Tíminn - 21.12.1966, Side 9
9
Kirkjuleg tónlist
hefur miklu hlut-
verki að gegna í
trúarlegu lífi...
Þá ræ5i ég við Gunn
ar Sigurgeirsson organlsta í
hinni nýju og veglegu Háteigs
kirkju, sem vígð var fyrir tæpu
ári.
—- Þið hafið að sjálfsögðu
þegar hafið jólaundirbúning?
— Já, hann hefst vanalega
um mánaðarmótin nóvember-
desember. Við byrjum yfirleitt
á Hátíðasöng séra Bjarna Þor-
steinssonar, og svo tökum við
fyrir önnur stór jólaverk og
vitaskuld þessa venjulegu jóla
sálma. Á jólunum er alltaf um
sömu verkin að ræða frá ári
til árs.
— Er mikið samband milli
safnaðar og organista yfirleitt.
— Nei, 'því miður hef ég sem
organisti haft fremur lítið sam
band við söfnuðinn, en sam-
starfið við kórinn hefur verið
með miklum ágætum. Hann tel
ur 18 manns, en vanalega
syngja ekki nema 12-—14 við
hverja messu. Hjá okkur ríkir
mikill einhugur.
— Hvernig finnst yðu- að
vera organisti í kirkju?
— Þetta er dálítð skrýtin
spurning að því leyti að ég
hef aðeins verið organisti í
kirkju í tæpt ár. Um margra
ára skeið, eða þar til kirkjan
var vígð, fóru messur safnað
arins fram í hátíðarsal Sjó-
mannaskólans, og þótt aðstað
an þar væri fremur óhentug
var þetta mjög ánægjulegur
tími ,og tilhugsunin um hina
nýju kirkju veitti okkur bæði
kraft og birtu. Kirkjan var
vígð 19. desember í fyrra og
hefur því starfað í tæpt ár.
Allt hefur gengið skínandi vel
þennan tíma, aðbúnaðurinn er
góður, hljómburður mjög góð
ur, og kirkjusókn ágæt frá
vígsludegi og fram á vor, en
eðlilega var fámennara við
messurnar yfir sumarmánuðina.
— Hafið þið gott orgel í
kirkjunni? >
— Stanger-verksmiðjurnar í
Vestur Þýzkalandi sýndu okkur
þá velvild að lána okkui lítið
orgel, til fjögurra ára eða með
þær voru að smíða fynr okkur
stórt orgel. Þetta sem við höf
um núna er fjögurra radda án
ORGANISTAR
Framhald af bls. 7.
er að gæða sér á heima, þegar
þú ert að leika á aðfangadags-
kvöld.
— Það er nú einhvern veginn
svona, að hugur minn hvarifar
aldrei að svo veraldlegum hlut-
um, þegar ég er að tónlistar-
störfum og þá allra sízt á jóla-
nóttina. Ég hef hugann við það
eitt, ''að miðia því fólki ein-
hverju, sem kemur hingað til
að heyra guðsorð og hlusta á
kirkjutónlist
fótspils og í alla staði mjög
þægilegt?
— Álítið þér, að kirkjuleg
tónlist hafi mikilvægu hlut-
verki að gegna í trúarlegu lífi?
— Vafalaust, og það hlutverk
gæti verið enn meira, og ég
vona að nýja orgelið, sem við
fáum geti orðið lyftistöng í
þem efnum hjá söfnuðinum hér.
— Á hverju byggist þetta
mikilvæga hlutverk kirkjutón-
listarinnar?
— Það sem ekki er hægt að
segja með orðum má oft klæöa
i tóna, og á þetta ekkert frek
ar við um kirkjulega tónlist
heldur en aðrar greinar tón-
listar, en getur stuðlað að
mikilvægri uppbyggingu í trú
arlegu lífi.
Álítið þér að sumt fó.lk sæki
eingöngu kirkju til að hlýða á
kirkjulega tónlist, en ekki til
að heyra orð prestsins í stóln-
um?
— Ég held að það hljóti að
fara saman- þörfin til að heyra
guðsorð og hlýða á kirkjulega
tónlist. Hins vegar eru sumir
eðlilega næmari á orðsins list
en tónanna, og til annarra ta,-
ar tónlistin meira en fögur orð.
— Af hverju haldið þé? að
hin stóroukna kirkjusókn um
jól og aðrar stórhátíðir stafi?
— Ég held, að þar sé ein-
mitt um að ræða hinar trúar
legu kenndir, sem ræktaðar eru
upp i barninu og segja til sín
einkum um jólin.
Páll ísólfsson í Dómkirkjunni.
Tímamynd GE
MADUR MÁ EKKISLÖKKVA
í SÉR ÞAD BARNSIfGA
Og að síðustu ræði ég við
þann, sem líklega hefur leikið
við flestar jólamessurnar, ok'k-
ar elzta og nafntogaðsta organ
leikara, Pál fsólfsson. Vegna
veikinda hefur hann verið frá
vinnu í rúmt ár, en er nú á
góðum batavegi eftir því sem
hann segir sjálfur, setztur að
nýju í orgelstólinn í Dómkirkj-
unni og^ætlar að leika um jólin.
— Ja, ég geri nú eiginlega
bæí^i að hlakka til og kvíða fyr
ir jólunum. Þetta eru töfrandi
dagar og alltaf jafnyndislegt að
leika við messuna, en maður á
annrikt um jólin mjög annrikt,
og sérstaklega hef ég fundið fyr
Gunnar Sigurgeirsson í Háteigskirkju. Ljósmynd: V. Sigurgeirsson.
ir því nú í seinni tíð. En það
á ekki að vera að hugsa um það,
maður má ekki slökkva í sér
það barnslega.
— Hvað hefur þú eiginlega
leikið við margar jólamessur,
Páll?
— Þær eru nú orðnar marg-
ar, en ekki veit ég hvað marg-i
ar. Ég byrjaði austur á Stokks-
eyri, og er ég var við nám úti
í Leipzig spilaði ég vð messur
á tvennum jólum. Þegar ég kom
heim, var ég í nokkur ár organ-
isti við Frí'kirkjuna og síðan við
Dómkirkjuna.
— Eru þér einhver jól sér-
lega minnisstæð á þessum langa
starfsferli?
— Ég man ekki eftir neinu
sérstöku við jólamessurnar,
þær eru hver annarri líkar, há-
tíðlegar og töfrandi, það er
alltaf þetta gamla, sem þó er
alltaf nýtt. En ein jól eru mér
minnisstæð, enda þótt það
snerti ekki jólamessur. Það hef
ur verið árið 1913, er ég var
við nám úti í Leipzig, að að-
fangadagur jóla fór fram njá
mér, og ég rankaði ekki við
mér fyrr en daginn eftir. Ég
var þá nýsetztur að þarna úti .
í Þýzkalandi, og mikið skelf-
ing var ég einmana.og langaði
heim. Það gæti auðvitað aldrei
komið fyrir aftur að ég gleymdi
jólunum. Það eru tveir hátíðis-
dagar, sem alltaf hafa mjög
mikil áhrif á mig, aðfangadag-
ur jóla og páskadagur. Það er
svo mikið kynngimagn og hátíð
leiki yfir messunum og svo
ánægjulegt að sjá kirkjurnar
troðfullar og kirkjugesti hátíð-
lega á svip.
— Hvers vegna heldur þú, að
fólk, sem undir venjulegum
kringumstæðum er ókirkjuræk
ið, fylli kirkjurnar á þessum
hátíðisdögum?
— Ætli það sé ekki haldið
trúarþörf undir niðri, sem knýr
það til að sækja kirkju á há-
tíðum, en kannski er það bara
jólastemmriingin. En enda þótt
allmargir sæki ekki kirkju að
staðaldri og séu ekki trúhneigð-
ir, er það áreiðanlegt að flest-
ir vilja kirkjunni vel og kunna
að meta hana við hátíðleg tæki
færi svo sem á jólum, páskum,
við brúðkaup, skírnir og fleira.
Ef færi fram atkvæðagreiðsla
með kirkjunni eða móti, yrði
hún áreiðanlega mjög jákvæð
fyrir hana.
— Finnst þér kirkjusókn vera
mjög dræm?
— Nei. Alls ekki. Hún er að
vísu ekki eins mikil og áður
fyrr, og það stafar áreiðanlega
af skorti á innri þörf hjá al-
menningi. En þegar allt kemur
til alls, held ég að kirkjusókn
sé töluvert meiri en margir
vilja vera láta. Það verður að
taka tillit til þess að kirkjurn-
ar eru orðnar svo margar og
fólk dreifist eðlilega niður á
þær, svo að ekki eru eins
margir í hverri og þegar þær
voru bara tvær í Reykjavlk,
Dómkirkjan og Fríkirkjan. Það
er alltaf verið að tala um, að
unga fólkið sæki yfirleitt ekki
kirkju, en ég hef hins vegar
orðið mjög var við það gagn-
stæða.
— Ertu ekki ánægður með
það, hvað kirkjurnar eru orðn-
ar myndarlegar og vel útbúnar?
— Jú, jú, ekki get ég neitað
því. Það ei? mesti munur að
hafa góð húsakynni, myndar-
legt pípuorgel og góða aðstöðu,
en samt sem áður sakna ég dá-
lítið þessara gömlu daga, þeg-
ar orgelin voru troðin og kirkju
klukkunum hringt upp á gamla
mátann. Þetta var einhvern
veginn miklu persónulegra þá,
en slíkt þarf auðvitað að vikja
fyrir þægindunum.
— Er eitthvað, sem þú vildir
taka fram að lokum? ,
— Mig langar til að lýsa
ánægju minni með samstarfið
við kirkjukórinn og prestana í
Dómkirkjunni, það hefur alltaf
verið einstaklega gott. Svo
óska ég öllum vinum •mínum
og kunningjum gleðilegra jóla.
GJ>.E,
\
J