Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1996, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1996, Side 6
Sakamanna- dysjar í Kópavogi ÍBÚÐARHÚS í hinu sólríka þorpi Igaliko. Ljósm.: Inga Dagmar Karísdóttir. LISTA VERKIÐ á veggnum við rústir Brattahlíðar sem að hluta er einskonar uppdráttur af fornminjum. Ljósm.:Inga Dagmar Karísdóttir. farið til Danmerkur til náms líkt og fleiri ungar grænlenskar konur gera en svo virð- ist sem ungir karlmenn fari síður í lang- skólanám en konur, einkum fyrir þá sok að þeir fara að vinna snemma við það sem býðst í Grænlandi og festast þar. Mikil veðursæld er sögð ríkja í Igaliko á sumrin og reyndin er sú að við fengum yndislegt veður er við vorum þar. Hafflötur- inn í fjarðarbotninum var eins og spegill og hitinn komst upp í að minnsta kosti 20 gráður á Celsius yfir hádaginn. í hugum okkar er Igaliko friðsæl para- dís. Þar er enda gróðursælla en víðast ann- ars staðar í Grænlandi og þar ríkti friður og kyrrð. Asinn vár enginn á fólkinu og fuglarnir valhoppuðu syngjandi milli þúfna. Lömbin bitu grasið í kæruleysi og náttúran virtist öll dunda sér. Það virtist hægjast á tímanum í Grænlandi en jafnvel enn frekar í Igaliko. Taktur tímans virtist þar annar en maður hefur vanist. Igaliko var ríkur staður að heimsækja þar sem tíminn virtist nægur en tíminn er auðlind sem víða er takmörkuð í hinum vestræna heimi. í þessari smáu „paradís" var einmitt bisk- upsstólnum valinn staður til forna en þar sem Igaliko er nú voru áður Garðar. Ýmsar fornminjar hafa verið grafnar upp en einna merkilegust er gröf biskups þar sem beina- grindin er ein eftir og svo biskupsstafurinn. Einnig eru leifar dómkirkjunnar í Görðum merkilegar en hún var stór eða 27 metrar á lengd og um 16 metrar á breidd og hafði litað gler í gluggum. Kirkja þessi var helg- uð heilögum Nikulási, verndardýrðlingi sæfarenda. Anders Olsen hóf hér kúa- og fjárbúskap og síðar afkomendur hans, allt til dagsins í dag, en fyrstu húsin sem fólk- ið bjó í voru byggð úr steinum sem teknir voru úr fornminjunum. Allir voru sammála um að Igaliko væri fallegur og góður staður og vildu helst dvelja þar lengur en áætlað var. Óskin uppfylltist að vissu marki þar sem Erling tafðist um sex klukkustundir í Narsaq. Um 15 mínútna gangur er frá Igaliko norður yfir í Eiríksfjörð en þangað fór hópurinn gangandi til móts við „Perluna" að kvöldi. Við kvöddum Igaliko og héldum yfir til Bröttuhlíðar í botni Eiríksfjarðar. Qassiarsuk - Brattahlíð Qassiarsuk er grænlenskt heiti yfír svæð- ið sem Brattahlíð tilheyrði til foma. Eiríkur rauði nam þama land en Brattahlíð og lönd- in í kring eru besta landið í Suður-Græn- landi með tilliti til fjárbúskapar. Landnem- amir voru með nautgripi, sauðfé og hesta en stunduðu auk þess fiskveiðar. En líkt og mannfólkið hvarf féð úr Grænlandi líklega einhvem timann á 16. öld. Sauðfjárbúskapur hófst aftur í Bröttuhlíð árið 1924. Nú er dálítil þyrping við Bröttu- hlíð, smá verslun og farfuglaheimili. Áhrifa Eiríks rauða gætir þó enn. Veglegt minnis- merki eftir grænlenska listamanninn Hans Lynge var reist Eiríki til heiðurs árið 1982 nærri farfuglaheimilinu. Tilkomumestar em þó rústir og leifar hýbýla og fjárhúsa land- námsmannanna sem liggja rétt utan við þorpið. Stórt listaverk á klettavegg ofan við rústirnar vekur einnig athygli en það er í senn umhverfíslistaverk og leiðarvísir um rústirnar, þ.e. nokkurskonar „kort“ af upp- graftarsvæðinu. Einnig em merkilegar minj- ar nærri fjöruborðinu skammt frá rústum norræna bæjarins en þar er lítið hús hlaðið úr torfí og gijóti. Hús þetta er leifar frá vem Thulefólks við Qassiarsuk en nálægð þess við norrænu minjamar minna á sam- skipti norræns fólks og Inúíta á öldum áður. Landið allt í kring býður upp á skemmti- legar gönguleiðir. En næst síðasta dag okk- ar í Grænlandi var farið að bera talsvert á bitmýi. Að sögn er bitmýið oft til ama í Grænlandi, sérstaklega þar sem óvanir em á ferð. Á síðasta degi okkar í Grænlandi flutti Erling okkur á „Perlunni" síðasta spölinn, yfír Eiríksfjörðinn til Narssarssuaq þar sem Flugleiðaþota beið okkar. Þannig endaði ferðin þar sem hún hófst og við þökkuðum skipstjóranum fylgdina. Grænland er sérstakt land að heimsækja. Það er líkt og það sé í annarri vídd þar sem tíminn Iíður hægar. Raunar er sem flest sé frosið í einu augnabliki, fjöllin, firðimir, fugl- amir, féð og fólkið. Aðrar hugmyndir, siðir, náttúra og efnahagur hljóta að koma fram í daglegu lífi fólksins þótt það þurfi auðvitað að hafa fyrir sínu eins og annað fólk. Asinn virðist hins vegar ekki til meðal fólksins sem við hittum. Hins vegar er hið „frosna augnablik" ekki raunvemlegt nema fyrir ferðamann sem kemur og fer. Náttúran tekur miklum breyt- ingum í hringrás tímans. Veturinn í Græn- landi er kaldur og dimmur en sumrin stutt. Við upplifðum einungis „augnablik" í ævi fólksins, komum í stutta heimsókn og vorum farin fljótt aftur. Við upplifðum ekki vetrar- ríki Grænlands. Hins vegar er það ekki sýnd- arveruleiki að fólk býr í Grænlandi, lifir þar lífí sínu í samfélagi sem á rætur sínar að rekja til fólks sem aðlagaði sig norðrinu og varð hæfara öðmm að nýta sér náttúru heimskautsins. Höfundarnir eru nemar í mannfræði. Fyrir nokkru var ágæt frásögn í Lesbók Morgun- blaðsins eftir Helga M. Sigurðsson um gamalt morðmál frá 1704. Tildrög málsins voru þau að í Árbæ bjó Sigurður Arason, 26 ára gamall maður, með móður sinni á móti hjónunum í fyrra birtist í Lesbók grein um morð við Skötufoss í Elliðaám árið 1704. Sakborningarnir, Sigurður Arason og Steinunn Guðmundsdóttir voru teknir af lífi á Kópavogsþingi sama ár. Fornleifarannsókn var gerð á svonefndum Hjónadysjum við Kópavogslæk 1988 og eru hér leiddar líkur að því að þar hafi fundist jarðneskar leifar Steinunnar og Sigurðar. Eftir GUÐMUND ÓLAFSSON Sæmundi Þórarinssyni og 44 ára gamalli konu hans Steinunni Guðmundsdóttur. Þann 22. september 1704 fannst Sæmund- ur látinn í Elliðaá. Skömmu síðar vaknaði grunur um að hann hefði verið myrtur og við yfirheyrslur hjá Paul Beyer landfógeta játaði Sigurður að hafa myrt Sæmund að undirlagi Steinunnar. Þau Steinunn voru tekin af lífi á Kópavogsþingi sama ár. Henni var drekkt í Kópavogslæk og hann var hálshöggvinn. í Vallaannál er þess jafn- framt getið að höfuð Sigurðar hafi verið sett á stöng við gröf hans. Mál þeirra hef- ur orðið kveikja að draugasögu í nokkrum gerðum og er afturgangan ýmist nefnd Selsmóri, Sviðholtsdraugur eða Þorgarður. í niðurlagi fyrrnefndrar Lesbókargreinar segir að annað sé ekki vitað um afdrif þeirra Steinunnar og Sigurðar en talið að grafir þeirra hafi fundist við vegagerð á fyrri hluta aldarinnar. Verður hér reynt að bæta nokkru við þá frásögn. Munnmæli og sagnir um dysjar þeirra sem teknir voru af lífi á Kópavogsþingi hafa jafnan fylgt svæðinu og sést enn móta fyrir dys við gamla veginn sem liggur frá Kópavogslæk upp Amarnesið. Frásagnir um beinafundi sem taldir hafa verið úr sakamannadysjum hafa einnig minnt á aftökurnar. Nokkrum sinnum hafa t.d. mannabein fundist í grennd við Gálga- kletta í Garðabæjarhrauni. Þá er, eins og áður er getið, til frásögn um að vegagerðar- menn hafi árið 1938 fundið höfuðkúpu með miklu hári við Kópavogslæk og aðra beina- grind höfuðlausa. Þessi bein munu hafa verið sett aftur á sinn stað, en ekki var fundarstaðurinn staðsettur neitt nánar. í þessari grein, sem er stytt útgáfa grein- ar sem birtast mun í næsta hefti tímarits- ins Landnám Ingólfs, er sagt frá fornleifa- rannsókn sem gerð var á svonefndum Hjónadysjum við Kópavogslæk vorið 1988 í sambandi við breikkun Hafnarfjarðarveg- ar. Leitt er að því líkum að þar hafí fund- ist jarðneskar leifar Steinunnar og Sigurð- ar. Fyrir rannsókn sást dálítil þúst í krikan- um milli Hafnarfjarðarvegar og Fífu- hvammsvegar sem talin var vera dys (mynd 1). Fyrirsjáanlegt var að nýi vegurinn hlyti að fara yfir hana að hluta eða öllu leyti. Auk greinarhöfundar unnu fornleifafræð- ingarnir Sigurður Bergsteinsson og Lise Bertelsen við rannsóknina. HJÓNADYSJAR fyrir rannsókn.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.