Tíminn - 10.12.1966, Page 14

Tíminn - 10.12.1966, Page 14
JáL TÍMINN LAUGARDAGUR 10. desember 1966 SAMMÁLA Framhald at DU. 1. Ef fækkað yrði um 6 menn á þilfari mætti spara um 1.351 þús. krónur. í skýrslunni segir, að löngu sé orðið ljóst, að endurskoð- unar sé þörf á veiðireglum, fyr ir það fyrst og fremst, að þró- un skipaflotans, veiðanna og veiðitækninnar hefur gert hana nauðsynlega, ef ekki á að staðna í gömlum formum og korna í veg fyrir eðlilega þró- un þessara þátta fiskveiðanna. End'a þótt nefndanmenn væru sammála um, að æskilegt væri að breyta núgildandi reglum um togveiðar, voru ekki allir á einu máli um hversu langt skyldi gengið í því efni. Margar tillögur lágu fyrir nefnd inni og ákvað nefndin að taka afstöðu tiil þeirra hverrar fyrir sig, og voru þær samþykktar með atkvæðum allra nefndarmanna, nema tillaga um nýtt veiðisvæði við Vestfirði, þá var einn á móti og þrir sátu hjá. Sú tillaga var samþykkt að gerð verði sú meginbreyting á reglum um togveiðar, að þær verði heim- ilaðar allt árið inn að 4 sjómíl- um frá þeim grunnlínum, sem í gildi voru samkvæmt reglugerð frá 19. marz 1952 um fiskveiði- landhelgi íslands. Þessi breyting nái þó ekki til svæðisins, sem takmarkast að vestan af línu, sem hugsast dregin í réttvísandi norð- ur frá Langanesi og verði þetta sérstaka svæði með öllu lokað fyr ir togveiðum innan 12 sjómílna markanna. Auk þess voru gerð- ar tillögur um að togveiðar yrðu heimilaðar í Miðnessjó, við Snæ- fellsnes, á Breiðafirði, við Vest- firði, á Húnaflóa, á Skagafirði og frá Suðausturlandi lil Suðvestur lands. Skýringar fylgja þessum til lögum, bæði hvað snertir veiði- svæðin og hvenær árs veiðamar skuli leyfðar. Ef þessar tillögur komast til framkvæmda telur nefndin að eigi fáist reynsla af slíkum regl- um á minna en nokkurra ána bili, og vart korni til greina styttri tími en 5 ár. Þá er lögð áherzla á að mjög þýðingarmikið sé að fylgjast sem bezt með veiðum togaranna á nefndum svæðum. Nefndin er þeirrar skoðunar að aflaaukning- in ein mundi ekki nægja til að auka svo tekjur togaranna, að það nægði til að greiða hallann jafnvel þó fyrrgreindar lækkanir á kostnaðarliðum kæmu til fram- kvæmda. Undanfarin þrjú ár hefur nær allur togarafiskur til frystihUs- anna verið lagður á land á Ak- ureyri, Siglufirði, Akranesi, Rvík og Hafnarfirði og var hlutfaJl hans á sl. ári nær 49% af mót- teknu bolfiskmagni fryistihúsanna á þessum stöðum. Að lokum bendir nefndin á að ekki sé hægt að endurnýja tog- araflotann nema ákveðnar hafi verið reglur til frambúðar um það hvar togveiðar verði leyfilegar, þar sem það gæti einnig gefið mikilvæga reynslu viðvíkjandi því ALLT Á SAMA STAÐ RAMCO Stimpilhringir Ventlar Ventilgormar Stýringar SENDUM GEGN KRÖFU. Egill Vilhjálmsson h.f. Laugavegi 118 — Sími 2-22-40. ÞAKKARÁVÖRP Hjartans jtakkir til allra, sem minntust mín á sjötugs- afmæli mínu 3. okt. s.l. Bergrún Árnadóttir, Ósi Borgarfirði eystra. Innilegar þakkir færi ég öllum þeim, sem sýndu mér vináttu með kveðjum og gjöfum á sextugsafmæli mínu þann 21. nóvember s.l. Ásgeir Ó. Einarsson. Þökkum sýnda samúð við andlát og jarðarför, Gunnars Steindórssonar Sigríður Einarsdóttir, Birna E. Gunnarsdóttir, Helga Gunnarsdóttir, Sigurgeir Steingrímsson. Faðir minn tengdafaðir og afi, Einar Skúlason Eymann frá Gilá í Vantsdal Er andaðist i Landsspítalanum 5. þ. m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. þ. m. kl. 10,30 f. h. Athöfninni verður útvarpað. Þelm er vildu mlnnast hins látna er vinsamlegast bent á Ifknarstofnanir. Sigrún Einarsdóttir, Ragnar Haraldsson, Haraldur Ragnarsson, hvaða stærð skipa væri hentug-| ust. í nefndinni átiu sæti Davíð Ól- afsson, formaður,_ Jónas Jónsson, Svavar Pálsson, Ágúst Flygering, Jón Sigurðsson, Bjarni Ingimars- son, Hjálmar Bárðarson og Loft- ur Bjarnason. Jón Sigurðsson skil aði séráliti varðandi stærð áhafna á togurunum. HVETJA Framhald af bls. 2. heimildum, að ef Vestur-Þýzka- land fylgdi þessari stefnu væri la-ndið langt komið með að fá fram tíðarviðurkenningu Sovétríkjanna á sameinuðu Þýzkalndi. Frá Wasington berast þær fregn ir, að af hálfu stjórnarinnar sé Mtið á hina sameiginlegu yfirlýs- ingu í dag sem eins konar afrit af yfirlýsingunni eftir heimsókn de Gaulle í Moskvu í sumar. Komi yfiriýsingán því ekki á nokkurn hátt á óivart. Hins vegar er lýst yfir ánægju yfir því, að í yfir- lýsingunui sjálfri er ekki vikið sénstaklega að Þýzkalandsmálun- um o>g er það talið vottur þess, að de Gaulle viðurkenni enn rétt Bandaríkjanna til að hafa afskipti af því máli. Af hálfu Breta er því haldið fram, að skýrslan gefi ekki til kynna neina breytingu á sara- skiptum Frakklands og Sovétrikj anna. STJÓRNARFRUMVARP FramnaiO ai bls 16 bænda og tveir án tilnefningar. Formaður sjóðstjórnarinnar skal vera fonmaður Efnahagsstofn- unarinnar eða fulltrúi hans. Varanjenn skulu skipaðir með sama hætti. Landbúnaðaráðherra ákveður með öðrum kostnaði úr sjóðnum. þóknun stjórnarinnar, sem greiðist 3. gr. Stjórn Framleiðnisjóðs út hlutar lánum og styrkjum úr sjóðn um. Af því fé, sem ráðstafað verð ur úr sjóðnum á ári hverju, má eigi verja meiru en Vs hluta til styrkveitinga. Um hver áramót skal stjórn Framleiðnisjóðs láta landbúnaðar ráðherra í té skýrslu yfir störf sín og fjáveitingar úr sjóðnum á liðnu ári. Jafnframt skal sjóðs- stjórnin senda landbúnaðaráðherra til athugunar fjárhagsáætlun sjóðs ins fyrir komandi ár og greinar- gerð um þau meginverkefni, er að kalla. Við afgreiðslu þeirra mála, sem falla undir verksvið Framleiðni- sjóðs, er stjórninni heimilt að leita aðstoðar opinberra stofnana og hvers þess aðila, sem hefur sér þekkingu til að bera á þeim mál um. 4. gr. Stofnframlag ríkissjóðs til Framleiðnisjóðs skal vera 50 millj krónur. Af stofnframlaginu greiðast 20 millj. krónur á árinu 1966 og skal stjórn Framleiðnisjóðs ráðstafa þeirri fjárhæð að fengnvm tillög um Framleiðsjuráðs landbúnaðar ins, til vinnslustöðva landbúnaðar ins vegna endurbóta, sem. gerðar hafa verið á árinu 1966. Eftírstöðv arnar, 30 millj. kr. skulu greiðast með jöfnum árlegum g.-eiðslum á árunum 1967—1969. 5. gr. Búnaðarbanki íslands hef- ur umsjón með Framleiðnisjóði sér um bókha'ri hans og rekstur, eftir nánara samko.nulagi við sjóðsstjórnina. Framleiðnisjóður er undanþeg inn öllum opmberum gjöldurn cg sköttum, hverju nafni sem nefn ast. Allar skuldbindingar, sem gefnar eru út af sjóðnum og í nafni hans, skulu undanþegnar stimpilgjaldi og þinglýsingargjöld um. Nú er fasteign seld á nauðungar uppboði eða vlð gjaldþrotaskipti, og ber þá uppboðshaldara að rann saka, hvort eignin sé veðsett Framleiðnisjóði og geta þess í uppboðsgerðinni. Ef svo reynist, skal sjóðnum ger.t viðvart svo tímanlega, að hægt sé að mæta eða láta mæta við uppboðið. Stjóm sjóðsins semur um þókn un til Búnaðarbankans fyrir störf hans í þágu sjóðsins. 6. gr. Um endurskoðun og bók hald Framleiðnisjóðs fer eftir lög um nr. 115. 7. nóvember 1941, um Búnaðarbanka íslands og reglu gerð hans. Ársreiknijngar sjóðsins skulu að lokinni endurskoðun lagðir fyrir stjóm hans til staðfestingar. Reikningar Framleiðnisjóðs skulu árlega birtir í Stjórnartíð indunum. 7. gr. Stjórn Framleiðnisjóðs ákveður vexti af lánum og önnur lánskjör, að höfðu samráði við Seðlabanka fslands. 8. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. í athugasemdum með frumvarpinu segir ennfremur þetta m. a.: ,,Það er t. d. á flestra vitorði, að nú sem stendur er sauðfjár framleiðsla landsmanna nær því að geta framleitt fyrir erlent mark aðsverð, en mjólkurframleiðslan. Reynt hefur verið að örva menn til sauðfjárframleiðslu með verð- tilfærslu milli mjólkur og kjöts. Slík verðtilfærsla hefði þá jafn framt átt að draga úr mjólkur- framleiðslunni. Reynslan hefur samt orðið sú að framleiðsluaukn ingin hefur orðið enn meiri í framleiðslu mjólkur en sauðfjáraf urða, og sáralítig hefur borið á þvi að menn dragi frekar saman framleiðslu mjólkur í sveitum, sem betur henta fyrir sauðfjárfram- leiðslu, og hafa auk þess ófull- nægjandi markaðsskilyrði fyrir mjólk, heldur en í sveitum, sem betur eru fallnar til mjólkurfram- leiðslu, bæði landfræðilega og markaðslega séð. Takmörk hljóta að vera fyrir því hve mikil slík verðtilfærsla má verða svo ekki valdi hún beinu frá hvarfi frá mjólkurframleiðslu á þeim svæðum, sem mjólkurinnar er þörf. Það er álit margra, að ekki sé skynsamlegt að ganga á þeirri braut, sem farin hefur verið í þessum efnum á undanförnum árum. Sauðfjárbúskapur þarf verulega meira fjármagn, bæði í stofnkostn aði og reksturskostnað, en mjólkur framleiðslan. Sérstaklega verður þessi mismunur tilfinnanlegur, ef breyta á um frá mjólkurfram- leiðslu og yfir í sauðfjárrækt. Vig breytinguna missir framleigandinn tekjur af fullvöxnum grip/m en fær í staöinn ungviði, sem gefa ekki af sér neinar verulegar tekjur fyrstu 2—3 árin. Flestir munu sammála um það að sauðfjárrækt verður ekki auk in hérlendis að neinu ráði, nema til komi sérstök beitirækt og síð- an skipting beitarlandsins niðu? í afgirt beitarhólf. Við slíkt sparast mjög mikil vinna við smölun, sem nú er að verða miklum örðugleik um bundin, vegna mannfæðar í sveitunum. Það gæti m. a... verið eitt af verkefnum Framleiðnisjóðs ag létta undir í þessum efnum, eftir því, sem sjógsstjórnin telur naugsynlegt. Þá þarf ag stuðla að byggingu hentugri fjárhúsa, sem eru ódýrari en þó jagnframt hagkvæmari en þau fjárhús sem nú eru byggð. Kæmi þar vel til greina að verð launa nýjungar á því sviði, sem einstakir bændur kæmu með og sem væru verðugar sérstakra verð launa, að dómi sjóðsstjórnarinnar. Þó hér hafi verið nefnt sem dæmi tilfærsla frá mjólkurfram- leiðslu yfir í sauðfiárrækt, getnr sjóðss.tjómin einnig varið fé úr sjóðnum til þess að auðvelda hvers konar breytingar aðrar á fram- leiðslunni, enda séu þær breyting ar réttmætar að dómi sjóðsstjórn arinnar og Framleiðsluráðs land búnaðarins. Á þetta auðvitað einn ig við um hvers konar nýjungar á sviði framleiðslumálanna, sem upp kunna að koma hverju sinni og líklegar eru til að gefa góðan árangur. Annar aðaltilgangur laganna er að auka framleiðni í landbúnaðin um. Það er vitað, að mikil fram- leiðsluaukning hefur verið í land búnaðinum á undanförnum árum. Talið er að heildarverðmæti land búnaðarins verðlagsárið 1965/‘66 séu um 2200 milljónir króna. Ef tala bænda er sögð vera 5500, sam svarar þetta um 400.000.00 krón um á hvern bónda að meðaltali. Þó er bændastéttin, sem heild, talin tekjulægsta stétt þjóðfélags- ins, þegar allur tilkostnaður hefur verið frá dreginn. Þetta bendir til þess, að mjög mikill mismunur sé á tekjum bænda innbyrðis og einnig, að óhagkvæmni gæti í sjálfum rekstrinum. Vitað er, að margir bændur hafa gúðan arð af búum sínum, þó ekki sé um ,,stórbú“ að'ræða, en margur bónd inn, sem þó býr „stórbúi" á lítið sem ekkert eftir að lokum. Hvað veldur slíkum mismun? Sjálfsagt koma þarna til greina hin marg víslegustu atriði, allt frá sjálfri jarðræktinni til fóðrunar búpen ings. Hér verða þessi atriði ekki talin, en gert er ráð fyrr því að stjórn sjóðsins verji allmiklu fé til hagfræðilegra rannsókna á því hvað veldur hinni mismunandi góðu afkomu hjá bændum og styrki síðan þá bændur til um- bóta og breytinga, sem vilja koma betra lagi á búskap sinn, enda séu þá þær endurbætur gerðar að ráði og undir eftirliti sérfróðra manna, er stjórn sjóðsins viðurkennir, og er þá gert ráð fyrir. að áðurnefnd ar rekstrarrannsóknir verði lagðar til grundvallar slíkum breytingum á rekstri bóndans. Kjörorðið verð ur að vera: minni tilkostnaður á hverja framleiðslueiningu. Þá er lögunum einnig ætlað að koma á breytingum á vinnslu- og dreifingarkerfi landbúnaðarihs, er gæti gert það ódýrara til gagns jafst fyrir framleiðendur og neyt- endur. í landinu eru starfrækt rúmlega 100 sláturhús. Mörg þeirra eru mjög lítil með ófullkomna aðstöðu til þeirra verka, sem þeim eru ætluð. Dæmi eru um það að í sama þorpi séu þrj4 sláturhús, öll með ófullkomna aðstöðu. Hins vegar skortir fyrirtækin oft fé til að byggja eitt sameiginlegt og myndarlegt sláturhús og leggja þá niður mörg smærri húsin. Við það sparast mikið mannahald við slátrunina, og hægt er að koma við nýjustu tækni við slátrunina og viðhafa fullkomið heilbrigðiseftir lit. Á sláturhúsafyrirkomulaginu er sá galli að húsin eru notuð að- | eins nokkum tíma úr árinu. Úr ! þessu þarf að bæta með því að jstuðla ag einhvers konar kjöt' ; vinnslu í húsunum þann tima úr ! árinu, sem þau eru ekki notuö til slátrunar. Á þann hátt má væata þess aö upp komi vísir að slátrara stétt hérlendis, en skortur er nú mikill á sérhæfðu fólki til slátur starfa. í meðferð mjólkurinnar eru ýms atriði, sem geta gert kostnað inn minni og sparað talsverða vinnu frá því, sem nú er. Ber hér fyrst að nefna tankflutninga á mjólk frá bændum til samlaganna í stað þess brúsaflutnings, sem nú á sér stað.“

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.