Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1997, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1997, Blaðsíða 8
ERUM EKKI ERFINGJAR KALDA STRÍÐSINS Á þjóðhátíðardaginn, 1 7. júní, verða sextíu ár liðin frá því að Bókmenntafélagið Mál og menning var stofnað af Félagi byltingarsinnaðra rithöfunda og bókaútgáfunni Heimskringlu. Framan af tengdist saga Máls og menningar nokkuð pólitískum hrær- ingum í íslensku menningarlífi en eins og ÞROSTUR HELGASON komst að í samtali við núverandi útgáfu- stjóra þess, Halldór Guðmundsson, hefur lítið farið fyrir þeim hin seinni ár. BÓKMENNTAFÉLAGIÐ Mál og menning var stofnað 17. júní árið 1937. Að stofnun félagsins stóðu Félag bylting- arsinnaðra rithöfunda og bókaútgáfan Heimskringla. Helsti forsprakki Félags bylt- ingarsinnaðra rithöfunda var Kristinn E. Andrésson en ásamt honum voru stofnendur félagsins meðal annarra skáldin Halldór Kiljan Laxness, Steinn Steinarr, Jó- hannes úr Kötlum og Halldór Stefánsson. Vinstriróttæklingar voru þegar farnir að láta að sér kveða í þjóðfélags- og menningarlegri umræðu hér á landi á þriðja áratugnum, er stundum sagt að Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson hafi markað upphaf framgangs ís- lensku vinstrihreyfingarinnar en bókin kom út árið 1924. Árið 1926 tóku vinstrimenn líka yfir menningartímaritið Iðunni og stjórnmála- tímaritið Rétt og urðu þau helsti vettvangur skrifa þeirra næsta áratuginn. Kristinn var einnig í fararbroddi um stofnun Heimskringlu árið 1934 en með honum starf- aði lengst af Ragnar Jónsson, síðar kenndur við Smára. Heimskringla var allöflug útgáfa og gaf meðal annars út bækur höfunda í Fé- lagi byltingarsinnaðra rithöfunda, svo sem Jóhannesar úr Kötlum, Steins Steinars, Hall- dórs Stefánssonar, Guðmundar Böðvarssonar, Halldórs Kiljans Laxness og Þórbergs Þórðar- sonar; Halldór og Þórbergur fylgdu báðir Ragnari í Smára þegar Kristinn keypti hann út úr Heimskringlu og innlimaði hana í Mál og menningu árið 1944, en Halldór sat reynd- ar áfram í stjórn Máls og menningar. Hjá Máli og menningu var haldið áfram að gefa út undir merkjum Heimskringlu. Heimskringla gaf og út tímaritið Rauðir pennar sem hafði verið stofnað af Félagi byltingarsinnaðra rit- höfunda árið 1935. Ritstjóri Rauðra penna var Kristinn E. Andrésson en hann var einnig útgáfustjóri Heimskringiu. Mál og menning tók við Rauðum pennum þegar félagið var stofnað árið 1937 og gaf það út í tvö ár en síðan má segja að Tímarit Máls og menningar hafi tekið við hlutverki þeirra að vissu leyti. Fyrir hönd Félags byltingarsinnaðra rithöf- unda voru þrír menn kosnir í stjórn Máls og menningar við stofnun þess, Halldór Kiljan Laxness, Halldór Stefánsson og Eiríkur Magn- ússon en fyrir hönd Heimskringlu sátu þar Sigurður Thorlacius og Kristinn E. Andrésson sem svo varð formaður félagsins. Sósialismi og þjóófélagsleg menningarendurreisn Halldór Guðmundsson, núverandi útgáfu- stjóri Máls og menningar, segir að tveir hug- myndastraumar hafi leikið um félagið þegar það var stofnað, annars vegar sósíalismi og hins vegar þjóðleg menningarendurreisn sem glöggt má sjá endurspeglast í stofnunardegi félagsins, 17. júní. „I útgáfunni sér maður blandast saman ýmsa strauma, auðvitað bæði sósíalisma og kommúnisma en einnig útgáfu í anda þjóðrækni og síðan þýðingar og fræði- rit. Fyrstu tvær bækurnar sem fyrirtækið gaf út voru Vatnajökull eftir Niels Nielsen og svo þriðja hefti af Rauðum pennum. Árið 1938 kom fyrsta skáldsagan út sem var Móðirin eftir Gorkí. Þegar líður frá stofnun félagsins verður áherslan á hinn þjóðlega menningar- þátt hins vegar sífellt sterkari." Mál og menning starfaði fyrst sem bóka- klúbbur; menn gengu í félagið, greiddu áskrift- argjald og fengu félagsbækur sendar. Það voru því ekki gefnar út margar bækur fyrstu árin og segir Halldór að markmið félagsins hafí frekar verið að gefa út góðar bækur ódýrt, „verðið átti að lækka í krafti félaga fjölda sem er í raun sígild bókaklúbbsuppskrift.“ Halldór leggur mikla áherslu á að menn úr ýmsum áttum hafí fljótlega orðið viðriðnir fé- lagið eftir stofnun þess. „Árin 1939 og 1940 verða nokkur átök um Mál og menningu; Morg- unblaðið ritar gegn félaginu og einnig Jónas frá Hriflu í Tímann. í kjölfarið var sett á stofn svokallað félagsráð Máls og menningar sem gegndi hlutverki aðalfundar og kaus stjórn. Þetta ráð var stofnað meðal annars í þeim yfirlýsta tilgangi að fá fólk úr öðrum stjórn- málaflokkum, eða öðrum áttum, til liðs og slá skjaldborg um fyrirtækið, eins og það var kall- að. í þessu ráði sátu því menn með allt aðrar skoðanir en Kristinn, eins og Gunnar Gunnars- son, Páll ísólfsson og Sigurður Nordal og fleiri borgaralegir lista- og menntamenn. A þessum árum var mikið gefið út af þýðing- um og ákaflega erfítt að sjá neina pólitíska slag- síðu á þeim; þama má sjá höfunda eins og John Galsworthy, John Steinbeck, Emest Hemingway og svo framvegis. En höfuðverkið sem félagið ætlaði að vinna að á stríðsárunum við oft erfíð- ar aðstæður - pappírsskömmtun og pólitísk átök - var stórvirki sem hét Arfur Islendinga sem átti að verða margra binda verk með skrif- um eftir fjölda manna. Sigurður Nordal var rit- stjóri verksins og þurfti að veija hendur sínar í greinum á þessum tíma gegn því að hann væri farinn að þjónusta kommúnistana. En það kom aðeins út eitt bindi í þessum flokki sem var íslenzk menning sem Sigurður skrifaði sjálfur. En það er kannski ágætt að minnast þess í ljósi pólitískrar umræðu um þetta tímabil að bandalagið við borgaralega menntamenn helst í nokkur ár; Sigurður Nordal er til dæm- is í stjórn langt fram á sjötta áratuginn þegar hann fer til Kaupmannahafnar. Á þessu tíma- bili eru einkum gefnar út þýðingar og svo íslensk klassík; Sigurður sá til að mynda um útgáfu á Andvökum Stephans G. og Gunnar Gunnarsson gaf út Jóhann Sigutjónsson. Það er hins vegar ekki gefið út mikið af íslenskum samtímabókmenntum, þær koma frekar út hjá Heimskringlu eða þá öðrum fyrirtækjum. Þessi útgáfa hafði ekki mikinn pólitískan lit enda voru straumarnir sem léku um fyrirtækið í upphafi ekki jafn einsleitir og í kalda stríðinu. Það er vitað að róttækir rithöfundar voru mjög áberandi í íslenskum bókmenntum á fjórða áratugnum en það var í raun ekki fyrr en fór að líða á sjötta áratuginn sem hin pólit- ísku átök milli hægri og vinstri manna í ís- lenskri bókaútgáfu fóru að tvíeflast. Þá voru hinir borgaralegu félasgráðsmenn flestir farn- ir úr Máli og menningu, auk þess sem AI- menna bókafélagið var stofnað árið 1955.“ Snemma ákvað Mál_ og menning að stofna til verslunarreksturs. Árið 1940 var tilgangur félagsins sagður vera að efla fijálsa þjóðmenn- ingu með bókaútgáfu og annarri upplýsinga- starfsemi en tveimur árum seinna var verslun- - éyrrekstri bætt við, auk þess sem Einar, bróð- ''ir“ Kristins, var gangandi bókabúð. Bókabúð Máls og menningar tók við af bókabúð Heims- kringlu og var til húsa á Laugavegi 19 en upp úr miðjum sjötta áratugnum hófst Krist- inn E. Andrésson handa við byggingu húss á Laugavegi 18. „Sú bygging er greinilega risa- vaxið átak,“ segir Halldór, „og stofnað um það sérstakt hlutafélag sem má nánast kaila almenningshlutafélag á vinstri kantinum. Fjöldi velvildarmanna félagsins leggur fé til þessa verks, menn sem við höfum verið að kaupa út allt fram á þessi ár.“ Slagurinn alveg eins ó milli Þjóóviljans og Morgunblaósins En á þessum sama tíma segir Halldór að Mál og menning hafi líka átt í töluverðum erfiðleikum. „Kristinn var kannski ekki lengur í takt við samtímabókmenntir. Það var ekki gefin út nema ein og ein bók eftir unga höf- unda og yfirleitt hélst honum ekki á þeim; þeir fóru frekar til Helgafells eða jafnvel Al- menna bókafélagsins. Á sjöunda áratugnum var því kannski mest reisn yfir Tímariti Máls og menningar sem Sigfús Daðason sá mikið til um og birti margar merkar greinar í.“ Sigfús tók við sem formaður og fram- kvæmdastjóri félagsins árið 1971 í veikindum Kristins sem lést árið 1973. Þröstur Ólafsson tók svo til starfa sem framkvæmdastjóri árið 1973 og varð Sigfús þá útgáfustjóri. Þorleifur Hauksson tók við því starfí af Sigfúsi árið 1976 og gegndi því til ársins 1982 þegar Þuríð- ur Baxter varð útgáfustjóri. Þröstur hætti árið 1980, Ólafur Ólafsson leysti hann af í þijú ár en síðan Ólöf Eldjárn í eitt ár. Árið 1984 komu svo Halldór Guðmundsson og Árni Einarsson til starfa hjá félaginu, Halldór sem útgáfu- stjóri og Árni sem framkvæmdastjóri. Fyrir tveimur árum leysti Sigurður Svavarsson Árna af, _en Árni varð verslunarstjóri. Á áttunda áratugnum segir Halldór að hin pólitísku tengsl félagsins hafi mjög verið farin að rofna. „En eftir því sem manni sýnist voru þau aldrei í skipulagi fyrirtækisins; þessi tengsl voru fyrst og fremst persónuleg, Krist- inn var frammámaður hjá-íslenskum sósíalist- um. Fyrrnefndur tilgangur félagsins höfðaði til margra og ekki aðeins vinstrimanna. Fé- lagsmenn fóru upp í 6.600 á fyrstu sjö árunum sem þýðir að um það bil fjórða hvert íslenskt heimili fékk eitthvað af útgáfubókum þess. Á þessum árum var meiri samfylking um félag- ið en menn hafa síðar meir haldið; Halldór Laxness og Sigurður Nordai sitja til dæmis saman í stjórn Máls og menningar í meira en tíu ár. Það er alltaf talað um að það hafi ríkt eitthvert stríð en það stóð ekki samfellt á þessum fyrstu áratugum starfseminnar. Það má líka sjá í bókmenntasögu Kristins frá 1949 að hann er mjög yfirvegaður í skrifum sínum um marga höfunda, yfirvegaðri en kannski margar seinni tíma þjóðsögur segja og sama á auðvitað við um hans nánustu samstarfs- menn, eins og Jakob Benediktsson. Kristinn hélt til dæmis greinilega mjög mikið upp á Gunnar Gunnarsson, hann er einn af aðstand- endum Landnámuútgáfunnar á verkum hans í upphafi fimmta áratugarins. Það er líka mikill fögnuður í Tímariti Máls og menningar þegar Gunnar flyst heim. Svo má vera að það hafi kólnað með þeim þegar kom fram í kalda stríðið en þá sögu þekki ég ekki. Ég er heldur ekki viss um að sú heift sem einkenndi íslenskar bókmenntir í kalda stríðinu hafi öll snúist um Mál og menningu eða tengst henni á einhvern hátt; fæstir höfundanna komu út hjá félaginu, hvorki Þórbergur né Halldór Laxness voru gefnir út hér og svo var einnig um marga yngri róttæka höfunda. Mál og menning virðist yfirleitt hafa haft frekar lítið bolmagn til þess að sinna frumsömdum íslenskum bókmenntum á þessum árum kalda stríðsins. Slagurinn var alveg eins á milli Þjóð- viljans og Morgunblaðsins; maður sér milklu frekar heiftargreinar gegn einstaka höfundum í dagblöðum þessa tíma en í Tímariti Máls og menningar. Tímaritinu var hins vegar beitt mjög mikið í hermálinu. Það er ljóst að það var pólitísk slagsíða á Máli og menningu. Hins vegar vil ég bara benda á - gegn hinum ýmsu þjóðsögum sem menn hafa verið að hampa seinna - að ástand- ið var miklu flóknara, að minnsta kosti fyrstu tuttugu árin og hvað þá síðar meir. Það var alltaf tekið fram að félagið væri óháð pólitísk- um flokkum og það er greinilegt að Kristinn fékk til liðs við sig borgaralega menntamenn. Kristinn var ekki endilega svo djúpt sokkinn í flokkspólitlkina á þessum tíma en hann var eindreginn Sovétsósíalisti og auðsagt að hon- um skjátlaðist hrapallega í þeim efnum. Þess- ar skoðanir hans lita skrif hans um ýmsa hluti en skrif hans um íslenskar bókmenntir litast líka af því að hann er menntaður í Þýskalandi á þriðja áratugnum, það er mjög sterkur róm- antískur tónn í hans skrifum þar sem skáld- skapurinn er hafinn upp til skýja en í því efni er hann mjög langt frá þeim Sovétmarxisma sem menn kannski tengja við hann núna.“ Löngu búió aó skera á öll flokkspólilisk tengsl -Finnst þér ennþá eima eftir af þessum flokkadráttum sem urðu á kaldastríðsárunum í íslenskum bókmenntaheimi? „Það gerir það vafalaust hjá eldra fólki en ég held að þessu hafi verið lokið um miðjan síðasta áratug. Sjálfur hef ég aldrei orðið var við neina erfiðleika í starfi af þessum sökum. En viss tortryggni sem verður að teljast eðli- leg hefur verið áfram á báða bóga. Það er ljóst að sú heift sem var ríkjandi á tímabilinu frá 1960 til 1980 hefur skaðað ís- lenskar bókmenntir feiknalega. Sjálfsagt hefur stór hluti málsmetandi íslenskra rithöfunda skipað sér vinstra megin í þessum átökum en svo getur maður líka sagt að á hinn bóginn sátu hægri menn við stjórnartaumana og réðu íjármagninu; átökin á milli þeirra sem réðu orðræðunni annars vegar og hinna sem höfðu peningaleg og stjórnmálaleg völd urðu örugg- lega mjög hörð. Á meðan Alþingi var að út- hluta rithöfundalaunum á þessum tíma var verið að setja menn út í kuldann og taka aðra inn algjörlega eftir flokkspólitískum hagsmun- um. Það hlýtur að vera mönnum geysilegur léttir að vera laus við það að mestu." -En er þín kynslóð ekki alin upp í þessum kaldastríðsanda, fannstu til dæmis ekki fyrir þessari togstreitu í Háskóla íslands? „Ég var í Háskóla íslands árin 1975 til 1979 og fór svo í framhaldsnám í Danmörku. Ég var reyndar lítið í íslenskudeildinni hér heima en það fólk sem ég iærði hjá í almenn- um bókmenntum við Háskólann, svo sem eins og Sigfús Daðason, Álfrún Gunnlaugsdóttir og Kristján Árnason og fleiri, stundaði enga pólitíska innrætingu. Ég náði þó í skottið á þessum tíma og þess- ari umræðu eins og hún var í blöðunum. En þrátt fyrir að ég hafi verið mjög vinstriróttæk- ur á mínum háskólaárum þá finnst mér þessi kaldastríðstími tilheyra eldri kynslóð. Mín kynslóð var líka algerlega andsnúin þessari póiitísku skiptingu í bókmenntunum; það má til dæmis nefna að það var Almenna bókafé- lagið sem gerði vel við Einar Má Guðmunds- son en hann var samtíða mér í Háskólanum. Einar Már var eindreginn vinstrisósíalisti og mér þótti þetta vera táknrænt um að þetta stríð væri liðið; það er að minnsta kosti ólík- legt að Almenna bókafélagið hefði gefið Einar Má út tuttugu árum fyrr. Þess skal líka getið að þegar ég kom til starfa hjá Máli og menningu árið 1984 þá voru forver- ar mínir löngu búnir að skera á öll flokkspóli- tísk tengsl; formaður Alþýðubandalagsins hefur aldrei haft samband við mig til að koma ein- hveiju til leiðar, enda hefði það ekkert þýtt. Við sem stjórnum hér nú höfum ekki litið á okkur sem erfingja að því stríði sem geisaði hér fyrir tuttugu, þijátíu árum. Og stalínismi Kristins E. Andréssonar stendur að minnsta kosti mér víðs fjarri þótt ég hafi samúð með mörgu í viðhorfum hans til bókmennta og bóka- útgáfu, eins og til dæmis því að gefa út ódýr- ar bækur í stórum upplögum." Óþrjótandi jaróvegwr samsæriskenninga -Það er kannski engin ástæða til að ætla að Mál og menning haldi enn úti hörðum vinstrisósíalisma í útgáfu sinni og hafi gert síðastliðinn áratug eða svo. Maður verður hins vegar augljóslega var við ákveðna togstreitu á milli hægri og vinstri aflanna í íslenskum bókmenntaheimi enn þann dag í dag; kannski er þetta ekki lengur hugmyndaleg eða pólitísk togstreita heldur einhvers konar valdabarátta? „Það hefur ekki allur skoðanamunur þurrk- ast út. Það er alveg klárt að í bókmenntalífi svona lítils lands verða alltaf átök en þau fara ekki nærri eins mikið eftir pólitískum línum og áður. Nú geta þetta verið klíkur sem eru að takast á eða bara einstaklingar. Og auðvit- 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. JÚNÍ 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.