Alþýðublaðið - 23.10.1982, Blaðsíða 3
Laugardagur 23. október 1982
3
Fiskvinnslustöðvar vilja
bætt starfsskilyrði
í ár hefur gengismunafé tvisvar
sinnum verið gert upptækt hjá fisk-
vinnslufyrirtækjunum. í janúar
var þessu fé ráðstafað í Verðjöfn-
unarsjóð fiskiðnaðarins en í ágúst
fór stærstur hluti til útgerðarinnar.
: I fréttatilkynningu frá Sam-
bandi fiskvinnslustöðvanna segir
að rangt sé að staðið að flytja fjár-
magn á þennan hátt til. Þar segir:
„Má öllum ljóst vera að engin var-
anleg lausn á rekstrarvanda fæst
með aðgerðum sem þessum heldur
eru þetta einungis fálmkenndar til-
raunir til lagfæringar á heimatil-
búnum vanda og færir því fleiri nær
gálganum.
Auk þess er rétt að vekja athygli
á því, að fiskvinnslan er eina út-
flutningsgreinin sem býr við sí-
fellda upptöku gengismunar.
Hljóta þvf starfsskilyrði fiskvinnslu
að rýrna í sambandi við annan út-
flutningsiðnað sem ætíð heldur sín-
um hlut að fullu. Aðalfundur Sam-
bands fiskvinnslustöðvanna fær
ekki séð hvernig þetta samrýmist
yfirlýstri stefnu ríkisstjórnarinnar
um jöfnun starfsskilyrða.
Aðalfundur Sambands fisk-
vinnslustöðvanna beinir því ein-
dregið til stjórnvalda að framvegis
verði allar útflutningsgreinar látn-
ar sitja við sama borð og upptaka
gengismunar eigi sér ekki stað í
neinni grein.
í janúar var gefin út skýrsla um
starfsskilyrði atvinnuveganna.
Niðurstaða um starfsskilyrði fisk-
vinnslu er þessi:
„ Að nokkru leyti er þessi atvinn-
ugrein verr sett en útflutnings- og
samkeppnisiðnaður.
a. Uppsöfnun söluskatts er ekki
bætt.
b. Fiskvinnslan nýtur þó lægri
aðstöðugjalda.
c. Aðflutningsgjöld eru hærri en
fyrir útflutnings- og samkeppn-
isiðnað en lægri en annarra
greina.
d. Aðgangur að lánsfé til rekstrar
er rýmri vegna endurkaupa-
kerfisins.”
Þegar þessir liðir eru teknir
saman má telja að starfsskilyrði
fiskvinnslu séu lakari en annars
útflutnings- og samkeppnisiðnaðar
um sem nemur 1,8-1,9% af
heildarrekstrargjöldum.
Hér er um verulega fjármuni að
ræða og þegar við bætist mismunun
varðandi gengismunafé ej ljóst að
við svo búið má ekki standa öllu
lengur.
Aðalfundur Sambands fisk-
vinnslustöðvanna skorar á stjórn-
völd að beita sér sem mest má
verða til að jafna þennan að-
stöðumun hið allra fyrsta.”
RIKiSSPITALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTAUNN
DEILDARSJÚKRAÞJÁLFARI óskast viö endurhæf-
ingardeild.
Upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari endurhæfinga-
deildar í síma 29000.
SKURÐSTOFUHJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast
á göngudeild Landspítalans. Vinnutími kl. 14.30-
18.30 þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 29000.
HJÚKRUNARFRÆRÐINGUR óskast á lyflækninga-
deild 2 og 4.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 29000.
KLEPPSSPITALI
Stöður SÉRFRÆÐINGA við Geðdeildir ríkisspítal-
anna eru lausar til umsóknar.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist
stjórnarnefnd ríkisspítalanna fyrir 20. desember n.k. á
þar til gerðum eyðublöðum fyrir lækna.
Upplýsingar veita yfirlæknar deildanna í síma 29000
og 38160.
HJÚKRUNÁRFRÆÐINGAR óskast á hinar ýmsu
deildir Kleppsspítalans. Fullt starf eða hlutastarf.
Barnaheimili á staðnum.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 38160.
STARFSMENN óskast til ræstinga í 70% og 50%
starf.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 38160.
STARFSMAÐUR óskast við eldhús Kleppsspítalans í
fullt starf. Vaktavinna.
Upplýsingar veitir yfirmatráðskona í síma 38160.
Reykjavík, 24. október 1982,
RÍKISSPÍTALARNIR
Davið 1
Gísli Konráðsson, sagðist í samtali
við mig telja líklegt, að félagið yrði
rekið með tapi. „Það er mín tilfinn-
ing, að félagið verði rekið með
halla á þessu ári”, sagði forstjór-
inn. Því miður liggja ekki rekstrar-
tölur fyrir vegna fyrri hluta árs, en
menn geta lagt á það mat hvorum
þeir trúa betur forstjóra útgerðar-
fyrirtækisins sem í hlut á eða Davíð
Oddssyni borgarstjóra”, sagði Sig-
urður E. Guðmundsson, borgar-
fulltrúi.
Fjármálaráðherra 1
Þannig að þú virðist bjartsýnn á
frekari fjárframlög til virkjunar-
innar?
„Já, ég er bjartsýnn á að Kröflu-
virkjun standi undir sér með tíð og
tíma og árangur virðist ágætur af
borunum undanfarið.”
Þannig að þú ert ekki sammáia
Hjörleifi Guttormssyni sem sagði í
viðtali við blaðið um síðustu helgi
að hann væri engan veginn ánægð-
ur með árangurinn?
„Hann hefur væntanlega sagt að
hann væri engan veginn ánægður
með árangur undanfarinna ára. En
við höfum nú öðlast dýrmæta
reynslu á þessu sviði og auðvitað
tökum við á viðfangsefninu eftir
því”, sagði ráðherra að lokum.
Lausar stöður
við Iðntækni-
stofnun íslands
Framkvæmdastjóri Tæknideildar
Raunvísindamenntun ásamt stjórnunarreynslu áskilin. Reynsla í ráögjafa
• störfum eöa iðnrekstri aeskileg.
Deildarstjóri Málmtæknideildar
Menntun: Vélaverkfræöi eða véltæknifræöi. Starfsreynsla í málminaði eöa
viö ráögjafastörf æskileg.
Vélaverkfræðingur/véltæknifræðingur við Málm-
tæknideild
Reynsla á sviöi vinnslu- og rekstrartækni í málmiönaöi æskileg.
Skrifstofustjóri aðalskrifstofu
Reynsla I fjármála- og starfsmannastjórn ásamt áætlanagerö æskileg og
menntun á sviði stjórnunar eöa viðskipta.
Bókavörður Tæknibókasafns
Menntun: Bókasafnsfræöi. Starfsreynsla æskileg.
Ofangreind störf eru fjölbreytt og veita áhugasömu fólki svigrúm til frum-
kvæöis og náinna kynna af innlendum iðnaði og alþjóðlegri tækniþróun.
Umsóknarfrestur er til 15. nóv. nk. Umsóknir meö upþlýsingum um æviatriði,
menntunar- og starfsferil skulu sendar forstjóra Iðntæknistofnunar Islands,
Skiþholti 37, 105 Reykjavík, sem veitir nánari upplýsingar.
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 64, 66, 68. tbl. Lögbirtinga-
blaðs 1982, á iðnaðarhúsi að Aðalgötu 20 á
Sauðárkróki, þinglýstri eign Hreins Sigurðs-
sonar, fer fram að kröfu Búnaðarbanka Is-
lands, Iðnlánasjóðs og Byggðarsjóðs, á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 27. október
1982 kl. 10.
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki
|i| Laus staða
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík óskar eftir að
ráða nú þegar tæknifræðing með reynslu á
sviði byggingartækni.
Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavík-
urborgar.
Umsóknir sendist til skrifstofu byggingarfull-
trúa, Skúlatúni 2, fyrir 1. nóvember n.k.
Æskilegt að upplýsingar um fyrri störf ásamt
prófskírteini fylgi.
BYGGINGARFULLTRÚINN
í REYKJAVÍK
Alþýðuflokks-
félag
Reykjavíkur
Kosningar í fulltrúaráð Alþýðufiokksfélag-
anna í Reykjavík og fulltrúakosning á flokks-
þing Alþýðuflokksins, fara fram n.k. laugar-
dag og sunnudag, 23. og 24. október, frá
14-18 báða dagana.
Kjörstjórn
Alþýðuflokks-
konur
Hafnarfirði
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði held-
ur fund þriðjudaginn 26. október kl. 20.30 í
Alþýðuhúsinu við Strandgötu.
Fundarefni:
1. Kosning fulltrúa á flokksþing.
2. Jóna Ósk og María segja frá Finnlands-
ferðinni.
3. Ásthildur segir frá starfi jafnréttisráðs.
4. Kaffidrykkja.
Mætið vel og takið með ykkur nýja félaga og
gesti.
Stjórnin
Verkalýðs-
máladeild
Fundur verður haldinn í Verkalýðsmálanefnd
Alþýðuflokksins n.k. sunnudag, 24. okt. kl.
17 í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu, li hæð,
Reykjavík.
Fundarefni:
Frumvarp Sighvatar Björgvinssonar um
atvinnulýðræði.
Vinsamlega mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin
SPENNUM sjálfra okkar
BELTIN
ifi vegna!