Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2000, Síða 16
h r fejL
í . , . H' . . ; ■ ■
ÉÉ-
Henning Mankell, höfundur níu bóka um andhetjuna Kurt Wallander.
Tone Myklebost
AFRÍKA HEFUR GERT MIG
AÐ BETRI EVRÓPUMANNI
Rithöfundurinn Henning Mankell baðar sig upp úr
vinsældunum og slær hvert sölumetið á fætur öðru
með bókunum sínum um lögi reg lumanninn KurtWall-
ander. Nokkrar bóka Mankells hafa komið út í ís-
1 enskri þýðingu. í þessari grein eftirTONE
MYKLEBOST segir, að margt bendi til að stutt sé í
endalokin hjó Wallander, | Dessum kunnasta
i ögreg lumanni í Svíþjóð - og þó...
AÐ er eitthvað losaralegt við
Mankell. Það er eins og allt
hangi utan á honum, skyrtan,
handleggimir, hárið. Allt nema
augun. Hann virðist hranalegur
en er það ekki við nánari kynni.
Eitt er þó víst. Hann hlýtur að
hafa haft sjálfan sig í huga er
hann setti saman andhetjuna Kurt Wallander.
Bækumar um Wallander hafa selst í þremur
milljónum eintaka í Svíþjóð og verið þýddar á
margar tungur. Er hann nú í þann veginn að
halda innreið sína á enska markaðinn fyrir
milligöngu forlagsins Harvili P’ress. Bækumar
um Wallander em alls niu en nú er orðrómur
um að þær verði ekki miklu fleiri.
Wallander býr í Ystad og hann er engin ofur-
hetja í amerískum stíl. Hann á við alls konar
vandamál að stríða, fyrrverandi eiginkonu og
dóttur og erfitt ástarsamband, hann er of feit-
ur, þjáist af sykursýki og þegar hann er ekki
upptekinn við glæpamálin lætur hann sig
dreyma um að taka upp heilbrigðara lífemi.
Manneskjan Wallander
Mankell segist hafa viljað hafa Wallander
eins og fólk er flest og hann er alltaf að breyta
honum eitthvað.
„Ég þoli ekki bækur þar sem allt er uppi á
borðinu á einni blaðsíðu. Það er allt breytingum
undirorpið. Wallander efast stundum um sínar
eigin skoðanir og þá hugsar hann málin upp á
nýtt. Margt hefur breyst frá fyrstu bókinni til
þeirrar síðustu og það gerir hann bara trúverð-
ugri sem manneskju.“
Lesendum hefur fallið þetta vel í geð enda
hafa þeir beðið með eftirvæntingu eftir hverri
bók um Wallander. Sumir hafa jafnvel skrifað
Mankell og beðið hann um meiri upplýsingar
um söguhetjuna, um fortíð hans og ýmis ævi-
atriði. Meðal annars þess vegna hefur Mankell
ákveðið að skrifa „Píramítann“, síðustu bókina
um Wallander og nokkurs konar uppgjör hans
við lífið og tilvemna. Þar segir meðal annars frá
fyrrverandi eiginkonu hans, æsku hans og sam-
bandi hans við foður sinn. Aðdáendur Walland-
ers viija fá að vita meira um þessa þætti i lífi
söguhetjunnar og þá að sjálfsögðu um ástarlíf-
ið.
Mankell brosir. „Það gengur nú á ýmsu í ást-
arlífinu hjá Wallander eins og hjá okkur flest-
um,“ segir hann glettnislega en Mankell og
kona hans þurfa að hafa heilmikið fyrir því að
hittast. Hún býr í Svíþjóð en hann í Afríku.
Mankell hafði hugsað sér að kveðja Wallan-
der í „Brunaveginum“, sögu, sem kom út á und-
an „Píramítanum“, en ákvað svo að sleppa ekki
alveg af honum hendinni. Hann opnaði þó
smásmugu fyrir hinum óhjákvæmilegu enda-
lokum er hann lét Lindu, dóttur Wallanders,
lýsa því yfir, að hún ætlaði sér að verða lög-
reglumaður. „Með því að tefla fram dótturinni
opnast nýir möguleikar og kannski Wallander
fái að rísla sér við eitthvað svona bakatil. í huga
mér er dóttir hans komin í lögregluskólann og
við sjáum svo hvað setur...“
Gagnrýninn á samfélagið
Mankell segir að bækurnar um Wallander
séu ekki bara glæpareyfarar, heldur snúist þær
líka um réttlætið eða skort á þvi. Um þjóðernis-
hyggju og öfgafulla þjóðernis- hyggju. Bæk-
umar hefði hann aldrei skrifað hefði hann ekki
haft neinar skoðanir á samfélagsmálum enda
væri það líklega lyldllinn að vinsældum þeirra.
Mankell segist óttast að réttarsamfélagið
eigi undir högg að sækja í allri Evrópu. Bresti
það, bresti lýðræðið einnig. Afbrot borgi sig nú
betur en nokkru sinni fyrr. Bendir hann á að á
dögum Gústafs Vasa hafi ástandið stundum
verið þannig að fólk hafi tekið lögin í sínar eigin
hendur og það sé nú á næsta leiti hjá okkur.
Brátt verði hægt að kaupa skammbyssur í
næstu matvöruverslun.
Mankell var farinn að skrifa um hinar svok-
ölluðu borgaralegu vamarsveitir áður en þær
sáu dagsins Ijós og hann er ekki á þvi að erfitt
sé að spá fyrir um framtíðina. Hann hafi vitað
fyrir löngu, að tími borgaralegu vamarsveit-
anna væri að renna upp enda væru þær bara
tímanna tákn. Mankell segir, að Wallander-
bækurnar hafí selst í meira en þremur milijón-
um eintaka í landi, sem hefur aðeins átta millj-
ónir íbúa, og því hljóti þær að vera eitthvað
annað og meira en bara spennandi.
Henning Mankell bjó í Ósló í 10 ár á árum áð-
ur og var þá kvæntur norskri konu. Þar var
hann búsettur er fyrsta bókin hans kom út í
Svíþjóð 1972. Þau hjónin skildu en Mankell er
nú kvæntur Evu Bergman, dóttur Ingmars
Bergmans, en hún stýrir leikhúsinu í Gauta-
borg.
Afrískur sjónarhóll
Fyrir 20 árum fór Mankell fyrst til Afríku.
„Mér fannst snemma að til að geta skrifað
um það sem ég þekkti, um mitt eigið umhverfi,
yrði ég að koma mér burt og velta fyrir mér
hlutunum frá öðrum sjónarhóli. Af ýmsum
ástæðum varð Afríka fyrir valinu, það var gam-
all draumur. Ég lét síðan tilleiðast til að stjóma
eina atvinnumannaleikhúsinu í Mósambík og
við það hef ég verið í 15 ár ásamt skriftunum.
Ég er enginn Afríkumaður en Afríka hefur
gert mig að betr Evrópumanni. Nú get ég séð
hlutina úr hæfilegri fjarlægð."
Mankell er í Evrópu í fjóra mánuði á ári,
nægilega lengi til að átta sig á heildarmyndinni
án þess að kafna í smælkinu. í Afríku hlustar
hann á erlendar útvarpsstöðvar og horfir á
BBC-sjónvarpið.
„I Mósambík, einu fátækasta landi í heimi,
þar sem 80% íbúanna eru hvorki læs né skrif-
andi, eru útvarpið og leikhúsið einu miðlarnir,
sem endurspeglar lífið og tilveruna með list-
rænum hætti,“ segir Mankell. „í leikhúsinu
starfa 40 til 50 manns og það nýtur engra
styrkja. Aðgangseyririnn verður að standa
undir öllu. Sýningamar verða að vera góðar til
að fólkið komi og það gerir það líka, allt frá
götubömum til forsetans. Leikaramir em svo
góðir að þeir gætu sómt sér hvar sem er.
Stundum kemur Eva, kona mín, og setur upp
sýningu og það er stórkostlegt," segir Mankell,
sem hefur látið mikið fé af hendi rakna til þessa
óskabams síns.
Bók um götubörn
Henning Mankell hefur einnig skrifað barna-
bækur, fyrir leikhús og kvikmyndir, og sögur
frá Afríku. Var ein bóka hans, „Comedie Infan-
tíl“, tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs.
„Ég hef verið skammaður fyrir margt en
ekki fyrir leti,“ segir Mankell þegar talið berst
að ritstörfunum almennt. „„Comedie Infantil"
er annars konar bók. Ég hef lesið svo margt
dapurlegt um götubörnin og það er nóg af þeim
hér. Mér fannst ég þurfa að minnast þeirra í
einhverju, klókinda þeirra og útsjónarsemi við
að komast af. í þessari bók hef ég steypt lífl
margra þeirra saman í eitt.“
Framhaldið, „Sonur vindsins", kemur út í
Svíþjóð í vor en hún segir frá afrískum dreng,
sem kom til Svíþjóðar, bjó þar í fimm ár en lést
þá skyndilega. Er sagan byggð á raunveruleg-
um atburðum. „Ég held hann hafi dáið úr sorg.
Ég velti því stundum fyrir mér hvað gerist þeg-
ar manneskja er rifin upp með rótum ...“
Henning Mankell hefur ekki misst trúna á
bókina:
„Hún er hinn fullkomni miðill fyrir listræna
tjáningu. Prentun og dreifing breytast en bók-
in ekki.“
1 6 ŒSBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 19. FEBRÚAR 2000