Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.1996, Side 2
Ljóð leik-
skólabarna
í TILEFNI af Degi íslenskrar tungu gefur
Félag íslenskra leikskólakennara út Ljóðabók
eftir leikskólabörn. Stór þáttur í daglegu starfí
leikskóla er málrækt og málörvun og setja ung
börn gjaman hugsanir sínar og upplifanir í
ljóðaform sem leikskólakennarar skrá,“ segir
í kynningu.
Ljóðin koma víða af landinu og var úr mikl-
um fjölda að velja. Markmiðið er að auka veg
íslenskrar tungu. Ljóðabókin verður send í alla
leikskóla á landinu. Auk þess verður hún til
sölu á vægu verði í bókabúðum Máls og menn-
ingar, Skólavörubúðinni og hjá Félagi íslenskra
leikskólakennara, Grettisgötu 89, Reykjavík.
Handrit
Laxness
HANDRIT Halldórs Laxness verða afhent til
varðveislu í handritadeild Landsbókasafns ís-
lands - Háskólabókasafns við hátíðlega athöfn
í þjóðarbókhlöðu í dag, á degi íslenskrar tungu.
Það er Auður Laxness sem afhendir handrita-
safn eiginmanns síns. Við athöfnina verður
lesið úr áður óbirtu bréfí sem Halldór skrifaði
móður sinni 1919 og Skúli Bjöm Gunnarsson,
verðlaunahafí Bókmenntaverðlauna Halldórs
Laxness, mun lesa úr verðlaunabók sinni, Lífs-
klukkan tifar.
Við þetta tilefni verður opnuð sýning á hand-
ritum Halldórs og bréfum úr bréfasafni hans.
Morgunblaðið/Kristinn
Daguríslenskrartungu
Móðurmólið mittgóða
IDAG er dagur íslenskrar tungu haldinn
hátíðlegur í fyrsta skipti á afmælisdegi
Jónasar Hallgrímssonar en það mun
verða gert ár hvert héðan í frá. Þema
dagsins í ár er Jónas Hallgrímsson, líf
hans og list, en yfirskrift dagsins að
þessu sinni er einnig frá Jónasi komin:
„Móðurmálið mitt góða.“ Verðlaun Jón-
asar Hallgrímssonar verða veitt í fyrsta
skipti á samkomu, sem menntamálaráðu-
neytið gengst fyrir í Listasafni íslands,
og fjölbreytt dagskrá verður víða um
land í tilefni dagsins. Málræktarþing
verður haldið í Háskólabíói og sérstakar
dagskrár tileinkaðar Jónasi verða í skól-
um, bókasöfnum, ýmsum stofnunum og
í fjölmiðlum. Myndin hér að ofan er af
opinni æfingu nemenda í islensku 502 í
Menntaskólanum í Kópavogi á leikgerð
Halldórs Laxness, Úr myndabók Jónasar
Hallgrímssonar, með tónlist eftir Pál
ísólfsson.
Morgunbloðið/Golli
ALDA Sigurðardóttir undirbýr sýninguna í klefa sínum.
Myndlistarsýning í
fangelsinu við Síðumúla
SAMSYNING 16 myndlistarmanna verður
opnuð í dag, laugardag, kl. 16 í fangelsinu
við Síðumúla 28 í Reykjavík. Fangelsismála-
stofnun ríkisins lánar húsnæðið til þeirra
nota en fangelsið var formlega lagt niður
í maí sl. Sýningunni hefur verið gefíð nafn-
ið Tukt. Hver listamaður hefur einn klefa
til umráða fyrir innsetningu. Hugtakið „inn-
setning“ er þekkt í myndlist og er notað
þegar listamaður tekur mið af því rými sem
hann sýnir verk sitt í eða ef verkið er unn-
ið sérstaklega inn í rýmið. Hugtakið er einn-
ig þekkt í fangelsum og þá í annarri merk-
ingu.
Eftirfarandi listamenn taka þátt í sýn-
ingunni: Alda Sigurðardóttir, Anna Líndal,
Áslaug Thorlacius, Eygló Harðardóttir,
Finnbogi Pétursson, Finnur Arnarson, Guð-
mundur Gíslason (sérstakur gestur lista-
mannanna), Haraldur Jónsson, Hlynur
Helgason, Illugi Eysteinsson, Magnea Þ.
Ásmundsdóttir, Pétur Örn Friðriksson,
Ragnheiður Ragnarsdóttir, Ragnhildur
Stefánsdóttir, Svala Norðdahl og Þóroddur
Bjamason.
Sýningin stendur í tvær vikur og lýkur
sunnudaginn 1. desember. Opnunartími
er frá kl. 16-20 alla virka daga og frá
kl. 14-18 um helgar. Aðgangseyrir er 200
kr., en af honum renna 50 krónur til
Verndar, félagasamtaka um fangahjálp.
Umsjónarmaður sýningarinnar er Illugi
Eysteinsson myndlistarmaður.
Verk Guðmundar
Hafsteinssonar
FIMM verk eftir Guðmund Hafsteinsson
tónskáld verða flutt á tónleikum í Fella-
og Hólakirkju kl. 14.30 í dag.
Verða þrjú þeirra frumflutt, Borgar-
kveðja, kvartett fyrir víbrafón, hörpu, ung-
verskt cimbalom og píanó, sem Pétur Grét-
arsson, Elísabet Waage, Guðmundur Haf-
steinsson og Anna Guðný Guðmundsdóttir
flytja undir stjórn Snorra Sigfúsar Birgis-
sonar; Hugur minn líður, tvö sönglög við
ljóð Snorra Hjartarsonar, sem Marta Guð-
rún Halldórsdóttir mun syngja með píanó-
leik höfundar og Brum, lúðraþytur fyrir
átta málmblásara og fjóra saxófóna, sem
fluttur verður af blásurum í Sinfóníuhljóm-
sveit íslands ásamt fleirum.
Marta Guðrún mun einnig flytja Hann
veitir kraft ásamt Ásgeiri Steingrímssyni,
Eiríki Erni Pálssyni, Emil Friðfínnssyni,
Sigurði Þorbergssyni og Lenku Mátéovu.
Loks mun Sigrún Eðvaldsdóttir flytja Spuna
II fyrir einleiksfiðlu.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Sýn. á aðföngum safnsins sl. 5 ár. Sýn. á
verkum Kjarvals til 22. desember.
Listasafn Islands
„Ljósbrigði". Úr safni Ásgríms Jónss. til 8. des.,
,A vængjum vinnunnar“ til 19. jan.
Gerðuberg - Gerðubergi 3-5
Sjónþ. Guðrúnar Kristjánsd. til 15. des.
Sjónarhóll - Hverfisgötu
Sýn. Guðrúnar Kristjánsd. til 15. des.
Gallerí List - Skipholti 50b
Guðrún Indriðad. sýnir út mán.
Listgallerí - Listhúsinu Laugardal
Guðrún Lára Halldórsd. sýnir til 28. nóv.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Pekka Niskanen sýnir til 1. des.
Gallerí Listakot - I.augavegi 70
Margrét Guðmundsd. sýnir til 18. nóv.
Norræna húsið - Hringbraut
Gunnar Örn sýnir til 1. des. og Roger Wester-
holm sýnir til 24. nóv.
Listasafn Kóp. - Hamraborg 4
Afmælissýn. Ljósmyndaraf. Isl./Guðbjörg
Pálsd./Alistair Maclntyre/til 1. des.
Hafnarhúsið - við Tryggvagötu
Anna Jóa sýnir til 17. nóv.
Gallerí Fold - Laugavegi 118
Haraldur (Harry) Bilson og Helen Margaret
Haldene sýna til 17. nóv.
Gallerí Hornið - Hafnarstræti 15
Benedikt Kristþórsson sýnir.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Steingrímur Eyfj./Margrét Sveinsd. til 17. nóv.
Sólon íslandus - við Bankastræti
Guðmunda Andrésd. sýnir til 8. des.
Gallerí Sævars Karls - Bankastræti 9
Sigrún Ólafsdóttir sýnir.
Önnur hæð - Laugavegi 37
Lawrence Weiner sýnir til áramóta.
Gallerí Stöðlakot - Bókhlöðustíg 6
Verk eftir Gunnlaug Scheving til 1. des.
Listhús 39 - Strandgötu 39, Hf.
Jean Pospcco sýnir til 2. des.
Gallerí Úmbra - Amtmannsstíg 1
Sari Tervaniemi sýnir.
Gallerí Greip - Hverfisgötu 82
„Hinsta sýningin" 64 sýnendur, til 17. nóv.
Listasafn Siguijóns - Laugarnect. 70
Valin verk Siguijóns Ólafssonar.
Gullsmiðja Hansínu Jens - Laugav. 20b
Ragnhildur Stefánsd. sýnir.
Gallerí Míró - Fákafeni 9
Ingó sýnir ljósm. til 23. nóv.
Gallcríkeðjan - Sýnirými
Sýn. í nóv.: í sýniboxi: Victor G. Cilia. í barmi:
Haraldur Jónss. Berandi: Valgeiður Matthíasd.
Hlust: 5514348: Margrét Lóa Jónsd.
Ljósmyndast. Myndás - Laugarásv. 1
Sigríður Kristín sýnir til 29. nóv.
Laugardagur 16. nóvcmber
Hátíðartónl. í Dómkirkjunni kl. 17. Reykja-
lundarkórinn í Hlégarði kl. 20.30. Kór
Menntask. að Laugarvatni í Langholtskirkju
kl. 17. Karlak. Dalvíkur í Selfosskirkju kl.
15 og í félagsh. Seltjarnarn. kl. 20.30.
Sunnudagur 17. nóvember
Örn Magnússon píanól. á tónl. í Safnaðarh.
Vinaminni, Akranesi.
Mánudagur 18. nóvember
Kammersveit Reykjav. í Listasafni ísl. kl.
20.30.
Þriðjudagur 19. nóvember
Elfsabet F. Eiríksd. og Elfn Guðmundsd. í
Norræna húsinu kl. 20.30. Björk Jónsd.,
Signý Sæmundsd. og Gerrit Schuil á tónl. í
Fella- og Hólakirkju kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið Kennarar óskast frums. fos.
22. nóv. Nanna systir sun. 17. nóv., lau.
í hvítu myrkri lau. 16. nóv., fim.
Kardimommubærinn sun. 17. nóv.
Þrek og tár lau. 16. nóv., sun.
Leitt hún skyldi vera skækja sun. 17. nóv.,
mið., fös., lau.
Borgarleikhúsið Ef ég væri gullfiskur lau.
16. nóv., lau.
Largo desolato lau. 16. nóv., sun.
BarPar á Leynibamum lau. 16. nóv., fös.
Stone Free fös. 22. nóv.
Svanurinn sun. 17. nóv., fim., lau.
Trúðaskólinn sun. 17. nóv., lau.
Leikfélag Akureyrar Sigrún Ástrós lau. 16.
nóv.
Dýrin í Hálsaskógi lau. 16. nóv., sun.
Ég bið að heilsa lau. 16. nóv.
Loftkastalinn Á sama tíma að ári lau. 16.
nóv., fim.
Delerium Búbónis fös. 22. des.
Sirkus Skara Skrípó lau. 16. nóv., mán.
Hermóður og Háðvör Birtingur lau. 16.
nóv., mið., fös., lau.
Kaffileikhúsið Spænsk kvöld lau. 16. nóv.,
fim.
Hinar kýmar fös. 22. nóv.
Hafnarborg Grísk veisla, fös. 22. nóv., lau.
íslenska óperan Master Class lau. 23. nóv.
Skemmtihúsið Ormstunga sun. 17. nóv., fös.
Möguleikhúsið Einstök uppgötvun sun. 17. nóv.
Leikbrúðuland Hvað er á seyði? sun. 17.
nóv. kl. 15.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 16. NÓVEMBER 1996