Tíminn - 01.12.1966, Page 2
TIMINN
FIMMTUDAGUR 1. desember 1966
?áll Ásgeir Tryggvason sýnir forseta íslands og menntamálaráSherra gjafabréfi'ð.
(Tímamynd: G.E.)
AFHENTU 1 MILLJON
TIL HANDRITAHÚSS
Teletype 11 cic K..Ó
3Þ(E-Reykj avík, miðvikudag.
Fyrir röskum 14 árum gengust
ílest félagssamtök í landinu undir
foryistu Stúdentafélags Reykjaví'k-
ur fyrir viðtækri fjársöfnun tíl
byggingar húss yfir handritin.
Fulltrúar samtakanna skipuðu
landsnefnd fjársöfnunarinnar, en
hún stóð yfir í nokkra mánuði
og er henni lauk hafði talsverð
fjárupphæð safnazt. í dag afhenti
Fáll Ásgeir Tryggvason deildar-
stjóri laridsnefndarinnar dr. Gylfa
Þ. Gíslasyni fjárupphæðina, sem
nú nemur l milljón kr. samkvæmt
gjafabréfi, og fór afhendingin
fram við virðulega athöfn í Ráð-
herrabústaðnum að viðstöddum
forseta Íslands, fulltrúum fyrr-
greindra landssamtaka, svo og
stjórn og byggingarnefnd hand-
ritastofnunarinnar.
Við afhendinguna hélt Páll Ás-
Líknarfélag safnar
notuðum frímerkjum
Að gefnu tilefni hefur blaðið
verið beðið að vekja atihygli les-
enda sinna á því að héríent líkn-
arfélag sem berst í bökkum fjár-
hagslega hefur á síðastliðnu ári
aflað nokkurra tekna með sölu
ísl. frímerkja. Það er Geðvemd
arfélag íslands og hafa sjúkting-
ar fest frímerki á þar til gjörð
spjöld með skýringum á ensku
og eru þau ætluð erlendum ferða-
mönnum sem þegar hafa veitt
þessu starfi nokkra afhygli.
Blaðið er beðið að hvetja alla
landsmenn fyrirtæki og stofnan-
ir til þess að senda fél. notuð frí-
merki (innlend og erl.) merkt:
Framhald á bls. 15.
S/CNSKUR LÆKNIR SPYRST
FYRIR UM EMBÆTTIHÉR
FB-Reykjavík, miðvikudag.
Fyrir nokkru var auglýst laus
til umsóknar staða aðstoðarborgar
læknis, og hefur staðan nú verið
veitt Braga Ólafssyni héraðslækni
á Eyrarbakka og Stokkseyri. Stað
an er veitt til tveggja ára.
f sambandi við stöðu þessa má
telja það til tíðinda, að sænskur
læknir spurðist allýtarlega fyrir
um hana, en dró umsókn sína þó
til baka áður en til veitingarinnar
kom. Mun það heldur sjaldgæft að
erlendir læknar sækist í að koma
og vinna hér á landi, og hefur
heldur viljað vera á hinn veginn,
að jslenzkir læknar sæki til út-
landa. Svíi sá, sem um stöðuna
spurði. er sérmenntaður á þeim
sviðum, sem borgarlæknaembætti
ná til. en það er eins og kunnugt
er aðallega heilbrigðis- og mat-
vælaeftirlit, en ekki bein læknis
störf. Er bví varla gert ráð fyrir,
að hann eigi eftir að sýna áhuga á
öðrum læknisembætturn hérlendis
semi auglýst kunna að verða í ná-
inni framtíð.
geir Tryggvason ræðu, þar sem
ha-nn gerði grein fyrir fjársöfnun-
inni og tildrög hennar. Hann
gat þess, að þátttaka hafði verið
mjög almenn, og gjafir hefðu bor-
izt frá hverjum einasta hreppi
landsins, og á lokadegi söfnunar-
innar 1. des. 1952 hefði verið hald-
in merkjasala með betri árangri,
e.n daemi hefðu áður verið til.
Síðan fais hariií' 'gýaiabrefilí,1 ’ 'eri
þar segir m.a. Þar, serp málumjer
svo komið, að sýnt er, áð haridrit-
in koma heim, viljum við undir-
ritaðir fulltrúar í fjársöfnunar-
nefndinni hér með afhenda
menntamálaráðherra íslands bréf
þetta. Fylgir því ekkert skil-
yrði annað en þessu frjálsa fram
lagi almennings í landinu, tákn
um samihug og virðingu þjóðar-
innar fyrir dýrmætum menning-
ararfi, verði varíð til bygginga
handritahúss.
Gylfi Þ. Gíslason flutti síðan
stutt þakkarávarp, og gat þess, að
ríkisstjórn hefði þegar fjallað um,
hvað gera skyldi við fé þetta, og
í samráði við gefendur og stjórn
handritanefndar hefði verið af-
ráðið að verja fénu ekki til venju-
legs byggingarkostnaðar heldur til
listskreytingar hússins, og að sjálf
sögðu yrðu íslenzkir listamenn
fengnir til þess.
LISTAMENNIRNIR SELDU
VEL í V-ÞÝZKALANDI
Norræha listsýningin, sem hald
in var í Hannover hefur nú verið
send heim. í upphafi var ráð fyrir
gert að sýningin yrði send til
ýmissa borga V-Þýzkalands, en af
því gat þó ekki orðið, þar sem víða
vantaði nógu stórt húsnæði, eða
1. DESEMBER
KOMINN ÚT
GÞE-Reykj avík, miðvikudag.
Stúdentafélag Háskóla íslands
hefur að vanda gefið út myndar-
legt blað í tilefni af 1. des. Þar
rítar m-a. Ármann Snævarr há-
skólarektor grein er nefnist Hand
rit á heimleið, Böðvar Guðmunds
son stud. mag. um eflingu há-
skólans, O'g Vésteinn Ólason ritar
greinina Um stofnun Sambands
íslenzkra háskólastúdenta. Sigurð-
ur A. Magnússon ritlhöfundur rit-
ar grein er nefnist Andlegt sjálf-
siæði. >á eru í blaðinu ljóðaþýð-
ingar eftir Hjört Pálsson, fréttir
frá pólitísku starfi stúdentafélag-
anna, háskólaannáll og margt
fleira. Blaðið er til sölu i öllum
bókabúðum.
Leiðrétting
ERFIÐ FERÐ Á
DANSIEIK
KJ—Reyykjavik, mióvikud.
ix Nákvæmlega tveim sólar
hringum eftir að blaðamað
ur TÍMANS pantaði símtal
við fréttaritara blaðsins á
Kópaskeri. Hrafn Benedikts
son kom hann í sfmann í
dag. Ástæðan: Símasam-
bandslaust hefur verið við
Kópasker. Hrafn sagði að
mikið óveður hefði geisað
þar um helgina, og til
marks um það sagði hann að
á laugardaginn hefði fólk
farið frá Kópaskeri á dans
leik í Skúlagarði í Keldu-
hverfi. og ekki komið heim
aftur fyrr en um hádegið á
mánudag. • Vindhæð
in hefði verið mikil og
dimmt yfir, en ekki tiltakan
leg ófærð.
í dag hefur gengið á með
éljagangi á Kópaskeri og
dimmt með köflum. Von var
á Flugfélags vél frá Reykja
vík, en hún gat ekki lent
vegna dimmviðris.
f fréit frá aða rírá' Fulltrúa-
ráðs Framsóknarfélaganna í
Reykjavík um œiðstjóxnarikjör féll
riiður nafn Hannesar Pálssonar
bankafulltrúa, og eiu hlutaðeig-
endur beðn’r afsök inar á þessum
mistökum.
Raufarhöfn símasambands-
laus á þriðja sólarhring
HH-Raufarhöfn. miðvikudag.
Blöð höfum við ekki séð hér í
vikutíma. Á mánudag féll niður
flug og í gær og í dag var von flug
vélar, en veður hamlaði. Sjminn
fór úr sambandi hér á sunnudags
kvöld og var lagfæringu ekki lokið
fyrr en eftir hádegi í dag Endur
varpið fyrir útvarp er í gegnum
símann og heyrist mjög vel j út-
varpinu að öllu jöfnu. Á meðan
síminn var í ólagi hlustuðum við
á Eiðastöðina og heyrðist ágæt-
iega. .
Símalínurnar slitnuðu á Tjörnes
inu og á Sléttunni. og var ekki lok
ið viðgerð fyrr en í dag eins
og áður segir.
Á sunnudaginn var hér hið
versta veður en skaðar urðu samt
engir. Bílfært hefur verið á milli
Húsavíkur og Raufarhafnar og
höfum við fengið daglega mjólk
senda frá Húsavík. í gær fór
jeppabifreið til Húsavíkur með
fólk, sem ætlaði að fljúga suður
en gat ekki beðið lengur, og gekk
ferðin ágætlega.
Tilboð opnað í Ár-
bæjarskólann
FB-Reykjavík, miðvikudag.
Opnuð hafa verið tilboð í bygg
ingu 1. áfanga skólahúss í Árbæj
arhverfinu, þ. e. skóla við Hraun
bæ. Sex tilboð bárust og var til-
boði Böðvars S Bjarnasonar tek
ið, en það hljóðar upp á 17.963,350
krónur. í útboðslýsingunni er gert
ráð fyrir, að lokið verði við smíði
fimm kennslustofa 15. ágúst 1967
en skólanum lokið að fullu 15.
ágúst 1968, og á hann að verða 12
kennslustofur.
Er tilboð í skólahúsið voru opn
uð kom í ljós. að eftirtaldir aðilar
höfðu gert tilboð: Öndvegi h. f.
19.350.000 kr. Haraldur Einarsson
og Jóhannes Kristinsson 22.811.
728 kr Hall-dór Bachmann 19.4J6.
000 kr. Böðvar S. Bjarnason 17
963.350 kr. Sveinbjörn Sigurðsson
20.977. 000 kr. og Byggingafélagið
Brún 20.050.00 kr.
I
húsnæði ekki laust, þegar á þurfti
að halda.
Þessir íslendingar seldu myndir
á sýningunni:
Jón Benediktsson — „Dansandi
stúlkur". i
Jóhann Briem — „Við sjó“.
Jóhann K. Eyfells — „Járn, kopar.
alúm“ keypt af listasafni Hannov-
erborgar.
Kjartan Guðjónsson — „Söngur
um nótt‘‘, keypt af listasafni í Esp
elkarnp, Westfalen.
Benedikt Gunnarsson — „Jörð“
Benedikt Gunnarsson hefur einnig
selt Stokkhólmsborg mynd þá er
hann átti á sýningu í Hasselby-
höll, Stokkhólmi.
Þetta er óvenju góð sala á nor
rænni listsýningu
Ræðir um skipulag
félaesstofnana
stiirfpnta
Kristian Ottosen, forstjóri fé-
lagsstofnana stúdenta við Óslóarhá
skóla. kom hingað til lands í dag
í boði Háskóla íslands og dvelur
hér nokkra daga. Hann mun eiga
viðræður við forráðamenn Háskól
ans og forustumenn stúdentasam-
taka hér við Háskólann um skipu
lag á félagsstofnunum í þágu stúd
enta.
Námskeiðískvndi-
tiiálnfvrir almenn-
m á Akranesi
GB-Akranesi, miðvikudag
f næstu viku ætlar Skátafélag
Akraness að gangast fyrir nám-
skeiði í skyndihjálp fyrir almenn
ing hér í bænum. Það sem kennt
verður er: 1. Ljfgun úr dauðadái
með blástursaðferð. 2. Stöðvun
ytri blæðinga. 3. Fyrsta meðferð
á meðvitundarleysi. bruna, korni
í auga, þegar stendur í manni og
krömpum. Öllum sautján ára og
eldri er heimil þátttaka, og er
nauðsynlegt að menn skrái sig
á eftirtöldum stöðum: Verzluninni
Andvara, og Húsgagnaverzluninni
Bjargi. Námskeiðið tekur eitt
kvöld og fer fram í Skátahúsinu
mánudaginn 5. des%og fimmtudag
inn 8 des kl. 8,30 e. h. Námskeið
in sem eru ókeypis eru haldin í
tilefni þess að 40 ár eru liðin á
þessu ári frá því að skátastarf
hófst á Akranesi.
Afgreiðslutími verzl
ana í dpspmher
Stjórn Kaupmannasamtaka fs-
lands hefur ákveðið í samráði við
hin einstöku aðildarfélög og
aðra aðila, að verzlanir skuli vera
opnar í desembermánuði eins og
verið hefur þ. e. laugardaginn 3.
des. til kl. 16.00 laugardaginn 10.
des til kl. 18.00. laugardaginn 17.
des. til kl. 22.00 og Þorláksmessu
föstudaginn 23. des. til kl. 24.00.
Undanþegnar þessari ákvörðun
eru þó matvöru- og kjötverzlanir í
Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði,
Suðurnesjum og Akranesi, en þær
íóka kl. 12.00 á hádegi alla fyrr
talda laugardaga, en hafa opið á
Þorláksmess föstudaginn 23. des.
til kl. 21.00.
/