Alþýðublaðið - 17.08.1983, Síða 2

Alþýðublaðið - 17.08.1983, Síða 2
2 Miðvikudagur 17. ágúst 1983 —RITSTJÓRNARGREJN------------------------- Tragíkómedía íhaldsins: Leitin að nýjum Framhaldssagan um formannshallærið í Sjálf- stæðisflokknum virðist engan endi ætla að taka. ’ Nú er enn á ný að hefjast kapítuli í þessari tragí- komedíu sjálfstæöismanna. Landsfundur er fram- undan og saumnálarleitin er hafin í heystakknum. í síðasta kafja gerðist þetta: Geir stóð veikt og vildi hætta. Enginn úr hans klíku virtist h^fa bol- magn til aö taka upp merkiö og vinna sigur i for- mannskosningu á landsfundi. Grípa varð til neyö- arúrræðis; Geir varö að halda áfram. Aðrar klíkur vildu þó ekki játast undir áframhaldandi forystu Geirs og Gunnarsgengiö puntaöi upp á Páima og bauð hann fram. En Gunnar var óvinsælli en Geir og Pálmi tapaöi. Geir vann enn einn Phyrrósarsig- urinn. Sjálfstæöisflokkurinn í flakandi sárum eftir sem áður. Þetta geröist á síöasta landsfundi. Varlega ber ,aö spá nokkru um atburði næstu mánaða í leit sjálfstæðismanna að hæfum formanni. Eins og áður munu sennilega margir telja sig hinn eina sanna'kandídat, en vandinn er að finna stuðnings- menn. Fregnir herma að enn og aftur sé Geir þeirrar skoðunar, aö nú sé hans timi liöinn; hann eigi að hætta. En sþurningin er: fær hann að hætta? Um margra ára skeið hefur gremja fariö vaxandi með forystu Geirs í flokknum og menn legið honum á hálsi fyrir eitt og annaö, sem misfarist hefur á flokksvettvangi. Þessar gagnrýnisraddir hafa þó snarlega þagnað, þegar lýst hefur verið eftir hug- myndum að nýjum formanni, sem nyti almenns trausts sjálfstæðisfólks. Þá yppta allir öxlum og lýsa uppgjöf. Kandidatar eru nefndir tii sögunnar, en flestum hafnað jafnóöum aftur. í dagblöðum nýlega hafa veriö birt nöfn Friðriks Sóphussonar varafor- manns flokksins, Þorsteins Pálssonar þingmanns og fyrrum talsmanns Vinnuveitendasambandsins og einnig hefur nafn Birgis ísleifs Gunnarssonar boriö á góma. Það vekur athygli, þegar þessir þrír eru nefndir, aö allt eru þetta fallkandídatar til ráðherrastóla í ríkisstjórn Steingríms. Þessir þrír — Friðrik, Þor- s steinn og Birgir ísleifur —- sóttust allir eftir ráö-' herrasæti í ríkisstjórninni; þingflokkurSjálfstæðis- flokksins hafnaði þeim og valdi aðra. Á hinn bóginn er lítill spenningur meöal al- menns flokksfólks fyrir því, að einhver núverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins gegni formennsku fyrir flokkinn. Þeir eru taldir eiga nóg með sitt í óvinsælli ríkisstjórn. Litt hefur greiðst úr hnútunum og flækjunum inn- an Sjálfstæöisflokksins, þótt Gunnar Thoroddsen — skelfir Geirsarmsins — sé nú að mestu horfinn af sjónarsviðinu. En þrátt fyrir brottför Gunnars úr hringiðunni, þá er talið aö áhrifa hans muni samt sem áöur gæta verulega á landsfundinum í haust. Gunnarsmenn hafi enn hendur á ýmsum áhrifa- miklum þráðum í flokkskerfinu. Leitin að nýjum formanni hefur staðið árum sam- an hjá sjálfstæðismönnum. Hún stendur enn yfir. Ekkert bendir til þess að hún beri árangur á næstu mánuðum. Sjálfstæðismenn gætu því aiit eins gengið út af landsfundi sínum næsta haust með sama formannsvandamálið og áður. - GÁS. eSt. Jósepsspítali Landakoti Lausar stöður Stöður hjúkrunarfræðinga til eftirtalinna starfa: Skurðstofa — Stöður hjúkrunarfræðinga með sér- nám. — staða hjúkrunarfræðings, námsstaöa. — staða á augnskurðstofu fyrir hjúkrunarfræöing, sem áhuga hefur á sérnámi í augnskurðstofuhjúkrun. Gjörgæsia — staða hjúkrunarfræðings á fastar næt- urvaktir, Staða fóstru eða starfsmanns til starfa við: Dagheimilið Litlakot, aldur barna 1-2V2. Staða ræstingastjóra viö spítalann er laus til um- sóknar. Æskilegt að umsækjendur hafi einhverja reynslu í skipulagningu og mannaráðningum. Umsóknarfrestur til 1. október. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarfor- stjóra milli kl. 11-12 og 13-15, í síma 19600. Reykjavík 12. ágúst 1983 Skrifstofa hjúkrunarforstjóra. Ráðstefna Sambands Al- þýðuflokkskvenna á ísafirði hinn 3. september 1983. Fundarstaður: Alþýðuhúsið, ísafirði. Fundarefni: „Launamál kvenna á vinnumarkaðin- um“. DAGSKRÁ Laugardagur, 3. september Kl. 10.00 Ráöstefnan sett: Kristín Guðmundsdóttir, for- maður Sambands Alþýðuflokkskvenna. Kynning þátttakenda. Hópstarfið um launamálin: Ásthildur Ólafsdóttir, varaformaður Sambands Alþýðuflokkskvenna. Launamál kvenna á vinnumarkaðinum: Jóhanna Sigurðardóttir, alþingismaður. Hópvinna ef tími vinnst til. Hádegisverðarhlé. Kl. 14.00 Hópvinna. Kl. 15.30 Hópar geri grein fyrir niðurstöðum. Kl. 16.00 Starfsemi Sambands Alþýðuflokkskvenna. Þátt- taka vestfirskra Alþýðuflokkskvenna þar í: Anna Helgadóttir, bæjarfulltrúi, ísafirði. Kl. "8.00 Sameiginlegur kvöldverður. Ráðstefnuslit. Ráðstefnustjóri: Karitas Pálsdóttir, gjaldkeri Vlf. Baldurs, ísafirði. Allar nánari upplýsingar eru veittar í símum 29282 (Skrif- stofur Alþýðuflokksins í Reykjavík), 44071 (Gréta Berg Ing- ólfsdóttir, gjaldkeri SA) og 3664 (Karitas Pálsdóttir, ísafirði). Stjórn Sambands Alþýðuflokkskvenna __________________________________________________ Samvisku fangar 4 viðurkenna það sem það sér. Það þolir ekki að Indíánar séu kosnir fremur en það sjálft. Þetta er eina raunverulega ástæðan fyrir hand- töku okkar. Við höfum verið fang- elsaðir fyrir þann „glæp“ að trúa á jafnrétti allra manna. Allir fangarnir þrír þjást af önd- unarerfiðleikum, og Florencio Torobeo er að auki sagður mjög veikur vegna magasárs og nýrna- veiki sem ágerist við hið lélega fæði í fangelsinu. — Lagabreytingar sem nýlega voru gerðar gera kleift að taka ræktunarland eignarnámi ef ekki er staðið í skilum með greiðsl- ur. Þetta þýðir að Julian Choque á það á hættu að missa sína jörð, þar sem hann sá ekki ástæðu t.þ.a. reyna að greiða lán sem hann fékk stuttu áður en hann var hand- tekinn, og átti að fjármagna vinnu hans árið 1982. Vinsamlegast sendið kurteislega orðað bréf og biðjið um að þessir þrír Indíánar Julian Choque Choquemamani, Florencio Toro- beo Mendoza og Roberto Ayma Quispe verði látnir Iausir. Skrifið til: President Fernando Belaúnde Terry, Palacio Presidencial, Lima, PERU. Á AKREINA- SKIPTUM VEGUM á jafnan að aka á hægri akrein Heilsugæslustöð Miðbæjar hefur tekiö til starfa í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, viö Barónsstíg. Inngangur frá Egilsgötu. Sími 25877. Starfssvæði stöðvarinnar markast af Sóleyj- argötu, Lækjargötu, Skúlagötu, Snorrabraut og Hringbraut. Öllum íbúum svæöisins stendur til boöa þjónusta stöðvarinnar og veröa þeir skrá- settir viö fyrstu komu. Reykjavík, 13. ágúst 1983 Heilbrigðisráð Reykjavíkurborgar. Nota bene Lagabreytingafundur F.U.J. í Reykjavík verður hald- inn fimmtudaginn 18. ágúst að Hverfisgötu 106 A Reykjavík klukkan 20. Mætum öll. Nefndin Alþýðuflokksfólk Sveitarstjómarráð og Fræðsluráð Alþýðuflokksins boða hér með til ráðstefnu í Munaðarnesi, dagana 16r—18. sept- ember næstkomandi. Sérstaklega eru eftirtaldir aðilar boðaðir: Sveitarstjórnarmenn Alþýðuflokksins Allirþeirersæti eiga í stjórnum, nefndumog ráðum sveitar- félaga á vegum Alþýðuflokksins. Stjórnarmenn allra félaga Alþýðuflokksins. Dagskrá: Sveitarstjórnarstefnuskrá Alþýðuflokksins. Flokksstarf. Frekari upplýsingar verða sendar í sérstöku dreifibréfi til viðkomándi aðila. Einnig auglýst síðar í Alþýðublaðinu. Fræðsluráð Alþýðuflokksins Sveitarstjórnarráð Alþýðuflokksins

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.