Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.1996, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.1996, Qupperneq 16
Vandi listarinnar Póstmódernisminn i marxisku Ijósi ljósi á heiminn sem við lifum í, veruleikann. Það jákvæða við naflaskoðunina er að fræð- in hafa tekið sínar eigin hugmyndir og niður- stöður til gagnrýninnar skoðunar og skapað nýja sýn og nýjar hugmyndir á þann hátt. Gott dæmi um þetta er strúktúralisminn sem hugsaði allt upp á nýtt út frá lögmálum tungu- málsins, hann skoðaði heiminn eins og hann væri tungumál og kannski var það nauðsyn- legt á þeim tíma.“ Heimur bókmenntaíræðinga er þá kannski jafnlítili og starfsbróðir þinn og landi, David Lodge, lýsti í kunnri skáidsögu sinni, Lítill heimufl „Já, við lifum í mjög litlum heimi og hann er heldur ekki svo ýkja mikilvægur. Sértu vinstrisinnaður menningarfræðingur - efnis- hyggjumaður - þá ertu að minnsta kosti meðvitaður um að menningin skiptir ekki svo miklu máli, að hún er ekki aðalatriðið. Sértu hins vegar rótlaus meðlimur hins síðborgara- lega samfélags gætirðu þurft á menningunni, eða fræðunum, að halda til að komast af, til að búa til þinn eigin heim, smáheim. í bók sinni var Lodge held ég að fjalla um þessa týndu borgarastétt sem heldur að menningin sé miðjan." En hvað með bókmenntimar sjálfar, eða list- ina, á listin ekki í ákveðinni kreppu líka? Hver er staða listarinnar á póstmódemískum tíma? „Vandinn sem steðjar að listinni nú er að hún er ekki lengur jafngagnrýnin og áður. í módernismanum reyndi listin að vera eins konar gagnrýni; listamenn voru óþægir, bóh- emískir, uppreisnargjamir og gagnrýnir. En í póstmódemismanum hefur listin verið gerð að hluta af samfélaginu sem hún á að gagn- rýna og skortir því nauðsynlega fjarlægð. List- in er með öðram orðum orðin hluti af markaðn- um, hún er á markaðstorginu miðju og væri að grafa undan sjálfri sér ef hún réðist á kerfið sem stjórnaði honum. List sem Iiggur á yfirborði ríkjandi valdakerfis og lýtur því - hvort sem það er í airæðisríki eða annars stað- ar - á enga möguleika á að vera gagnrýnin." Ný bók kom út eftir Eagleton í Englandi daginn áður en hann kom til íslands og heitir hún The Illusions of Postmodernism. Bókin er gagnrýni á póstmódernismann eða öllu heldur hugmyndir sem vinstrimenn hafa til- einkað sér síðastliðna áratugi svo sem um fjöl- ræði; í bókinni andæfir Eagleton gagnrýni sem komið hefur fram á alræðishugmyndina og á stofnanir og frumsögur eins og marxismann. „Bókin er gagnrýni á póstmódernismann frá sósíalísku sjónarhorni. Að því leyti er hún ólík margri annarri gagnrýni sem sett hefur verið fram á þessa stefnu. Menn hafa aðallega verið að gagnrýna hana út frá almennri skyn- semi sem er öllu íhaldssamara sjónarhom. Þessi bók er held ég að reyna að gera eitt- hvað nýtt með því að sækja að póstmódernis- manum frá vinstri. En hún gerir það meðvituð um að marxisminn og sósíalisminn eiga í mik- illi kreppu núna, meðvituð um að það er ekki lengur hægt að taka þeim sem gefnum. Sem lifandi pólitísk stefna er marxisminn ekki leng- ur til en það er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að nota aðferðir hans og hugmyndir í gagnrýnum tilgangi.“ Freeóiskrif og skáldskapur Eagleton hefur skrifað fjöida fræðirita en hann hefur jafnframt fengist nokkuð við að semja. Ein skáldsaga hefur birst eftir hann og hann er höfundur fjögurra leikrita. „Ég er ósammála þeirri aðgreiningu sem gerð er á milli fræðiskrifa og skáldskapar. Skilin þarna á milli eru alltaf að verða óljósari; skáldskapur- inn er að verða fræðilegri og fræðiskrifin skáldlegri. Þetta er þróun sem hófst með módernismanum. Bókmenntirnar fóru að taka forsendur sínar til gagngerrar athugunar sjálf- ar og urðu í þeim skilningi fræðilegar en hjá fræðimönnunum var þetta spurning um að geta lýst brotakenndum heimi á betri hátt og því var gripið til meðala skáldskaparins. Sjálf- um finnst mér munurinn á þessu tvennu afar lítill. Mér þykir þó sérstaklega skemmtilegt að skrifa fyrir leikhús því að þar er höfundur- inn í allt annarri stöðu en í fræðunum eða skáldsögunni; hann er ekki aðalatriðið í Ieik- húsinu heldur einn af stórum hópi. Fræðimað- urinn getur því lært ýmislegt af því að vinna fyrir leikhús, til dæmis um samvinnu." Og þar með var Terry Eagleton rokinn af stað að undirbúa sig fyrir seinni fyrirlesturinn sem hann hélt við Háskólann. í honum fjall- aði hann um vanda póstmódernismans af sömu leikni og rökvísi og hann útskýrði stöðu bók- menntafræðinnar í þeim fyrri. Eagleton er þjálfaður fyrirlesari og skreytir mál sitt með skemmtilegum líkingum og tengingum. Það er mikill fengur í því að fá í heimsókn mann sem stendur jafnframarlega á sínu sviði og Eagleton og væri óskandi að það gerðist oftar. Morgunblaðið/Golli „LIST sem liggur á yfirborði ríkjandi valdakerfis og lýtur því - hvort sem það er í alræðisríki eða annars staðar - á enga möguleika á að vera gagnrýnin," segir Terry Eagleton, bókmenntafræðingur. Á MÆRUNUM Terry Eagleton er einn kunnasti bókmenntgfræóing- ur samtímans. Eagleton, sem er prófessor vió Oxford-háskóla, var í stuttri heimsókn hér á landi um síóustu helgi og hélt tvo opinbera fyrirlestra þar sem hann fjallaói um þróun bókmenntafræóinn- ar síðustu áratugi og vanda póstmódernismans. ÞROSTUR HELGASON hitti Eagleton að máli og spurði hann um þá kreppu sem virðist nú steðja að bæði bókmenntunum og bókmenntafræðunum. TERRY Eagleton (f. 1943) er hæglátur maður í viðkynningu og alvömgefinn þótt ekki sé langt \ svolítið gráglettinn hú- mor. Ég hitti hann í Odda þar sem hann kemur inn úr hrá- kaldri haustrigningunni, klædd- ur svörtum frakka og með hattkúf á höfðinu. Hann hefur eytt deginum í að skoða Þingvelli: „Það var kannski svolítið grátt yfir að líta í þessu veðri en afar áhuga- vert,“ segir hann og gjóar augunum út um gluggann. Hann er eilítið argur í skapi; kannski vegna veðursins, kannski vegna þess að þessa stundina vill hann helst tala um eitt- hvað annað en bókmenntafræði: „í gær fór ég að skoða Geysi. Em þetta ekki þessit venju- legu staðir sem fólk fer á. Ég hefði viljað sjá ummerki hlaupsins." Það hýmar samt fljótlega yfir honum þegar við snúum okkur að viðtals- efninu sem em fræðin á mærunum. „Jú, það hafa orðið miklar breytingar á bók- menntafræðinni og raunar öllum sviðum hug- vísinda á síðustu ámm og áratugum. Okkar gamli þekkingargmndvöllur hefur verið að leys- ast upp og skilin milli greina hafa máðst út að miklu leyti. Mikið af því áhugaverðasta sem er að gerast í hugvísindunum nú á sér stað á mæmnum milli greina. Ég held það sé ekki til neitt nafn á þessari nýju mæragrein; hún gæti hugsanlega heitið bókmenntafræði en aðrir myndu vilja kalla hana menningarfræði sem hefur einmitt unnið einhvers staðar á mörkum heimspeki, bókmenntafræði og féiags- fræði. Það má því segja að við hugvísindamenn séum í eins konar kreppu; við erum eins og eá milli vita og sjáum ekki vel hvert stefnir. Þessi kreppa kemur til af ákveðnum samfé- lagslegum breytingum sem eru að sumu leyti pólitískar en tengjast líka breyttu hlutverki menningarinnar. Það er farið að tala um menn- ingariðnað en þegar menningin hættir að þjóna hinum æðri gildum og verður að markaðsvöru þá breytast allar forsendur fyrir hugmyndum okkar um hana og það skellur á kreppa í hugvísindunum. Þetta ástand á rætur sínar að rekja til sjöunda áratugarins." Lílill heimur Eagleton segir að þessi kreppa endurspegl- ist meðal annars í því að bókmenntafræðingar starfi í eins konar tómarúmi þar sem erfitt er að festa hendur á viðfangsefninu. „Bók- menntafræðin hefur kannski aldrei átt sitt eigið viðfangsefni heldur alltaf verið að fást við spumingar sem aðrar greinar hafa gefist upp á eða misst áhugann á. Þessi síðustu ár hefur nokkrum svona afgangsspurningum verið varpað inn í þetta tómarúm þar sem bókmenntafræðin hefur glímt við þær. Upp á síðkastið hefur hún verið að fást við mennin- garpólitískar spurningar. Ef félagsfræðin, eða stjómmálafræðin, hefði spurt róttækari og dýpri spurninga en hún hefur gert þá ættum við bókmenntafræðingar ef til vill ekki í þess- ari kreppu núna.“ En lýsir þessi kreppa sér ekki líka í því að bókmenntafræðin hefur einkum verið að fjalla um sig sjálfa undanfarin ár? Er hún ekki lok- uð inni í eigin heimi? „Jú, hún hefur verið svolítið narkísk og þess vegna lokast en ég held að þetta hafi bæði sínar vondu og góðu hliðar. Það er auð- vitað slæmt að bókmenntafræðin skuli vera í sífelldri naflaskoðun í stað þess að vera virk í umfjöllun og gagnrýni á umhverfi sitt. Þann- ig koma fræðin á vissan hátt í stað lífsins eða veruleikans. Þegar þú getur ekki höndlað lífið lengur, þegar þú getur ekki ráðið við það sem er að gerast í Iífinu þá beinirðu oft kröftunum eitthvert annað. Og eitt af því sem þú getur gert er að stunda fræðin. Þessi sífellda sjálfs- skoðun fræðanna getur gert þau að sérheimi, lokuðum sérheimi, en um leið eru þau að bregðast meginhlutverki sínu sem er að varpa 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 16. NÓVEMBER 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.