Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.1996, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.1996, Síða 4
ISLENZK tunga er áhyggjuefni um þessar mundir þvíað hún á undir högg að sækja. Það leiðir hugann að bar- áttu Jóns Sigurðssonar og samheija hans fyrir vernd hennar og rétti svo notað sé þeirra eigið orð í Nýjum Félagsritum og Andvara. Jón skrifaði sjálfur um tunguna í Félagsritin og varðaði veginn þarsem annars staðar. Mál- flutningur hans birtist svo enn í nafnlausri grein í Andvara 1876, Um rétt íslenzkrar túngu. Meginkjarni þeirrar ritgerðar er aug- ljóslega sóttur í málflutning Jóns í Nýjum Félagsritum einsog ég mun drepa á. Andvara- greinin er nánast útfærsla á skrifum Jóns um íslenzka tungu og rétt hennar í Félagsrit- um. Auk Jóns forseta skrifuðu S.J. líklega Sig- urður L. Jónasson og J.G. eða Jón Guðmunds- son, um tungu okkar í Ný Félagsrit og er grein hins fyrrnefnda með sömu fyrirsögn og nafnlausa greinin í Andvara 1876. Grein Sigurðar L. Jónassonar birtist í XXIII árg. Nýrra Félagsrita, 1863. Báðir láta þeir S.J. og J.G. geirinn gjalla gegn erlendum áhrifum á mál okkar, og Jón Guðmundsson beinir ekki sízt spjótum sínum að þeirri dönsku- skotnu mállýzku sem tíðkaðist í Reykjavík um og eftir miðja síðustu öld en þá töldu ýmsir þessa upprennandi höfuðborg íslands hálfdanskan bæ. Við hefðum haft gott af að hlusta á slíkan eldhuga nú þegar að tung- unni er sótt með svipuðum þunga og um miðja síðustu öld, þótt áþrifin berist hingað með öðrum hætti en þá. í grein S.J. í Nýjum Félagsritum er drepið á svipuð efni og í Andvara-greininni en þó er málflutningur Jóns Sigurðssonar fremur fyrirmynd hennar en greinar þeirra samheija Jóns forseta sem ég hef nefnt. í grein Sigurðar L. Jónassonar er talað um að við höfum ekki nennt að girða akur okkar einsog hann kemst að orði og á þá við íslenzka tungu og veija hann fyrir ágangi annarra, „þar hefur því komizt inn margt svínið, og margt eitt illgresið vaxið þar“. Nú sé tími til kominn að uppræta illgr- esið á þessum dýrlega akri og reka út svínin. Þess má geta að Sigurður L. Jónasson var bæði í ritnefnd með Jóni forseta í Nýjum væntanlegir embættis- menn sanna þessa kunn- áttu sína með því að gang- ast undir próf. Þetta hafi þó ekki farið eftir og danskir embættismenn á íslandi kunni ekki „við- sæmandi“ íslenzku. 4. En snúum okkur þá að Andvara-greininni. í hana getum við sótt leiðsögn um það hvetjar kröfur við eig- um að gera til okkar sjálfra þegar réttur tungunnar er annars vegar. Allt er þetta mál í miðþyngdarstað nú um stundir og því ekki úr vegi að láta herhvötina fyrir 100 árum dynja á þeirri samtíð sem nú stendur ráðalítil andspæn- is erlendri ásókn sem gæti borið okkur ofurliði, eyði- lagt tungu okkar og þar með þann íslenzka arf sem er frelsi okkar og fjöregg. Jón forseti taldi tunguna einhveija mikilvægustu málsvörn okkar í sjálf- stæðisbaráttunni. Án hennar byggi um sig í landinu önnur þjóð og ókunnug. Ástæðan til þess að greinin Um rétt íslenskrar túngu var skrifuð og birt í 3ja árgangi Andvara 1876 var sú, að mikið hafði á skort að íslenzkan væri látin njóta réttar síns og því var þess óskað í álits- skjali alþingis 1863 til kon- ungs að íslenzk tunga verði við höfð í öllum bréfaskiptum milli íslend- inga og stjórnarinnar. En afsvar hennar er í auglýs- ingu til alþingis 1865. En í 4. gr. stjórnarskrárinnar JÓN FORSETIOG RÉTTUR TUNGUNNAR EFTIR MATTHÍAS JOHANNESSEN Félagsritum og Andvara og því augljóst hvert hann hefur sótt eldinn í áhuga sinn. 3. En nú skulum við líta á baráttu þeirra félaga fyrir móðurtungunni sem átti þá eins- og nú í vök að veijast á óhirtum akri sam- tímans. í greininni Alþíngi og alþíngismál í XVIII árgangi Nýrra Félagsrita 1858 segir Jón forseti m.a. þegar hann víkur að íslenzkri tungu: „Að forminu til er mikill og undarleg- ur galli á vorum lögum, sem vér ætlum ekki eiga sér stað nokkurstaðar í heimi, þarsem svo á að heita að þjóðin njóti þeirra réttinda, að mega tala sínu máli; að eiga fulltrúaþíng með réttindum til að ræða löggjafarmál og sérhver önnur stjórnarmál landsins á þess eigin máli; að hafa kirkjustjórn, skólastjóm og dómaskipan einnig á sínu máli: Þessi galli er sá, að lög íslands koma út bæði á Dönsku og íslenzku, en þannig, að Danskan ein er undirskrifuð af konúngi, og hefir að því leyti meira gildi en Islenzkan, en Islenzk- an ein er aptur þínglesin, og hefir að þeim helmíngnum meira gildi en Danskan.“ Síðan segir Jón í þessari löngu og ítarlegu grein að svo virðist sem sá texti gildi meira sem konungur skrifar undir, en samt þyki sjálfsagt að þau lög sem eigi að skuldbinda menn verði að vera birt þeim á því máli sem þeir skilja. í Andvara-ritgerðinni, Um rétt Islenzkrar túngu (1876), er bent á hið sama og Jón forseti nefnir í ritgerð sinni um alþing- ismál, að bæði landsyfirréttur á íslandi og jafnvel hæstiréttur með dönskum dómurum hafí dæmt að lög væru ekki gild á Íslandi nema þau væru þinglesin á íslenzku frá upp- hafí til enda, einsog Jón kemst að orði. Laga- frumvörp séu einnig lögð fram á íslenzku og rædd á því máli og Alþingistíðindi prentuð á íslenzku en ekki dönsku. „En samt lendir í því á endanum," bætir Jón Sigurðsson við, „að lögin koma út einsog aðalmálið á þeim sé Danska, en þau eru birt einsog þau væri ekki til á Dönsku". Sé þetta með þessum hætti þótt enginn neiti því „að íslenzka sé stofnmálið á Norðurlöndum" og er þess einn- ig getið í fyrrnefndri Andvara-ritgerð, Um rétt íslenzkrar túngu. Það megi því undar- legt heita, bætir Jón forseti við, að stjórnin skuli „neita oss um einn hluta af vorum nátt- úrlegu réttindum, sem er að hafa fullgild lög á voru eigin máli, einsog vér höfum öll þíng- höld og dómaskipan". Þessi stefna kanselísins sé til að kæla niður of mikla þjóðlega tilfinn- ingu íslendinga og má það vafalaust vera. 3. í grein Jóns Sigurðssonar sem birtist í XXIX árg. Nýrra Félagsrita, 1872, Pijóna- koddi stjórnarinnar, er kafli um íslenzka tungu. Þar er í upphafí minnzt á hið sama og í Andvara-ritgerðinni, Um rétt íslenzkrar túngu, að einungis séu „hérumbil hundrað manns sem talizt geta verið Danir að þjóð- erni og túngu og skilji þó allflestir íslensku" - og sé ástæðulaust að þýða þingmál á dönsku fyrir þessar fáu hræður sem á ís- landi búi. „Eigi að síður heldur þó stjórnin áfram í þaula, að hafa sem mest í löggjöf landsins og stjórnarathöfn á Dönsku.“ Það sem hin íslenzka stjórnardeild í Kaupmanna- höfn sendi frá sér ætti að vera ritað á ís- lenzku en þó sé frumritað á dönsku og þýtt af íslenzkum starfsmönnum, þótt þeir einir ættu að starfa þar sem kynnu íslenzku til hlítar. Síðan bendir Jón forseti á að konungur hafi frá 1859 skrifað undir hinn íslenzka texta laganna handa íslandi og verði það því ekki lengur sagt að danski textinn sé hinn löggildi eða skuldbindandi texti. Hann sé því óþarfur „og ekki nema til að gjöra vafa og villur, og spilla málum manna“. Eigi að síður haldi stjómin áfram að senda alþingisfrum- vörp á dönsku með íslenzka textanum og láta lögin handa íslandi koma út á dönsku. Þá bendir Jón á að venja hafi verið frá því konungur hóf að skrifa undir hinn íslenzka texta lagaboðanna handa íslendingum „að íslenzki textinn hefur verið settur á undan, en hinn danski á eptir“. Loks bendir hann á það sama og nefnt er í ritgerðinni Um rétt Islenzkrar túngu, að með bréfí Kristjáns konungs VIII sé fyrir lagt 1844 að „hver sá, sem vill verða embættismaður á íslandi, skuli sanna með áreiðanlegum vitnisburði, að hann sé orðinn svo leikinn í íslenzkri túngu að hann að minnsta kosti geti skilið mál manna, og geti talað svo vel á túngu landsmanna, að hann geti gjört sig þeim skiljanlegan" (einsog vikið sé að í VII árgangi Pjölnis) - og er þetta einnig tíundað síðar í Ándvara- greininni. Um rétt íslenzkrar túngu. Skuli sem birt er í Andvara 1874 með rækilegum hugleiðingum og athugasemdum Jóns Sig- urðssonar segir að „konúngur veitir öll þess- konar embætti, sem hann hefír veitt híngað til. Breytíngu má á þessu gjöra með laga- boði. Engan má skipa embættismann á Is- landi, nema hann hafí hin almennu réttindi innborinna manna, og þar á ofan hafi fært sönnur á, að hann hafí fullnægt því, sem fyrir er mælt í hinum gildandi ákvörðunum um kunnáttu í máli landsins." Þetta er að sjálfsögðu hið merkasta ákvæði þótt lágt fari og segir mikla sögu. 5. í fyrrnefndri ritgerð Um rétt íslenzkrar túngu er bent á að hálf viðreisn sé fallvölt, „því þrátt fyrir það, að stjórnarbreytíngin 1874 hafi hreinsað svo mikið til, að synjun- arátyllur þær, sem stjórnin þóttist hafa að bera fyrir sig í þessu máli, megi þykja falln- ar gjörsamlega í stafi, hefir hún þó eigi ein- úngis látið sér lynda, að humma framaf sér umbætur þær, sem hin nýja stjórnarskipan útheimtir, heldur jafnvel ráðizt í að gjöra sýnilega tilraun - og það í nærgöngulara lagi - til að egna Dönskunni fyrir hið fyrsta löggjefenda alþíng, og sæta lagi til að hafa sitt hið gamla fram“. Enn er reynt að vinna dönskunni fótmál með því að stjórnin leggur fyrir alþingi ákvæði um að „þegar Iagafrumvarp er sam- þykkt af alþíngi, sjá forsetar beggja deild- anna og landshöfðíngi í sameiníngu um, að danski textinn sé saminn, þannig að málið verði lagt fyrir hið sameinaða alþíng, ef þeim kemur ekki saman“. Með þessu er talið að 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 16. NÓVEMBER 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.