Tíminn - 28.12.1966, Side 14

Tíminn - 28.12.1966, Side 14
14 TÍMINW MIÐVIKUDAGUR 28. desember 1966 FRÉTTAÞÆTTIR ÚR HRÚTAFIRÐI Það sem af er vetri hefur viðr- að stirt. Umlhleypingar hafa verið tíðir og þá þetta er ritað er jarð- lag afleitt orðið fyrir sauðfé. Ekki þó fyrir snjóþyngsli heldur sökum áfreða. Þyrfti ekki langvarandi hláku svo nóg jörð yrði til beitar. Vegir eru allir færir og Holtavörðuheiði hef ur til þessa verið greiðfær. Marg- ir munu kvíðnir fyrir, að vetur verði harður nú í ár, enda faið óvægilegar að en oftast áður nú um margra ára skeið í það minnsta. Bændur munu og ver búnir nú að mæta hörðum vetri. Grasspretta var hér afleit s.l. sumar. Tún voru víða kalin í stór- um stíl og spruttu illa þótt ekki væri um kal að ræða. Kenna menn um vorkuldanum svo og hinu, að klaki stóð óvenju djúpt í jörð sökum frostharkna á s. 1. vetri. Nýting varð yfirleitt góð á þeim heyjum er öfluðust enda hag stæð heyskapartíð. Margir bænd- ur hafa keypt hey og meira mun nú pantað af fóðurbæti en oftast áður. Heyfyrningar voru yfirleitt Jitlar á s.l. vori enda vorharðindi í algleymingi. Mun afkoma bænda hér verða að mun lakari í ár en umdanfarið. Vegna fóðurkaupa hef ur verið leitað til Bjargráðasjóðs um lán, en undirtektir þar í dauf- ara lagi. Er borið við fjárþröng og mikilli eftirspurn. Hver verður niðurstaðan mun enn óráðið, en víst er að á miklu veltur fyrir marga að hagstæð lausn fáist. Bú- stofninn mun heldur dragast sam- an en þó meira breytast til sauð- I fjárbúskapar, enda hér yfirleitt góð sauðlönd. Munu hrútfirzkir j bændur hafa orðið vel við kalli I landbúnaðarráðih. um að fækka. kúnum, en eins og kunnugt er, taldi ráðh. að vanda offramleiðslu mjólkur mætti leysa á þann ein- [ falda hátt að hver bóndi leiddi eina kú úr fjósinu til slátrunar. Urðum við Ilrútfirðingar vel og drengilega við tilmælum Ingólfs og skáru'm margar kýr. Ekki mun þó þar öllu hafa ráðið hollustan við þann heiðursmann, heldur mun og elcki síður hafa ráðið hinn rýri heyfengur sem fyrr er á drepið. Á s.l. hausti var alls slátrað hjá Kaupf. Hrútf. á Borð- eyri 13.864 kindum. Voru dilkar léttari nú en þeir hafa verið í mörg ár Losuðu þeir 15 kg. að meðaltali (15.0S kg.). Er það lið- lega 1 kg. léttara en s.l. haust. Þýðir þetta ei.tt eigi litla tekju- rýrnun hjá bændum Þarf því eng an að undra þótt þyngra verði fyrir fæti, þegar við bætist erfitt árferði að öðru leyti, að ógleymd- um stjórnarfarinu, sem fer sizt batnandi, en þar er þ.ó þess að gæta að þar búast fæstir við neinu góðu. En það er nú önnur saga. ! Framkvæmd) voru hér töluverð- ar á s.l. sumri. Þrjú ný íbúðar- I hús voru smíðum og mikið | byggt af útihúsum einkanlega fjár 1 hús og heyhlöður, en einnig nokkr ar vélageymslur. Hefur nú um nokkura ára skeið verið mikið byggt hér beggja megin 1. .ðar. Sá er þetta ritar fór í sumar er leið norður í Skagafjörð. Sýndist ÞAKKARÁVÖRP Ættingjum og vinum þakka ég af alhug gjafir og góðar óskir á 70 ára afmæli mínu. Sömuleiðis innilegustu þakk ir frá konu minni til allra sem heimsóttu hana og glöddu í veikindum hennar er hún dvaldi á sjúkrahúsi um þess- ar mundir. Innilegustu nýárs kveðjur til ykkar allra. \ Árni Einarsson. Beztu þakkir til allra ættingja, vina og vinnufélaga, er tóku þátt í að gleðja mig á 60 ára afmæli mínu þann 25. desember síðastliðinn. Guð blessi ykkur öll. Gleðilegt nýtt ár. Jóhannes Jónsson frá Asparvík, Hvammsgerði 8- Eiginmaöur minn, Skúli Gunnlaugsson bóndi í BræSratungu, andaðist aS heimili sínu að kveldi 26. þ. m. / ValgerSur PálsdótUr. KveSjuathöfn fóstru okkar. Katrínar Þorvarjðardóttur frá Stóru-Sandvík sem lézt þ. 21. þ. m. fer fram frá Fossvogskirkiu, miSvikudaginn 28. þ. m. kl. 15.00. Útförin fer fram ,frá Stokkseyrarkirkiu, fimmtudag ;tt verSur í heimagrafreit. BílferS fnn 29. og hefst kl. 13.00. JarSse verSur frá UmferSamiSstöðinni kl verSur í heimagrafreit. 10.00, firrimtudag, stundvísléga. Systkinin. mér að á þeirri leið gælum við kinnroðalaust borið okkur saman við rómaðri sveit, hvað bygging- ar áhrærir. Vil ég telja að við Hrútfirðingar höfum þar að ein- hverju leyti gjört okkar til að minnka þann líkamslíti, er skáld- ið Jakob Thorarsen og blaðamaö- ur við Lesbók ykkar Tímamanna voru svo smekklegir að telja Hrútafjörðinn vera á fjallkon- unni. Skal ekki lengra farið út í þá sálma, en þetta snakk skálds- ins um Ilrútafjörðinn í fyrr- pefndu viðtali teljum við Ilrút- firðingar þeim félögum báðum til lítils sóma. Eins og áður hefur fram komið í Tímanum voru flestir bæir í Staðarhr. tengdir ríkisrafveitun- um nú nýverið. Aftur á móti eru Bæhreppingar enn ekki orðnir náð arinnar áðnjótandi. Er sá orðróm- ur uppi að þar sé um að kenna hugarfari þeirra í pólitíkinni er vera mun valdhöfunum heldur ó- hagstætt. Að vísu Voru tvö býli í Bæjarhr. tengd inn á sömu linu í vetur en víst er um það, að allt mun enn á nokkurri huldu um framhaldið. Þó hefur heyrzt að Borðeyri fengi rafmagn á næsta ári en þar er þörfin brýn í sam- bandi við rekstur kaupfélagsins. Flestir bændur i hreppnum hafa komið sér upp díselstöðvum en þær eru fyrst og fremst til ljósa. Að vísu er mikið fengið með því að sigrast á myrkrinu en bæði eru stöðvar þessar ótryggar og nokk- uð dýrar í rekstri auk þess sem þær fúllnægja hvergi nærri raf- orkuþörf heimilanna. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að úr þessu rætist og þar með aifsannaður fyrrrnefndur orðróm ur um ástæðu fyrir því að ekki hefur enn fengizt raforka frá Ríkisrafveitunum í Bæjarhr. Ein jörð fór í eyði hér í sveit nú í haust. Var það Grænumýr- artunga og hefði því vart verið spáð fyrir einum áratug eða tveim. Grænumýrartunga er syðst ur bær í Strandasýslu og næst Holtavörðuiheiði að norðan. Þar hlaut margur göngumaður góðan beina í þann tíð er Holtavörðu heiði var farin fótgangandi á öll- um árstímum og mér býr í grun að margur- ferðalangur hefi orðið þar næturgistingu næsta feginn. Má raunar segja að Grænumýr- artunga hafi orðið höfuðból um og eftir 3. tug þessarar aldar, er þar bjuggu hjónin Gunnar Þórðar son og Ingveldur Bjömsdóttir. Var rómuð rausn þeirra hjóna við gesti og gamgandi en gisti- og veitingastað ráku þau um skeið þá bifreiðasamgöngur hófust milli Norður- og Suðurlands. Gekk svo þar til nýr akvegur var byggður yfir Holtavörðuheiði er lá nokk- uð frá bænum. Lagðist þá greiða- sala bar niður að mestu. í , haust fluttu alíarin af jörðinni Ragnar Guðmundsson og kona hans Sig- ríður dóttir þeirra Gunnars og Ingveldar. Jörðir. var auglýst til á búðar en byggðist ekki enda fýs- ir nú fáa til búskapar. Vonandi er þó ekki þar með lokið byggða- sögu Grænumýrarlungu en sem eyðibýli mun hún í margra hug ímynd þeirrar öfug- og óheillaþró unar sem nú á sér víða stað um sveitir landsins. Jónas R. Jónssooi. ÞYFI Framhald af bls. 1. síðan aftur niður á Spítalastíg, þar sem hann fann sporin aftur og gat rakið þau inn á Grundarstíg, suður hann, og niður Hellusund. Á Laufásveginum missti Haraldur aftur af sporunum, en fann þau síðar á gatnamótum Njarðargötu og Laufásvegar, og gat rakið þau í kjallarann að Laufásvegi 60. Gerði hann síðan félögum sínum í lögreglunni viðvart, og fóru þeir þrír saman á staðinn, litu inn um glugga á kjallaraíbúðinni, og sáu þá hvar nokkrir menn voru í her berginu. Er lögreglumennirnir kvölddu dyra varð handagangur mikill í herberginu, og við lög- reglumönnunum blasti heldur ó- hrjáleg íbúð og átta Bretar, sumir undir áhrifum áfengis ,og heldur luralegir að sjá, með hár niður á herðar og illa til hafðir. Gerðu lögreglumennirnir lauslega leit í herbreginu og fundu þá m- a. skó með sama munstri og sporin í snjónum. Rannsóknarlögreglan var kvödd á staðinn og var gerð leit í íbúð inni, og fundust þá hlutir sem stol ið hafði verið frá Kornelíusi á Skólavörðustígnum. Voru hlutir þessir faldir á við og dreif um herbergið sem Bretarnir voru í. Þá fundust einnig 19 karton af sígarettum og 24 pakkar af pípu tóbaki. Þá mun einnig hafa fund ist töluverð upphæð af íslenzkum peningum í bréfpoka ásamt er- lendri mynt. Ekki er fullkannað hve miklu var stolið á Skólavörðu stígnum, en það var mest trúlof unarhringar og hálsmen. Bretarnir átta voru allir hand- teknir í gærmorgun en tveim var sleppt í gærkveldi, þar sem talið var að þeir væru ekki við inn- brotið riðnir. í kvöld var einn af mönnunum, en allir eru þeir um tvítugt, búinn að játa að hafa'brotizt inn, og tveir hafa viðurkennt að hafa farið höndum um þýfið í kjallara herberginu á Laufásveginum. iMunu Bretarnir hafa verið heldur sagnafáir við yfirheyrslurnar hjá rannsóknarlögreglunni í dag. en þar hefur Eggert Bjarnason rann- sóknarlögmaður yfirheyyrt þá. Þeir bjuggu sex saman í kjallar anum á Laufásveginum, og eru fjórir þeirra í gæzluvarðhaldi auk tveggja annarra. Svo virðist sem menn þessir hafi ekki kynnzt fyrr en hér á landi, og þá drifið víða að. T. d. kom einn frá Beirut í Líbanon, annar kom frá Ástralíu og þar fram eftir götunum. Eru þetta greinilega menn á flækingi eftir útlitinu og umganginum í jíbúðinni að dæma. Einhverjir þcirra hafa komið hingað undir því yfirskini að þeir hafi ætlað að kynna sér íslenzku og fiskirækt, en við eftirgrennslan mun hafa komið í ljós að þeir hafa ekki lagt hönd á neitt af þessu ,heldur að- eins komið hingað á flækingi sín um, ekki fyrir tilviljun — heldur vegna þess að, ísland mun vera eitt af fáum löndum í heiminum sem hleypir slíkum lýð, sem þess um, inn að gafli hjá sér. Þetta innbrot leiðir hugann að því að alltaf er eitthvað af þjófn uðum og innbrotum sem ekki upp lýsast ,og er ekki úr vegi að ætla að útlendir flækingar eigi hlut að fleiri innbrotum en þessu. Venju lega komast innbrot og þjófnaðir hér upp vegna þess að hlutirnir sem stolið er, fara í umferð, eða þá að rannsóknarlögreglan þekkir vinnubrögðin við innbrotin. Nú gerist það hinsvegar að ungur og áhugasamur lögreglumaður rekur spor þjófanna af innbrotsstaðnum og í íbúð sem þeir hafa á leigu, og í íbúðinni finnast um 30 hringir frá Komelíusi auk fleiri skart- gripa, og hlutir sem Bretamir hafa ekki ennþá gert grein fyrir, þ. e. sígaretturnar og píputóbakið, hvorttveggja greinilega stolið. Er ekki fráleitt að ætla að þýfið hafi þeir ætlað að selja á erlendri grund, þar sem upruni þess yrði ekki rakinn. Mál þessara náunga hefur þegar verið tekið föstum tökum hjá rann sóknarlögreglunni,- og verður því væntanlega fylgt vel eftir, og þá jafnframt reyntr að komast að því í hvaða erindum þessir rrienn og fleiri slíkir eru að koma hingað til landsins, en áberandi er að mikið er af álíka flækingum í Reykja vík, því þeir eru tíðir gestir á veitingastofum í miðbænum. Bretamir sem handteknir voru, munu ekki hafa verið með atvinnu leyfi, enda mun þess ekki krafist í hlaupavinnu eins og þeirri sem þeir hafa stundað hér. 34573 Dregið hefur verið í happdrætti Krabbameinsfélagsins, og upp kom númerið 34573, en vinning- ! urinn er Ford-bifreið, og má vitja I hennar á skrifstoíu félagsins. Þökkum Innilega alla samúð við andlát og jarðarför, Þórhalls Baldvinssonar Halldór Þórhallsson, Þórunn Meyvantsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Óhemju úrkoma var hér- i Reykjavík aðfaranótt annarsdags jóla og á annan í jólum. Tók mikinn snjó upp, og götur voru illfærar vegna vatnsflaumsins. Hér á myndinni aka tveir jeppabilar um hringinn á Miklatorgi, og gengur vatnið í allar áttir út frá þeim, eins og þeiraki í stórri tjórn. (Tímamynd GE)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.