Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.1996, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.1996, Síða 11
Mosfellssveit (skissa að olíumálverki), 1938. shólmi, 1960. SKAFTAFELL og Skeiðarársandur, 1938. ÞJÖÐMÁLA- ÞANKAR ^VAL- KOSTIR Nýlega var haldið Menntaþing. Þar sýndi fjöldi skóla ýmislegt sem þeir voru að gera og var gaman að sjá hve mikil gróska er í íslenskum skólum þrátt fyr- ir allt. Þarna var líka haldinn fjöldinn allur af ræðum sem var sosum ágætt að heyra og þar á meðal fjallaði mennta- málaráðherra um menntapólítík, eins og hann hefði raunverulega áhuga á því. Það er langt síðan við höfum haft slíkan ráðherra. Ég dróst inn í hóp um forvarnir, enda alræmdur áhugamaður um þau mál. Þar var ungur og brilliant nemi sem ræddi um jafningjafræðsluna, það merka átak og dvaldi nokkra stund m.a. við það gamalkunna vandamál að unglingar eigi sér ekki samastað. Þetta er alveg rétt og hefur verið haldið á lofti um áratugaskeið. Meira að segja í mína daga — þarna aftur í fornöld á áttunda áratugnum var þetta talin lausnin framundan. Síðan hef ég skipt eilítið um skoðun. Ég hef komist að því að líklega vantar unga fólkið ekki stað. Það skortir val- kosti. Þökk sé okkur þessum fullorðnu, þá er búið að leggja þessu góða fólki þá línu að það þarf að komast inn á stað og skemmta sér við rosa músík og villuljós af bæði rafrænu og öðru tagi. En þetta er fyrst og fremst af því að svona er sá skemmtanamáti sem fyrir þeim er hafður. Ef málið er ígrundað kemur í ljós að ferðir með unglinga, t.d. upp til fjalla eða annað þar sem ekkert áfengi er haft um hönd, heillar flesta jafn mikið. Þegar farið er á þrekmiðstöðvar eða fylgst með starfi íþrótta- og æskulýðsfé- laga þá sjást glaðlegir krakkar á fullri ferð við allt sem nöfnum tjáir að nefna — heilbrigt — og virðast finna sér til- gang í daglegum erli. Þau finna sam- kennd með hvort öðru og njóta félags- skapar sem er heiibrigður og góður. Þau eru jafningjar sem njóta lífsins vel. Stundum er í huga mér máltækið að það sem hægt er að gera hvenær sem er geri maður aldrei. Ég þekki fullt af ! fólki sem er svo yfirbókað í félagsstarfi og öðru námi meðfram skóla að maður undrast að það megi vera að því að vera til. Þetta fólk skilar hinsvegar sínu dagsverki vel. Svo er mýgrútur annarra sem virðist aldrei gera neitt, er ekki í neinu og vafrast um en skilar litlu af sér. Þarna held ég að sé mergurinn málsins. Það vantar valkosti. íþróttir heilla þau ekki því þau sjá það sem keppnisvettvang sem þau vilja ekki vera á og finnst margt annað of hallæris- legt til að taka þátt í því. Svo má vera að þau hafi ekki fjárráð til að taka þátt í svoleiðis starfi. Samt hafa mörg þeirra fé til að eyða í skemmtanahald. Þau hafa oft áhuga á kvikmyndum en um það er ekkert formlegt starf. Þau bara fara í bíó og heim. Þau vildu geta verið með í æfingastöðvum en slíkt er dýrt og þau tíma því ekki. Frekar er keypt flaska. Einhvern tímann var það reiknað út að tekjur ríkisins af áfengi og tóbaki hiykkju ekki fyrir því að lækna þá sem sýkjast af þess völdum. Og þá er óreikn- anlegur fórnarkostnaður vegna þeirra sem umgangast fíklana. Auk þess er ekki tekið tillit til alls þess fjár sem fer um svartamarkaðinn í vímuefnum, — ólöglegu áfengi og fíkniefnum. Þá fara nú margir að hugsa. Hvað með hagræðingu í ríkisrekstri? Getur hún ekki falist i því að hugsa um það sem sparast — kannski ekki í ár en eft- ir tíu ár? Tuttugu ár? Mér sýnist að það mætti laga heilmargt með framsýninni einni saman og velta því fyrir sér hvort uppbygging valkosta fyrir unga fólkið myndi ekki spara okkur margt erfiðið í framtíðinni? En gleymum því ekki að þau eru fleiri sem eru í góðum málum en hin. MAGNÚS ÞORKELSSON JL LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LiSTIR 16. NÓVEMBER 1996 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.