri að aka yfir ána er úr sög- unni og vegna brúarinnar leggja nú of margir á Kjalveg á alltof illa búnum bíl- um.“ Um þá hugmynd að samstarf geti orðið á Hveravöllum með Svínvetningum og Ferðafélagi íslands, kvað Páll rétt að láta það koma fram, að þótt Svínvetningar hafi einstaka sinnum látið að því liggja í fjölmiðlum, með mismunandi óljósu orða- lagi, að ekki væri loku skotið fyrir sam- starf, hafi þeir ekki boðið til neinna slíkra viðræðna og aimennur áhugi meðal stjórn- armanna Ferðafélagsins sé naumast fyrir hendi. Ennfremur er þess að geta, að í ágústmánuði síðastliðnum fór Ferðafélagið þess formlega á leit við hreppsnefnd Svína- vatnshrepps, að hún veitti svokallað stöðu- leyfi til allmargra ára fyrir núverandi að- stöðu Ferðafélagsins á Hveravöllum. Því erindi hefur aldrei verið svarað þrátt fyrir margar ítrekanir. Sú skoðun hefur heyrzt frá þeim norðan- mönnum að Hveravellir hafi látið á sjá og er þá einkum átt við hverasvæðið, en einn- ig gróðurfar í kring. Sjálfur kom ég fyrst á Hveravelli 1945 og síðan hef ég bæði komið þangað margsinnis og tekið urmul af ljósmyndum. í ljósi þess sem ég hef séð get ég alls ekki tekið undir þennan hnign- unarsöng. Þess ber að gæta að kísilmynd- anir kringum hveri eru ákaflega viðkvæm náttúrusmíð og sjálf er náttúran ýmist að hlaða þær upp eða bijóta þær niður. Gaml- ir sveitungar mínir úr Biskupstungum þótt- ust geta greint breytingu á Öskurhólshver frá því þeir sáu hann fyrst og samkvæmt Þorvaldi Thoroddsen hefur hvinurinn verið hærri á hans tíð. Ég minntist á þetta við Jóhann oddvita í Holti og hann stóð fastur á hnignunar- kenningunni. Hann hafði komið til Hvera- valla fyrir mörgum áratugum og kvaðst þá hafa séð gijófyí hverunum sem fólk hafði kastað í þá. Áreiðanlega er það ekki til núna að slíkt sé gert. Þjónusta væri ekki sem skyldi, sagði hann; til dæmis kæmi oft fyrir að alveg matarlausir ferða- langar gerðu vart við sig á Hveravöllum og þeir gætu ekkert matarkyns fengið þar. Fé væri á beit við hverasvæðið, sem væri til vansa. Þá taldi Jóhann að ekki dygði að hafa landverði á Hveravöllum ein- ungis að sumarlagi. Aðkoman síðla vetrar hafi ekki verið góð; nýi skálinn óupphitað- ur og málningin flögnuð af, sagði oddviti Svínvetninga. Ugglaust er rétt að gróðurinn niður með læknum sé mjög viðkvæmur og þoli illa áníðsluna þar sem tjaldað er. En um það að stórsjái á Hveravöllum frá fyrri tíð erum við Jóhann alveg ósammála. Um meinta hnignun á staðnum sagði Páll Sigurðsson: „Mér fínnst vera gert of mikið úr henni af norðanmönnum. Maður gæti ímyndað sér að sæist rusl á staðnum eftir alla þessa ferðamenn, en það sést furðu lítið. Ferðamenningin hefur batnað. Ferðafélag íslands og Náttúruverndarráð eru með sameiginlega starfskrafta á Hveravöllum. Þeir sjá um skálana, vísa þar til rekkju, sjá um þrif á skálunum og einn- ig er þeim stranglega uppálagt að hirða LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3. FEBRÚAR 1996 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.