Alþýðublaðið - 06.05.1982, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 06.05.1982, Blaðsíða 2
Fimmtudagur 6. maí 1982 —RITSJÓRNARGREIN---------------------------- V.S.Í. OG HIÐ „VINVEIHA RÍKISVALD” Það er staðreynd, að f jölskylda sem á að lifa af dagvinnutekjum einnar f yrirvinnu, og á ekki kost á á- kvæðisvinnu, yfirvinnueða yf irborgunum, — slík f jöl- skylda hlýtur að vera rekin með bullandi halla. Þegar þannig stendur á fyrir útflutningsatvinnuvegunum dugar ekki minna en að fella gengi krónunnar, til að rétta við hallann. En bera stjórnvöld, — svo ekki sé talað um hið „vinsamlega" ríkisvald Alþýðubanda- lagsins— nokkra ábyrgð á hallarekstri alþýðuheimil- anna? Vinnuveitendasambandinu og ráðherrum Alþýðu- bandalagsins ber saman um, að ef orðið er við kaup- kröfum A.S.I., muni það aðeins leiða til aukinnar verðbólgu og stofna atvinnuörygginu í hættu. Kaup- hækkanir yfir aila línuna, sem hverfa jafnóðum í verðbólgunni, rétta ekki hlut láglaunafólksins. En hver er þá hlutur hins „vinveitta" rikisvalds Al- þýðubandalagsins? Hvað hyggst það gera til þess að rétta hlut þeirra f jölskyldna, sem ekki geta lengur séð sér f arborða á nöktum hungurtöxtum verkalýðsf élag- anna? Jóhanna Sigurðardóttir alþm. gerði þessar spurningarað umtalsefni í eldhúsdagsumræðu frá Al- þingi og sagði m.a.: „ Ég spyr: Er ekki kominn timi til að hætta að kenna láglaunafólki um allt það sem miður fer vegna rangr- ar efnahagsstefnu stjórnvalda? Vitaskuld er hægt að taka undir að verði ekki breytt um efnahagsstefnu hjá stjórnvöldum — þá stefni í at- vinnuleysi og 100% verðbólgu —en ég mótmæli þvi hér og nú að láglaunafólkið í þessu landi, sem gert er að lifa af launatöxtum upp á 6-8 þús. kr. á mán. og vinna myrkranna á milli i eftirvinnu til að eiga fyrir brýn- ustu nauðþurftum — að þeirra tekjur séu að stefna þessu þjóðfélagi í kaldakol. Þaðer broslegtað heyra atvinnurekendur halda því fram, að ekki sé hægt að leiðrétta laun þessa fólks, þegar upplýst er í kjarakönnun að atvinnurekendur skipta stórum hluta þess sem til skiptanna er undir borðið með yfirborgunum og fríðindum — til þeirra sem betur eru settir — meðan láglaunafólkið situr eft- ir. Verkalýðshreyfingin verður að sameinast um það, og hún má hvergi gefa þar eftir, að kjör þessa fólks verði bætt", — sagði Jóhanna. ,,Hvað hyggst Alþýðubandalag- ið gera i ríkisstjórninni til að rótta hlut þeirra fjölskyldna, sem ekki geta lengur séð sér farborða á nöktum hungurtöxt- um verkalýðsfélaganna?” „Stjórnvöld verða einnig í sínum ákvörðunum að stuðla að afkomutryggingu þessa fólks, gegnum skatta og almannatryggjngakerfið, en við það hafa tillögur Alþýðuf lokksins í efnahagsmálum verið mið- aðar. Eftir því verður tekið, hvað stjórnvöld leggja af mörkum til að leysa þann hnút sem kjaramálin eru í. Af því tilefni spurði Jóhanna f jármálaráðherra: „Væri hæstvirtur f jármálaráðherra, vegna kjara- samninga opinberra starfsmanna,tilbúinn að semja við opinbera starfsmenn á láglaunatöxtum á sömu nótum og hann samdi við lækna?— þ.e. með óbeinum sporzlum og fríðindum, sem hann taldi innan þeirra verðbólgumarkmiða, sem ríkisstjórnin setti sér? Er hæstvirtur f jármálaráðherra tilbúinn að veita láglaunafólkinu hjá B.S.R.B. greiðslur fyrir ómælda yfirvinnu — ökutækjastyrk — sérstaka þóknun fyrir að leiðbeina nýju fólki í starf i og að fylgjast með nýj- ungum í sinni starfsgrein? Er f jármálaráðherra tilbúinn að semja við opinbera starfsmenn á sama grundvelli og við lækna? Eða er Ragnar Arnalds fjármálaráðherra við sama hey- garðshornið og atvinnurekendur, helztu bandamenn rikisstjórnarinnar nú í kjaramálum, að semja um slík fríðindi og sporzlur til hinna betur settu í þjóðfélag- inu?" — spurði Jóhanna að lokum. JBH Frá vinstri: Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,Siguröur E. Frá vinstri: Gissur Slmonarson, Hans Jörgen- Guðmundsson, Jóhannes Guðmundsson, Eggert sen, Bragi Jósepsson og Siguroddur Magnús- G. Þorsteinsson, Björgvin Guðmundsson og son. Anna Kristbjörnsdóttir. Lokafundur Borgarmálaráðs Alþýðuflokksins — á þessu kjörtímabili Siðasti fundur borgarmálaráðs Alþýðuflokksins á þessu kjörtimabili var haldinn i siðustu viku i Gluggasmiðjunni. Borgarmálaráðið hefur starfað ötullega á kjörtimabilinu, en nú hefur kjörin kosn- ingastjórn tekið við og stjórnar baráttunni fram að kjördegi. Meðfylgjandi myndir eru teknar á siðasta fundi borgarmálaráðsins og það er Guðlaugur Tryggvi Karlsson sem á heiðurinn af þeirri myndatöku. Þingmenn krata sátu hjá við afgreiðslu ríkisreiknings: ....veigamikil fjármálaleg Sighvatur Björgvinsson samskipti fyrrverandi iðnaðar- ráðherra Gunnars Thoroddsen og Kröflunefndar áttu sér stað samkvæmt munnlegum ákvörð- unum, án þess að nokkrar skrif- legar heimildir fyrirfyndust.. ráð fyrir þvi, að Alþingi geti verið sá eftirlitsaðili með fjár- reiðum rikisins og stofnana þess, sem nauösyn ber til. Til þess að svo geti orðið þarf að gera breytingar á lögum um þingsköp Alþingis og vinnu- brögðum þingsins eins og þing- menn Alþýðuflokksins hafa margoft bent á og flutt frum- vörp á Alþingi um. Málsmeð- ferð Alþingis á ríkisreikn- ingnum nú er enn ein sönnun þess hve brýnar eru þær breyt- ingar á skipulagi og starfs- háttum Alþingis, sem Alþýðu- flokkurinn hefur barist fyrir. Sú afgreiðsla frv. til sam- Mörgum spurningum ósvaraö um fjármál Kröflunefndar og afskipti fyrrverandi iðnaðarráðherra Þingmenn Alþýðuflokksins sátu hjá við atkvæðagreiðslu um rikisreikning í neðri deild á dögunum. Sighvatur Björgvins- son, formaður þingflokksins, gerði grein fyrir áliti þing- flokksins, en i máli hans komu m.a. fram furðuleg vinnubrögð Gunnars Iboroddsens, fyrrver- andi iðnaðarráðherra I mál- efnum Kröflunefndar. Yfir- skoðunarmenn rlkisreiknings hafa gert margar athugasemdir við reikninginn, en mörgum spurningum er enn ósvarað um þessi mál. Þess má geta aö ásamt þingmönnum Alþýðu- flokksins sat Guðrún Helga- dóttir, einn þingmanna Alþýðu- bandalagsins,einnig hjá við af- greiðslu máisins. Sighvatur Björgvinsson gerði þannig grein fyrirafstöðu þingflokks Alþýðu- flokksins: skrifleg heimild fyrirfinnist. Með sama hætti eru fjölmargar fjármálalegar ráðstafanir Kröflunefndar sjálfrar mjög óvenjulegar svo ekki sé meira sagt og fyrir sumum finnast ekki skrifleg gögn né full- nægjandi fylgiskjöl. Umsagnir yfirskoöunarmanna um þetta atferli eru m.a. á þá lund: að ákvarðanir iðnaöarráð- herra þáverandi stangist á við úrskurði fjármálaráðu- neytisins um hvað heimilt sé (bls. 399 i rikisreikningi), að engir pappirar finnist um ákvörðun launagreiðslna (bls. 399), að upplýsingar iðnaðarráðu- neytisins um þá hluti standist. ekki (bls. 399), þykkis á nkisreikningi fyrir árið 1978, sem nú stendur fyrir dyrum, er formlega séð aðeins samþykkt á þvi, að rikisreikn- ingurinngefirétta mynd af fjár- reiðum rikisinsog stofnana þess á árinu 1978. 1 þeirri afgreiðslu er ekki unnt að taka neina af- stöðu til atriða eins og athuga- semda yfirskoðunarmanna, sem nánast enga umfjöllun eða skoðun hafa fengið á Alþingi. Þingmenn Alþýðuflokksinstelja þessi vinnubrögð ekki viðun- andi, Itreka tillögur sinar um breytta starfstilhögun Alþingis I þá átt m .a. að auka eftirlitshlut- verk þess og leggja áherslu á þá afstööu sina með þvi að hafa ekki afskipti af þeirri af- greiðslu, semhér á að fara fram með þeim hætti sem til er stofnað. „Með rikisreikningi fyrir árið 1978, sem fylgdi frv. þessu.eru óvenjulega margar athuga- semdir yfirskoðunarmanna. Sérstök athygli er vakin á alvarlegum athugasemdum varöandi fjármál Kröfluvirkj- unar.” t svörum ráöuneyta við fyrirspurnum skoöunarmanna kemur i ljós að furðuleg vinnu- brögð hafa verið viðhöfð af hálfu stjómvalda, m.a. þar sem afskipti þáverandi iðnaðarráð- herra, Gunnars Thoroddsens, ganga I berhögg við reglur og fyrirmæli, auk þess sem veiga- mikil fjármálaleg samskipti ráðherrans og Kröflunefndar eiga sér stað skv. munnlegum ákvörðunum, ánþess að nokkur að ekki hafi verið gætt nauðsynlegs aðhalds varð- andi flugfargjöld og leiguflug (bls. 400), aö svör hafi ekki upplýst það, sem um var spurt (bls. 400), að komiö hafi i ljós, að um tvi- greiöslur reikninga vegna út- lagðs kostnaðar væri að ræða I sumum tilvikum (bls. 400), svo nokkur dæmi séu nefiid. Umfjöllun Alþingis um rlkis- reikninginn og athugasemdir með honum eru allsendis ófull- nægjandi, enda skortir á að i starfsskipulagi Alþingis sé gert Frá gri Hafnar Innritun forskólabt arranýrra nemem skólum Hafnarfja: mai n.k. kl. 11. Lokaskráning á flu enda milli skólah1 dag i sima 53444. Fræðsluskrifstofa 1

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.