Alþýðublaðið - 24.04.1982, Blaðsíða 5
Laugardagur 24. apríl 1982
Skreiðarsendinefndin komin frá Nígeríu:
Samkomuiag tókst ekki
Sendinefnd á vegum viö-
skiptaráðuneytisins, sem skipuö
var Stefáni Gunnlaugssyni,
deildarstjóra útflutningsdeildar
ráöuneytisins, sem var formaö-
ur nefndarinnar, Birni
Tryggvasyni, aöstoöar banka-
stjóra Seölabanka tslands, Ara
Jónssyni, deildarstjóra Lands-
banka islands, Braga Eirfks-
syni, framkvæmdastjóra Sam-
lagi skreiöarframleiöenda,
Magnúsi Friðgeirssyni, söiu-
stjóra sjávarafuröadeildar
Sambands isl. samvinnufélaga,
Bjarna Magnússyni, forstjóra
tslensku umboössölunnar, ólafi
Halldórssyni, framkvæmda-
stjóra, Félags vestfirskra
skreiöarframleiöenda, Jóni Ar-
manni Héöinssyni, sölustjóra
Lýsis h.f., dvaldi f Lagos í Níg-
eriu 18. - 20. þ.m. til þess aö
ræöa um skreiðarmál skv. ósk
viöskiptaráöuneytis Nigeriu.
Nigeria á við mikil efnahags-
vandamál aö etja um þessar
mundir eins og kunnugt er, sem
stafar af verulegum samdrætti i
oliuútflutningi og verðlækkun
oliu, en oliuviðskiptin eru undir-
staða utanrikisviðskipta þeirra.
Meðan nefndin dvaldi i Nig-
eriu var tilkynnt um ráðstafanir
stjórnvalda til þess að mæta
þessum vanda sem felast m.a. i
þvi að innflutningur bifreiða er
bannaður, innflutningshömlur
ýmiss konar settar á annan inn-
flutning til landsins, eins og inn-
borgunargjald, sem var 10% en
hækkar nií I 25% - 250% eftir
vörutegundum. Fyrirhuguðum
fjárfestingar framkvæmdum
verðurfrestað. Vextir hækkaðir
um 2%. Lántökur erlendis tak-
markaðar og verð á bensini inn-
anlands hækkað um 30%.
A fundum nefndarinnar við
stjórnvöld i Nigeriu var óskað
eftir, að íslendingar lækkuðu
söluverð sin viö þessar erfiðu
aðstæður Nigeriumanna, en
samkomulag náðist ekki að
sinni og engar yfirlýsingar voru
gefnar af hálfu Nigeriumanna
um fyrirkomulag skreiðarinn-
flutningsins á komandi mánuð-
um. Þó er vitað að skreiðin
verður háð innflutningsleyfum.
Veiting innflutningsleyfa mun
þó ekki hefjast fyrr en i lok
næsta mánaðar i fyrsta lagi. Að
öðru leyti rikir óvissa um fyrir-
komulag þessara mála, t.d. eins
og um heildarmagn innflutn-
ingsins og skiptingu hans milli
Islands og Noregs.
Óvissa er þannig rikjandi um
mikilvæg atriöi þessara mála. dregið veröi úr skreiðarfram-
Sendinefndin ráðleggur þvi, að leiðslu i bili aö minnsta kosti.
Kosningaskrifstofa
Alþýðuflokksins
í Kópavogi, Hamraborg 7
Verður formlega opnuð laugardaginn 24.
april kl. 17. Stuðningsfólk A-listans vin-
samlegast beðið að mæta við opnunina.
Kosningastjórn.
Vörupallar
Áburðaverksmiðja rikisins óskar eftir til-
boðum i smiði allt að 5000 vörupalla. Til-
boðsgögn eru afhent á skrifstofu verk-
smiðjunnar i Gufunesi. Tilboðum sé skilað
til skrifstofunnar fyrir kl. 11.00 þriðjudag-
inn 18. mai 1982.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna þeim öllum.
ÁBURÐARVERKSMIÐJA RÍKISINS
t/Félag járniðnaðarmanna
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 28. april
1982 kl. 8.30 e.h. að Hótel Esju, 2. hæð.
1. Félagsmál
2. Kosning fuiltrúa á 10. þing M.S.í.
3. Kjaramálin
4. önnur mál
Mætið vel og stundvislega
Grund gefur
stórfé til
Stjórn
Félags járniðnaðarmanna.
Grímseyjarkirkju
Gisli Sigurbjörnsson for-
stjóri afhenti biskupi tslands
herra Pétri Sigurgeirssyni ný-
lega gjöf að upphæð kr. 20.000
til Grimseyjarkirkju og meö
gjöfinni fylgdi eftirfarandi
bréf.
A þessu ári eru sextiu ár lið-
in frá þvi að Elli- og hjúkr-
unarheimilið Grund tók til
starfa.
Séra Sigurbjörn A. Gislason,
einn stofnenda og formaður
stjórnarnefndar til æviloka lét
sér annt um fólkið i Grimsey
og þótti vænt um það.
Meðfylgjandi ávisun er gjöf
til kirkjunnar i Grimsey til
minningar um hann og sam-
starfsmenn.
Með bestu kveöju frá okkur
á Grund til fólksins i Grimsey
og herra biskupsins, sem um
langt árabil var prestur þess.
íslenska kirkjan þakkar
þessa myndarlegu gjöf og
þann hlýhug sem aö baki
liggur. Stjórn Elli- og hjúkr-
unarheimilisins Grundar með
Gisla Sigurbjörnsson i farar-
broddi hefur hlynnt aö mörg-
um góðum málum um langt
skeið og gefið þar fordæmi og
vakið marga til meövitundar
um félagsleg. og kirkjuleg
mál.
Skattstofa Reykjanesumdæmis
Tilboð óskast i innanhússfrágang Skatt-
stofuhúss i Hafnarfirði. Byggingin er nú
tilbúin undir tréverk. í útboðsverkinu er
innifalinn frágangur byggingarinnar að
mestu.
Verkinu skal vera lokið 1. september 1982
Húsið er alls 1330 fermetrar að gólffleti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri gegn 1.000.- kr. skilatryggingu. Til-
boð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
18. mai 1982, kl. 11.00
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Frá Æfingaskóla
Kennaraháskólans
Innritun i forskóladeildir þ.e. 5 og 6 ára
barna fer fram i skólanum mánudaginn
26. ogþriðjudaginn27. april n.k. kl. 13—16.
Skólastjóri
Vinnuskóli
W Hafnarfjarðar
Æskulýðsráð Hafnarfjarðar auglýsir
eftirtalin sumarstörf við Vinnuskóla
Hafnarfjarðar laus til umsóknar.
Flokksstjórn i unglingavinnu.
Leiðbeinendastörf i skólagörðum og
starfsvöllum.
Umsóknarfrestur er til 4. mai n.k.
Umsóknareyðublöð eru afhent i Æsku-
lýðsheimili Hafnarfjarðar mánudag-
föstudags milli kl. 16 og 18
Upplýsingar eru veittar á sama tima i
sima 52893. Starf vinnuskólans hefst 1.
júni n.k.
Æskulýðsráð
HITJANMAMNKS
Kjörskrá
til bæjarstjórnarkosninga, er fram eiga að
fara 22. mai n.k., liggur frammi almenn-
ingi til sýnis á Bæjarskrifstofu Seltjarnar-
ness, Mýrarhúsaskóla eldri, alla virka
daga frá 21. april til 6. mai n.k., þó ekki á
laugardögum.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa
borist skrifstofu bæjarstjóra eigi siðar en
8. mai n.k.
Menn eru hvattir til að kynna sér, hvort
nafn þeirra sé á kjörskránni.
Seltjarnarnesi 16. april 1982
Bæjarstjórinn Seltjarnarnesi.
FJ Utankjörfundar-
atkvæðagreiðsla
vegna sveitastjórna- og sýslunefndakosn-
inga 1982 hefst i Hafnarfirði, Garðakaup-
stað, á Seltjarnarnesi og i Kjósarsýslu,
laugardaginn 24. april 1982 og verður kosið
á eftirtöldum stöðum:
Hafnarfjörður og Garðakaupstaður:
Á bæjarfógetaskrifstofunni, Strandgötu
31, Hafnarfirði, kl. 9.00 — 18.00 Á laugar-
dögum, sunnudögum og á uppstigningar-
dag kl. 14.00 — 18.00.
Seltjarnarnes:
Á skrifstofu bæjarfógeta i Gamla Mýrar-
húsaskólanum, kl. 13.00 —18.00. Á laugar-
dögum, sunnudögum og á uppstigningar-
dag kl. 17.00 — 19.00.
Kjósarsýsla:
Kosið verður hjá hreppstjórum, Sveini
Erlendssyni, Bessastaðahreppi, Sigsteini
Pálssyni, Mosfellshreppi, Páli ólafssyni,
Kjalarneshreppi og Gisla Andréssyni,
Kjósarhreppi.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði,
Garðakaupstað og á Seltjarnarnesi.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.