Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1997, Side 2
MÁLÞING UM
HANDRITIN
Morgunbloðið/Jim Smart
EIN af myndunum á sýningunni f Norræna húsinu.
MYNDLÝSINGAR
í ÍSLENSKUM
FORNRITAÚTGÁFUM
AFHENDINGU íslenskra handrita frá Dan-
mörku lýkur formlega við setningu dansks-
íslensks málþings um handrit í hátíðarsal
Háskóla íslands fímmtudaginn 19. júní nk.
kl. 9.30. Þá mun Kjeld Mollgárd, rektor
Kaupmannahafnarháskóla, sem jafnframt er
formaður Árnanefndar (Den arnamagnæ-
anske Kommission), afhenda Sveinbirni
Björnssyni, rektor Háskóla íslands, tvö síð-
ustu handritin sem hingað eiga að koma, en
háskólarektor er formaður stjórnarnefndar
Stofnunar Árna Magnússonar á íslandi.
Þau tvö handrit sem nú verða afhent eru
AM 237 a fol., tvö varðveitt blöð úr prédik-
anasafni, skrifuð á 12. öld og e.t.v. það elsta
sem til er skrifað á íslensku, og AM 227
fol., annað aðalhandrit Stjómar, þýðinga úr
Gamla testamentinu með skýringum; þetta
handrit er frá miðbiki 14. aldar og hefur að
geyma fegurri lýsingar en flest önnur hand-
rit íslensk.
Þessi tvö handrit verða sýnd aukalega
dagana 19.-29. júní á þeirri hátíðarsýningu
handrita sem nú er í Árnagarði og verður
opin daglega kl. 13-17 til ágústloka.
Sáttmálasjóður, sem var stofnaður við
OPIN SYNING
í NÝLISTA-
SAFNINU
„SÝNING. Þegar þú lest þetta eða þú heyr-
ir einhvern tala um þessa sýningu er þér
um leið boðið að sýna í Nýlistasafninu frá
14. til 29. júní 1997....“ Með þessum form-
ála ákvað stjóm Nýlistasafnsins að bjóða
til opinnar sýningar sem hefst laugardaginn
14. júní kl. 16.
Öllum er boðið að sýna meðan húsrúm
leyfir. Sýnendur velja sér sjálfir staðsetn-
ingu fyrir verk sín og sjá um uppsetningu
og frágang að sýningu iokinni. Ekki verður
ljóst fyrr en á opnun hveijir taka þátt. Sýn-
ingin er í öllum sölum safnsins nema í setu-
stofunni á annarri hæð.
Ásgeróur Búadóttir
gestur safnsins
Gestur safnsins í setustofu úr röðum
Félags íslenskra myndlistarmanna er Ás-
gerður Búadóttir.
Ásgerður hefur sagt um myndlist sína,
að efnið sé ekki aðalatriðið heldur hvernig
það er notað til túlkunar hugmynda til
myndsköpunar.
Ullin er fyrir henni það efni og sá miðill
sem olíulitir eru málaranum og steinninn
myndhöggvaranum. Hugmyndir og áhrif
fellir hún að eðli vefsins á óhlutbundinn
hátt, segir í kynningu.
Sýningarnar em opnar daglega nema
mánudaga frá kl. 14.-18. Lokað verður
þjóðhátíðardaginn 17. júní.
gerð dansk-íslenska sambandslagasáttmál-
ans 1918, hefur veitt Stofnun Árna Magnús-
sonar á Islandi styrk til að bjóða hingað til
lands fólki frá Danmörku til málþings um
handrit 19. og 20. júní og til ferðar um
skrifaraslóðir 21. júní.
Þetta er fólk sem í starfí sínu hefur tengst
íslenskum handritum í Kaupmannahöfn með
einhvequm hætti, í varðveislu, rannsóknum,
ljósmyndun, viðgerðum og stjómsýslu. Þarna
verður starfsfólk Árnastofnunar í Höfn (Det
amamagnæanske Institut) og fomíslensku
orðabókarinnar (Ordbog over det norrone
prosasprog), sem nú er byijuð að koma út,
nokkrir starfsmenn Konungsbókhlöðu og þeir
sem eiga sæti í Ámanefnd (Den amamagnæ-
anske Kommission). Gestimir frá Danmörku
verða 44 alls.
Á málþinginu, sem fer fram í hátíðarsal
Háskóla íslands fimmtudaginn 19. júní kl.
9.30 til 15.25 og föstudaginn 20. júní kl. 9
til 15.40, verður fjallað um handrit frá ýms-
um sjónarhomum, m.a. uppruna og feril ein-
stakra handrita, skrásetningu handrita og
áform um stafræna myndatöku þeirra og
miðlun.
SEX STYRKIR
TIL HAND-
RITSGERÐAR
KVIKMYNDASJÓÐUR íslands hefur
veitt sex handritshöfundum styrki til
að vinna frekar að handritum sínum.
Við árlega úthlutun í janúar sl. hlutu
tíu höfundar styrki og skiluðu allir
verki sínu í síðasta mánuði. Nú hefur
úthlutunamefnd Kvikmyndasjóðs valið
sex þeirra, sem halda áfram í verkefn-
inu, en hinir heltast úr lestinni. Höf-
undarnir sex eru, ásamt nöfnum hand-
ritanna: Baltasar Kormákur, Sym Bi
Osa, 101 Reykjavík; Hrönn Kristins-
dóttir, Besti dagurinn; Jóakim Hlynur
Reynisson, í álögum; Júlíus Siguijóns-
son, Ljótir leikir; Mikael Torfason,
Svartir sauðir og Ragnar Bragason,
Fíaskó.
Hver styrkur
600 þúsund
Hver höfundur hlýtur styrk að upp-
hæð 600.000 kr., en Norræni sjóðurinn
greiðir helming allra handritsstyrkja
til móts við Kvikmyndasjóð íslands.
Úthlutunarnefnd er skipuð sem
fyrr Bjarna Jónssyni, Laufeyju Guð-
jónsdóttur og Markúsi Erni Antons-
syni. Handritin sex verða þróuð enn
frekar, og höfundarnir skila inn nýrri
útgáfu í lok ágúst og hljóta þá þrír
þeirra lokastyrki, segir í kynningu.
SÝNINGIN Sögn í sjón - myndlýsingar í ís-
lenskum fornritaútgáfum á 20. öld verður
opnuð í sýningarsölum Norræna hússins í
dag, laugardag. kl. 15. Sýningin er sú þriðja
í röðinni sem opnuð er undir samheitinu Sögn
í sjón, og er hún samstarfsverkefni Listasafns
íslands, Norræna hússins og Stofnunar Árna
Magnússonar á íslandi.
I Norræna húsinu verða til sýnis myndlýsing-
ar í íslenskum fornritaútgáfum sem íslenskir
myndlistarmenn hafa unnið og birst hafa á
prenti í ýmsum útgáfum. Júlíana Gottskálks-
dóttir listfræðingur hefur safnað myndunum
saman og sér um uppsetningu sýningarinnar.
Danski listamaðurinn Lars Munthe sýnir
ný grafíkverk sem hann hefur gert í tilefni
af því að nú er að ljúka afhendingu síðustu
handritanna til Stofnunar Árna Magnússonar
á íslandi. Hann sækir myndefnið til handrit-
anna og leitast við að gefa þeim nýja mynd-
ræna tjáningu með ætingu í kopar og sink
og öðrum aðferðum.
Júlíana Gottskálksdóttir skrifar ítarlega
grein í sýningarskrá um myndlýsingar lista-
mannanna fyrir útgáfur íslenskra fornsagna
og fornkvæða á þessari öld. Hlutur þeirra er
lítt kannaður, ef frá eru taldar fáeinar ritgerð-
ir um myndlýsingar barnabóka.
I grein Júlíönu kemur fram að Ragnar
Jónsson í Smára hefur sennilega átt mestan
þátt í að hefja myndlýsingar til vegs í bókaút-
gáfu hér á landi. Árið 1941 gaf hann út
Laxdælu og Hrafnkötlu með nútímastafsetn-
ingu í umsjá Halldórs Laxness. Gunnlaugur
Scheving listmálari gerði myndlýsingar. í
kjölfarið fyigdu Brennu-Njálssaga (1945) og
Grettissaga (1946) með myndlýsingum eftir
Scheving, Þorvald Skúlason og Snorra Arin-
bjarnar. Árið 1946 kom út hjá bókaútgáf-
unni Hlaðbúð Fornir dansar í umsjá Ólafs
Briems með teikningum eftir Jóhann Briem
listmálara. Hann gerði einnig teikningar við
Eddukvæði, sem komu út 1985. Nokkrar
þessara mynda verða sýndar í Norræna hús-
inu og auk þess eru teikningar eftir Hring
Jóhannesson, Eirík Smith, Þorbjörgu Hös-
kuldsdóttur, Guðrúnu Svövu, Einar Hákonar-
son og Tryggva Ólafsson.
Haraldur Guðbergsson teiknari gerði mynd-
ir við Þrymskviðu og Baldursdraum, sem komu
út hjá Máli og menningu 1980. Haraldur hef-
ur að undanförnu útfært teikningarnar í tölvu
og litsett með mismunandi tónbrigðum. Verða
þessar myndir Haralds sýndar í tölvu á sýning-
unni.
Sýningin í Norræna húsinu verður opin
daglega kl. 13-19 og henni lýkur sunnudaginn
6. júlí.
MENNING
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Þjóðminjasafn íslands
Sýningin Kirkja og kirkjuskrúð, miðaldakirkjan í
Noregi og á Islandi.
Listasafn íslands
Sögn í sjón; sýning á verkum sem byggð eru á
íslenskum fornritum.
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar
Árbæjarsafn
1 sumar verða sýndar ljósmyndir frá Reykjavík,
ásamt ljóðum skálda.
Listasafn ASÍ - Ásmundarsalur, Freyjugötu
41
Sigríður Siguijónsdóttir, Takashi Homma til 15.
júní.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
íslensk myndlist til 31. ágúst.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaðastræti 74
Sýning á úrvali vatnslitamynda eftir Ásgrím.
Norræna húsið - við Hringbraut
Grímur Karlsson skipstjóri: Skipslíkön til 9. júli.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Opin sýning í öllum sölum nema í setustofu, þar
er gestur safnsins Ásgerður Búdóttir. Til 29. júní.
Gallerí Handverk & Hönnun
Elísabet Thoroddsen sýnir peysur til 26. júní.
Gallerí Hornið
Hildur Waltersdóttir sýnir til 18. júnf.
Gallerí Listakot
Nina Kerola sýnir til 14. júní.
Mokka - Skólavörðustíg
Sigurdís Harpa Arnarsdóttir sýnir til 6. júlí.
Gerðarsafn - Hamraborg 4 Kóp.
Ása Ólafsdóttir, íris Elfa Friðriksdóttir og Sigur-
bjöm Jónsson sýna til 6. júlí.
Tuttugu fermetrar, Vesturgötu 10
Bjami Sigurbjömsson sýnir til 29. júní.
Gallerí Myndáss
Vilmundur Kristjánsson sýnir Ijósmyndir til 20.
júní.
Hafnarborg - Strandgötu 34 Hf.
Norræn farandsýning; Flóki án takmarka. í Sverr-
issal sýnir Björg Pjetursdóttir verk unnin í flóka.
Listasafn Sigurjóns - Laugarnestanga 70
Sumarsýning á völdum verkum Siguijóns.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Roni Horn sýnir til 29. júní.
SPRON, Álfabakka 14, Mjódd.
Aðalheiður Valgeirsdóttir sýn. til 8. ágúst.
Byggðasafn Hafnarfjarðar
Undir Hamrinum — Af lífí hafnfirskrar alþýðu
til 30. sept.
Laugardagur 14. júní.
St. Jacobs Gosskör, sænskur drengjakór, heldur
tónl. í Grensáskirkju kl. 16.
Serpent málmblásarahópurinn heldur tónl. í Laug-
ameskirkju kl. 14.
Sunnudagur 15. júni.
Kristin Haiseth Rustad sópran og Knut Anders
Vestad tónskáld og píanól. halda tónl. í Norræna
húsinu kl. 20.30.
Mánudagur 16. júní.
Magnea Tómasdóttir, sópran og Gerrit Schuil
píanóleikari halda tónl. í Gerðarsafni kl. 20.30.
Þriðjudagur 17. júní.
St. Jacobs Gosskör heldur tónl. í Hallgrímskirkju
kl. 17.
Miðvikudagur 18. júní.
St. Jacobs Gosskör heldur tónl. í Skálholtskirkju
kl. 14 og í Norræna húsinu kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Fiðlarinn á þakinu lau. 14., sun. 15., fim. 19.,
fös. 20. júní.
Listaverkið lau. 14., sun. 15., fim. 19., fös. 20. júní.
Borgarleikhúsið
Krókar & kimar, ævintýraferð um leikhús-
geymsluna frá 13-18 alla daga og til kl. 22
sýningardaga.
íslenska óperan
Evíta frumsýning mánud. 16. júní. Fimm. 19.,
fös. 20. júní.
Loftkastalinn
Á sama tíma að ári lau. 14. júní.
Hermóður og Háðvör
6pplysíngar*'um TisívíðÍurÝi^ sem óskað er eftir
að birtar verði í þessum dálki verða að hafa bor-
ist bréflega fyrir kl. 16 á miðvikudögum merkt-
ar: Morgunblaðið, Menning/Iistir, Kringlunni 1,
103 Rvik. Myndsendir: 5691181. Netfang: Andrea
@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. JÚNÍ 1997