Alþýðublaðið - 24.04.1982, Síða 1
alþýöu
blaðið
fUi
annarrlannr 9A anrfl 1009
60, tbl. 63. árq.
Vaxtarbroddurinn liggur hjá Alþýðuflokknum
r
I skammarkróknum
Sjá leiðara bls. 3
Félag ungra jafnaðarmanna, Reykjavík:
Reiðubúnir að mæta
íhaldinu í kappræðum
um borgarmálin á
jafnréttisgrundvelli
Félag ungra jafnaðarmanna i
Reykjavik hefur nú svarað
áskorun heimdellinga um að
mæta til kappræðufundar um
borgarmálefnin vegna borgar-
stjórnarkosninganna, sem fram
fara i mai næstkomandi. Tillaga
jafnaðarmanna er sú, að tveir
ræðumenn mæti fyrir hvert fé-
lag, en auk ungra jafnaðar-
manna munu æskulýðsmála-
nefnd Alþýðubandalagsins og
félagi ungra framsóknarmanna
hafa verið boðið á kappræðu-
fundinn. Kristinn H. Grétarsosn
formaðurungra jafnaðarmanna
sagði í gær i viðtali við Alþýðu-
blaðið, að hann teldi eðlilegt að
félögin mættu á jafnréttis-
grundvelli og yrðu tveir ræðu-
menn frá hverju félagi. Ihaldið
hefði hins vegar óskað eftir þvi
að þrir fulltrúar kæmu frá
meirihlutanum i borginni „Við
teljum að fulltrúar okkar eigi að
vera jafnmargir og fulltrúar
hvers hinna félaganna um sig”,
sagði Kristinn. „Annað fyrir-
komulag getum við ekki kallað
jafnréttisgrundvöll”, bætti hann
við.
Bréf ungra jafnaðarmanna til
Heimdallar fer hér orðrétt á
eftir:
Stjórn Félags ungra jafnaðar-
manna i Reykjavik hefur borist
i hendur bréf yðar, dags. 7/4
1982, þar sem greint er frá til-
lögu yðar um kappræðufund um
málefni Reykjavikurborgar
vegna borgarstjórnarkosning-
anna i mai n.k.
Af þessu tilefni vill stjórn
F.U.J. taka fram eftirfarandi:
Félags ungra jafnaðarmanna
er reiðubúið til að mæta fulltrú-
um Heimdallar sem og annarra
unghreyfinga á kappræðufundi
um borgarmálefni. En að sjálf-
sögðu munum við gera það á
jafnréttisgrundvelli, þ.e. okkar
fulltrúar verði jafnmargir og
hvers hinna félaganna um sig.
Gerum við tillögu um, að tveir
ræðumenn mæti fyrir hvert fé-
lag.
Þá bendum við yður á þann
alvarlega misskilning yðar að
lita á flokka eða flokkshluta,
sem hafa samvinnu i borgar-
stjórn og/eða rikisstjórn, sem
einn flokk. Munuð þér vera að
rugla hér saman stjórnarsam-
starfi annars vegar og kosn-
ingabandalagi hins vegar.
Við erum tilbúnir að ræða
frekar dagsetningu og staðsetn-
ingu fundar á þeim grundvelli,
sem að framan greinir.
F.h.stjórnar F.U.J. iReykjavik
Kristinn H. Grétarsson,
form.
Framboðslisti krata á Seyðisfirði
Akveðinn hefur verið fram-
boðslisti Alþýðuflokksins við
bæjarstjórnarkosningarnar á
Seyðisfirði. Listinn er þannig
skipaður:
1. Hallsteinn Friöþjófsson for-
maður Verkamannafél. Fram,
Túngötu 21. 2. Magnús Guö-
mundsson bæjarfulltrúi, Gils-
bakka 32. 3. Helena Lind Birgis-
dóttir húsmóðir, Botnahlið 11. 4.
Valgerður Haröardóttir verka-
maður, Múlavegi 29. 5. Samúel
Ingi Þórisson verkamaður,
Norðurgötu 10. 6. Þorkell Helga-
son verkamaður, Garðarsvegi
16. 7. Asta Þorsteinsdóttir hús-
móðir, Múlavegi 27. 8. Einar
Sigurg eirsson trésmiður,
Hafnargötu 18. 9. Anna María
Haraldsdóttir verslunarmaður,
Miðtúni 9. 10. Oddfriöur Inga-
dóttir nemi, Garöarsvegi 2. 11.
Þorsteinn Arason nemi, Múla-
vegi 27.12. GarðarEymundsson
byggingameistari, Brattahlið 8.
13. Guðrún Katrin Arnadóttir
nemi, Gilsbakka 34. 14. Jón Arni
Guðmundsson, bæjarfulltrúi,
Bjólfsgata 1. 15. Ársæll Ásgeirs-
son verkamaður, Austurvegi 54.
16. Gunnþór Björnsson, fram-
kvæmdastjóri, Firöi 4.
Hallsteinn Friðþjófsson:
Kosningastarfið
að fara af stað
Hallsteinn Friðþjófsson,
formaður verkamannafélags-
ins Fram á Seyðisfirði er
fyrsti maður á iista Alþýðu-
flokksins til bæjarstjórnar-
kosninganna I vor. Hann var
að þvf spurður, hvernig kosn-
ingaundirbúningi miðaði hjá
krötunum þar i bæ.
„Það má segja að viö séum
aö fara af stað. Við opnum hér
kosningaskrifstofu fljótlega og
helstu stefnumálin hafa verið
til umræðu og verða bráðlega
sett fram. Við erum sæmilega
bjartsýnir meö árangurinn i
komandi kosningum, enda
stendur flokkurinn hér nokkuö
vel að vigi.”
Alþýðuflokkurinn hefur þrjá
bæjarfulltrúa af niu á Seyðis-
firði og Hallsteinn Friðþjófs-
son var spurður hvort þeir
kratar ætluðu að bæta við:
„Ætli við stefnum ekki fyrst
og fremst að þvi aö halda
okkar hlut. Jú helst væri gott
ef við gætum aukið fylgi okkar
hér. En það veröur aö koma i
ljós”, sagði hann.
FUi Reykjavík
með fundarherferð:
„Ungt fólk
með
A-lista”
Félagungra jafnaðarmanna
hefu • ákveðið að efna til funda
með ungu fólki i borginni með
frambjóðendum Alþýðu-
flokksins. Er þessi fundarher-
ferð farinn undir slagorðinu,
„ungt fólk með A-lista”.
Fyrsti fundurinn veröi n.k.
fimmtudag klukkan 20.30 og er
ætlaður ungu fólki I Breið-
holtshverfi. Fundarstaður er
Kjöt og fiskur (uppi), Selja-
braut 54.
Þvi næst verður fundað með
ungu fólki i Austurbæ og Ár-
bæjarhverfi og verður sá
fundur miðvikudaginn 5. mai
á Hótel Esju og hefst klukkan
20.30.
Loks verður fundað í Iðnó
mánudaginn 10. mai klukkan
20.30 og er sá fundur fyrir
unga borgarbúa úr vesturbæ,
miðbæ og gamla austurbæn-
um.
Allt ungt fólk er velkomið á
þessa fundi. Alþýðublaðið
mun greina nánar frá fram-
sögumönnum, fundarefni og
öðru viðvikjandi fundum þess-
um, á næstu dögum.
Framboðs-
listiAI-
þýðuflokks-
ins á Sel-
tjarnarnesi
Gengið hefur verið frá
framboðslista Alþýðuflokks-
ins á Seltjarnarnesi fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar I
næsta mánuði. 1 siðustu kosn-
ingum buðu vinstri flokkarnir
fram sameiginlega, en nú
bjóða þeir fram i sitt hverju
lagi.
Listi Alþýðufiokksins er
þannig skipaður:
1. Gunnlaugur Arnason,
Fornuströnd 8, verkstjóri.
2. Erna Þorgeirsdóttir, Mela-
braut 49, bankastarfsmaður.
3. Njáll Ingjaldsson, Vallar-
braut 14, skrifstofustjóri
4. Rose-Marie Christiansen,
Melabraut 43, bankastarfs-
maður
5. Hróðný Pálsdóttir,
Tjarnarstig 1, húsmóðir.
6. Jón Þorsteinsson, Selbraut
5, fyrrv. alþingismaöur.
7. Ólafur Stefánsson, Vallar-
braut 7, lögfræöingur.
8. Agúst Einarsson, Barða-
strönd 29, útgerðarmaður
9. Sigurjón Kristinsson,
Fornuströnd 15, fram-
kvæmdastjóri.
10. Sigurhans Þorbjömsson
Skólabraut 7, vélstjóri.
11. Þorsteinn Halldórsson
Vallarbraut 10 rakara-
meistari.
12. Birgir Berndsen, Látra-
strönd 54, vélstjóri.
13. Guðjón Vigfússon, Mela-
braut 30, skipstjóri.
14. Guðmundur Illugason,
Melabraut 67, fyrrv. hrepps-
stjóri.
Halldór Laxness áttræður í gær
— Sjá blaðsíðu 5
Bjarni P. Magnússon
um niðurstöður
DB-könnunarinnar:
Ákveðin
aðvörun
til okkar
manna
„Niðurstöður DB-könnunar-
innar um fylgi stjórnmálaflokk-
anna vekja svo sannarlega
óhug”,sagði Bjarni P. Magnús-
son, þriðji maður á lista krat-
annaihöfuöborginni i viötali við
Alþýðublaðið I gær. Samkvæmt
könnuninni fær ihaldiö drjúgan
meirihluta og þarf ekki að óttast
minnihlutann mikið næsta kjör-
timabil, ef marka má niður-
stöðurnar.
En eru þær marktækar þessar
niðurstöður?
„Hingaö til hefur DB farið ná-
lægt raunveruleikanum I mörg-
um skoðanakönnunum, þannig
að þaö er fyllsta ástæða til aö
taka þessa könnun alvarlega”,
segir Bjarni P. Magnússon. Að
sjálfsögðu sýnir það einnig
ákveöna tilhneigingu kjósenda
að meirihlutinn i könnuninni
neitar að svara. En við verðum
sem fyrr aötaka þessu sem vis-
bendingu og sú visbending hlýt-
ur að vekja óhug meðal
jafnaðarmanna, sem vilja áhrif
Ihaldsins sem minnst. Það má
einnig heita undarlegt, aö á
sama tima og við horfum upp á
aðdraganda átaka á vinnu-
markaönum, skuli svo stór
hópur fólks vilja binda trúss sitt
við mestu ihaldsöfl landsins.
Bjarni P. Magnússon
Fólk er alls ekki ánægt með
kaup sitt eða kjör eins og yfir-
borganir á vinnumarkaðnum
sýna glögglega. Það er alvar-
legast við þessa könnun, að þeg-
ar þetta er að gerast, þá skuli
verkalýðsflokkarnir tveir koma
svo veikt út og raun ber vitni.”
En þýða þessar niðurstöður,
að meirihlutaflokkarnir hafi
ekki staðið sig sem skyldi eða
hafa þeir að þlnu mati ekki
kynnt almenningi nægilega
störf sín á kjörtimabilinu?
„Ég held, aö fólk telji að
meirihlutaflokkarnir hafi eftir
ástæöum staðið sig vel. Ég er
þess fullviss, að ef fólk heföi
verið spurt t.d.: „Ertu
ánægð(ur) með störf meirihlut-
ans i borginni?” eða „hvorum
treystir þú betur til að stjóma
borginni vinstri mönnum eða
sjálfstæðismönnum, þá hefðu
svör fólks gefiö aðra mynd en þá
sem við höfum fengið I DB nú.
Inn i þessa könnun koma fram
viðhorfin f landsmálabaráttunni
og þau hafa mikiö að segja i
svörum fólks og hvaða flokka
það styður.
Þetta breytir ekki því, sem ég
hef sagt, að ég tel að i þessari
könnun komi
fram ákveðin að-
vörun til okkar
um að við þurf-