Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.2000, Blaðsíða 17
HLÁTUR BÆTIR LÍÐAN OG
ER UPPLÖGÐ STREITUVÖRN
Læknavísindin eru ekki enn búin að sanna að
hláturinn lengi lífið en víst er að hann gerir
lífið skemmtilegra. Því hefur nú verið hleypt af
______stokkunum farandsýningu um læknaskop,_______
Hláturgas 2000, sem mun fara milli tíu sjúkrahúsa um
land alltá næstu mánuðum. MARGRÉT SVEIN-
BJÖRNSDÓTTIR átti fund með nokkrum aðstandenda
sýningarinnar - og vart ætti að þurfa að taka fram
að á þeim fundi var mikið hlegið.
Hjörleifur Þórarinsson, framkvæmdastjóri Glaxo Wellcome, Steingerður Steinarsdóttir, einn rit-
stjóra bókarinnar, Þorri Hringsson myndlistarmaður og Bjarni Jónasson, heímilislæknir og vara-
forseti Norrænna samtaka um læknaskop.
FYRSTI áfangi sýningarinnar var
opnaður á Landspítalanum í gær
og stendur til 12. febrúar. Þaðan
leggur sýningin upp í hringferð
um landið, sem lýkur í desember
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. ís-
lenska menningarsamsteypan
art.is stendur fyrir sýningunni,
sem sett er upp í samstarfi við íslandsdeild
Norrænna samtaka um læknaskop, Nordisk
selskap for medisinsk humor, en aðalstyi'ktar-
aðili verkefnisins er lyfjaíyrirtækið Glaxo
Wellcome. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem art.is
og Glaxo Wellcome sameina krafta sína um að
lífga upp á tilveruna á sjúkrahúsum landsins,
því í fyrra stóðu þessir aðilar saman að farand-
sýningunni Lífæðum, þar sem teflt var saman
ljóðum og myndlist íslenskra listamanna.
I tengslum við sýninguna hefur verið gefin út
80 síðna bók með titlinum Hláturgas - lækna-
skop frá vöggu til grafar. Hún hefur að geyma
fjölda skopteikninga og lirandara, íslenskt
rímnaskop og tilvitnanir í spaugilegar lækna-
skýrslur. Teikningamar eru eftfr innlenda og
erlenda listamenn, þeir íslensku eru Þorri
Hringsson, Hallgrímur Helgason, Gísli J. Ást-
þórsson, Brian Pilkington og Halldór Baldurs-
son. Enn er ótalinn einn þein-a íslendinga sem
eiga myndir í bókinni, en hann er læknir og
heitir Sigurður V. Sigurjónsson. Kveðskapur í
bókinni er eftir læknana Hjálmar Freysteins-
son, Pál Ásmundsson og Pétur Ingva Péturs-
son. Bókinni verður dreift ókeypis alls staðar
þar sem sýningin verður haldin, auk þess sem
hún verður send til lækna og heilsugæslustöðva
um allt land.
Á sýningunni eru um 60 skopmyndir og ann-
að spaug sem allt er einnig að finna í bókinni.
Úrval læknaspaugs verður ennfremur bh-t á
heimasíðu Glaxo Wellcome, á slóðinni
www.glaxowellcome.is.
Skop gefur auðveldað
margt í samskiptum fólks
Ritstjórar bókarinnar Hláturgas eru þau
Hannes Sigurðsson, Steingerður Steinarsdóttir
og Bjami Jónasson, en sá síðastnefndi er heim-
ilislæknir og varaforseti Nomænna samtaka
um læknaskop. „Læknaskop er ekki alveg nýtt
af nálinni. Þetta hefur lengi verið hobbý ein-
stakra manna og það hafa verið til þó nokkrir
teiknarar í gegnum tíðina sem hafa fundið það
skoplega í samskiptum læknis og sjúklings,“
segir Bjarni og minnist t.d. hins þekkta danska
skopmyndateiknara Storm P.
Læknaskop hefur fylgt Bjarna allt frá blautu
bamsbeini og hann hefur safnað því markvisst í
áraraðir. „Faðir minn var læknir og hann bar
þetta í mig - hann hélt ég hefði húmor. Seinna
hef ég fundið það sjálfur hvað skop getur auð-
veldað margt í samskiptum fólks. Svo var það
að ég rataði inn í hóp manna á Norðurlöndunum
sem höfðu þetta sama áhugasvið, læknaskop
eða „medisínskan húmor“. Það var boðað til
fundai- um mitt ár 1998, þar sem lögð vora drög
að því að stofna norræn samtök um læknaskop
og stofnfundurinn var haldinn í Kaupmanna-
höfn 16. janúar 1999. Þar var skipuð stjóm sem
í eru fulltrúar allra Norðurlandanna, nema hvað
enn hefur ekki fengist fulltrái frá Finnlandi,"
segir Bjarni, sem vai’ kjörinn varaforseti sam-
takanna en hinn íslendingurinn í stjórninni er
Pétur Ingvi Pétursson, heimilislæknir á Akur-
eyri. „Fyrsta nomæna þingið var haldið í Alfdal
í Noregi í september síðastliðnum. Þar mættu
um 70 læknar og það var mjög sláandi alvarleg-
ur tónn í þessu öllu. Mönnum er jú full alvara
með að koma þessu til skila, inn í daglegt líf
sjúklinga jafnt sem þeirra sem vinna í heilbrigð-
isþjónustunni," heldur hann áfram. En vonandi
stökk mönnum þó bros á þessari háalvarlegu
húmomáðstefnu í Álfadal? „Jú, jú, og það var
vægast sagt mjög gaman og magnað að heyra
virðulega háskólaprófessora ræða í smáatriðum
um brosferli einstaklingsins," segir Bjarni með
breitt bros á vör. „Skömmu eftir stofnfundinn í
fyma hélt Fræðslustofnun læknafélaganna
kynningarfund fyrir íslenska lækna um lækna-
skop. Ljósmyndari Morgunblaðsins vai’ á
staðnum og frétt af þessu birtist svo á síðum
blaðsins. Fréttin vakti athygli Hannesar Sig-
urðssonar hjá íslensku menningai’samsteyp-
unni, hann reif hana út úr blaðinu og hugsaði
með sér að það væri gaman að gera eitthvað úr
þessu. Það var svo sl. vor sem hann hringdi í
mig og það er skemmst frá því að segja að þar
hitti ég fyrir mann af kalíberi sem ég hef aldrei
hitt áður,“ segir hann. Upp úr því fóra hlutimir
að gerast hratt og hugmyndin þróaðist. Hjá
Glaxo-Wellcome tóku menn strax mjög vel í það
þegar ámálgað var við þá að styrkja verkefnið.
„Og hér eram við í dag,“ segir Bjarni, bendir á
samstarfsmennina; meðritstjórann Steingerði
Steinarsdóttur, Þoma Hringsson myndlistar-
mann og Hjörleif Þórarinsson, framkvæmda-
stjóra Glaxo Wellcome, og hampar bókinni sem
er nýkomin úr prentun.
Þegar Hjörleifur er spurður hvað hafi orðið
til þess að grafalvarlegt lyfjafyrirtæki ákvað að
Ijá verkefninu stuðning segir hann að tvennt
hafi komið tíl. „I fyrsta lagi átti ég mjög
ánægjulegt samstarf við íslensku menningar-
samsteypuna art.is í fyma varðandi myndlistar-
og Ijóðasýninguna Lífæðar sem fór hringinn í
kringum landið á síðasta ári og fékk hvarvetna
mjög góðar viðtökur. í öðra lagi fagnai' Glaxo
Wellcome á Islandi tíu ára afmæli á þessu ári og
við ákváðum að reyna að gera eitthvað myndar-
legt af því tilefni,“ segir hann og bætir við að
hugmynd menningarsamsteypunnar um
læknaskop hafi strax fallið vel í kramið. „Með
þessu móti teljum við okkur vera að leggja skerf
til menningar og mannlífs í landinu, sem við álít-
um óaðskiljanlegan hluta af starfsemi fyrirtæk-
is sem framleiðir lyf til að lækna og líkna.“
Bjarni kveðst ekki geta látið hjá líða að nefna
að íslensk heilbrigðisyfirvöld, með ráðhema þai-
fremstan í flokki, hafa tekið framtakinu feikna-
vel. „Ingibjörg Pálmadóttir er sjálf ágætur
húmoristi og hún hefur tekið þessu fagnandi.
Raunai’ er alveg sama hvar borið er niður, mað-
ur kemur alls staðar að opnum dyram. Við gerð-
um könnun á tveimur heilsugæslustöðvum í júlí
í fyiTa, þar sem fólk var beðið að fylla út eyðu-
Oblað, nafnlaust, um læknaskop. Yfirgnæfandi
meh-ihluti hafði jákvæða afstöðu til þess að sleg-
ið væri á léttari strengi í samtali læknis og
sjúklings, þegar aðstæður leyfa.“
Saga um læknisferð í gömlu skólablaði
Aðspm’ður hvort hann hafi gert mikið af því
að gantast við lækna eða skopast að þeim neitai’
Þorri Hringsson, „ekki nema í heimsóknum hjá
heimilislækninum." Það var ekki fyrr en Hann-
es kom að máli við hann og bað hann að semja
sérstaklega fyrir þetta tilefni að hann fór að
teikna skrípamyndir af sjúkrahúsinu. „Ég verð
reyndar að viðm’kenna að í fyrsta skipti sem
eitthvað kom út eftir mig opinberlega var fyrir
meira en tuttugu árum þegar ég skrifaði sögu í
skólablað Austm’bæjarskólans - um ferð til
læknisins. Og ef ég man rétt, þá var þetta ákaf-
lega fyndin saga. Einhvem veginn gerist það að
einhver læknfr kemst í þetta, hringir og spyr
mig hvort hann megi birta söguna í blaði, sem
HLÁTURGAS
2000
Sýningin Hláturgas 2000 verður sett upp á
eftirtöldum sjúkrahúsum á næstu mánuðum
sem hér segir:
► Landspítalinn
14. janúar-12. febrúar 2000
► Sjúkrahús Akraness
18. febrúar-18. mars 2000
► Sjúkrahús Isafjarðar
24. mars-22. apríl 2000
► Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki
28. apríl-20. maí 2000
► Heilbrigðisstofnunin Egilsstöðum
26. maí-24. júní 2000
► Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
30. júní-29. júlí 2000
► Heilbrigðisstofnunin Húsavík
4. ágúst-2. september 2000
► Sjúkrahús Suðurlands, Selfossi
8. september-7. október 2000
► Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
13. október-11. nóvember 2000
► Sjúkrahús Reykjavíkur, Fossvogi
17. nóvember-16. desember 2000
var að mig minnir gefið út á Borgarspítalanum.
Ég var auðvitað gapandi undrandi yfir því að
nokkur lifandi maður skyldi hafa áhuga á þessu,
þannig að ég sagði náttúralega já!“ rifjar Þorri
upp. r
Ekki verður lengur hjá því komist að spyija
lækninn við borðið hinnar brennandi spuming-
ar hvort hláturinn lengi lífið? „Það er að vísu
ekki búið að sanna það en hann gerir lífið alveg
örugglega skemmtilegra. Við getum öll vitnað
um það að okkur líður betur eftir að hafa hlegið
innilega. Það er heilmikið búið að rannsaka
hvað gerist í líkamanum við það að maður hlær.
Það fer allt í gang og það verður losun á ýmsum
boðefnum í líkamanum sem auka á vellíðan.
Hlátm- og gamansemi minnka líka streitu og
fyrir lækna er þetta mjög upplagt sem streitu-
vörn og minnkar líkurnai’ á útbrana eða kulnun
í starfi," segir Bjarni. Hann leggur áherslu á að
læknaskop eigi alltaf að vera jákvætt og upp-
byggilegt og aldrei særandi.
Læknirinn megi aldrei skopast á kostnað
sjúklingsins og aldrei gera lítið úi- því sem hann ..
segii’. „Því langflest af því sem lækni og sjúkl-
ingi fer á milli er alvarlegt og eitt það versta
sem getur hent mann er að vera misskilinn með
húmor. Það er stórslys í samskiptum læknis og
sjúklings, vegna þess að það er aldrei hægt að
spóla til baka, misskilmngurinn verður aldrei
aftui’ tekinn."
Ertíl samnorrænn kimnistuðull?
„Getm* verið að gamansemin aukist í réttu
hlutfalli við það hvað aðstæðurnar era alvarleg-
ar?“ spyr Þorri heimspekilegur á svip. Læknin-
um þykir tilgátan mjög góð. Steingerður veltfr
því fyrir sér hvort Bjarni hljóti ekki að vera
næstskemmtilegasti læknh-inn á öllum Norður- £
löndunum, fyi-st hann er varaforseti samtak-
anna góðu. Fátt verður um svör hjá varaforset-
anum og í framhaldi af þeirri umræðu slær
Þorri fram spumingunni hvort til sé samnor-
rænn kímnistuðull. Ekki komast menn heldur
að niðurstöðu í því máli en vissulega gæti það
verið verðugt rannsóknai’efni.
AÐ HAFA KJAFT
TIL AÐ HLÆJA MEÐ
HÉR á eftir fer sýnishorn úr bókinni Hláturgas - læknaskop frá vöggu til grafar. Hjálmai’
F reysteinsson læknir segir svo frá:
Bjarni Jónasson, sérfræðingur í skoplækningum, sótti skopfund í Kaupmannahöfn sl.
vetur. Norskt blað, sem mig minnir að heiti Verdens gang eða eitthvað slíkt, sagði frá fund-
inum og birti mynd þar sem Bjarni hlær svo sést niður í skeifugörn.
Læknaskop illskeyttra lægir geð
hin ljósustu dæmi þess fæ ég séð
svo auðvitað má
maður öfunda þá
sem hafa kjaft til að hlæja með.
Út úr svo stóru opi
kemst ógrynni af læknaskopi
og aukheldur má
á myndinni sjá
talsvert af tannlæknaskopi.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR15. JANÚAR 2000 1 7