Alþýðublaðið - 17.08.1983, Blaðsíða 4
alþýðu-
blaöíó
Miövikudagur 17. ágúst 1983
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guömundsson.
Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guðmundur Árni Stefánsson.
Blaðamenn: Þráinn Hallgrímsson og Friðrik Þór Guðmundsson.
Auglýsingasljóri: Áslaug G. Nielsen.
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir.
Ritstjórn og auglýsinar eru að Ármúla 38, Reykjavík, sími 81866.
Setning og umbrot: Alprent hf. Ámúla 38.
Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12.
Áskriftarsíminn
er 81866
Sameinuðu Þjóðirnar helga
níunda úratugnum vatninu:
„Hreint vatn fyrir alla 1990”
Það er ekki lengur hægt að líta á
hreint vatn sem óþrjótandi náttúru-
auðlind. Samhiiða því sem fólki
fjölgar gifurlega, vex eftirspurnin
eftir hreinu ferskvatni enn hraðar.
Vatnið er hægt að nýta, en ekki tak-
markalaust. Afsöltun sjávar er
tæknilega möguleg, en ennþá til-
tölulega dýrt í framkvæmd.
Skortur á vatni getur haft áhrif á
okkur öll. Alvarlegir þurrkar og
flóð hafa óbætanlegan skaða í för
með sér. Sínu alvarlegri er þó hin
hraðvaxandi eftirspurn eftir hreinu
vatni. Vatnsmagnið á jörðinni er
stöðugt, en þegar mannfjöldinn
verður tvöfalt meiri en í dag verður
nýtingin komin í topp. Auk þess
eykst notkun vatns hjá atvinnufyr-
irtækjum hröðum skrefum.
Vatnsnotkunin er ákaflega mis-
mikil á hinum ýmsu svæðum jarð-
arinnar. Á meðan heimili í iðnríkj-
unum nota á bilinu 1000-1500 lítra
af vatni á sólarhring, er notkunin
um 5 lítrar á þurrkasvæðum Afr-
íku. Þar er vatn auk þess iðulega ó-
hreint. Vatnsnotkun í Bandaríkjun-
um hefur tífaldast á síðustu 80 ár-
um.
Áhyggjuefni af aukinni vatns-
notkun samhliða gífurlegri fólks-
fjölgun hefur orðið til þess að Sam-
einuðu þjóðirnar hafa ákveðið að
níundi áratugur aldarinnar verði
helgaður vatninu. Frá 1981-1990 er
ætlunin að sérstakt átak verði gert
til að leysa þann vanda sem blasir
við. Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin (WHO) áætlar að milli 10 og
25 milljónir manna deyji á hverju
ári af völdum sjúkdóma sem rekja
má til neyslu óhreins vatns og ófull-
nægjandi hreinlætisaðstöðu.
Reyndar er talið að um 80% allra
sjúkdóma megi rekja til þess.
Markmið Sameinuðu þjóðanna er
„hreint vatn fyrir alla árið 1990“, en
í nóvember 1980 sagði Kurt Wald-
heim, aðalritari S.Þ.:
„Áratugur vatnsins býður upp á
mikla möguleika til að bæta á af-
gerandi hátt til langframa lífs-
möguleika hundruðu milljóna
manna á jörðunni”
,,40 þjófa klúbburinn”:
Sænsk skatt-
yfirvöld
blása til
orrustu
gegn öflug-
um skatt-
svikahring
Á miðjum áttunda áratugnum á-
kváðu sænsk stjórnvöld að hefja á-
tak í baráttunni gegn skattsvikur-
um og öðrum þeim sem hunsa lög
og reglur efnahagslífsins. Settur var
á fót sérstakur starfshópur manna
úr sjö ráðuneytum og ríkisskatt-
stjóraembættið lagði til sína sér-
fræðinga. Forsvarsmaður hópsins,
Bengt Gustavsson, er ekki ánægður
með árangurinn.
Hann segir að starfshópurinn
hafi takmarkað ráðrúm til að
klekkja á þeim sem oft ganga undir
nafninu „40 þjófa klúbburinn" í
Svíþjóð. „Okkur hefur þó tekist að
vængstífa nokkra þeirraþ segir
hann, en það hefur komið að litlu
gagni því aðrir hafa tekið upp nýjar
aðferðir. Áður fyrr var á tiltölulega
heiðarlegan, þ.e. löglegan, hátt far-
ið framhjá lögunum, en nú er í
næstum öllum tilfellum um glæp-
samlegt athæfi að ræða. Eiturlyfja-
glæpahringirnir eru' nú þarna
fremstir í flokki.
Sérfræðingar ríkisskattstjóra-
embættisins telja að þeir þurfi að
ná til útlanda í verkefni sínu, líkt og
vestur-þýsk stjórnvöld hafa nýverið
gert mögulegt. Og þeir telja að með
bættum starfsaðferðum megi ná
betri árangri, þar sem talið ér að 7-
8% Iögbrotstilfella nái til um 70-
80% þeirrar heildarupphæðar sem
um ræðir.
„Óvinur ríkissjóðs númer eitt“ er
Karl-Georg Jansson kallaður, tal-
inn leiðtogi „40 þjófa klúbbsins".
Hann hefur höfuðstöðvar sínar í
Sviss. Nú hafa skattyfirvöld gert til
hans kröfu um greiðslu á 60 millj-
ónum sænskra króna (um 210 millj.
ísl. krónur) vegna gervifyrirtækis
hans, Agripeta AB. Nafn þessa
manns hefur hvað eftir annað kom-
ið upp á yfirborðið hjá skattyfir-
völdum, hann hefur verið grunaður
um allar tegundir skattbrota og
margt hefur á hann sannast. En
sænsk yfirvöld hafa ekki getað
fengið hann brottrækan frá Sviss.
Reiknað er með því að ef tekst að
klófesta Jansson falli með honum
um 20 aðrir skattsvikarar. Ákæru-
valdið í Svíþjóð undirbýr nú að-
gerðir til að fá stærstu skattsvindl-
arana heim frá lúxuslífinu í Sviss,
en á meðan bíða skattyfirvöld óþol-
inmóð!
Hreint vatn er víða hin mesta munaðarvara. Þetta skylti stendur
x einu Afríkulandanna: „Aðvörun. Sóun á vatni við þvott eða á
annan hátt er lögbrot”.
Víða hefur átak verið gert til að nýta vatnið sem best. Á þessari
mynd má sjá vatnssöfnunartanka í smíðum. Sameinuðu þjóðirn-
ar helga níunda áratugnum baráttuni fyrir því að allir hafi
aðgang að hreinu vatni og fullnægandi hreinlætisaðstöðu árið
1990.
Samviskufangar mánaöarins
hjá Amnesty International:
Ákærðir fyrir að
hafa „æst til al-
menns ófriðar” í
bændaverkfalli í Perú
— þrír Quechua
indíánar, leiðtog-
ar smábœnda í
Perú, í haldi í tvö
ár án þess að mál
þeirra hafi verið
tekið fyrir
Þeir hafa verið í haldi í tæp
tvö ár, án þess að mál þeirra hafi
komið fyrir rétt. Þeir voru allir
handteknir í október 1981, sak-
aðir um að hafa stjórnað
bændaverkfalli í útjaðri
Acomayo í Cuzco héraði.
Þeir eru: Julian Choque Choque-
mamani 31 árs leiðtogi félags smá-
bænda í Acomayo héraði (Provin-
cial Peasant Federation of Acom-
ayo (FEPCA)), og meðlimur hins
kjörna svæðisráðs Pomacanchi
þorps, Acomayo; Florencio Toro-
beo Mendoza 60 ára stofnandi
FEPCA, og leiðtogi smábænda-
samtaka Cuzco héraðs og meðlim-
ur héraðsráðs Acomayo héraðs; og
Roberto Ayma Quispe, smábóndi
(campesino).
í byrjun voru þeir sakaðir um of-
beldisverk, en AI telur að þær ásak-
anir hafi ekki við nein rök að styðj-
ast. Nefnd á vegum AI fór til Perú
1982 og heimsótti m.a. þá þrjá, þar
sem þeir voru í Cuzco Q’enccoro
fangelsinu í Perú, (en núna eru þeir
í Lurigancho fangelsinu í Lima).
Ásökunum var breytt nú í ár þannig
að nú eru þeir sagðir hafa „æst til
almenns ófriðar" í verkfallinu. AI
telur að þeir hafi verið handteknir
vegna þess hve þeir standa framar-
lega í sveitarmálum og samtökum
smábænda, og vegna þess að þeir
voru með þeim fyrstu af Quecha
smábændum sem voru kosnir í
sveitarstjórn Acomayo. Einn þeirra,
Florencio, skrifaði AI bréf og lýsir
ásökunum á hendur þeim sem
hefndaraðgerðum af hálfu hinna
hefðbundnu yfirstétta í Acomayo.
Hann segir: „Yfirstéttin í Acomayo
á erfitt með að viðurkenna þá stað-
reynd að smábóndi sem yrkir fjórð-
ung hektara af vatnslausu landi og
hefur tvær kýr á beit geti orðið ráð-
'gjafi í sveitarstjórn. Fólkið vill ekki
Framh. á 2. síðu