Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Síða 7
Kossinn, olía á léreft, 180x180 sm. Vín, Austurríska Galleríið. Stóra ástin í lífi hans var tískuhönnuðurinn Emilie Flöge, og samband þeirra, sem mun mest hafa verið andlegs eðlis varaði í 28 ár, hún elskaði hann og hann elskaði hana en hún vakti ekki upp hjá honum holdlegar girndir. Það kemur fram í heillandi málverki af henni þar sem hún er sakleysið sjálft, gáfuleg og sálfsörugg í útliti, en engar lostafullar líkamslínur dregnar fram þótt hún hefði þær yfrið nógar í bak og fyrir. Þetta gerði hana afbrýðisama og sára, því oftar en ekki voru það einmitt þessar línur kvenlegs þokka sem hann lagði áherslu á og ýkti þegar hann mál- aði aðrar konur. Þykir til marks, að Klimt hafi ekki verið sérlega sýnt um að miðla pers- ónuleika fyrirsæta sinna á dúkana, sem í þessu tilviki mætti að vissu marki mótmæla, því myndin er undursamlega falleg og lýsir andlegum tilfinningum málarans til mynd- efnisins, draumi hans um hina í'ullkomnu traustvekjandi konu. Þannig sá Klimt ástina sína Emelie Flöge, málaði það sem hann sá og skynjaði, hina innri útgeislan, þó svo að daman liti öðruvísi út í speglinum og að mál- verkið samsvarði ekki óskum hennar og þrám. löge hefur einmitt viljað að hann legði áherslur á ytri yndisþokka sinn, kyn- þokkafullan vöxt og útlínur líkt og í málverkinu fræga af Adele Bloch Bau- er, sem var frekar rengluleg í vexti en í myndum tveim sem Klimt málaði af henni lít- ur hún út sem hin fullkomna ímynd ungrar ástþrunginnar konu með blóðrauðan roða í kinnum eins og vegna tvíræðra hugleiðinga. Gefur auga leið að þau Klimt höfðu átt í ást- arsambandi frá 1899, en myndirnar af konu sykurframleiðandans Bloch Bauer málaði hann 1907 og 1912, og var það kannski í eina skiptið sem hann málaði konu tvisvar eftir pöntun enda kostaði það sitt, en hér voru peningarnir nógir. Þegar maður virðir mynd- irnar fyrir sér skilur maður betur að allir að- ilar hafi verið ánægðir enda sá eiginmaðurinn um að greiðslur fyrir myndirnar rötuðu skil- víslega í pyngju listamannsins. Um leið var afbrýðisemi Flöge fullkomlega réttmæt og trúlega hefur henni einnig gramist áhugi Klimts á vinkonu sinni Ölmu Schindler, sem leit á hinn 17 árum eldri málara sem fyrstu stóru ástina í lífi sínu. En þegar Klimt reyndi að ræna hana dyggð sinni án þess að neitt meira og alvarlegra lægi að baki hrökk hún undan og leitaði skjóls hjá öðrum stórmönn- um tímanna, svo sem tónskáldinu Gustav Mahler, Bauhaus arkitektinum Walter Grop- ius og rithöfundinum Franz Werfel, en öllum var hún gift auk þess að eiga í eldheitu ástar- sambandi við málarann Oscar Kokoscha. Klimt fékk aldrei að mála hana, en það fékk Kokoscha hins vegar svo um munaði og hélt um leið áhuga hennar vakandi á málaralist. Klimt, Kokoscha og undrabarnið Egon Schiele voru hinir þrír stóru leiðandi ásar í austurrískri myndlist fram að styrjaldarlok- um. Schiele sem var fæddur 1890, hafði Klimt sem sína stóru fyrirmynd, en í stað þess að mála konurnar skartklæddar reif hann af þeim fötin og afhjúpaði nekt þeirra frá öllum mögulegum hliðum og sjónarhornum, þannig að afraksturinn átti öllu síður erindi á veggi æruverðugra borgara. En eftir 1910 fór Schiele að fjarlægjast myndhugun Klimts til hags fyrir innhverfa útsæið, expressjónism- ann. Klimt og Schiele létust báðir 1918 og átti spánska veikin þátt í dauða þeirra beggja, þótt slag kæmi einnig við sögu hvað Klimt áhrærir. Kokosocha lifði til hárrar elli og en náði þó aldrei þeim hæðum í list sinni og fyrir stríð, sem segir hve þýðingarmikið það er að vera í réttu andrúmi, á réttum stað og réttum tíma. ustav Klimt var einnig frábær teiknari og eru blýantsriss hans af nöktum konum með því frábær- asta sem gert var um hans daga, en þá voru fyrirsæturnar ekki eiginkonur bankastjóra né sykurframleiðenda heldur sótti hann þær í fátækrahverfi í nági’enninu. Sennilega má finna skýringuna á hluta af börnunum 15 í þessari iðju hans til hliðar og að hann hafi hér verið hömlulausari en við uppdubbaðar hefðarfrúrnar. Sumir fræðing- ar álíta þessi riss hápunktinn í list Klimts að hér standi hann ekki Toulouse Lautrec né Rodin að baki, einkum hvað erótísku teikn- ingarnar snertir en þeim hefur skiljanlega minna verið haldið fram til skamms tíma, líkt og teikningum Schieles. Talið er að rúm- lega 3.000 af eitthvað 5-6.000 rissum Klimts hafi varðveist og merkilegt að ekkert þeirra skuli hafa ratað á sýninguna í Belvedere. Trúlega þykja þau ennþá of gróf, en mikið eru þetta innihaldsrikara riss en það and- lausa fóður sem víða má sjá á framúrstefnu- sýningum nú um stundir. Og ekki ögrar það síður, en að tala um siðleysi og klám væri misvísandi á sama hátt og það væri guðlast að tala um klám varðandi bækur Honoré Balzacs, því hér ríkir hinn skapandi neisti snilldarinnar. ppgangur verka Klimts á síðustu ár- um er með þvl ótrúverðugasta í list 20. aldar sé litið til fyrra vanmats, og þótt uppboð séu enginn öruggur mælikvarði um gæði mynda segja þau nokkra sögu um verðgildi hugvits og þjóðar- gersema. Sjálfum þykir mér með ólíkindum að málverkið „Schloss Kammer am Atter- see“ skuli hafa náð þriðja hæsta verði á upp- boðsmarkaði til þessa, næst á eftir Sólliljum van Goghs og „Acrobate et jeune Arlequen“ Picassos. Vátryggingarmatið á málverkinu af Adele Bloch Bauer, er svo nær hálfu hærra og myndi trúlega slá öll met, en slíkar gersemar fara seint á uppboð og hinn svo- nefndi gullni Klimt er talinn til muna verð- mætari þar að auki. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. NÓVEMBER 2000 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.