Lesbók Morgunblaðsins - 31.08.1996, Page 16
Menningarárið í
Kaupmannahöfn er
nú farið að síga á
síðari hlutann. Fyrri
hluta ársins höfðu
fjórar milljónir
manna sótt það sem
í boði var.
Söngleikir hafa nýlega orðið áberandi í
dönsku leikhúslífi. Lengi vel virtust leikhús-
stjórar álíta að slíkar uppsetningar væru of
viðamiklar, of dýrar og að Danir hefðu ekki
nægilega mörgum hæfum kröftum á að skipa
til að slíkt gæti gengið. Hugaðir leikhúsmenn
í 0stre Gasværk, gömlu gasstöðinni úti á
Austurbrú hafa þó sýnt að slík svartsýni átti
ekki við rök að styðjast. Þeir tóku áhættuna,
listamennirnir létu ekki á sér standa og áhorf-
endur flykktust að.
Nú eru næstum engin takmörk fyrir hvað
dregið er upp af söngleikjum. Ævi H.C.
Andersens og Thorvaldsens hefur tekið á sig
söngleikjaform, auk annarrar danskrar ný-
sköpunar, en klassískir söngleikir eins og
Vesalingarnir hafa einnig verið sýndir.
Næsta stórvirki í gasstöðinni er bandaríski
söngleikurinn Miss Saigon, sem verður sýnd-
ur í fyrsta skipti á Norðurlöndum hér í byij-
un október.
Af öðum söngleikjum má nefna sýningu
Folketeatret á Guys and Dolls. Hárið er
annar kunnuglegur söngleikur, sem Betty
Nansen leikhúsið á Friðriksbergi sýndi í fyrra
og tekur nú aftur upp. Leikstjóri er Peter
Langdal, einn af yngri og hugmyndaríkari
dönskum leikstjórum og sviðsmyndin er eftir
Christian Lemmerz, þýskan myndlistarmann,
sem býr í Danmörku og hefur oft skekið
Dani með uppátækjum sínum eins og þegar
hann sýndi samansaumaða svínaskrokka fyrir
nokkrum árum. Góða sálin í Sezuan er eftir
Bertold Brecht, en danskur hópur hefur snúið
verkinu í söngieik með tónlist eftir Sebastian.
Ghita Norby og fleiri
Danir eiga sér ríka farsahefð og nokkur
dönsk leikhús sérhæfa sig í gamanleikjum og
revíum. Eitt þeirra er Privat Teatret, sem
sýnir Frænku Charleys í haust. Hjá Det Ny
Teater verður Heymæði Noel Cowards sýnt
með stjörnuleikurunum Susse Wold og eigin-
manni hennar Bent Mejding í aðalhlutverkum.
Dr. Dante leikhúsið hefur getið sér gott
orð fyrir uppsetningar, sem oft höfða mjög
til ungs fólks, þó dönsk leikhús kvarti- al-
mennt yfir að ungt fólk sæki ekki leikhúsin
nóg. I fyrra var sýnd þar áhrifamikil spennu-
sýning, Ned i en kælder, eftir ungan danskan
leikritahöfund Lars Kaalund. í haust verður
frumsýnt nýtt verk eftir hann, Kunst eða List.
Terra Nova er einnig leikhús, sem
freistar þess að feta nýjar leiðir og það
verður gert með sýningunni Marindvor.
Hér er einnig á ferðinni ástarsaga, nútíma
Rómeó og Júlíu saga með sannsögulegum
kjarna. Þetta er saga úr Bosníustríðinu.
Sænski rithöfundurinn Jonas Gardell hefur
skrifað hvert verkið á fætur öðru og hlotið
firna athygli í heimalandi sínu. Nú ætlar
Teatret ved den Sorte Hest á Vesturbrú að
kynna hann Dönum með verkinu Isbirnirnir.
Leikritið segir frá fjölskyldulífi, sem eins og
nafnið bendir til er ekki þrungið hlýju og
kærleik. Gardell þykir ekki aðeins gagnrýn-
inn, heldur meinlegur á kaldranalegan hátt.
Konunglega leikhúsið er líka á dramatísku
línunni, þegar það sýnir Mirakelmageren
eftir írann Brian Friel. Leikritið fjallar um
þrjár persónur, sem elska og hata, en geta
ekki losað sig hver frá annarri. Það eru þrír
af þekktustu leikurum Dana, sem fara með
hlutverk þremenninganna, þau Ghita Norby,
Henning Moritzen og Ole Ernst.
Og meiri Friel, því hjá Konunglega er einn-
ig verið að sýna annað leikrit eftir hann,
Molly Sweeney. Einnig hér eru þjár persón-
ur á sviðinu. Molly er blind og lifir viðburða-
litlu lífi í sátt við bæklun sína. Einn dag
kynnist hún Frank, sem fær hana til að gang-
ast undir uppskurð, svo hún öðlast sjón.
Það næsta sem hið Konunglega kemst
söngleik er nýtt danskt tónlistardrama, Bil-
limil eftir hinn gamalreynda leikhúsmann
Gerz Feigenberg og tónlistarmanninn Fuzzy.
Billimil er tíræður öldungur frá Vestur-Ind-
íum en af dönskum ættum. Hann kemur í
fjórða sinn á ævinni til Danmerkur 1996 og
lítur yfir farinn veg og hugsar um ástina.
Á hinu Konunglega gleymist heldur ekki
dönsk klassík, svo En idealist, Hugsjónamað-
ur, eftir Kaj Munch verður frumsýnt þar í
haust. Leikritið þykir eitt hið merkasta í
dönskum leikbókmenntum.
Lwlw og Xerxes
Ópera Alban Bergs, Lulu, er nú á sviði
Ridehuset við Kristjánsborgarhöll og hefur
ekki verið flutt öll áður á Norðurlöndunum.
Síðasta sýning 7. september.
ÓFELÍA, Marie-Pierre Flechais, lætur vel að Hamlet, Johan Kobborg.
EKKERTLATA
MENNINGAR-
VEISLUNNI
Menninggrórió t Kaupmannahöfn er farió aó síga
á seinni hlutann. Haustió veróur vióburóaríkt eins
og SIGRUN DAVIÐSDOTTIR rekur hér á síóunni.
SUSSE Wold og Bent Mejding í Heymæði Noel Cowards.
Óperuflutningur er mest undir þaki hins
Konunglega við Kóngsins nýja torg. Allar
nýjar uppfærslur á ítölskum, þýskum og
frönskum óperum eru sungnar á frummálinu,
sem gleður vísast erlenda óperugesti hússins.
Þeim brá oft illilega, þegar söngvararnir hófu
upp raust sína á_ kokkenndri dönsku.
Verdi-óperan Á valdi örlaganna er_nýfar-
in á sviðið aftur við góðan orðstír. Óperan
Maskerade eftir danska tónskáldið Carl Ni-
elsen tilheyrir dönskum þjóðartónmenntum
og hún er á sviðinu núna í haust. Ný upp-
færsla, sú fyrsta í Danmörku, á óperu Hánd-
els, Xerxes er einn helsti listræni viðburður
haustsins, en hún verður frumsýnd í septem-
ber. Annar viðburður er frumsýning nýrrar
STJÖRNUÞRÍEYKI Konunglega leikhúss-
ins, þau Henning Moritzen, Ghita Norby
og Oie Ernst í leikriti Brian Friels.
danskrar óperu, Doramen eða Dómurinn, í
október. Niels Rosing-Schow er tónskáldið
og sagan gerist á okkar dögum. Baksviðið
er örlagaríkar ástir og pólitísk átök í Evrópu
og óperan er sýnd í Arken, nýja danska safn-
inu fyrir samtímalist, sem er í Ishoj, ná-
grannabæ Kaupmannahafnar.
Önnur nútímaópera verður frumsýnd í öðr-
um nágrannabæ Kaupmannahafnar, Alberts-
lund, en það er Nuit des Hommes eftir
danska tónskáldið Per Norgárd.
í lok september hefst tónlistarhátíð, sem
stendur fram í nóvemberbyijun, helguð þýska
tónskáldinu Karlheinz Stockhausen. Hann
þykir einn athyglisverðasti tónsmiður aldar-
innar og þess má geta að Björk metur hann
mikils og tók reyndar við hann viðtal í vor
fyrir tónlistartímarit.
Shakespeare:
áhrifavaldwr i ballett
Á ballettsviðinu er Shakespeare óvænt í
aðalhlutverki, því leikrit hans eru bakgrunnur
þriggja balletta. Miðsumarnæturdraumur
er ballett eftir Bandaríkjamanninn John Neu-
meier, ballettmeistara í Hamborg, sem hefur
gert fleiri rómaða Shakespeare-balletta. Bal-
lettáhugamenn ættu ekki að láta sýningar á
verkum hans fram hjá sér fara, ef þær verða
á vegi þeirra, því hann þykir einn snjallasti
danshöfundur í hópi þeirra, sem semja fyrir
klassíska hópa. Hann leggur mikla áherslu á
persónusköpun dansaranna og nær oft miklu
út úr þeim. Rómeo og Júlía er sígilt verk
Bretans Sir Frederick Ashton, sem hann skóp
handa Konunglega ballettinum 1955 og nýj-
asta sköpunarverkið er svo Hamlet eftir
Danann Peter Scaufuss, sem náði að vera
ballettmeistari við Kóngsins nýja torg í eitt
ár, áður en hann sá sig tilneyddan til að
segja upp.
Ballettinn er við tónlist danska tónskálds-
ins Rued Langgaard og hins frumlega og
kröftuga rokkhóps Svört sól. Hópurinn flytur
sjálfur tónlist sína með ballettinum, sem var
frumsýndur í skjóli Krónborgarkastala við
dræmar undirtektir gagnrýnenda. í haust
verður hann sýndur innanhúss við Kóngsins
nýja torg. Breski sviðshönnuðurinn Steven
Scott gerði sviðsmynd og ljós, sem hvort
tveggja er eftirminnilegt sjónarspil. Glerflek-
ar renna upp úr gólfinu, fyllast eða tæmast
af vatni og stundum lituðu vatni, sem bland-
ast í fraktalakennd mynstur, svo annað eins
hefur sjaldan sést. En stórbrotin umgerð og
góður flutningur megnaði ekki að lyfta sýn-
ingunni, því sjálfur dansinn var ófrumlegur
og óaðlaðandi, svo Schaufuss jók ekki hróður
sinn með honum.
Á Louisiana lýkur stórviðburði þeirra á
menningarárinu 8. september. NowHere er
viðamikil sýning á því nýjasta nýja í nútíma-1
list og titillinn er orðaleikur í kringum Nú
hér og hvergi. Fimm listfræðingar voru
fengnir til að setja upp hver sinn hluta sýning-
arinnar. Útkoman er eiginlega sýning á æðra
plani, þar sem listfræðingarnir skapa eigið
verk úr verkum listamannanna. Sýningin er
því ekki aðeins vísbending um hvað hrærist
hjá listamönnunum, heldur einnig um stöðu
og áhrif listfræðinga og annarra, sem sjá um
að setja saman sýningár. En auk þessa er
sýningin eiginlega hylling til Knud W. Jens-
ens, listunnandans sem stofnsetti Louisiana
fyrir rúmum þijátíu árum, því það var hann
sem átti hugmyndina að sýningunni. Þeir sem
settu hana saman sækja síðan flestir innblást-
ur í sjálft safnið og í það leiðarljós sem Knud
W. Jensen setti sér í upphafi.
Þeim sem finnst að list sé eitthvað sem
fari vel á veggnum yfir sófanum finna tæp-
lega mikið fyrir sinn smekk. En þeir sem eru
spenntir fyrir blikkandi ljósum, göngum með
vídeómyndum og tónsettri list fá þarna ærið
að hugsa um og spá í.
Það er ekki allt stórt í sniðum á menningar-
árinu. The Real Thing er spaugileg sýning,
sett upp í gamalli rútu, þar sem munirnir eru
ósmekklegir minjagripir víðsvegar að. Hafið
augum hjá ykkur ef þið eruð á ferð um Kaup-
mannahöfn, því rútan hefur nokkra viðkomu-
staði í miðbænum.
Danski kvikmyndagerðarmaðurinn Lars
von Trier er nýbúinn að raka að sér hrósyrð-
um fyrir kvikmynd sína Breaking the Waves,
bæði í Cannes og víðar. í september fær
hann að spreyta sig á ísetningu hjá Kunstfor-
eningen á Gamle Strand, skáhallt á móti
Thorvaldsenssafninu undir nafninu Yerdens-
uret eða Heimsklukkan. Von Trier hefur
gert ýmsar myndir, en það voru sjónvarps-
þættirnir Ríkið, um draugagang og annan
gang á Ríkisspítalanum, sem lyftu honum
upp á stjörnustall í Danmörku og víða og
öfluðu honum gríðarlegra vinsælda.
í september verður haldin viðamikil sýning
á elektrónískri list á Statens Museum for
Kunst við Solvtorvet, skammt frá Kongens
Have.
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 31.ÁGÚST1996