Tíminn - 28.12.1966, Blaðsíða 13
ÍÞRÓTTIR
MTOVIKUDAGUR 28. deðSs^sr 1966
TÍMINN
■fHlWilil
13
ÞÓRÓLFUR BECK gerist at-
vinnuleikmaður í Fra kklandi
- hefur gert hálfsárs samning við 1. deildarliðið Rouen FC. - Tvö skozk 1. deildarlið hafa áhuga á að fá
Þórólf og einnig tvö bandarísk félög. - Þórólfur á að vera mættur í æfingabúðir Rouen 2. janúar n.k.
Alf-Reykjavík. — Þórólfur
Beck hefur undirritað samn-
ing um að gerast atvinnuleik-
maður með franska 1. deildar
liðinu Rouen. Er hér um að
ræða hálís árs samning. Með
þessu er Þórólfur laus frá
Glasgow Rangers en þar hef-
ur hann unað hag sínum illa
síðustu mánuði. í símtali, sem
íþróttasíðan átti við Þórólf í
Glasgow síðdegis í gær, sagð
ist hann ekki hafa viljað undir
rita samning fyrir lengra fíma
bil, því að fjögur önnur félög,
tvö skozk 1. deildarlið og tvö
bandarísk lið, hafi áhuga á
að fá sig. Sagðist Þórólfur
vilja kynnast franskri knatt-
spymu og Frakklandi, áður en
bann tæki ákvörðun um það
að setjast að í Frakklandi til
langframa.
•FTms og kunnugt er, þá er
tengt síðan Þórólfur lét uppi
óskir um það við forráðamenn
Gflasgow Rangers, að hann
vildi losna frá félaginu, en
þessum óskum hans hefur
ekki verið sinnt fyrr en nú, er
hið franska félag Rouen gerði
Rangers ákveðið tilboð.
Skyndiför Þórólfs til Frakk-
lands.
Þórólfur fór til Frakklands
21. desember ásamt tveimur
sendimönnum frá Rouen.
Komu þeir gagngert til Glasg-
þennan sama dag til að ræða
við Þórólf. Lauk þeim viðskipt
am svo, að tveimur klukkutím
um síðar var hann kominn um
borð í flugvél áleiðis til Frakk
ands. í viðtalinu við Tímann
í gær, sagðist Þórólfi hafa lit-
izt vel' á sig í Rouen, sem er
skammt frá París. FC Rouen
sr í 1. deildinni frönsku og er
um þessar mundir í 12. sæti í
deildinni, en alls eru 20 lið
i 1. deild í Frakjdandi.
Eftir að hafa skoðað sig um
í Rouen, mun Þórólfur hafa
gert samning við forráðamenn
Rouen. Hélt hann síðan aftur
til Glasg. og kom þangað tím-
anlega til að geta haldið jólin
á skozkri grund.
Hafði sérstakan áhuga á
Rangers-leikmanni.
Aðdragandinn að því, að
Þórólfur fer til Frakklands, er
sá , að einn af forráðamönn-
um Rouen var í viðskiptaer-
indum í Glasgow fyrir
skömmu. Hitti hann þar einn
af forráðamönnum Rangers.
og skýrði frá því, að Rouen
væri á höttum eftir leikmanni
í miðherjastöðu. Myndi Rang
ers hafa slíkan mann? Jú,
Þórólfur var á förum frá Rang
ers. Og upp úr þessu gerðist
það, að Rouen sendi tvo menn
til Glasgow til viðræðna við
Þórólf, eins og fyrr segir. Um
samninginn hafði' Þórólfur
það að segja, að hann hefði
ekki viljað semja til lengri
tíma en hálfs árs, þar sem tvö
skozk 1. deildarlið hefðui
áhuga á að fá sig og einnig tvö
bandarísk lið, og gæti hann
því snúið sér til þeirra, ef hon
um líkaði ekki í Frakklandi.
Ekki vildi Þórólfur gefa upp
að sinni, hvaða skozk lið vilja
fá hann til sín.
Fram vann Hauka 26:14
- og FH-ingar burstuðu Ármann 30:13
Alf-Reykj avík. — Tveir leikir
fóru fram í 1. deild í handknatt-
leik í gærkvöldi. Af þessum tveim-
ur leikjum var leibur Fram og
Hauka einkum undir smásjá. Hauk
ar voru óskrifað blað, því að
þetta var fyrsti leikur þeirra á
keppnistímabilinu. Haukar veittu
Fram harða mótspyrnu undir lok
fyrri hálfleiks, en í síðari hálf-
leik réði Fram lögurq og lofum
og sigraði með 12 marka mun,
26:14. — Eins og vænta mátti
urðu Ármenningar auðveld bráð
FH í síðari leiknum og sigraði
FH með 30:13.
Eftir leikina í gærkvöld er Ijóst,
að það verða fyrst og fremst
Frarn og FH, sem munu berjast
um íslandsmeistaratignina. Fram
sýndi oft skínandi góðan leik
gegn Haukum, sérstaklega 20
fyrstu mínútur leiksins, en þá
tókst Fram nær eingöngu með
hnitmiðuðu línuspili að skora 7
mörk gegn 1. Á þessu tímabili var
vömin þétt, og það sem skipti
kannski mestu máli var það, að
Þorsteinn í markinu varði
þá bolta, sem vörnin missti inn
fyrir sig. Með þessu var varnar-
leikurinn pottþéttur. En síðustu
10 mín. af hálfleiknum komst los
í vörnina og tókst Haukum að
minnka bilið niður í tvö mörk fyr
ir hálfleik, 9:7.
f síðari hálfleik var Fram alls
ráðandi. Ingólfur og Gunnlaugur,
skærustu stjörnur Fram, skoruðu
aftur og aftur án þess, að Haukar
svöruðu. Var staðan fljótlega 16:7.
Og þá var ljóst, hver úrslit-
in myndu verða.
Þetta var einn bezti leikur
Fram það sem af er keppnistíma-
bilsins. Sóknarleikurinn var beitt
ur og fjölbreytilegur, og vörnin
í betra lagi. Þá sýndi Þorsteinn
einn sinn bezta leik í markinu.
Mörkin skoruðu: Gunnlaugur 9,
Ingólfur 5, Sig. E. 4, Gylfi 3,
Framhald á bls. 15.
Þórólfur Beek
— til Frakklands.
Á að vera mættur í æfinga-
búðum Roueh 2. ianúar.
„Eg hafði ætlað mér að
koma heim til íslands um jól-
in, en úr því gat ekki orðið-
Ég á nefnilega að vera mætt-
ur í æfingabúð.um Rouen 2.
janúar, og þarf að ljúka ýms-
um viðskiptum hér í Skotlandi
áður. Tíminn er svo naumur,
að ég sá mér ekki fært að
skreppa heim, þótt vissulega
hefði verið gaman að eyða jól
unum á íslandi,“ sagði Þórólf
ur að lokum. Hann bað fyrir
kveðjur til vina og kunningja
heima.
Fetar í fótspor Alberts Guð-
mundssonar.
Það eru vissulega góðar
ifrét.tir, að Þórólfur skuli nú
, vera laus frá Rangers, því hon
um líkaði vistin hjá þessu
frægasta knattspyrnufélagi
Skotlands illa, og jafnframt er
gleðilegt, að hann skuli hafa
gert samning við hið franska
félag. Það, að Þórólfur skuli
nú gerast atvinnumaður í
Frakkl. minnir óneitanlega
á feril Alberts Guðmundsson
ar, sem byrjaði sinn feril á
erlendri grund einmitt h.iá
Rangers, en fór yfir til Frakk
lands eftir stutta dvöl hjá
Arsenal. Er ekki að efa, að
Þórólfur verður ísl. knatt-
spyrnu til sæmdar á franskri
grund ekki síður en Albert
Guðmundsson.
Islenzkur dómari dæmir leik
Norðurlanda og Sovétríkjanna
-enginn ísl. leikmaður í úrvalsliði Norðurlanda.
Alf-Reykjavík. — Ákveðið
hefur verið, að íslenzkur knatt-
spyrnudómari dæmi leik á
miUi úrvalsliðs frá Norðurlönd
um og Sovétríkjanna, sem
fram á að fara i Helsinki 20.
júní á næsta ári.
Leikurinn verður liður í há-
tíðailiöldum finnska knatt-
spyrnusambandsins, sem á 60
ára afmæli næsta sumar. Verða
6 finnskir leikmenn í úrvals-
liði Norðurlanda, en hinir
fimm frá Svíþjóð, Danmörku
og Noregi, en enginn íslending
ur verður í liðinu.
Út af1 þessari frétt sneri
íþróttasíðan sér til Björgvins
Schram, forma,nns Knatt-
spyrnusambands íslands, og
spurði hann, hvort búið væri
að ákveða hvaða ísl. dómari
yrðiTátinn dæma leikinn. Sagði
Björgvin; að það væri ekki
ákveðið enn, en myndi verða
gert fljótlega.
* LIVERPOOL
SÆKIR Á
Manch. Utd. heldur enn for-'
ustu í 1. deild eftir jr’aleikina,
þó liðið hlyti aðeins tvö stig í
viðureignumum við Sheff. Utd.
Bæði liðin sigruðu í heimaleikjun
um. Liverpool vann Chelsea í báð-
um leikjum, og Stoke vann Bum-
Iey einnig tvöfalt, og það sem
mest kom á óvart, að Fulham
sigraði einnig í báðum leikjunum
gegn Leicester.
Manch. Utd. hefur 32 stig eft-
ir 23 Ieiki, en Liverpool 30 stig
úr 22 leikjum. Síðan kemur Stoke
með 29 stig, Chelsea og Nottm.
Forest með 28 stig og Leeds
með 27.
f 2. deild eru Úlfarnh- efstir
með 30 stig, Coventry og Black-
burn hafa 29, Ipswich og Millvall
28 STIG.
Framhald á bLs. 15.