Tíminn - 03.12.1966, Page 13
LA'UGARDAGUR 3. desember 19GG
ÍÞRÓTTIR TÍMINN
13
Kvennalið Vals í handknattleik. Reykjavíkurmeistari 1966.
Valsstúlkur Reykjavíkur-
melstarar þriðja árið í röð
- sigruðu Fram með 6 marka mun í gær, 11:5
Alf-Reykjavík.
Valsstúlkurnar í handknattleik
urðu Rvíkurmeistarar í gærkvöldi
með sigri gegn Fram, 11:5. Er
þetta þriðja árið í röð, sem þær
vinna þennan titil. Síðustu þrjú
árin hafa Valsstúlkumar einnig
unnið fslandsmótið utanhúss og
innanhúss, og má því segja, að
Valur einoki öll mót í handknatt
leik kvenna.
í leiknum í gærkvöldi nægði
Valsstúlkunum jafntefli til að
sigra í mótinu, en þær stefndu
ekki að neinu jafntefli og komust
strax í 4:0. f hálfleik var staðan
4:1, en fljótlega í síðari hálfleik
bætti Valur þremur mörkum við
og var þá staðan 7:1. Fram-stúlk-
umar vora greinilega taugaóstyrk
ar og náðu sér ebki á strik nema
smákafla Tókst þeim að minnka
billð í 7:4. Sigrún Guðmundsdóttir
og Sigriður Sigurðardóttir sáu um
að auka forskót' Vals undir lokin,
og urðu lokatölur 11:5. Voru þessi
úrslit sanngjörn eftir gangi leiks-
ins.
f heild var leikurinn í gærkvöldi
fátæklegur, og víst er, að kvenna
handknattleikur á íslandi stendur því þessi:
ekki með blóma í dag, Að vissu
leyti er Vals-liðið þó undantekn
ing. Stúlkurnar eru mjög ákveðn
ar og áhugasamar og taka leik
sinn greinilega alvarlega. Er það
meira en hægt er að segja um
flest önnur lið. Því er ekki að
neita, að óþarfa harka á oft upp
á pallborðið hjá þeim, og gætu
þær að ósekju minnkað hana, án
þess að tapa á því. Sigrún Guð
mundsdóttir er sterkasti hlekkur
liðsjns, og í gærkvöldi skoraði hún
6 af mörkum Vals. Sigríður Sig-
urðardóttir skoraði 3 mörk og Sig
rún Ingólfsdóttir og Björg 1 mark
hvor. Yngri stúlkur liðsins verða
sífellt virkari. bæði Björg og Ragn
heiður.
Þótt Fram-liðið eigi langt í land
með áð ná Val, Iék það undir getu
í gærkvöldi. Mörkin skoruðu:
Geirrún og Halldóra 2 hvor og
Svandís 1.
Dómari var Daníel Benjamíns-
son og dæmdi vel. f gærkvöldi fór
einnig fram leikur í mfl. kvenna
á milli Ármanns og KR og lauk
honum með sigri Ármanns 6:1.
Lokastaðan í mfl. kvenna varð
Valur
Fram
Vikingur
Ármann
KR
4 4 0 0 35:11
4 2 0 2 26:21
2
2
4
2 0
2 0
0 0
8
4
14:18 4
17:24 4
8:22 0
Manchester Utd. tek-
ur forustu í 1. deild
Manch. Utd. hefur tekið forustu
í 1. deildarkeppninni á Englandi,
en liðið vann mjög góðan sigur á
miðvikudaginn í Lcicester 2-1, og
er það fyrsti taplcikur Leicester
hcima á þcssu leiktímabili. Manch.
Utd. sýndi miklu betri leik —
sérstaklega voru Law, Best og
Charlton snjallir í sókninni. En
þeir fundu jafningja sinn í marki
Leicester, Gordon Banks, enska
landsliðsmanninn snjalU, sem
varði mjög vel. En Law kom
honum þó algerlega á óvart með
þrumuskoti af 35 metra færi, sem
hafnaði efst í markhorninu, cn öll
um á vellinum virtis' sem Law
ætlaði að senda knöttinn til sam
herja. Besi skoraði svípað mark
nokkru síðar, en rétt fyrir leiks-
*ok tókst Leiccste- að skora sitt
Tekst himt unga KR-
liði ai stöðva Fram?
Alf-Reykjavík. — Rvíkurmótinu
í handknattleik verður haldið á-
fram í Laugardalshöllinni á morg
un, sunnudag, og faxa þá þrír leik
ir fram í meistaraflokki karla-
Fyrsti leikurinn, Ieikur Fram og
KR, verður cinkum undir smásjá,
þvi bæði liðin hafa möguleika á
að vinna Rvíkurtitilinnj Hið unga
KR-Iið, sem er í 2. deild, hefur
komið á óvart í mótinu og unnið
1 deildarliðin Val og Víking.
Spumingin er, hvort KR-ingum
tekst að stöfiva sigurgöngu Fram-
Leikurinn á morgun hefst kl. 15.
Strax á eftir leika Ármann og
ÍR og þriðji leikurinn verður á
milli Þróttar og Víkings, botnlið
anna. Valur, sem hefur möguleika
á sigri ásamt Fram og KR, situt
yfir á morgun, en leikur í síðustu
umferð á móti Fram.
Staðan er nú þessi:
eina mark. Manch. Utd. hcfur nú
27 stig, Chelsea 25 og Stoke og
Liverpool 23 stig og hafa liðin
leikið 18 leiki. — hsím.
Celtic vann
Nantes 3:1
Nantes, frönsku meistararnir,
sem léku hér í haust, og komu
KR-ingum úr Evrópubikarkeppn
inni, hafa litla möguleika til að
komast í átta liða úrslit í keppn
inni ,en Iiðið lék á miðvikudaginn
fyrri Icikinn við Celtic og tapaði
með 3-1. Leikurinn var háður í
Nantes og skoruðu Frakkarnir á
undan, en síðan fór Celtic-vélin f
gang. McBride, Lennox og Chalm
ers skoruðu. Aðeins eitt lið hefur
tryggt sér rétt í átta liða úrslit,
meistaramir Real Madrid, sem
vann Munchen 1860 á miðvikudag
inn með 3-1. Leikurinn var háður
í Madrid og var æsispennandi.
Þjóðverjarnir sigruðu í fyrri leikn
um með 1-0 og í Madrid tókst
þeim að skora eftir 10 mín. Spán-
verjarnir þurftu því að vinna upp
tveggja marka mun — og það
tókst þeim.
Körfubolti
á sunnudag
Alf-Reykjavík. — Tveir leikir fara
fram í Rvíkurmótinu í körfuknatt-
leik á sunnudagskvöld — báðir í
Laugardalshöllinni. f fyrrj leikn
um ,sem hefst kl. 20, leika KFR
og stúdentar, en í síðari Iciknum
mætast ÍR og Ámiann. Ættu báðir
leikirnir að geta orðið spennandi.
Staðan í mótinu er nú þessi:
Slgrún Gu'ömundsdóttir hefur átt
hún i landsleik á móti Dönum.
drýgstan þátt í sigri Vals. Hér sést
KR
ÍR
Ármann
KFR
ÍS
3
2
2
2
3
0 295:167 6
0 138: 64 4
1 106:135 2
2 94:172 0
3 114:209 0
Fram 4 4 0 0 74-43 8
Valur 5 4 0 1 80-61 8
KR 4 3 0 1 61-52 6
ÍR 4 2 0 2 66-67 4
Ármann Víkingur 4 1 1 2 45-60 3
4 0 1 3 46-58 1
Þróttur 5 0 0 5 48-79 0
Tilkynning
frá matvöru- og kjötbúðum SIS
Vegna breyttra verzlunarhátta verSur matvöru og
kjötbúðir okkar opnar aðeins til kl. 12 á hádegi á
laugardögum í desember og Þorláksmessu til
,KL 21.
SÍS Austurstræti 10, kjörbúð.
Kjöt og Grænmeti
Snorrabraut 56.
BÚNAÐARBANKINN
Framhald af bls. 2.
Jóhannsson skipulagsstjóra Bún-
aðarbankans.
Nýi afgreiðslusalurinn er bjart-
ur og vistlegur og það sama er
að segja um skrifstofusalina. Þar
vekja sérstaka athygli ný gerð af
skrifborðum, innfluttum frá Nor-
egi, sem eru ein'kar hentug og vel
úr garði gerð.
Sjónvarpstæknin hefur hafið
innreið sína í sölum Búnaðarbank
ans og verður hún notuð til þess
að bera saman ávísanir við spjald-
skrár. Þannig getur t. d. gjald-
keri í nýja afgreiðslusalnum sett
ávísun, sem honum er greitt með
í sérstaka myndavél, sem verður
við borð hans, og kemur þá mynd
in af henni fram á sjónvarps-
sfcermi i afgreiðslusalnum á neðri'
hæðinni, þar sem hlaupareiknings
og ávísanadeildir eru.
Þjóðsfcrárnúmerin hafa þegar
verið tekin upp í sambandi við
gatspjaldakerfi stofnlánadeildar-
ilnnar, þ. e. veðnúmer jarðanna og
nafnnúmer greiðanda, og eins og
að framan greinir, þá verða nafn-
númer tekin upp i sambandi við
vixla, nú fyrir áramót.
Bazar Sjálfsbjargar
verður haldinn sunnudaginn 4. des. í Skátaheim-
ilinu við Snorrabraut (gengið inn Egilsgötu megin)
og hefst kl. 14 e. h. Komið og gerið góð kaup um
leið og þið styrkið gott málefni.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra.
FRÍMERKJASAFNARAR
Með því að senda aðeins 100 kr. fáið þér um hæl
200 útlenzk frímerki, verðmikil og valin.
Einnig getum við útvegað frímerki hvaðan sem er
úr heiminum og allt til frímerkjasöfnunar.
Notið þetta tækifæri.
ÚTLENZK FrÍMERKI
Álfaskeiði 86, Hafnarfirði.