Tíminn - 22.12.1966, Blaðsíða 10

Tíminn - 22.12.1966, Blaðsíða 10
10 TÍMINN FIMMTUDAGUR 22. desember 1966 MINNING Krístín £ Siguriardóttir frá Hrísum Fædd 9. 10. 1894. Dáin 29. 8. 1966. Við minni Gnundanfjarðar, að TOstanverðu rís fjall eitt eigi all faátt er St'öðin nefnist. Nefndu hin ir dönsku landmtelingamenn það líkkisfcuna, vegna hinnar sérkenni 'legu lögunar sinnar. Skammt aust- an þar er Búlandshöfði skagar í sjó fram, þar er lón eitt mikið eða vaðall, er Lárvaðall heitir. Um(hverfis Lárvaðal voru allmörg býli, sem nú eru að vísu flest komin í eyði. Öldum saman var sfcundaður sjór frá Lárós, sem er fast við rætur Stöðvarinnar. Sandrif það, sem er milli Lóns og hafs, nefnist Víkur- rif. Að vestanverðu við Lárvaðal við rætur grasigróinnar fjallshlið- ar, stendur bærinn Látravík. Fal legt er og sérkennilegt á þessum slóðum sem víðar í Eyrarsveit, einkum þá um háflóð í fögru veðri er sólin gillir flöt Lárvaðals, en grasigrónar hlíðar fjallanna á hlið- ar fcvær. Um f jöru var sléttur saiid botn Lá'rvaðals hinn ákjósanleg- asti skeiðvöllur, og lá þar um al- faraleið. í Lótravík var jafnan tvíbýli, í yfcri Látravík, var Kristín fædd, i hún var dóttir hjónanna Kristjönu Helgadóttur og Sigurð- ar Jónssonar, bónda þar. Ólst Kristín upp í myndarlegum systk- inahóp. Var oft gestkvæmt í Látravík og mun þar oft hafa ver- ið glatt á hjalla. Meðfram strönd- inni undir Búlandshöfða og aust- an við Lárós, var allmikil beitu- tekja, en sem kunnugt er var skel- fiskur að mestu notaður sem beita á þeim árum. Sótfcu sjómenn úr nærliggjandi verstöðvum beitu sína að mjög verulegu leyti á þess ar fjörur, vonu beitifjöruferðir þessar all vosmikil og erfið vinna, var það mjög algengt að beiti- fjörumenn sem svo voru kallaðir, þáðu næturgreiða á nærliggj- andi bæjum, var því oft komið í Látravík, og rnunu þeir margir sjómennirnir er kaldir og hrakt- ir komu þangað og fengu þar hinn bezta beina hjá hinum gest- risnu húshœnduim. Hefur þar eflaust oft verið þröngt á þingi, en hér sannaðist sem fyrr að þar sem er hjarta- rúm þar er húsrúm. KrisMn hafði því stax í æsku mifcil kynni af Hfi og starfi sjómannanna og ef til vill hefir það sem á hennar æskuheknili þótti svo eðlilegt að taka vel á móti þreyttum og hrökt um sjómanni úr beitufjörunni, átt þátt í að móta hennar kærleiks- rfku fórnarfund. Kristín var fríð sfcúlka og fíngerð, mild og Ijúf að eðlisfari, kát og glöð í vinahóp, en þó í innsta eðli sínu fremur hlédræg og ógjamt að ræða sín mál, við aðra en sína nánustu. Hún hafði prúða og fágaða fram- Ikomu, og yffir henni var ávallt sá æskuþokki er hún hélt allt líf- ið út. Ung að aldri gifftist hún Stefáni Jónssyni frá Hrísum í Fróðár- hreppi, var Steffán talinn einn hinn mannvænlegasti og gjörvileg- asti maður þar um slóðir. Byrj- uðu þau búskap í Hrfsum á æsku- heimili Stefáns^ en fluttu eftir stuttan tíma til Ólafsvíkur, er Stef 6n gerðist verzlunarstjóri þar, 6ttu þau þar heima í tvö ár unz hann lét aff isfcarffi sínu þar og fXuttu þau þá til Reykjavíkur, þar sem þain-dvöldu um eins árs skeið, fluifctu .þau þá að HMsum aftur. Mutí þa® hafa verið um 1920, og hsr biuggu bau þangað til rétt eftir 1950, að þau flytja til Grund- arfjarðar. Þau eignuðust 11 börn 5 syni og 6 dætur, næst elzti son ur þeirra drukknaði er hann var 19 ára að aldri, var hann rnesti efnispiltur og öTlum kunnugum harmdauði, má nærri geta því líkt áfall það hefur verið foreldrunum, þó svo harmur væri borinn í hljóði. Hin sysfckinin sem lifa eru öll gift og búsett, eru þau hið mesta myndar- og dugnaðarfólk. sem sýndu foreidrum sínum mikla ræktarsemi. Á þeim árum, er hinn stóri barnahópur Kristín- ar, var í bernsku, þekktuist fá af þeim lífsþægindum sem nú þykja ómissandi. Á hverju heimili var þá á verstu árum heimskreppunn- ar, sannarlega ekki létt verk að sjá farborða svo stórri fjölskyldu, og starf húsmóðuiinnar sem var oiftast ein með sinn stóra barna- hóp var þrotlaust erfiði, en þau hjónin voru samhent í því að koma sínum börnum til manns, og voru gædd óbilandi baráttu- vilja og dugnaði sem var og er ennþá aðalsmerki íslenzks alþýðu- fólks. Það var líísstarf Kristinar að verða sjómannakona, þó mað- ur hennar stundaði önnur störf jafnframt, var sjósókn hans aðal- atvinna, var hann jafnan formað- ur á eigin bát og verkaði aflann sjálfur. Fóru synir þeirra að stunda sjó inn með föður sínum jafnskjótt og þeir komust á legg. Jafnframt sjósókninni var stundaður búsfcap- ur sem víða var algengt á þeim árum, þar sem aðstaða var til þess. Ennfremur stjórnaði Stefán pönt- unarfé'lagi áratugum saman, og hafði það löngum alinokkur við- skipti. Oddviti sveitar sinnar var hann lengst af sínum búskap þar, svo æði margir áttu þangað erindi enda gestakomur tíðar. Svo mikill kappsmaður var Stefán að oft framan af búskap þeirra reri hann einn á bát og aflaði þá oft vel, en ærið áhyggjuefni hefir það ver ið hans góðu eiginkonu að vita af honum einum á sjónum á lít- jlli bátskel befur það löngum ver- ið hið erfiða hlutskipti sjómanns- konunnar, að bíða milli vonar og ótta eftir heimkomu ástvina sinna af sjónum, þó lífsstarf Kristínar væri að sjálfsögðu erfitt sem margra alþýðukvenna á þeim árum mátti hún kallast gæfukona. Hún eignaðist hraustan og dugandi mann, sem aldrei brást né' bug- aðist-og stóð ætíð fyrir sínu, hún eignaðist hraust og mannvænleg börn sem öll reyndust henni góð og öll urðu nýtir borgarar, og vakti sá myndarlegi hópur atihygli 'hvar sem þau fóm er þau voru í æsku. Ilún átti jafnan gott heimili þar sem glaðværð æskunn- ar var oft ríkjandi. Henni var eðlilegt að umgangast börn og annast þau, þeim fórnaði hún tíma sínum og kröftum með því æðruleysi sem einkennir þær kon- ur, sem eru í innsta eðli sínu fædd ar mæður. Er heilsu manns henn- ar fór að hnigna, fluttu þau til Grundarfjarðar, sem fyrr segir, en þá var sonur þeirra forstjóri fyrir frystihúsinu þar á staðnum. Stund aði Sfcefán þar vinnu unz hann var algjörlega þrotinn heilsu og fcröftum, fluttu þau þá til Reykja- vífcur í ársbyrjun 1964, og andað- ist Stefán á sjúkraihúsi þar í bæ, fáum vikum síðar. Manni sínum hjúkraði Kristín af nákvæmni í veikindum hans þar til yffir lauk, en þar syðra átti hún heima þann tíma er hún átti óliifað. Kristín andaðist eftir stutta legu á sjúkra húsi í Reykjavík, var hún jarð- sett í Fossvogskirkjugarði við hlið manns síns, sem hún hafði ung bundizt þeirri tryggð við, sem aldrei brást, börn hennar geyma minninguna um ljúfa og elsku- lega móður og við samferðamenn- irnir minnumst við fráfall hennar hinnar mildu og fórnfúsu konu með þökk fyrir hennar mikla og göfuga lífsstarf. Sveitungi. KRISTJÁN S. J0NSS0N Ólafsvík Þann 24. okt. 1966, lézt í Ólafs vík, Kristján Sumarliði Jónsson, er þar mieð fallinn frá einn hinna gömlu traustu sjóharpa Óliafsvíkur. Kriistján . Jónsson var fæddur 1. ágúst 1880 í Bárðarbúð á Hellnum Snæfellsnesi. Voru for- 'eldrar hans hjónin Herdís Áma- dóttir og Jón Daníelsson. Faðir Kristjáns drufcknaði er Kristján var aðeins 3ja ára gamaTl. _ Kristján ólst upp hjá Ólafi Ólafsisyni og Kristínu föðursystur sinni í Skjaldartröð, en það heim ili var þá með merkusfcu heim- ilum í Breiðuvíkurhrepp, var það mikið llán fyrir Kristján í fyrstu æsku að lenda á svo góðu heim- ili, þar sem hvorki skorti fæði né klæði. Kristján var ekki hár í lofti er hann varð að byrja að vinna, eins og þá var alsiða á íslandi, var hann farinn að fara á sjó með færi sitt aðeins 11 ára gamall, kom þá strax í ljós á- hugi hans á sjónum. Kristján fluttist til Ólafsvíkur árið 1896, þar sem aðallífsstarf hans hófst fyrir alvöru við sjósókn. Varð hann fljótlega útgerðarmaður eins og það var kallað, á útvegi' Björns og Guðmundar Magnús- sonar hér í Ólafsvík, sótti hann fast sjóinn á þessum árum á ára- bátum oftast sem formaður. Þegar trillubátar komu til Ólafs víkur 1927 til 1928 varð hann formaður á Glað eign Magníisar Jóíannssonar o. fl. Síðar á eigin báfcum, Kristján hætti sjómennsku 1957 eftir rúmXega 60 ára sjó- sókn. Hann var alla sína löngu sjómannstíð öruggur sjómaður og formaður, heppinn og farsæll, veið inn svo af bar, varð aldrei fyrir skakkaföllum á sjó, þótt hann lenti oft í miklum þrekraunum. Hann var árrisull svo af bar oft- ast með þeim fyrstu eða fynstur á sjó og er í land kom með afl- ann, var það ávallt föst venja hans að gefa fisk í soðið. Voni það mörg fátæk heimili þess tíma í Ólafsvík sem nutu góðs af rausn arskap hans og góðvilja, en fisk- urinn var þá aðalliifsbjörg heim- ilanna í sjóplássunum. Kristján kvæntist árið 1902 Láru Elíasdóttur. Byggðu þau sér |bæ sama ár, sem nefndur var j Kristjánshús, þar bjuggu þau all- an sinn búskap og þar fæddust öll börnin þeirra 8 að tölu, fjög- ur dóu ung en tvö um tvítugs- aldur, Lárus og Elsa, sérstafclega mannvænleg og glæsileg ung- menni, varð það þeim hjónum mifcil og sár raun. Á lffi eru tveir synir þeirra Ingólfur, sldp- stjóri, Rvík, kvæntur Aðalheiði Þorsfceinsdóttur og Runólfur bú- settur í Ólafsvík kvæntur Jóhönnu Ögmundsdóttur. Konu sína, Láru, missti Kristján 5. maí 1961. Heimili þeirra hjóna í Kristjáns- húsi var annálað fyrir reglusemi og sérstaka snyrtimennsku, þar var allt hreint og fágað úti og inni. Þrátt fyrir harða lífsbaráttu þess tíma, var ávallt hlýtt og bjart kring um fúlkið í Krisjáns- ihúsi. Kristján S. Jónsson var þéttur á velli og þéttur í lund, svipur hans var bjartur, góðlegur og traustvekjandi, hann var góður vinur vina sinna. Þrátt fyrir harða glímu við Ægi og oft tvísýna, þrotlaust erfiði við opna báta við hafnlausa strönd, var Kristján S. alltaf jafn hress og glaður, síungur í anda og á- kafur að fylgjast með gangi mála. Hann hafði brennandi áhuga á velferðarmálum Ólafsvíkur, sér- staklega þó hafnarmálum. Bftir >að liann hætti að ganga til vinnu og sat við gluggann sinn, sem sneri niður að sjónum, og hnýtti spyrðu bönd og ábót, var hugur hans allur að fylgjast með bátunum og sfcipum er 'komu og fóru um höfnina og hvernig þokaði áfram hafnargerð. Hann var einn þeirra sjógarpa í Ólafsvík, sem trúði eindregið að í Ólafisvík hlyti að koma varan- leg höfn og hann lifði það að sjá trú sína verða að veruleika. Það var lærdómsríkt og ánægju íegt að sitja heima hjá Kristjáni og ræða við hann um þessi mál, finna þennan eldmóð fyrir fram- tíð byggðarlagsins hjá svona fjör- gömlum manni, þá sterku trií á framsókn góðra mála sem hann trúði á og vildi láta rætast. Hann var glaður eins og barn yfir góð- um framförum í þorpinu sínu, yfir nýrri höfn, glæsilegum og traustum fiskibátum, nýjum fisk- vinnslustöðvum, hann sem hafði lifað á tímum, þegar lífið var efckert nema strit og erfiði við óblíð náttúruöfl á veikum far- kosti, hafnleysu, kúgun og fátækt. Það var gott fyrir Ólafsvík að eiga menn eins og Kristján S. sem hafði svona sterka lífstrú, trú á framtíð byggðariagsins. Síðustu árin var Kristján hjá syni sínum Runólfi og .Jóhönnu konu hans í nýju húsi seni byggt er á lóð gamla bæjarins góða sem stendur enn við hlið hins nýja hvítt og vinalegt. Kristján hafði herbergi ,með glugga er BRIDGESTONE HJÓLBARÐAR Síaukin sala BRIDGESTONE sannar gæðin. Veitir aukið öryggi í akstri. BRIDGESTON E ávallt fyrirliggjandi. GÓÐ ÞJÓNUSTA — Verzlun og viSgerðir. Sími 17-9-84. Gúmmíbarðinn hi, Brautarholti 8, TROLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla . Sendum gegn póstkröfu Guðm. Þorsteinsson, gullsmiSur, Bankastræti 12. JÖN AGNARS FRlMERKJAVERZLUN SíMI 17-5-61 kl. 7.30—8 e.h. sneri niður að höfn, þar sem hann gat fylgzt með öllu athafna- lífi, hann var sáttur við lífið og undi glaður við sitt, fjórir myndar legir synir Runólfs og Jóhönnu voru afa sínum sérstaklega hjart- fólgnir, hann var til hins síðasta styrk stoð fjölskyldna sinna. Krist ján S fébk hægt andlát — Við Ólafsvíkurbúar þökkum honum samferðina. Minning þessa sterk- byggða sjógarps Ólafsvíkur mun lifa. Blessuð sé minning hans. Alexander Stefánsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.