Tíminn - 10.12.1966, Blaðsíða 2

Tíminn - 10.12.1966, Blaðsíða 2
TÍMINN LAUGARDAGUR 10. desember 1966 osygin og de Gaulle birta sameiginlega yfirlýsingu umviðræður sínar HVETJA EVRÓPULÖNÐIN TSL AÐ EYLGJA FORDÆMI RlKJA SINNA PB-París, föstudag. Forsætisráðberra Sovétrikjarana, leksej Kosygin fór í dag flug- i iðis tjl Moskvu eftir átta daga i' inbera heimsókn í Frakldandi. i sameiginlegri yfirlýsingu hans r ; de Gaule, forseta eru ríki .rópu hvött til að fylgja for- emi Frakka og Sovétmanna um ■ .óraukin vináttutengsl. Fréttamenn henda á ýmis ' nærri atriði varðandi heimsókn : osygin, sem sýni ljóslega vin- , tu Sovétríkjanna og Frakklands. ' d. bauð de Gaule Kosygin og rcvmyko, utanríkisráðherra á veið U „Uppstigning Síðasta sýning Leikrit prófessors, Sigurðar Nor dals, „Uppstigning" verður sýnt í síðasta sinn n.k. sunnudag þann 11. des. Þetta er 14. sýning leiks- ins. Myndin er af Erlingi Gíslá- syni i hlutverki sérá Hélga, en hann leikur aðaLhlutverkið' í leikn um og hefur hlotið mjög góða dóma fyrir ágæta túlkun á hlut- verki sínu. ar með sér og Kosygin flutti ávarp í franska sjónvarpinu, en slíkur heiður hefur ekki áður fall- ið í skaut erlendum stjórnmála mönnum í heimsókn í Frakklandi. Þá er og bent á, að de Gauie 'þáði heimboð í sovézka sendiráð- ið í París, en hann hefur aðeins áður komið í móttöku erlends sendiráðs d Paris. í hinni sameiginlegu yfirlýsingu leiðtoganna um viðræður þeirra, sem birt var opinberlega í dag segir m.a., að fyrsta skrefið til bættrar sambúðar og au'kinna vin- áttutengsla Evrópurikja, án tillits til stjórnarfars, sé að minnka tor- tryggni og spennu þeirra í millli. Fyrstu jákvæðu viðbrögðin virð- ast nú vera að koma í ljós. — Næsta skref ætti að vera stóraukið samstarf ríkjanna á öll- um sviðum mótað af vinsemd eins og þeirri, sem nú sé að þró- ast milli Frakklands og Sovétríkj- anna. — Slíkt samband ríkjanna myndi skapa traustan grundvöll til viðræðna um hin ýmsu stóru vandamál í Evrópu, sem leitt gætu til tryggs og stöðugs friðar, byggðum á grundvailarkenning- unni um sjálfstæði ríkja og full- veldi, fordæmingu á valdbeitdngu og afskiptum af innri málefnum ríkja. Þá kemur og fram, að leiðtog- arnir hafa rætt um að katla saman sam-evrópska ráðstefnu til að ræða öryggismál Evrópuríkja og koma á samstarfi, sem næði til heims- álfunnar allrar. Lögðu þeir einnig áherzlu á algera afvopnun. Um Vietnam-deiluna segir í skýrslunni, að ríkisstjórnir land- anna bendi á, að stríðið færist stöðugt í aúkana og krefjist æ fleiri mannsllfa. Pordæma beir ,ástand, sem hafi í raun skapazt vegna afskipta erlends ríkis af málefnum annars.“ Þetta ástand hafi sett nágrannariki í hættu og staðið i veg fyrir eðlilegum sam- skiptum fjölda ríkja. Fréttamenn í Frakklandi oenda á, að heimsókn Kosygin hafi ver- ið mjög mikilvæg í baráttunni fyrir trausti og vináttu milli aust urs og vesturs. Að því er Þýzkalandsmálin varð ar eru Sovétríkin og Frakkland á öndverðum meiði og er ekki gerð nein tilraun til að leyna þeim ágreiningi. De Gaulle heldur fast við þá skoðun sína, að sam- eining Vestur- og Austur-Þýzka- lands hljóti að vera tafcmarkið, bezta lausnin til að tryggja frið- I inn í Evrópu og í öllum heimi. | Kosygin sagði hinLs vegar í við- j ræðunum, að skipting Þýzkalands 'væri söguleg og óbreytanleg stað- 1 reyind. — Þá er í hinni sameiginlegu yfirlýsingu áskorun til V-Þýzka- lands um að viðurkenna hið raun- sanna ástand í dag, að viður- kenna landamæri Tékkóslóvakiu og Pólíands og sannfæra öll ríki í Evrópu um, að V-Þýzkaland af- sali öllum kröfum til kjarnorku- vopna. Er haft eftir áreiðanlegum ÞYamhaic £ Ois. .14 Goðasteinn kominn út Annað hefti 5. árgangs af tíma- ritinu Goðasteini er komið út. Goðasteinn er tímarit um menn- ingarmál, og eru ritstjórar og úfc gefendur þess Jón R. Hjálmars- son og Þórður Tómasson, en Goðasteinn er gefinn út í Skóg- um undir EyjafjöMum og prentað- ur í Prentsmiðju Suðurlands h.f. á Selfossi. Goðasteinn kemur út tvisvar sinnum á ári. Af efni hins nýút- komna rits má nefna að Stein- þór Þórðarson skrifar Fyrstu kaup staðarferðina, Stefán Jónsson, Minningar frá brúargerð 1912, Hjáleigur Oddastaðar. iKris'tján Benedilktsson: Skógar- ferð. Riehard Beck skrifar minn- ingu Árna S. Mýrdal. Jón R. Hjálmarsison skrifar íslandi allt og og Ferðaþátt. Oddgeir Guðjóns- son, Tröllaskógur, Jón Árnason, Þessu gleymi ég aldrei, Einar Sig- urfinnsson skrifar Sigurður á Fljótum, Hjalti Jónsson skrifar Jón salti, Þórður Tómasson, Byggðasafnsþáttur, sagnir, Oddur Oddsson, Fjallabaksleið, HeJgi Hannesson Þrjár þúfur á barði, Jón J. Jðhannes'son Hamragarðar, Haraldur Guðnason Örlagarík kirkjuiferð og Helgi Hannesson Ný Ijóðabók eft ir Snorra Hjart- arson AK,-Rvík, — Snorri Hjart arson hefur sent frá sér nýja ljóðabók — Lauf og stjörnur. — Heim'skringla gefur út. í bókinni eru rúmlega fimmtíu ljóð, sem höfundur kal'lar kvæði, þótt flest séu órírnuð eða hálf- rímuð. Ljóðin eru flest stutt og bókin tæpt hundrað síðna. Kápumynd er aftir Hörð Ágústsson, listmálara. Snorri kvaddi sér hljóðs fyrir tveimur áratugum með litilli ljóðabók, sem vakti óskipta athygli og þann dóm, að þar væri þroskað og sérstætt skáld á ferð. Eintoum vakti Ijóðaflo'kkur- inn, í Úlfdölum, sérstaka at hygli. Með síðari ljóðum sínum hefur Snorri efcki bætt teljandi við þann hlut, en það álit styrkzt og festst að hann væri í hópi beztu ljóðskálda þjóðarinnar þeirra er komið hafa fram á sjónarsviðið á síðustu ára ■ tugum. Mun mörgum leika forvitni á um það, hver tök hans eru í þessari nýju ljóðabók. Hann slær á svip- aða strengi og í fyrri Ijóð- um, en blærinn er vart hinn sami. Jólaumferðarreglurnar ganga í gildi á mánudag 'KJ-Reykjavík, föstudag. Næstkomandi mánudag 12. des. ganga í gildi reglur um takmörk- un á umferð í Reykjavík og gilda þær fnarn á aðfangadag. Einstefnuakstur verður á Vatns- stíg frá Laugavegi, á Frakkastíg frá Hverfisgötu að Lindargötu, í Naustunum frá Hafnarstræti að Tryggvagötu og í Pósthússtræti frá Tryggvagötu til suðurs, en það er nýmæli, og þá vinstri 'beygja bönnuð úr Hafnarstræti, Vallarstræti og Kirkjustræti inn í Pósthússtræti. Hægri beygja er bönnuð á eftir- töldum stöðum: Úr Tryggvagötu inn á Kalkofnsveg, Snorrabraut inn á Laugaveg, úr Snorrabraut inn á Njálsgötu. Bifreiðastöður verða bannaðar á Skólavörðustíg norðan megin götunnar frá Skólavörðustdg að Þórsgötu. Bifreiðastöður verða tafcmarkaðar við hálfa klukku- stund á eyjunum á Snorraibraut frá Hverfisgötu að Nj'álsgötu, á Frakkastí'g milli Lindargötu og Njálsgötu á KLappastíg frá Lindar götu að Hverfisgötu og frá Grettis götu að Njálsgötu. Á Garðastræti norðan Túngötu. Þessar umferða- takmarkanir gilda á almennum verzlunartíma á fyrrgreindu tíma- bili. Ökukenns'la er bönnuð í mið- borginni á framangreindum tíma, og er þá miðað við svæðið á milli Snorrabrautar og Garðastrætis. Þá verður bifreiðaumferð bönn- uð um Austurstræti, Aðalstræti og Hafnarstræti og umferðatak- markanir á Laugavegi frá Snorra- braut þegar flest fólk er að gera jólainnkaupin á Þorláksmessu og laugardaginn 17. des. Á bifreiðastæðunum við Vonar- stræti og Tjarnargötu, Smiðjustíg og Hverfisgötu og Garðastræti og Vesturgötu verða verðir til að leiðbeina ökumönnum um bifreiða stæði og á þessum stæðum verða stöður takmarkaðar við halfa klu'fckustund. Þá munu nokkur einkabifreiðastæði verða fengin til afnota fyrir almenning. Ökumenn eru beðnir að forð- ast akstúr um miðborgina á fyrr- greindum tímurn, og fara eftir leiðbeiningum lögreglumanna í einu og öllu. í jólaumferðinni kemur það stundum fyrir að loka verður götum um óákveðinn tíma, og verða ökumenn að taka tillit til þess. Happdrætti Fram- sóknarflokksins Vinningar: 1 Scout 800 1 Kadett KarAVan Vauxhall Viva Miðinn kostar aðens 50 krón- ur. Happdrættið er > fullum gangi og umboðsmenn i hverj- um hreppi og kaupstað á land- inu. Þeir sem fengið hafa miða senda heim eru eindregið hvattir til að gera skil strax. Sent verður etftir andvirði mið- anna til þeirra sem ekki hafa tök á að koma. Aðalskrifstofa happdrættisins Hringbraur 30 er opin til kl. 19 alla virka daga- Símar 12942 og 16066. Dragið ekki til morguns það, sem hægt er að gera í dag. Frétt frá Stúdenta fél. Háskóla íslands Á morgun, sunnudag 11. des. efnir bókmennta- og liskynning- arnefnd til kynningar á verkum Jóns Þorlá'kssonar frá , Bægisá. Andrés Björnsson lektor talar um skáldið, háskólastúdentar lesa ljóð og félagar úr Stúdentakórnum syngja og kveða undir stjórn Jóns Þórarinssonar. Kynningin verður í hátíðasaL Báskóla íslands og hefst kl. 2B0. Öllum er heimiM aðgang- ur. Uthlutunardagur STEFs Samkvæmt venju fer aðalúthlut- un frá STEFI fram 10. desem- ber, á mannréttindadegi Samein- uðu þjóðanna, en höfundaréttur- inn er einn aðalkjarni Mannrétt- indaskrár þeirra. fslenzkir höfundarétthafar í vörzlum STEFs eru nú rúmlega 500, og er til þeirra úthlutað í ár um hálfri annarri mHijón króna. Hæstu réttihafar fá úthlutað aMt að 70.000 krónum og fjölmargir 10—50 þúsund krónum og fer upphæðin eftir mínútulengd og tegund verkanna og eftir því hve oft veridn eru flutt. Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.