Tíminn - 28.12.1966, Blaðsíða 11
MIÐVTKUDAGUR 28. desember 1966
TÍMINN
Hjónaband
V ,, ■-■- v. -4v:
m
SA LÆRIR SEM LIFIR
■ 'y&XMh
GEORGES SIMENON
Þann 3. des. voru gefin saman i Nes
kirkiu, af séra Jóni Thorarensen,
ungfrú Helga Jósepsdóftir og Gu3-
mundur Jóhannesson. Heimili þeirra
er a3 Grandaveg 39, Rvk.
(Studio Guðmundar, Garðarstræti 8,
simi 20900).
Hinn 3. des. s. I. voru gefin saman
af sr. Gunnari Árnasyni, Engilráð
Margrét Sigurðardóttir og Aðal-
Steinn Jóhann Maríusson, Lang-
holtsvegi 75, Reykjavík.
Orðsending
Frá Kvenfélagasambandi Islands.
Leiðbeiningastöð núsmæðra. Lautás
vegi 2, simi 10205 er opin alla virka
daga kl. 3—5 nema laugardaga
Ráðleggingarstöðin er tii aetmllls
aö Llndargötu 9 2 dæð Vtðtaisttmi
prestf er á þriðjudögum og fösto
dögum kL 5—6 Viðtalstlmi læknts
er á miðvikudögum kl 4—5.
Minningarsjóður Jóns Guðjónssonar
skátaforlngja. Minningarspjöld tást
i bókabúð Olivers Steins og böka-
búð Böðvars, Hafnarfirðl.
Vetrarhjálpin Laufásveg 41
(Farfuglaheimilinu) Simi 10785 Opið
9—12 og —5. Styðjið ost styrkií'
Vetrariuálpina.
— Þykir þér mjög leiðinlegt, að
faðir þinn er í fangelsi?
í stað þess að svara strax neit-
andi, sagði hann ekkert.
— Þykir þér það ekki leiðin-
legt? ,
Maigret leið eins og veiðimanni,
sem skríður áfram af ítrusitu var-
færni. Hann mátti ekki fara of
geyst. Minnsta viðbragð gat hrætt
barnið og þá mundi ekki vera
hægt að fá neitt út úr honum.
— Ertu hamingjusamur yfir að
vera öðruvísi en hinir?
— Hvers vegna skyldi ég vera
öðruvisi en hinir? Hver sagði að
ég væri það?
— Segjum að ég ætti lítinn
dreng, sem færi í skóla og léki
sér á götunni fyrir utan heimili
okkar. Hinir drengirnir mundu
segja:
— Pabhi hans er lögreglufor-
ingi!
Og þess vegna mundu þeir ekki
umgangast hann eins og einn af
þeim. Skilurðu? Nú, faðir þinn
er skólastjóri.
Litti drengurinn leit aftur á
hann, lengur og fastar en áður.
— Mundir þú vilja vera í kórn-
um?
Hann fann að hann var á villi-
götum. Það var erfitt að segja
hvernig hann vissi það. Sumt af
>ví sem hann sagði fékk ósýni-
legan hljómgrunn. Annað virtist
koma Jean-Paul til að leita inn
í skel sína.
— Á Maroel vini?
— Jlá.
— Hvfelast þeir á þegar þeir
eru saman. Segja þeir hvomm öðr-
um leyndarmál og byrja að hlæja
þegar þeir líta á ykkur hina?
Endurminningarnar frá bam-
æsku hans voru svo skýrar í huga
hans, að hann varð hfesa. Hann
hafði aldrei áður séð barnæsku
sína svo Ijóslifandi fyrtr sér, hann
gat jafnvel fundið ilm blómanna
sem blómstruðu f skólagarðinum
á vortn.
— Hefúrðu reynt að vingast við
þá?
— Nei.
— Hvers vegna ekki?
— Ekki af neinu.
— Hélstu að þeir myndu ekki
vilja vinskap þinn?
— Hvers vegna eruð þér að
spyrja mig allra þessara spurn-
inga?
— Af því að faðir þinn er í
fangelsi. Það var ekki hann sem
skaut Lénoie Birard.
Hann horfði fast á drenginn,
en hann deplaði ekki auga.
— Þú veizt vel að hann gerði
það ekki. Einhver annar hlýtur
því að hafa gert það. Viltu að
faðir þinn verði fundinn sekur?
— Nei.
Það hafði verið næstum ógreini-
legt hik, og Maigret ákvað að láta
þetta tal falla niður. Honum hafði
þegar dottið það í hug kvöldið áð-
ur, þegar hann sat í hominu sínu,
að Jean-Poul hefði hom í síðu for-
eldra sinna fyrir að vera öðruvísi
en annað fólk.
Ekki eingöngu vegna þess að
faðir hans var skólastjórinn. Þau
fóm ekki í kirkju. Þau léti hann
ekki klæða sig eins og hina dreng-
ina. Heimili þeirra var heldur ekki
eins og heimili hinna, ekki held-
ur lifnaðarhættir þeirra. Móðir
hans hló aldrei, hún leið um eins
og skuggi, auðmjúk og iðrandi.
Hún hafði gert dálitið ljótt, og
kona hafði skotið á hána til að
refsa henni.
Konan hafði ekki verið sett í
fangelsi, sem sannaði að hún hlaut
að hafa rétt fyrir sér.
En kannski þótti Jean-Paul
vænt um þau þrátt fyrir al’lt. Hann
tilheyrði ættstofni þeirra, hvort
sem honum líkaði það betur eða
verr.
Það var erfitt að koma orðum
að þessu. Þetta voru skuggar
sem hurfu, þegar maður reyndi
að setja þá í orð.
— Ef þú vissir nú eittlhvað, sem
mundi losa föður þinn úr fang-
elsinu . ..
Hann vissi ekki sjálfur eftir
hverju hann var að fiska, og varð
undrandi þegar Jean-Paul lyfti
skyndilega höfðinu og starði á
hann með samblandi af ótta og
aðdáun. Drengurinn opnaði munn
inn og ætlaði að fara að segja
eitthvað, en kyngdi því aftur og
kreppti hnefana í vösunum til að
halda aftur af sjálfum sér.
— Sjáðu til, ég er bara að
reyna að skilja. Ég þekki föður
þinn ekki vel, en ég þykist viss
um að hann er ekki maður sem
lýgur. Hann segist ekki hafa stig-
ið fæti inn í verkfæraskýlið á
þriðjudagsmorgun, og ég trúi hon
um.
Drengurinn var enn í varnar-
stöðu og hélt áfram að horfa á
hann.
— Að hinu leytinu virðist Mar-
cel Seliier vera góður drengur.
Hann fer til skrifta um leið og
hann hefur sagt ósatt, svo að
hann lifi ekki í synd. Hann hefur
enga ástæðu til að reyna að koma
föður þínum í erfiðleika. Hann
er aldrei óréttlátur við hann, satt
að segja lætur hann hann alltaf
vera efstan, þegar það ert þú sem
ættir að vera það.
En Marcel segist hafa séð föð-
ur þinn koma út úr skýlinu.
Það var eins og vatnsbóla brysti
skyndilega á yfirborði stöðuvatns.
Jean-Poul hengdi hausinn og sagði
án þess að líta á Maigret:
— Hann lýgur.
— Ertu alveg viss um það? Það
er ekki bara eitthvað, sem þú held
ur? Þú segir það ekki bara vegna
þess að þú ert afbrýðisamur?
- Ég er ekki afbrýðisamur út
í Marcel.
— Hvers vegna sagðir þú það
ekki áður?
— Hvað?
— Að Marcel væri að ljúga.
— Af því bara!
— Ertu alveg vfes um, að hann
sá föður þinn ekki?
— Já.
— Af hverju ertu svona viss
um það?
Maigret hafði búizt við táraflóði
jafnvel ópum og ólhljóðum, en
augu Jean-Pauls voru alveg þurr
bak við gleraugun. Eina breyting
in var sú, að það hafði slaknað
á líkamstaugum hans. Það var
ekkert ögrandi við hann núna.
Hann var jafnvel ekki í varnar
stöðu lengur.
Eina sýnilega merkið um upp-
gjöf var, að fætur hans urðu
skyndilega óstöðugir og hann sett
ist niður í dálítilli fjarlægð frá
lögregiuf oringj anum.
— Ég sá hann.
— Hvern sástu?
— Marcel.
— Hvar? Hvenær?
— í skólastofunni, standandi
við gluggann.
— Segðu mér nákvæmlega hvað
gerðist.
— Ekkert gerðist. Herra Pied-
bæuf kom til að ná í pabba. Þeir
fóru saman til bæjarstjóraskrif-
stofunnar.
—Sástu þá fara?
— Já. Ég sá þá úr sætinu mínu.
Þeir fóru inn um aðaldyrnar og
strákarnir byrjuðu að ólátast eins
og venjulega.
— Saztu kyrr í sætinu þínu?
— Já.
— Lætur þú aldrei i-lla?
— Nei.
— Hvar var Marcel?
— Hann stóð við fyrsta glugg-
ann til vinstri, þann sem snýr að
leikvellinum og görðunum.
— Hvað var hann að gera?
— Ekkert. Hann horfði bara út.
— Lætur hann heldur ekki illa?
— Ekki oft.
— Stundum?
— Þegar Joséph er líka.
— Sonur slátrarans?
— Já.
Þú sazt í sætinu þínu. Mareel
stóð við gluggann til vinstri. Fað-
ir þinn og herra Piedbæu fvoru
á skrifstofunni. Er það rétt?
— Já. .
— Voru gluggarnir opnir?
— Þeir vomi lokaðir.
— Gaztu samt heyrt hávaðann
frá smiðj-unni?
— Ég held það. Ég er næstum
V.iss. I , , . , ' ' .
— Hvað gerðist?
— Marcel fór frá gluggan-um og
gekk yfir stofuna.
— Hvert var hann að fara?
— Að öðrum glugganum til
hægri.
— Þeim sem snýr út að bak-
garði Léonie Birard?
— Já.
— Var faðir þinn ennþá í skrif-
stofunn?
— Já.
— Sagði Marcel ekkert?
— Nei. Hann horfði út úm
g-luggann.
— Veiztu ekki á hvað hann var
að horfa?
— Ég gat ekki séð það það-
an sem ég sat.
— Horfðir þú oft á Marcel?
— Já, viðurkenndi hann vand-
ræðalega.
í þetta sinn spurði Maigret
hann ekki hvers vegna. Drengirn-
ir tveir voru báðir duglegir í skól-
anum, en vegna þess að Jean-Paul
var son-ur skólastjórans, var Mar-
cel látinn vera efstur. Marcel var
kórdrengur og var í kyrtli á j
sunnudögum. Marcel átti vini,
hann hafði Joseph, s-látrarasoninn ]
sem hann hvfelaðfet á við i hléun-
um og fór heim til þegar skólinn
var búinn.
— Sástu föður þinn koma út úr
skrifstofunni eftir þetta?
— Hann gekk til hússins og fór
inn til að fá sér kaffibolla.
— Var ejdhúsglugginn opin.,?
— Nei. Ég veit að hann fékk
sér kaffibolla. Hann gerir það allt-
af.
— Var móðir þín niðri?
— Uppi í herberginu mínu. Ég
sá hana í gegnum opinn glugg-
ann.
— Fór faðir þinn ekki inn í
verkfærageymsluna eftir það.
— Nei. Hann kom yfir skólalóð
ina og inn í stofuna.
— Stóð Marcel ennþá við glugg
ann til hægri?
— Já.
— Hvers vegna sagðir þú það
I ekki strax?
— Hvenær?
Maigret hikaði andartak til að
hugsa sig um.
— Bíddu við. Lík Léonie Birard
fannst snemma um eftirmiðdag-
inn. Yfirheyrðu þeir ykkur börn-
in ekki strax?
— Þeir yfirheyrðu okkur ekki
neitt þann dag. Við vissum eigin-
lega ekki hvað hafði gerzt. Við
sáum bara fólkið koma og fara.
Svo sáum við lögreglumennina.
Raunar hafði enginn bejnlínis
ásakað skólastjórann á þriðjudag-
inn. Marcel Sellier hafði ekki sagt
neitt, hvorki við foreldra sína né
neinn annan. Jean-Paul hafði þv{
enga ástæðu til að andmæla hon-
um, né tækifæri til að gera það.
— Varstu viðstaddur þegar þeir
yfinheyrðu Marcel daginn eftir?
— Nei. Þeir sendu eftir einum
ÚTVARPIÐ
Miðvikudagur 28. desember
7.00 Morgunútvarp 12.00 Há-
degisútvarp 13.15 Við vinnuna.
14.4C Við. sem heima sitjum.
Hersteinn
Pálsson
byrjar lestur
sögunnar „Logans aýra* eitir
ielmu Lagerlöf (1) 15.00 Mið
iegisútvarp 16.00 Síðdegisút-
^varp 16.40 SÖgur og söngur.
Suðrún Birnif stj þætti fyrir
• yngstu hlustendurna. 17 00
Fréttir. Jólatónleikar yngstu
hlustendanna. i8.0<* Tilkynnmg
ar. 18.55 Dagskrá kvöldsins og
veðurfregnir 19.00 Fréttir 19.
20 Tilkynningar 19 30 Daglegt
mál 19.35 Maðurinn með lukt-
ina Séra Páli Þorleifsson tyrr
im prófastur flytui erindi. 20.
30 íslenzk tónlis* 20.20 Þioð
;íf Ólafur Ragnar Grimsson stj.
bættinum. sem fjailar um leik
húslíf 21.00 Fréttu og veður
tregnir. 21.30 Einsöi.gur í ton
-eikasal: Danska söngkonan
Else Paaske syngur. 22.00
Kvöldsagan: „Jólastjarnan“
sftir Peari S. Puek 22.20 D.iass
báttur. Ól. Stephensen kynnir
23-20 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 29. desember
7.00 Morgunútv. 12 00 Hádeg-
sútvarp 13.15 Á frívaktinni Ey
iís Eyþórsdóttir stj 14.40 Við,
sem beima sitjun" 15 00 Mið
degisút-
varp 16.00
Síðaegis-
útvarp 16.40 Tónlistartími barn
anna 17.00 Fréttir Jólatónieik
ar fyrir unga fólkið .18.00 Til
Kynningar 18 55 Dagskrá kvölds
ms og veðurfregnii 19.00 Frert
•f 19.20 Tilkynningar 19.30 Dag
ægt mái 19.35 Sfs* á Bausi,
20.05 Einsöngur 20.30 Ú*varps
sagan: .Trúðarnir*’ Magnús
Kjartanssor ritstjór les (7)
21.00 Fréttir og -'eðurfregnir
21.30 „Góuheitlar** Kristín
Anni, Þórarinsdóttir leikkona
les út Ijóðabók eftir Sigurð Vil
ajálmsson 21.45 Mozart tón-
eikai Sinfóniuhljomsveitar ís-
ands í Háskólahíói 22 25 Póst
lólí 12( Guðm lónsson les
oréí frá hlustenduir os svarar
oeim. 22.45 Píanomúsík 22 55
Fréttir i stuttu máli Að tafli
Sveinn Kristinsson flytur skak
oátt 23 35 Dagskrárlok.