Alþýðublaðið - 06.05.1982, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 06.05.1982, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 6. maí 1982 3 Jóhanna 1 um skeið. 1 miðstjórn ASt var hún frá 1928—42. Eiginmaður Jóhönnu Egils- dóttur var Ingimundur Einarsson. Hann lést 4. mars 1961. Alþýðublaðið sendir ættingj- um,vinum og öðrum aðstand- endum Jóhönnu Egilsdóttur samUðarkveðjur. Karl Steinar 4 hagsstofnunar. Þessi boðskapur er einskonar ástarjátnlng til Vinnuveitenda sambands ins. N ú er svo komið að helztu stuðn- ingsaðilar rikisstjórnarinnar eru atvinnurekendur og Verslunarróð tslands, sem hvað eftir annað hefur lýst hrifningu sinni vegna afnáms verðlags- ákvæða og hve auðvelt er nú að hækka vöruverö. 1 boðskap Þjóðhagsstofnunar er látið að þvi liggja að ætli rikisstjómin að ná. markmiði sinu og lækka verðbólgu i 35% þurfi grunnlaun að lækka um 5- 6%. Verði kauptöxtum hreyft, verði gengisfelling, að öðrum kosti er hótað atvinnuleysi. Þetta er kveðja Alþýðubanda- lagsráðherranna til verkafólks. Þeir segja i raun að hækki laun verksmiðjukonunnar, sem vinnur á nöktum hungurtöxtum um einn eyri, verði það aftur tekið. Hafið ykkur hæga, — okkur er að mæta. Þessi boðskapur hefði þótt skrýtinn fyrir nokkrum árum. Þá var hægt að notast við Al- þýðubandalagið i verkalýðs- hreyfingunni. NU þykja ráð- herrastólarnir hugsjóninni dýr- mætari. Hvað ætla þeir að gera? Hversvegna rétta þeir ekki lægst launaða fólkinu hjálpar- hönd? Einmitt nU, þegar launamis- munur hefur aukist trölla- skrefum. Þeir riku hafa orðið rikari. Þeir fátæku fátækari undir þeirra stjórn. NU hrópar verkafólk á Urræði. Fær það svar?? Þegar Kennedy heitinn bandarikjaforseti ávarpaði þjóð sina við valdatökuna sagði hann m.a. með leyfi forseta: ,,Ef hið frjálsa samfélag getur ekki hjálpað hinum mörgu fátæku mun það aldrei geta bjargað hinum fáu riku”. Þessu mun hæst virt rikisstjórn ekki takast að hnekkja. Þessvegna ber stefna hennar dauðann i sér. Sókn og sigrar Alþýðu- flokksins 1 hönd fara bæjarstjómar- kosningar. Alþýðuflokkurinn stendur nálefnalega sterkur. Sjálfsforræði sveitarfélaga, ásamt þjóðareign landsins eru höfuðatriði i stefnu okkar er snerta stjórn sveitarfélaga um land allt. Við viljum dreifa valdinu. — Færa það nær fólkinu, — auka ábyrgð fólksins i hinum dreifðu byggðum. Við viljum aö þjóðin eigi landið, gögn þess og gæði N ú er lag til sóknar og sigurs. Al- þýðubandalagið heyr sitt dauðastrið. Framsókn og Sjálf- stæðisflokkur ganga málefna- snauðir til leiks. Ég heiti á jafnaðarmenn um land allt að berjast af einurð og fullvissu sannfæringarinnar fyrir stórum sigri Alþýöuflokks- ins I komandi bæjarstjórnar- kosningum. Sigur Alþýðuflokks- ins er stuðningur við kröfuna um betri lifskjör, atvinnuör- yggi, réttlátara þjóðfélag, — fegurra mannlif. unnskólum fjarðar irna fædd 1976 og ann- la fer fram i grunn- rðar mánudaginn 10. tningi grunnskólanem- yerfa fer fram sama t Móðir okkar, tengdamóðir og amma Jóhanna Egilsdóttir Lynghaga 10 er látin. Guðmundur Ingimundarson Katrin Magnúsdóttir Svava Ingimundardóttir Ingólfur Guðmundsson Vilhelm Ingimundarson Ragnhiidur Pálsdóttir Guðný Illugadóttir Karitas Guðmundsdóttir og barnabörn. Framkvæmdastofnun ríkisins Óskar að ráða vélritara vanan almennum skrifstofustörfum nú þegar. Skriflegar umsóknir sendist Framkvæmdastofnun Eauðarárstig 25. Iðja, félag verksmiðjufólks Iðja heldur aðalfund sinn i Domus Medica mánudaginn 10. mai kl. 5 e. hád. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tekin afstaða til verkfallsboðunar. 3. Önnur mál. Reikningar félagsins fyrir árið 1981 liggja frammi á skrifstofunni Skólavörðustig 16. Mætið vel og stundvislega. Hafið félagsskirteini með. Stjórn Iðju. Jafnréttisráð Óskar að ráða framkvæmdastjóra. Há- skólamenntun á félagssviði, lögfræði eða viðskiptafræði æskileg. Æskilegt er að umsækjandi hafi starfað að jafnréttismál- um. Laun samkvæmt launakerfi opin- berra starfsmanna. Umsóknir ásamt upp- lýsingum um menntun og fyrri störf send- ist Jafnréttisráði Laugavegi 116, fyrir 24. mai 1982. FLOKKSSTARF Kosningaskrifstofa Kosningaskrifstofa Alþýðuf lokksins í Borgar- nesi er að Skúlagötu 13. Skrifstofan verður opin fram að kosningum f rá 20—22 daglega og um helgar kl. 14—17. Sími 93—7277. Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins i Reykjavik Bankastræti 11, 2. hæð er opin alla daga frá klukkan 9—22. Simar skrifstofunnar eru: 27846 — 27860. Simi utankjörstaðakosningar er 29583. Hafið samband við kosningaskrifstofuna sem allra fyrst. Komið eða hringið. Munið,að margar hendur vinna létt verk. Kosningastjórn FLOKKSSTARF Alþýðuflokksfólk Vestmannaeyjum Við höfum opnað kosningaksrifstofu að Sandi við Strandveg Opið frá 3—6 daglega. Félagar og stuðningsmenn litið inn Alþýðuflokksfélagið K0SNIN G ASKRIFST0F A Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins á Isafiröi er að Hafn- arstræti 1. Skrifstofan verður opin fram að kosningum daglega kl. 13—19 og 20—22, simi 4380. Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins í Garðabæ, Goðatúni 2 er opin virka daga kl. 17—19 og 20—22 og laugardaga kl. 13.30—17. Mikilvægt er að stuðningsfólk gefi sig fram strax. Siminn er 43333. Kosningastjórn. Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins í Kópavogi, Hamraborg 7 er opin virka daga kl. 16—22, um helgar kl. 14—18. Mikilvægt er að stuðningsfólk gefi sig fram strax. Siminn er 44700. Kosningastjórn Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins á Akureyri, Strandgötu 9 er opin virka daga kl. 15—22,um helgar kl. 14—18. Stuðningsf ólk er beðið að haf a samband. Síminn er 24399. Kosningastjóri Kosningaskrifstofa Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins á Húsa- vík er opin þriðjudagskvöld og fimmtudags- kvöld kl. 8.30—11 á laugardögum frá 16—18. Síðustu viku fyrir kosningar er skrifstofan opin öll kvöld. Kosningaskrifstofan er að Iðavöllum 6. Sumarferð Alþýðuflokksins Sumarferð Alþýðuflokksins til Spánar 13. júli til 3. ágúst 82.Dvalið verður i Beni- dorm á Costa Blanca ströndinni. Rútuferð til Valencia, Barcelona, Madrid 3ja daga ferð.Áætlað verð kr. 8800.- Miðapantanir á skrifstofum Alþýðuflokksins og i sima 29244 og 15020. Alþýðuflokkurinn Hafnarfirði Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins i Alþýðuhúsinu Hafnarfirði er opin fyrst um sinn frá 14-19 og 20-22. Um helgar frá 14-18. Siminn er 50499. Hafið samband við skrifstofuna. Alþýðuflokkurinn Hafnarfirði. X—A X—A X—A X—A Auglýsingasíminn flafnarfjarðar

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.