Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1997, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1997, Blaðsíða 5
börn og ungmenni deyja „Nei, það er ég ekki. Þegar ég var dreng- ur, var ég alinn upp í spíritisma og var hrædd- ur við dautt fólk. En þegar ég fór að kryfja, vandist þetta af mér. Eg er ekki hræddur við dauða menn, þeir lifandi eru miklu hættu- legri, það hefur mér reynzt. Ég hef aldrei orðið fyrir neinu ónæði af þeim, sem ég hef krufið, og ég hef spurt aðstoðarmenn mína, hvort þeir hafi orðið fyrir ónæði af hendi þeirra dauðu, en þeir hafa alltaf svarað neitandi. Ættingjum er stundum illa við, að ástvinir þeirra séu krufnir. En oft hef ég orðið þess var, að þeir hafa sætt sig betur við sorg sína, þegar þeir hafa fengið þær upplýsingar sem krufningin veitti. Margir ásaka sig fyrir að hafa ekki farið með barnið sitt nógu snemma til læknis eða leitað tii lækna erlendis. En þeg- ar krufningin hefur leitt í ijós, að um ólækn- andi sjúkdóm var að ræða, sem enginn hefði ráðið við, verður fólki oft hughægra. Oft kryfj- um við fyrir lögregluna, og þá rekumst við stundum á hina ótrúlegustu hluti, t.d. þurftum við eitt sinn að kryija mann, sem lézt í bíl- slysi, og komumst að raun um, að hann var með ólæknandi krabbamein, sem enginn vissi um, og hefði í mesta lagi lifað eitt ér. En þér voruð að spyrja,_hvort ég væri ekki hræddur. Ég viður- kenni, að mér leið einu sinni illa meðan ég var í Graz. í líkhúsinu voru um 20 lík, og hafði mér verið falið að rannsaka eitt þeirra. Prófessorinn ætlaði að skýra krufninguna fyrir stúd- entum eldsnemma næsta morgun og þurfti að fá sneið úr lifrinni. Það var komið fram undir miðnætti, og þá mundi ég allt í einu eftir, að ég hafði gleymt lifrinni. Nú voru góð ráð dýr. Hvað átti ég að gera? Átti_ ég að verða mér til skammar daginn eftir? Ég játa, að mér var mjög illa við að fara niður í líkhús á þessum tíma,_ en ég átti að gera það og lét mig hafa það. Ég fikraði mig niður eftir kjall- aranum og inn í líkhúsið, leitaði að „mínu líki“, skar sneið úr lifrinni og fór með hana. Ég var einní stofunni, alger þögn - en ekkert gerð- ist. Ég sagði, að mér hefði ekki liðið vel, það er rétt - engin ástæða að neita því, en þessa nótt vann ég sigur á myrkfælninni og síðan hef ég aldrei þjáðst af henni. Um skeið bjó ég aleinn hér uppi í Rannsóknastofunni og varð að skreppa niður í líkhús að þoka glugganum, þegar hann skelltist í vondu veðri um hánótt, en það hafði engin áhrif á mig. I gamla daga var það trú manna, að þeir losnuðu við líkhræðsluna með því að snerta líkin. Ég er sannarlega búinn að snerta mörg lík, og það hefur ekki enn orðið mér að meini. En þér eruð smeykur við krufningu." „Mér er um og ó.“ „Manni hættir til að óttast það sem maður þekkir ekki, en hræðslan á ekki rétt á sér.“ „Hefur lík aldrei gripið í handlegginn á yður, prófessor Dungal?" „Nei, ef það gerði það, væri það ekki lík.“ „En segið mér, finnst yður ekki þetta starf yðar hálfóhugnanlegt?" „Ekki finnst mér það, við tökum þetta eins og hvert annað lærdómsríkt starf og unum því vel að vera alltaf að læra.“ „Hefur þetta engin áhrif á matarlystina?" „Nei, matarlystin er sú sama. Þegar ég vann við anatómískan líkskurð í fyrsta skipti, pússaði taugar og vöðva og annað því um líkt, fannst mér ég vera svo viðbjóðslegur á hönd- unum, að ég gæti aldrei bragðað matarbita framar, en það lagaðist, og eftir vikutíma fannst mér ég geta borðað óþveginn, eins og ekkert hefði í skorizt." „En mér finnst þér taia einkennilega um dauðann, prófessor Dungal, er þá ekkert sorg- legt við hann?“ „Jú, auðvitað. Það er hastarlegt að sjá börn og ungmenni deyja, en allt annað gildir um gamalt fólk, það er eðlilegt að gamalt fólk deyi. En lífið er hart og miskunnarlaust, og í þessu húsi eru daglega kveðnir upp dauða- dómar yfir fólki, ungu og gömlu. Það getur verið mjög hastarlegt, já, það getur það ver- ið, stundum eru þetta beztu vinir okkar, skóla- bræður eða konur þeirra, sem í hlut eiga. Hingað eru nefnilega send stykki úr æxlum og alls konar vefjum frá læknum og sjúkrahús- um, og það er okkar verk að úrskurða, hvers konar sjúkdóma um sé að ræða, hvort það sé bólga, krabbamein, berklar eða eitthvað ann- að. Hér niðri er fótur, sem nýlega var tekinn af ungum manni. Viljið þér ekki koma með mér og sjá hann? Ég held þér hefðuð gott af því, ég held það mundi vekja yður til umhugs- unar. Fyrir skömmu ► „Þér lærðuð hjá Guðmundi Magnússyni, var það ekki?“ „Jú, Guðmundur var mjög merkilegur maður og einhver bezti kennari sem ég hef þekkt, enda stórgáfaður skurðlæknir og fróð- ur vel. Hann var hnyttinn í svörum og gat það stundum komið niður á nemendum, sem honum þóttu óskarpir í hugsun. Einhveiju sinni var hann að ganga upp Amtmannsstíg um hávetur. Það var hált á gangstéttinni og illfært. Á undan honum gekk ung stúlka. Þegar þau eru í miðri brekkunni, kemur myndarlegur maður á móti þeim og gengur niður stíginn. Þegar hann er kominn fram hjá, lítur stúlkan við en dettur í sömu svifum og liggur á götunni. Guðmundur gengur til hennai' og spyr, hvort hún hafi ekki meitt sig. Jú, hún hafði meitt sig. Hann fer nú að stumra yfir henni og sér að hún hefur farið úr liði. Hann kippir henni í liðinn og spyr, hvort hún vilji ekki koma til sín daginn eftir, svo hann geti athugað meiðslin betur, lítur svo á hana og bætir við: „Nú, en sáuð þér manninn?" egar Sigvaldi Kaldalóns var að taka próf í handlæknisfræði, fékk hann til skoðunar sjúkl- ing með framhandleggsbrot. Guðmundi þótti hann ekki fara alltof læknislega með sjúkl- inginn og spyr Sigvalda, hvað að honum sé. Sigvaldi segir, að það sé handleggsbrot. Þá segir Guðmund- ur: „Nú, af hveiju þekkið þér það? Þekkið þér það á því, í hvaða tóntegund hann skrækti?" Karlinn var bráðsnjall og síiðandi af húmor. Hann var lágur maður vexti, en snarplegur og hafði hýran glampa í augum." „Hvenær fóruð þér að fást við meinafræð- ina fyrir alvöru?" „Ég fór til framhaldsnáms í Noregi og Þýzkalandi og kom heim snemma árs 1924, og seint á sama ári var ég beðinn að taka að mér kennslu í meina- og sýklafræði við háskólann, því Stefán Jónsson dósent var þá farinn til Danmerkur. Hann treysti sér ekki til að vinna við þau frumstæðu skilyrði, sem hér voru þá. Hann var ágætur maður og vel að sér. Leitað var til tveggja íslenzkra lækna, sem báðir voru búsettir erlendis, en þeir hættu við undirbúningsnámið, enda orðnir fullorðnir menn. Þá ákvað læknadeildin að fá ungan mann og sneri sér til mín. Ég tók að mér starfið og fór utan í marz 1925, til Graz í Austurríki, að undirbúa mig í sérgreininni. Ég hafði lítið sem ekkert fengizt við krufn- ingar hér heima og kunni lítið í meinafræði. Ég var svo illa að mér, að ég varð að vinna fram á nætur og læra læknisfræðina upp á nýtt. En ég sé ekki eftir því. Læknar sem eru vanir krufningum hugsa öðruvísi en þeir, sem hafa lítið fengizt við þann starfa. Þeir hugsa um, hvað er að gerast í hveiju líffæri út af fyrir sig og hvernig það lítur út, en mörgum öðrum hættir til að hugsa aðeins um einkenn- in.“ „Haldið þér, að íslenzkir læknar hafi stað- góða þekkingu í meinafræði?" „Já, það held ég nú orðið og sumir eru ágætlega að sér, enda sjá þeir margar krufn- ingar, a.m.k. þeir sem vinna í spítölum." „Eruð þér aldrei hræddur við lík?“ NÍELS P. Dungal LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. JÚNÍ 1997 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.