Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2000, Side 2
Salka sýnd í Stokkhólmi
HAFNARFJARÐARLEIKHUSINU Her-
móði og Háðvöru hefur verið boðið að sýna
Sölku - ástarsögu á Leiklistardögum Ríkis-
leikhússins í Stokkhólmi sem haldnir verða
dagana 11.-14. maí næstkomandi. Samkvæmt
upplýsingum frá Ríkisleikhúsinu verður
þetta umfangsmesta gestasýningin á hátíð-
inni sem mun vera sú stærsta sinnar tegund-
ar á Norðurlöndum. Boðið hefur verið um eitt
þúsund gestum. Sýnt verður í tvígang.
María Ellingsen leikkona hjá Hafnarfjarð-
arleikhúsinu segir boðið heiður fyrir leikhús-
ið og að mikill hugur sé í fólki. „Kveikjuna að
boðinu má rekja til leikstjóraráðstefnu sem
haldin var hér á landi fyrr í vetur. Eftir hana
hafa greinilega borist fréttir af sýningunni til
Norðurlandanna því boð um þátttöku á leik-
listarhátíðum hafa streymt til okkar. Þetta er
fyrsta boðið sem við þiggjum en við erum að
skoða fleiri. Það er aldrei að vita nema Salka
leggist í ferðalag með hækkandi sól,“ segir
María og bætir við að það sé ánægjulegt að
leiksýning í Hafnarfirði sé farin að spyrjast
út til Evrópu.
Hún segir Hafnarfjarðarleikhúsið verða að
takmarka sýningafjölda á Sölku hér heima af
þessum sökum. Þó sé stefnt að því að sýna
leikritið fram að páskum. „Við höfum sýnt
Sölku fyrir fullu húsi frá því í október og að-
sóknin verið vonum framar - verkið hefur
fengið góðar viðtökur hjá ungum sem öldnum
- en nú verðum við senn að snúa okkur að
undirbúningi vegna Leiklistardaganna."
Morgunblaðið/Kristinn
Hafnarfjarðarleikhúsið verður að takmarka sýningar á Sölku - ástarsögu hér heima vegna ferðar
á Leiklistardaga í Stokkhólmi og jafnvel fieiri hátíðir.
Það er jafnan dýrt að sækja hátíðir af
þessu tagi en María segir Ríkisleikhúsið
koma vel til móts við þau. „Boðið er mjög
rausnarlegt og kostnaðurinn fyrir okkur
óverulegur.“
Þetta er í annað sinn sem Hafnarfjarðar-
leikhúsið sýnir á Leiklistardögum Ríkisleik-
hússins. Síðast var hópurinn þar á ferð með
Himnaríki eftir Árna Ibsen. Féll sú sýning í
frjóa jörð.
í yfirstærð
ÞEIM liggur ekki mikið á 1 vinnuna þessum
risavöxnu mönnum sem komið hefur verið
fyrir utan við skrifstofubyggingu eina í
MUnchen í Þýskalandi.
Stytturnar eru risavaxnar iíkt og sjá má ef
þær eru bornar saraan við manninn sem þýt-
ur upp tröppurnar í bakgrunni myndarinnar.
Þær eru verk þýska listamannsins Ch. Lechn-
er og kannski þörf áminning til nútíma-
mannsins um að flas er ekki alltaf til fagnað-
ar og að stundum er nauðsynlegt að staidra
við og njóta góða veðursins.
600.000
gestir á
Helsinki
2000
NU þegar hafa meir en 600.000 gestir
sótt viðburði á vegum menningarborg-
arinnar Helsinki en hún er ásamt
Reykjavík ein af níu borgum Evrópu
sem bera þann titil í ár.
Um er að ræða aðsókn að hvers kon-
ar tónleikum, sýningum og uppákom-
um á vegum Helsinki 2000 en auk
þessa tóku um 100.000 manns þátt í há-
tíðarhöldum verkefnisins í miðbæ
Helsinki á gamlárskvöld en þess má
geta að íbúar borgarinnar eru um það
bil ein milljón.
Fleiri sækja ókeypis viðburði
Meiri aðsókn hefur verið að atburð-
um sem ókeypis er að sækja en þeim
sem aðgangseyrir hefur verið að.
360.000 manns hafa sótt ókeypis við-
burði en 250.000 hafa keypt sig inn á
viðburði menningarborgarinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá Reykja-
vík 2000 hafa ekki verið teknar saman
tölur um aðsókn að viðburðum á þeirra
vegum.
Verk eftir Cima-
bue uppgötvað
á Englandi
London. AP, AFP.
UPPBOÐSFTRIRTÆKIÐ Sotheby’s greindi á miðvikudag frá að fund-
ist hefði verk eftir 13. aldar ítalska listamanninn Cimabue þegar verið
var að undirbúa uppboð á herragarðinum Benacre Hall í bænum Lower-
stoft.
Myndin, sem er máluð á panel hafði hangið uppi við árum saman án
þess að nokkur gerði sér grein fyrir mikilvægi hennar, en áætlað sölu-
verð mjmdarinnar á uppboði 6. júlí n.k. er rúmar tvær milljónir punda,
eða um 240 milljónir ísl. króna.
Cimabue, sem hét í raun Cenne di Pepo, fæddist um 1240 og telst einn
brautryðjenda ítalskrar myndlistar, auk þess að vera talinn hafa haft
umtalsverð áhrif á vestrænnar listasögu í heild. Aðeins er vitað um einar
sjö eða átta myndir eftir Cimabue sem ekki eru hluti altaristöflu og
verður myndin frá Benacre Hall fyrsta mynd hans semboðin er til sölu á
AP
Sérfræöingar Sotheby’s halda hér uppi mynd Cimabues sem boðin
verður upp í sumar.
uppboði. Hún telst jafnvel eitt mikilvægasta ítalska myndverkið sem fer
á uppboð frá því að krossfestingarmynd eignuð Duccio var seld fyrir 120
milljónir króna 1976.
Ní ENNING/
LISTIR
NÆSTU
VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn: Verk Ásmundar
Sveinssonar.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg:
Margt smátt. Verk 28 listamanna. Til
20. febrúar.
Galleri@hlemmur.is: Helgi Hjaltalín
Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson.
Til 27. febrúar.
Gallerí One o One:
Ásmundur Ásmundsson. Til 12. mars.
Gallerí Reykjavík, Skólavörðustíg:
Níu grafíklistamenn. Til 4. mars
Gallerí Stöðlakot: Vytautas Narbut-
as. Til. 27. febrúar. Grímur Marinó
Steindórsson. Til 19. mars.
Gallerí Sævars Karls:
Georg Guðni.
Gerðarsafn: Ljósmyndasýning Blaða-
ljósmyndarafélags íslands og Ljós-
myndarafélags Islands.
Hafnarborg: Ljósmyndasýning. Sig-
ríður Zoéga. Til 28. febrúar
Hallgrímskirkja: Leifur Breiðfjörð.
Til 24. feb.
i8, Ingólfsstræti 8: Birgir Andrésson.
Til 27. febrúar.
fslensk grafík, Hafnarhúsinu: Alista-
ir Macintyre. Til. 27. feb.
Kjarvalssstaðir (austursalur): Jó-
hannes Sveinsson Kjarval. Myndir úr
Kjarvalssafni.
Listasafn ASI: Norrit: Guðrún
Gunnarsdóttir, Agneta Hobin, Ulla-
Maija Vikman og Inger-Johanne
Brautaset. Til 12. mars.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið
laug. og sun. kl. 14-17. Höggmynda-
garðurinn opinn alla daga.
Listasafn Islands: Claudio Parmiggi-
ani. Til 28. feorúar. Roni Horn. Til 5.
mars.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Mokkakaffi: Aðalheiður S. Eysteins-
dóttir. Til. 11. mars.
Norræna húsið: Gisle Froysland. Til
12. mars. Anddyri: Robert Sot, til 20.
febr.
Stofnun Árna Magnússonar: Hand-
ritasýning opin þriðjudag-föstudaga
kl. 14-16. Til 15. maí.
Upplýsingamiðstöð myndlistar: Lista
yfir fyrirhugaðar og yfírstandandi
myndlistarsýningar í öllum helstu
sýningarsölum landsins má finna á
slóðinni www.umm.is undir „Fréttir".
TÓNLIST
Sunnudagur
Hallgrímskirkja: Kammersveit Hall-
grímskirkju. Einsöngvari Margrét
Bóasdóttir. Kl. 17.
Neskirkja: Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna. Einleikari á orgel: Lenka Má-
téová. Kl. 17.
Langholtskirkja: Kammersveit
Reykjavíkur kl. 20.30. Verk eftir Hen-
ryk Górecki.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Komdu nær, mið. 23.
feb, fimmt. 24 feb.
Gullna hliðið, laug. 19. febrúar.
Glanni glæpur í Latabæ, sun. 13. feb.
Krítarhringurinn í Kákasus, lau. 12.,
mið. 16. feb.
Abel Snorko býr einn, þri. 22. feb.
Vér morðingjar, fös. 18. feb.
Borgarleikhúsið: Djöflarnir: lau. 12.
feb.
Bláa herbergið, sun. 20. feb.
Litla hryllingsbúðin, sun. 13. feb.
Sex í sveit, miðv. 16. feb.
Afaspil sun. 13. feb.
Leitin að vísbendingu..., fös. 11. feb.
Fegurðardrottningin frá Línakri, fim.
17., fös. 18. feb.
Iðnó: Stjörnur á morgunhimni, sun.
13. feb.
Frankie & Johnny, lau. 12. feb.
Ilafnarfjarðarleikhúsið: Salka, ástar-
saga, laug. 12., fim. 17., fös. 18. feb.
Loftkastalinn: Panodil, laug. 19.feb.
Ég var einu sinni nörd: laug. 12., mið.
16., fös. 18. feb.
Kaffileikhúsið: Ó-þessi þjóð, fös. 18.
feb.
Nornaveiðar, sun. 13. feb.
íslenska óperan: Lúkretía svívirt,
sun. 13. feb.
Baneitrað samband: laug. 12. feb.
Hellisbúinn: fim. 17. feb.
Bíóleikhúsið: Kossinn, laug. 12. feb.
Morgunblaðið, Menning/listir, Kringl-
unni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
5691222. Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 19. FEBRÚAR 2000