Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2000, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2000, Síða 9
Napóleon á dánarbeði á St. Helenu 1821. heimaíyrir. Hin svokölluðu náttúrulegu landa- mæri landsins, sem töldust vera Alpamir, Rín og Belgía, voru tryggð með því að koma upp systurlýðveldum í Hollandi og Sviss. Frakk- land hafði því eins og á stóð enga ástæðu til út- þenslu og Napóleon eins og allir Frakkar vildi frið enda fullur hugmynda um uppbyggingu landsins. Englendingar töldu íyrir neðan virð- ingu sína að semja við Napóleon, sem þeir nefndu hermdarverkamanninn frá Korsíku. Franska lýðveldið var bein ógnun við hið gamla valdakerfi Evrópu. Aðallinn vildi það feigt. Mikill fjöldi franskra aðalsmanna hafði flúið til Englands og enska stjómin lofað að endur- heimta eignir þeirra og forréttindi. Það var því mörgum áhyggjuefni að Napóleon skyldi takast að koma á lögum og reglu í Frakklandi, sem gerði lýðveldisfyrirkomulagið að aðlaðandi og raunhæfum kosti fyrir almenning í öðram lönd- um. Ef friður kæmist á í Evrópu, myndi þá ekki byltingin breiðast út? Ur því að Englendingar vildu ekki frið, sneri Napóleon sér að því að ná friðarsamningum við ríkin á meginlandinu og samdi frið við Rússa, Tyrki, Bandaríkin og Austurríki árið 1801. Þeg- ar Englendingar vora orðnir einangraðir sáu þeir sér þann kost vænstan að semja frið árið 1802 en tortryggni þeirra gerði það að verkum að friðurinn stóð á brauðfótum. Stríðssinnar náðu aftur yfirhöndinni í Englandi og styij- aldarástand var aftur komið á árið eftir. Keisari Galla Napóleon átti marga óvini innaniands sem utan og honum vora sýnd mörg banatilræði. Á aðfangadag árið 1800 hafði sprengjutilræði við hann næstum tekist. Það vora ekki aðeins kon- ungssinnar, sem unnu með styrk frá Englend- ingum, sem vildu hann feigan, heldur átti hann sér óvildarmenn innan hersins. Stuðningsmenn hans óttuðust að lýðveldið félli með foringjan- um og að konungssinnar eða jakobínar hrifsuðu völdin. Út úr þessum vanda var að flestra mati aðeins ein leið, að gera ríkið að erfðaríki. Þar með kom upp hugmyndin um að gera Napóleon að keisara Galla og naut sú hugmynd almenns stuðnings í Frakklandi. Andstæðingar Napó- leons töldu krýninguna merki rnn sjúklegan metnað hans en þessi ákvörðun mun hafa verið tekin fyrst og fremst af praktískum ástæðum þ.e. til að tryggja andstæðingunum tækist ekki að nýta sér það valdatómarúm sem yrði til ef Napóleon félli frá. Napóleon var krýndur keisari árið 1804 og á næstu fimm árum byggði hann upp veldi sem átti sér ekkert fordæmi síðan á tímum Róma- verja. Það sama ár mynduðu andstæðingar hans bandalag gegn Frökkum, sem unnu glæsi- lega sigra á heijum Rússa og Austurríkis- manna. Guldu þeir síðamefndu eitt mesta af- hroð í veraldarsögunni við Austerlitz fyrir frönskum her sem var helmingi fámennari en þeirra. Þetta endurtók sig árið 1806, nema þá komu Prússar í stað Austurríkismanna. í þeirri herför komust Frakkar yfir skjöl sem sýndu að Spánverjar höfðu lofað að ráðast gegn Frakklandi, sem varð til þess að Napóleon lagði undir sig Spán og Portúgal. Þannig byggði hann upp Evrópustórveldi sitt í tveimur vam- arstríðum, sem þó vora háð fjarri landamæram Frakklands enda byggðist herstjómarlist Napóleons á því að eiga alltaf framkvæðið. Frakkar réðu nú hálfri Evrópu. Einn gegn öllum Rússar vora nú eina ógnunin við veldi Frakka á meginlandinu en Napóleon var hik- andi við að ráðast á Rússland. Hann komst sjálfur þannig að orði að ekkert fordæmi væri fyrir því að suðrið hefði ráðist á norðrið. En freistingin til þess að sigra Rússa og tryggja þannig endanleg yfirráð og frið á meginlandinu varð skynseminni yfirsterkari. Rússlandsher- förin árið 1812 var upphafið að endalokum veld- is Napóleons. Þrátt fyrir hið gífurlega afhroð sem Frakkar guldu í þessari feigðarfór, þar sem hálfrar millj- óna manna her þeirra þurrkaðist nánast út, tókst Napóleon þegar heim kom að ná saman nýjum her með því að kalla yngri árganga í her- inn. En nú gengu Austurríkismenn, þar sem Mettemich var orðinn utanríkisráðherra, aftur í bandalag með andstæðingum Napóleons og þar með vora Frakkar einir og einangraðir. Markmiðið var að koma Napóleon frá völdum og færa landamæri Frakklands aftur til þess sem var 1792. Mettemich gerði engan greinar- mun á Robespierre, sem hafði verið í forsvari fyrir ógnarstjóm jakobína, og Napóleon. í hans augum hafði Robespierre ráðist á aðalinn og Napóleon á Evrópu. Mettemich var af aðal- sættum í Rínarlöndum og hafði tapað öllum eig- um sínum þegar Frakkar náðu þar yfirráðum og skiptu upp landareignum aðalsins. Fékk hann heimild bandamanna sinna til þess að samræma aðgerðir gegn Napóleon. A sama tíma fóra Frakkar halloka á Spáni fyrir her- mönnum Wellingtons. Napóleon hafði mis- reiknað andstöðu Spánverja og innrás Eng- lendinga á Iberíu-skagann varð til þess að Frakkar þurftu að halda þar úti 200.000 manna herliði. Nú var svo komið að austurrískir og prúss- neskir hersöfðingar höfðu tileinkað sér hemað- araðferðir Napóleons. Hemaðartækni Frakka hafði aftur á móti lítið breyst. Auk þess þurfti Napóleon að fást við þijá óvinaheri samtímis, austurrískan, prússnesk-rússneskan og sænsk- rússneskan. Her Frakka var nú mun fámennari og verr búinn en áður og baráttuandinn ekki sá sami. Frakkar vora í vonlausri stöðu og eftir að stríðið hafði í fyrsta sinn borist inn í Frakkland sjálft átti Napóleon ekki annan kost en að fara frá völdum þótt hann nyti enn mikilla vinsælda meðal þjóðarinnar og hersins. Skriffinnskuveldi Þrátt fyrir ófarimar var staða Napóleons í Frakklandi það sterk að hann gat snúið aftur úr útlegð nokkram mánuðum síðar og tekið völdin án þess að hleypa af skoti. Her og lögregla gengu honum mótþróalaust á vald. Napóleon háði sína hinstu orrastu við Waterloo sem hann tapaði naumlega. Hemaðaraðferðir hans höfðu úrelst á meðan andstæðingurinn endumýjaði sínar. Helsti veikleiki Napóleons var að hann skorti hæversku og þolinmæði, sem era dyggðir samningamannsins. Hann var fyrst og fremst hermaður, eldfljótur að greina flóknar stöður, fljótur að greina aðalatriði frá aukaatriðum, ótrúlega seigur við að lesa huga andstæðings- ins, fljótur að taka ákvarðanir og nógu mis- kunnarlaus til þess að beita ofbeldi ef með þurfti. Nánast linnulaus hemaður varð til þess að smám saman varð stjómin einræðiskenndari og drap niður framkvæði annarra. Bent hefur verið á að Napóleon hafi snúið byltingu upp í miðstýrt ríkisbákn. Stjómkerfi Napóleons var skriffinnskuvél sem virkaði vel og mótstaðan var lítil. Því meiri þörf sem stríðið skapaði því skilvirkari og fag- mannlegri varð stjómin og hinu valdalitla þingi smám saman ýtt til hliðar. Það var í raun engin lögleg stjómarandstaða. Dagblöðum í París var með valdboði fækkað úr 13 í 4 árið 1811. 1805 var ströng ritskoðun innleidd. Frá 1807 urðu öll blöð á landsbyggðinni að endurprenta pólitísk- ar greinar hins opinbera málgagns Moniteur og eftir 1810 var aðeins leyft eitt blað i hveiju hér- aði. Þeir sem gagrtrýndu urðu að sæta ofsókn- um lögreglu og var oft vísað úr landi. Frá 1810 mátti halda mönnum í fangelsi ótakmarkað án réttarhalda en slíkir fangar urðu aldrei margir. Stöðug utanað komandi ógn gerði það að verk- um að stjómin varð einræðiskenndari. En á styijaldartímum helgar tilgangurinn meðalið. Engin ástæða er að ætla annað en slakað hefði verið á þessum ráðstöfunum ef friður hefði komist á. Fátt bendir þó til þess að andstaða við Napóleon hafi verið veraleg. Staða hans var alla tíð sterk meðal þjóðarinnar. Stjómin tryggði t.d. jafnræði trúarhópa sem bjuggu við trúfrelsi og öryggi. Eftir fall Napóleons vora mótmæl- endur í Frakklandi ofsóttir og myrtir hundrað- um saman. Eftir ósigur Napóleons var konungdæmið endurreist en stjómkerfið og þær umbætur sem höfðu orðið á valdatíma hans vora látnar halda sér. Þessu þorði nýja stjómin ekki að hreyfa við enda naut hún lítilla vinsælda meðal almennings. Málgefinn og mælskur Ein þeirra ranghugmynda sem ófrægingar- herferð Englendinga kom af stað var að Napó- leon hefði verið lítill, en hann mun hafa verið meðalmaður á hæð miðað við hæð Frakka á þessum tíma. Hann var aftur á móti búkmikill og fótstuttur og sat hest illa, líktíst karöflusekk á hestbaki. Hann var orkumikill en ekki sterk- ur, borðaði fábrotinn mat en lagði mikið upp úr hreinlæti. Hann þjáðist snemma af þvagteppu og það var ekki óalgeng sjón í herferðum hans að sjá hann halla sér upp við tré í margar mín- útur til þess að reyna að losa þvag. Napóleon var ákaflega vinnusamur og sparsamur. Einu sinni hneykslaði hann klæðskera sinn með því að biðja um bót á reiðbuxur sem vora gegnum- slitnar. Hann eyddi litlum tíma í máltíðir, sjald- an meira en 20 mínútum. Einhvemtíma þegar hann sat óvenjulengi að mat, varð honum að orði: „Völdin era tekin að spilla.“ Helsti veik- leiki Napóleons var að missa stjóm á skapi sínu og aflaði það honum óvina. Nokkrum sinnum kom það fyrir að hann barði hershöfingja sína í andlitíð í hita orrastunnar. Hann fór gjaman í leikhús en var venjulega farinn eftir fyrsta at- riði. Napóleon hafði engan áhuga á að nota að- stöðu sína tíl að auðgast. Peningar skiptu hann engu máli og var undir hælinn lagt hvort hann tók út launin sín. Eftir að hann var kominn í út- legð á St. Helenu gerði hann kröfu um að fá greidd margra ára laun sem hann taldi sig eiga ótekin hjá franska rfldnu. Napóleon var málgef- inn og mælskur og ef einhver var honum ósam- mála gat hann talað stanslaust í klukkustund án þess að hika við eitt einast orð. Þótt Napóleon væri sigraður höfðu hinar rót- tæku hugmyndir frönsku byltingarinnar og sú þjóðemisvakning sem fylgdi í kjölfarið, náð að skjóta rótum þar sem Frakkar höfðu haft við- dvöl. Stjómkerfi Napóleons var innleitt í mörg- um nágrannaríkjum Frakklands. Evrópa var ekki söm og áður. Gamla skipulagið bar sigur úr býtum í bili en undir niðri kraumaði hug- sjónaeldurinn sem smám saman vann á hinu aldagamla forréttindakerfi innan frá. Höfundurinn er sagnfræðingur. 4 HALLDÓRÁRMANN SIGURÐSSON CAMPO DEI FIORI Hvarstytta þín stendur störrum að leik fnykur af sviðnu holdi svai'tur mökkur kuflaðir klerkar köstur í múgsiðu brennur tunga bálarhugur óslökkvanda kyndli kastað á braut umjörð! Öldum síðar angan afpapardelle... sól á stétt söngurígarði berfættur krakki brjóstug mamma og ávaxtasali ekur vagni á torg svo sáraeinfaldur er sannleikurinn Giordano ÞJOÐNIÐ- INGURINN BRUNO FYRIR RÉTTI Það er svo margt fólk og mörg heilabrot hvern varðar um hugsanir annars en úr því að þið æruverðugir erindrekar máttarvaldanna spyrjið get ég svo sem sagt ykkur það alheimurinn er endalaus og það eru til milljónir sólna milljónirjarða og urmull af lífum allt sem við höldum er hégiljur hugmyndir okkar hvikull skuggi sannleikans ogguð er allsverandi óræður uggvænn en mest óttist þiðþó eigin dóm Höfundurinn er landflótta prófessor í útlöndum. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 19. FEBRÚAR 2000 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.