Tíminn - 22.12.1966, Blaðsíða 5

Tíminn - 22.12.1966, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 22. desember 1966 Útgefandi: FRAMSÓKNARiFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Pórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastj.: Steingrimur Gíslason. Ritstj.skrifstofur ' Eddu- húsinu, simar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastræti 7. Af. greiðslusími 12323. Auglýsingasimi 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300 Áskriftargjald kr. 105.00 á mán Innanlands — í lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. t. Afmæliskveðja frá Morgunblaðinu Morgunblaðið hefur í tilefni af 50 ára afmæli Fram- sóknarflokksins sent honum þá afmæliskveðju, að hann »,eigi ekki heima í nútíma þjóðfélagi“. Það er annars ekki nýtt, að Framsóknarflokkurinn fái þessa kveðju frá Mbl. og aðstandendum þess. Hann hefur fengið hana alltaf öðru hvoru öll 50 árin, sem hann hefur starfað. Einkum þó, þegar hlutur hans hefur staðið bezt. Framsóknarflokkurinn hefur fengið margar góðar kveðjur á fimmtugsafmælinu, en þegar allt kemur til alls, er þessi kveðja Mbl. ein hin bezta. Hún sýnir, að íhaldsöflunum er í nöp við hann enn sem fyrr og vilja hann feigan. Meðan svo er, þarf Framsóknarflokkurinn ekki að óttast um framtíð sína. Á sama tíma og Mbl. beinir þessari kveðju að Framsókn- arflokknum ge,ra aðstandendur þess ekki aðeins gælur við Alþýðuflokkinn, heldur lána þeir Alþýðubandalaginu atkvæði á Alþingi. Flokkur, sem er þægur við íhaldið eins og Alþýðuflokkurinn, á heima „í nútímaþjóðfélagi11. Flokkur, sem er gagnslaus keppinautur og maðksmoginn af kommúnisma eins og Alþýðubandalagið, á líka ,,heima í nútíma þjóðfélaginu“. En einbeittur og vaxandi um- bótaflokkur eins og Framsóknarflokkurinn á ekki „heima í nútímaþjóðfélagi“, að dómi Mbl. Hann er íhald- inu nefnileg^i jafn öflugur andstæðingur og hinir flokk- arnir eru hættulausir. Sjálfstæðisflokkurinn er nú búinn að stjórna landinu í samfleytt átta ár. Ríkisstjórn hans hefur haft betri starfsskilyrði en nokkur ríkisstjórn áður, þar sem góð- æri hefur verið meira en nokkru sinni fyrr af völdum hagstæðra aflabragða og hagstæðs afurðaverðs. Þó verða forkólfar flokksins að játa, að þjóðin standi nú á vegamót um velmegunar og vandræða. Sjálft Mbl. verður að játa, að það sé „óskaplegt lánleysi“, að atvinnuvegirnir séu á vonarvöl eftir allt góðærið. Ástæðan er sú, að þeir menn, sem nú ráða í Sjálfstæðisflokknum og ríkisstjórninni, kunna ekki að stjórna. Hugur þeirra hefur verið bund- inn við það að hlynna að vissum gæðingum og hanga í ráðherrasætunum meðan stjórnarskútan hefur hrakizt fyrir sjó og vindi. Þessa hörmulegu stjórnarsiglingu reyna þeir svo helst að afsaka með því, að landið sé lélegt, þjóðin fámenn, atvinnuvegirnir fábreyttir og að ekki sé hægt að notast við bátskænu eins og ísland sé, heldur verði að stefna að því að komast um borð í eitthvert stóru hafskipanna, þ. e. stóru ríkjabandalögin Þeim fjölgar nú óðum, sem skilja það, að voðinn er vís, ef þannig verður stjórnað áfram. Undir þróttlausri og stefnulítilli forustu Bjarna Benediktssonar og manna hans verður aðeins haldið lengra út í vandræðin. Það þarf nýja stefnu og nýja menn. Það þarf menn, sem taka á málunum. ári þess.að vera ofbundnir af stéttarhagsmun um og sérhagsmunasjónarmiðum. Það þarf menn, sem trúa á þjóðina og landið og eru óháðir erlendum stefn- um og sjónarmiðum Aðeins með því að efla Framsóknar flokkinn getur orðið hér á einhver brevting til batnaðar. Þessvegna æpir Mbl nú enn einu sinni hið gamla víg- orð sitt: Framsóknarflokkurinn á ekki heima í nútíma- þjóðfélagi. Það sér ,hvert straumurinn liggur, hvert hin vaxandi tiltrú beinist- Því meira, sem málgadn þeirra. sem ekki geta stjórnað, hrópar þannig, því fieiri verða þeir, / sem skipa sér um Framsóknarflokkinn. TÍMINN Walter Lippmann ritar um alþjóðamál: Friðarviöleitni II Thants mun skýra afstöðu Bandaríkjanna Friður getur ekki ríkt í Vietnam án tilslakana MjBGINSTYRKUR U Thants er fólginn í gerð hans sjálfs. Hann er andlega sinnaður mað ur í glímu sinni við hinn hrjúfa veruleika heimsins. Hann sóttist ekki eftir endur- kjöri af því að honum fyndist hann endilega þurfa að vera fra-mkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Hann hefði ekki orðið iðjulaus og í vandræðum með, hvað hann ætti af sjálf- uin sér að gera, þó að honum hefði verið leyft að láta af störfum. Og hann hefði ekki vérið sífellt að óska sér, að hann væri aftur setztu-r í sitt gamla embætti. U Thant varð ómissandi fyr- ir Sameinuðu þjóðirnar ein- mitt vegna þess, að starf fram- kvæmdastjóran-s var hon-um sjálfum enga-n veginn ómiss- andi, þrátt fyrir hinn mikla virðingarauka, valdið og^ ha-gn- aðinn, sem því fylgir. Áhuga- leysi hans sjálfs á þessu öl-lu hefur einm-itt gert aðstöðu hans mjög sterka. Hann gat brugð- izt við eins og sá, sem ekkert hafði að óttast, af því að hann hafði hvorki ágirnd á að öðl- ast neitt sérstakt, né var ófús að sleppa a-f nokkru því, sem hann hafði með höndum. Vegna þess-a naut hann trausts ríkisstjóma allra landa og eng inn snerist gegn honum, þar sem vitað var, að hann hafði engan krók að mata. TIL mikil-lar uppörvun-ar var að endurkjörið s-kyldi vera ein róma. Það san-nar alveg ótvírætt, að sérhvert aðildar- rí-ki samtakanna vildi halda h-alda þei-m við lýði og tók varðveizlu þeirra fram yfir öll önnur sjónarmið. Við vi-tu-m, hve sundrungin meða-1 hinna ýmsu þjóða heims er ríðtæk og djúpstæð. Ágrein ingurinn snýst ekki einungis u-m hugsjónalegan eða þjóð- fræðilegan mun hinna ýmsu þjil'rí, heldu-r og um tilgan-g, vald og mátt Sameinuðu þjóð- ann-a sjá-lfra. Þrátt fyrir þetta tóku fulltrúar aðildarríkjanna þann kost, að -greiða samhljóða atkvæði til þess að firra vand- ræðum, þegar þeir sáu fram á íí-kur fyrir eyðileggingu sam- ta'kanna sjálfra, þar sem vitað var með vissu, að ekki gat orð- ið samstaða um fulltrúa neins ákveðins hóps í stað U Thants. Skilyrðin, sem U Thant setti fyrir endurkjöri, eru í eðli sínu þess efnis, að aðildarrík- i-n fallist á, að hann 't-aki virk- an þátt í leitinni að friði. Nán- ar til tekið táknar þetta fyrst og fre-mst, að honu-m er veitt umboð til virkrar þátttö'ku í friðarumleitununum í Vietnam eins og hann tók greinilega fram sjá-l-fur í ræðunni, sem hann flutti, þegar hann féllst á að halda starfi sínu áfrarn. <*% rl ' FORVITNILEGT vefður að sjá, hvernig forseti Bandaríkj- anna og Rusk utanríkisráð- herra skilja þetta umboð Sam- einuðu þjóðanna og bregðast U Thant við því. Goldberg fulltrúi Bandar-lkjahná st-uddi þetta um b-oð cjndregið, og fprsetinn hef- ur rætt um ehdurkjörið ög heitið U Thant stuðningi. Eigi að síður koma þarna þegar í upphafi til álita fétt- mæti þeirrar opinberu staðhæf ingu okkar, að ófriðurinn haldi áfram fyrir þær sakir ein ar, að valdhafarnir í Hanoi fá- ist ekki til að setjast að samn- ingaborði. Sé með rétt mál far- ið í hinum opinbér-u viðtölum, sem U Thant hefur sjálfur átt við ýmsa, — þar á meðal við- talið við E-mmet John Hughés í News Week, — er einfald- lega ósatt, að v-aldhafarnir í Hanoi hafi sífellt neitað að ræða um frið. IIo Ohi Minh var reiðubúinn að hefja u-mræð ur árið 1964, áður e-n loftárá-s- irnar á Norður-Vietnam hófust. Sú staðreynd verður hins vegar- ekki dregin í efa, að þá v-a-r Rusk utanríkisráðherra andstæður viðræðum. Þessu var ekki aðeins þannig varíð með- an á kosningabaráttunni stóð árið 1964, heldur og nokkuð fram á árið 1965 eftir að loft- árásirnar voru hafnar á Norð- ur-Vietnam, eða allt fram und- Johnson ir það að forsetinn flutti ræð- una í Baltimore í apríl það ár. í ÞESSARI ræðu skuldbatt forsetinn sig í fyrsta sinni til viðræðna um friðarsamnin-ga. Allt til þeirrar stundar var þannig á málin litið í ut-an- ríkisráðuneytinu, — og jafnvel ei-nnig í Hvíta húsinu, — að ráðleggingar um viðræður og samningau-mleitanir jaðraði við skemmdarverk. Ég minnist þess til d-æmis sé-rstaklega, að daginn áðu-r en Baltimore-ræð an var flutt var mér tjáð, að við vild-um ekki vopn-ahlé vegna þess, hvað hernaðarað- staða okkar værí slæm. Hi-n opinberlega andstaða gegn samningauml-eitunum um þetta leyti er umdeilanlegt at- riði. Ví-st er alltaf óþægilegt að þurfa að eiga í samninga- viðræðum, þegar hernaðarað- staðan er mjög veik. En ég álít eigi að síður, að andstaðan gegn s-amn-ingaviðræðum hafi verið röng vegna þess, að ég tel hernaðarafskipti okkar í Vietnam misreikning frá upp- hafi, en ekki vörn brýnna, bandarískra hagsmuna. En enda þótt gild ástæða h-afi verið t-il að hafna samn- ingaumleitunum á sinni tíð, þá getur ríkisstjórnin ekki bæði sleppt og haldið eins og nú er komið. Hún getur e-kki geng ið fram sem sakleysingi, hvoríci fyrir ba-ndarísku þjóðina né um umheiminn, og látizt ekkert vilja fremur en viðræður og vopnaihlé, og .samtímis fært í sífellu út kvíar s-tríðsins til þess að keppa að hernaðarlegri lausn. HIÐ liðna hviíir allþungt á samtímanum og verður erfitt viðfangs. Ho Chi Minh verður þess lengi minnugur, að ti'lb-oð hans um viðræður var lengi vel látið sem vindur um eyru þjóta, en ha-fnað að síð- ustu rétt áður en lo-ftárásir vor-u hafnar á land hans. Ilætt er við, að þeir fulltrúar að- ild-arríkja Sameinuðu þjóðanna sem kunnugt er um viðleitni U Thants, verði seinir til að fulltreysta einlægni bandarísku rí'kis-stjórnarinnar á ný og trúa á fölskvalausan friðarvilja hennar. U Thant verður eigi að síð- ur að h-alda ótrauður áfram. Hann hefur nýtt, skýlaust um- boð til að halda áfram og satt að segja er mjög í þágu Banda ríkjaforseta að hann slái ekki slöku við. Ef við gerum ráð fyrir að forsetinn vilji að ófriðinum ljúki með sæmd, og ef við göngum út frá því, að ekki beri að auka styrjöldina og útbreiða takmarkalaust, þá hlýtur að verða að slak-a til ei-n-hvers staðar. Þá mun koma ótvírætt í ljós, hve óralangt við erum frá hernaðrriegum sig-ri. Og telja má fullvíst, að forsetinn eigi ekki kost á öðru æskilegra eða betra en gang-ast inn á nauðsynlegar til s-lakanir í vernd og skjóli Sam- einuðu þjóðanna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.