Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Blaðsíða 2
UOSASOGUR
í LISTASAFNIASÍ
Olíuljós
HÖNNUNARSAFN íslands í Garðabæ
stendur fyrir hönnunarsýningu í sölum Lista-
safns ASÍ við Freyjugötu. Sýningin, sem
verður opnuð í dag, laugardag, kl. 16, heitir
Ljósasögur eða „Lysfortællinger" og er sam-
sýning átta ungra hönnuða sem starfa í Dan-
mörku. Allir hafa þeir að markmiði virkjun
birtu, einkum og sér í lagi rafmagnslýsingar,
með nýjum hætti, gjarnan með frásagnarlegu
ívafi.
Aðstandendur Ljósasagna komu saman til
stofnunar samtaka um ljósahönnun sína í
október 1997 og var yfirlýstui’ tilgangur
þeirra að „segja sögur með ljósum og kynna
þær fyrir almenningi". Sögur sínar segja
hönnuðirnir með því að gera tilraunir með
ýmsan efnivið og rými og margháttuðum leik
með Ijós. Arangurinn birtist með óhlutbundn-
um hætti, en er um leið markvert framlag til
Ijósahönnunar. Líta má á sjálfa ljósgjafana
sem hluta stærri frásagnar, eða sem einstakl-
ingsbundnar frásagnir. Aðstandendur kapp-
kosta að sýna fram á möguleika til nýrrar
upplifunar ljóssins, bæði með framúrstefnu-
legum tillögum og gagnrýnni sýn á viðtekna
notkun ljóssins. Umfram allt vilja aðstand-
endur hvetja áhorfendur til að taka afstöðu til
ljóssins. Um leið eru þeir opnir fyrir fram-
leiðslu og fjölföldun ljósgjafa sinna.
í dag eru í hópnum þau Lovorika Banovic
(fyrr. Júgósl.), Monna Blegvad (Danm.), Al-
eksej Iskos (Póll.), Igor Kolobaric (fyrrv.
Júgósl.), Hans E. Madsen (Danm.), Aðal-
steinn Stefánsson (ísl.), Carlo Volf (Danm.)
og Janne Öhre (Nor.). Flest hafa þau hlotið
menntun sína í Danmarks Designskole, fimm
þeirra starfa sem iðnhönnuðir, einn er innan-
hússarkitekt, en að auki eru myndlistarmaður
og leikmyndahönnuður í hópnum.
Frá upphafi hefur þessi hópur fengið með-
byr. Arið 1998 sýndi hann í fyrsta sinn á ljósa-
messunni svonefndu í Heming og stuttu síðar
var hann fenginn til þess að setja upp tvær
sýningar með stuttu millibili í helsta listiðnað-
arsafni Dana, Kunstindustrimuseet í Kaup-
mannahöfn. Snemma á þessu ári vai' hópurinn
svo fenginn til að setja upp þriðju sýningu
sína í Kunstindustrimuseet. Af öðrum upp-
ákomum hópsins má nefna ljósasýningu fyrir
dagblaðið Jyllandsposten á Kóngsins nýja-
torgi í maí 1999, sýningu á húsgagnamessunni
í Bella Center 1999, sérstaka sýningu hjá
ljósaframleiðandanum Louis Poulsen, sem
margir Islendingar þekkja, og sýningu á
Vínviður
hönnunarmessu í Lundúnum.
Þá sýndi hópurinn nýlega,
fyrir milligöngu Kunstind-
ustrimuseet í Kaupmanna-
höfn, í Danska húsinu í París.
Nú er hópurinn þátttakandi í
ljósahátíðinni í Helsinki, sem
samsvarar nýrri ljósahátíð í
Reykjavík, og hefur fengið
boð um að sýna í Dansk De-
sign Center í miðborg Kaup-
mannahafnar á næsta ári.
Hópurinn hefur fengið
styrki og viðurkenningar úr
mörgum helstu menningar-
sjóðum Dana, t.d. sjóðum
dönsku bankanna, sjóði Polit-
iken-samsteypunnar og sjóði
Thomas B. Thrige. Einnig
má geta þess að sýningar-
skrár og plaköt hópsins, sem
hönnuð eru af Mette og Pet-
er Brix, hafa hlotið sérstakar
evrópskar viðurkenningar
sem framúrskarandi grafisk
hönnun.
Hópnum hefur einnig tekist
að vekja áhuga nokkurra framleiðenda á ljós-
gjöfum sínum. Árið 1998 sýndi hann alls 18
ljósgjafa, og hafa fjórir þeirra nú verið teknir
til framleiðslu. Árið 1999 sýndi hópurinn 17
ljósgjafa.
Hópurinn fylgir sýningu sinni úr hlaði með
eftirfarandi manífesti: „Við erum í könnunar-
leiðangri á svæði þar sem fátt er um landa-
mæri. Við hverfum frá hinu þekkta og þok-
umst áleiðis til hins óþekkta og á leiðinni taka
markmið okkar breytingum. Utkoman er ráð-
gátur þar sem formin leita sér annarskonar
tilgangs og tilgangurinn kallar á annai-skonar
form. Hönnun okkar lýsir ferðalögunum sem
við tökumst á hendur; ferðalögin snúast upp í
sýningar og sýningarnar köllum við ljósasög-
ur.“ I Danmörku eru helstu styrktaraðilar
hópsins Þróunarsjóður danska menningar-
málaráðuneytisins, Crafts DK, NKKK/
NIFCA, Sleipnir, Louis Poulsen Á/S, Osram
A/S, Martin Coles og dr. jur. Frank Bpgh
Madsen.
Islenskir styrktaraðilar Ljósasagna eru
Hönnunarsafn Islands, Rafhönnun hf., EPAL
og Samskipti ehf.
Sýningin stendur til 3. desember og er opin
14-18 alla daga nema mánudaga.
KUML OG HAUGFÉ
BÓKIN Kuml og haugfé í heiðnum sið á ís-
landi eftir dr. Kristján Eldjárn er komin út í 2.
útgáfu endurskoðaðri og með viðbótum. Hall-
dóra Eldjárn, ekkja dr. Kristjáns, færði Davíð
Oddssyni forsætisráðherra fyrsta eintak bók-
arinnar við sérstaka athöfn er efnt var til
vegna útkomu bókarinnar. Kuml og haugfé
geymir yfirlit um alla kumlfundi frá heiðni á
Islandi. Skýrt er frá elstu merkjum manna-
byggðar á Islandi og síðan eru allir fundir
raktir í hverri sýslunni á fætur annarri. Fyrsta
útgáfa Kumla og haugfjár kom út árið 1956 og
var ætlað að vera jöfnum höndum heimildarrit
fomleifafræðinga um íslenskar víkingaaldar-
minjar og fróðleikslestur fyrir íslenskan al-
menning. Bókinni var fádæma vel tekið og hún
hefur æ síðan verið nauðsynleg handbók og
fræðirit hverjum þeim sem rannsakar upp-
hafssögu Islendinga.
Þegar bókin kom fyrst út voru kunnir 123
greftranarstaðir úr heiðni. í þessa nýju útgáfu
hefur Adolf Friðriksson fornleifafræðingur
aukið vitneskju um þau 34 kuml sem fúndist
hafa síðan og annarri nýrri vitneskju um við-
fangsefni hennar. Hann hefur endurskoðað
upphaflega textann og niðurstöður verksins en
getur þess þó í formála sínum að það sé í sjálfu
sér athyglisverð staðreynd að þær niðurstöður
sem Kristján Eldjárn komst að fyrir tæpri
hálfri öld standi enn óhaggaðar í öllum aðalat-
riðum í upphafi nýrrar aldar.
I tilefni endurútgáfunnar gerði Hildur
Gestsdóttir beinafræðingur nýjar rannsóknir á
öllum mannabeinaleifum úr íslenskum kuml-
um og Michéle Smith mannfræðingur teiknaði
myndir af öllum helstu haugfjármunum. Jafn-
framt voru teknar nýjar ljósmyndir af öllu
Morgunblaði/Þorkell
Frú Halldóra Eldjárn afhendir Davíð Oddssyni fyrsta eintak bókarinnar Kuml og haugfé.
haugfé og ný kort gerð yfir staðsetningu funda
og dreifingu um landið. Bókina prýða alls um
400 myndii', ljósmyndir, teikningar og kort. í
ritinu er einnig ný, ríflega 60 blaðsíðna saman-
tekt á ensku um heiðinn greftrunarsið á Is-
landi og er hún jafnframt lykill að bókinni allri
fyrir erlenda lesendur.
Bókin er gefin út í samstarfí Máls og menn-
ingar, Fornleifastofnunar íslands og Þjóð-
minjasafnsins.
MENNING /
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur.
Ámastofnun, Ámagarði: Handritasýning. Til
15. maí.
Bókasafn Selljamamess: Jón Axel Egilsson.
Til 2. des.
Edinborgarhúsið, fsafirði: Nína Ivanova. Til
3. des.
Galleri@hlemmur.is: Samsýning 20 lista-
manna. Til 3. des.
Gallerí Hringlist: Soffia Þorkelsdóttir. Til 25.
nóv.
Gallerí Nema hvað: Linda Hofman. Til 19.
nóv.
Gallerí Reylgavík: Reynir Katrínarson. Til 2.
des.
Gallerí Sævars Karls: Vignir Jóhannsson. Til
1. des.
Garður, Artún 3, Selfossi: GUK - veffang:
http:Avww.simnet.is
Gerðarsafn: Guði-ún Halldórsdóttir. Tryggvi
Ólafsson. Til 26. nóv.
Hafnarborg: Gunnar Öm. Til 27. nóv.
Hallgrímskirkja: Erla Þórarinsdóttir. Til 27.
nóv.
i8, Ingólfsstræti 8: Jyrki Parantainen. Til 26.
nóv.
Langholtskirkja: Kaleikar og ki'ossar. Til 19.
nóv.
Listasafn Akureyrar: „Heimskautslöndin un-
aðslegu". Til 17. des.
Listasafn ASÍ: Samsýning átta hönnuða. Til 3.
des.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla daga,
nema mánudaga, kl. 14-17. Höggmyndagarð-
urinn opinn alla daga.
Listasafn lslands: Sigurður Guðmundsson.
Þórarinn B. Þorláksson. Til 26. nóv.
Grófarhúsið: Móðirin í íslenskii ljósmyndun.
Til 3. des.
Listasafn Rvk - Ásmundarsafn: Verk í eigu
safnsins.
Listasafn Rvk - Kjarvalsstaðir: Jóhannes S.
Kjarval.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Hærra til þín.
Til 4. jan.
Listasetrið Kirkjuhvoli Akranesi: Þorbjörg
Höskuldsdóttir. Til 3. des.
Listhús Ófeigs: Friðríkur Róbertsson. Til 22.
nóv.
Ljósaklif, Hafnarfirði: Susanne Christensen
og Einar Már Guðvarðarson. Til 20. des.
MAN: Pétur Guðmundsson. Til 26. nóv.
Mannsbar: Ignacio Pacas. Til 23. nóv.
Mokkakaffi: Halldóra Ólafsdóttir. Til 30. nóv.
Norræna húsið: Jyrki Parantainen. Til 17. des.
Nýlistasafnið: Róska. Til 19. nóv.
Skálholtskirkja: Katrín Briem. Til 30. nóv.
Smiðjan art gallerí: Jón Engilberts. Til 20.
nóv.
Snegla listhús: Kolbrún Sigurðardóttir. Til 26.
nóv.
Sparisj. Hfj., Garðatorgi: Bubbi og Jóhann G.
Jóhannsson. Til 21. des.
Víðislaðakirkja: Erlingur Jónsson. Til 22. nóv.
Laugardagur
Dómkirkjan: Sálumessa Gabriels Fauré. Kl.
17.
Hamrar, ísafirði: Söngkvartettinn Rúdolf. Kl.
17.
Langholtskirkja: Lúðrasveit verkalýðsins. Kl.
i5.
Laugameskirkja: Amesingakórinn í Reykja-
vík, Samkór Selfoss og Vörðukórinn. Kl. 17.
Miðgarður, Skagafirði: Skagfirska söngsveit-
in. Kl. 21.
Sunnudagur
Salurinn: Kammerkór Kópavogs: Orfeus og
Evridís. Kl. 20.
Hallgrímskirkja: Sönghátíð: 150 manna kór.
Kl. 17.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar: Guðrún Birg-
isdóttir, flauta, Martial Nardeau, flauta og
Pétur Jónasson, gítar. Kl. 20.
Þriðjudagur
Salurinn: Kammerkór Kópavogs: Orfeus og
Evridís. Kl. 20.
LEIKLIST
Iðnó: Medea, mán. 20., þri. 21. nóv. Sýnd veiði,
lau. 18. nóv. Trúðleikur, sun. 19. nóv. kl. 16 og
20, fím. 23. nóv.
Þjóðleikhúsið: Horfðu reiður um öxl, fös. 24.
nóv. Kirsuberjagarðurinn, lau. 18. nóv. Litla
sviðið: Horfðu reiður um öxl, laug. 18. nóv.
Smíðaverkstæðið: Ástkonur Picassos, lau. 18.,
fós. 24. nóv. Borgarleikhúsið: Islenski dans-
flokkurinn, sun. 19. nóv. Kysstu mig Kata, lau.
18. nóv. Lér konungur, fím. 23. nóv. Litla svið-
ið: Abigail heldur partí, lau. 18.; fös. 24. nóv.
Skáldanótt, fös. 24. nóv.
Hafnaríjarðarleikhúsið: Vitleysingarnir, lau.
18., fcis. 24. nóv%
Loftkastalinn: Á sama tíma að ári, fös. 24. nóv.
Bangsímon, sun. 19. nóv. Sjeikspír eins og
hann leggur sig, lau. 18. nóv.
Kaffileikhúsið: Háaloft, fös. 24. nóv. Hratt og
bítandi, sun. 19. nóv. Stormur og Ormur, sun.
19. nóv. Möguleikhúsið: Lóma, lau. 18. nóv.,
sun. 19. nóv., mán. 20. nóv. kl. 11.10 og 14, þri.
21. nóv. kl. 10 og 11.40, miðv. 22. nóv. kl. 9.10,
fím. 23. nóv. kl. 10 og 14.
Tjarnarbíó: Með fullri reisn, lau. 18. nóv.
Nemendaleikhúsið: Ofviðrið, lau. 18. nóv.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. NÓVEMBER 2000