Alþýðublaðið - 17.08.1983, Síða 3
Miðvikudagur 17. ágúst 1983
3
Aðalfundur sýslunefndar Norður-ísafjarðarsýslu:
Úskar eftir auknu fjármagni
til atvinnuuppbyggingar
Aðalfundur sýslunefndar
Norður-ísafjarðarsýslu var haldinn
á ísafirði dagana 28—29.júlí 1983.
Á fundinum voru auk sýslumanns,
Péturs Kr. Hafstein, sýslunefndar-
mennirnir Engilbert Ingvarsson
fyrir Snæfjallahrepp, Guðmundur
Magnússon fyrir Nauteyrarhrepp,
Gunnar Valdimarsson fyrir Reykja-
fjarðarhrepp, Baldur Bjarnason
fyrir Ögurhrepp og Auðunn Karls-
son fyrir Súðavíkurhrepp.
Á fundinum var fjallað um hin
margvíslegustu málefni. Farið var
yfir reikninga sýslusjóðs, sýslu-
vegasjóðs, hreppa' sýslunnar og
sjóða í umsjá sýslunefndar. Til
skoðunar komu ýmis erindi og fjár-
beiðnir, og gerðar voru fjárhags-
áætlanir bæði fyrir sýslusjóð og
sýsluvegasjóð.
Atvinnumál sýslunnar voru ítar-
lega rædd á aðalfundinum, og á
vegum sýslunefndar starfar nú sér-
stök atvinnumálanefnd, sem skip-
uð er öllum oddvitum sýslunnar.
Fundurinn taldi, að verulegt átak
þyrfti að gera til þess að efla búskap
og nýjar búgreinar, treysta búsetu í
sýslunni og stuðla að fjölbreyttara
atvinnulifi. Sýslufundurinn skoraði
á sveitarstjórnir, alþingismenn og
stjórnvöld að leggja sitt af mörkum
til þess, að einstaklingar og félaga-
samtök þeirra, sem vilja stofna til
atvinnustarfsemi í héraðinu, fái
fjármagn til atvinnuuppbyggingar.
Sýslunefndin telur brýnt, að stjórn-
völd bregðist skjótt við á raunhæf-
an hátt til að koma í veg fyrir fólks-
fækkun og geri ungu fólki aðgengi-
legt að stofna til búsetu í sýslunni,
svo að eðlileg kynslóðaskipti geti
átt sér stað.
Þá var á aðalfundinum nokkuð
rætt um þá riðuveiki, sem vart hef-
ur orðið í Barðastrandarsýslu, og
töldu menn verulega hættu á, að
veikin gæti borizt út. Fundurinn
skoraði á hreppsnefndir og alla
fjáreigendur að vera vel á verði gegn
frekari útbreiðslu veikinnar og
stuðla að því á allan hátt, að sam-
gangur fjár á nærligjandi svæðum
sé sem allra minnstur og fé frá
Djúpi, sem heimtist sunnan heiða,
og fé úr Barðastrandarsýslu, sem
heimtist við Djúp, verði skilyrðis-
laust lógað.
Fundurinn fjallaði um útigang
búfiár ob minnti á. að í hinum lane-
varandi jarðbönnum og snjóalög-
unt á síðastliðnum vetri hefði það
átt sér stað, að hross í Nauteyrar-
hreppi hefðu sætt slæmri og skeyt-
ingarlausri meðferð og hefðu orðið
blaðaskrif um málið. Sýslunefndin
lítur þessi mál mjög alvarlegum
augum og telur þau viðkomandi til
mikillar vanvirðu óg hneisu. Sýslu-
Iðnsýning 83, sem haldin er í til-
efni 50 ára afmælis Félags íslenskra
iðnrekenda, hefst föstudaginn 19.
ágúst kl. 18.00. Kjörorð sýningar-
innar er ÍSLENSK FRAMTÍÐ Á
IÐNAÐI BYGGÐ.
Sýningin verður yfirgripsmesta
innlenda iðnsýningin til þessa, og
taka þátt í henni 116 fyrirtæki innan
vébanda félagsins og 5 stofnanir.
Allt rými í Höllinni er fullnýtt og
mörg fyrirtæki sýna á útisvæðinu.
Þegar litið er til þess hvernig fyr-
irtæki flokkast eftir framleiðslu-
greinum kemur í ljós að 19 fyrir-
nefndin skoraði á yfirvöld hrepps-
ins, sem sjá eiga um jarðargæzlu,
hreppsnefndir og hreppstjóra, að
sjá svo um, að slíkt endurtaki sig
ekki. Sýslunefndin væntir þess, að
sýslumaður láti ntálið til sín taka og
beiti öllum tiltækiiegum ráðum til
þess, að sá ósómi verði kveðinn nið-
ur, að hross séu nánast iátin
afskipta- og umhirðulaus í vetrar-
hörkum og jarðbönnum og falli
jafnvel úr hor og harðrétti.
Sýs lufundurinn fagnaði því, að
unnið hefur verið að bættum sjón-
varpsskilyrðum með byggingu
nýrra endurvarpsstöðva í sýslunni.
tæki eru í tréiðnaði, 19 í málmiðn-
aði og 18 í matvælaiðnaði. Undir
flokknum vefjariðnaði og fata-
framleiðsla eru 15 fyrirtæki, 11 í
plastiðnaði, 11 í raf- og rafeindaiðn-
aði. Nokkru færri fyrirtæki sýna í
pappírs- og prentiðnaði, kemískum
iðnaði, gúmmíiðnaði og steinefna-
iðnaði. Undir ýmsan iðnað flokk-
ast 9 fyrirtæki.
Glæsilegar fata-
og tískusýningar
Fataframleiðendur standa að
„íslensk framtíð á iðnaði byggð“:
116 fyrirtæki og 5
stofnanir í hverri
smugu í Höllinni og um
kring — á Iðnsýningu ’83
Hafrannsóknarstofnun:
3 rannsóknarleiðangrar um
fslandsmið í Grænlandshafi
I þessum mánuði verða farnir 3
rannsóknaleiðangrar á vegum Haf-
rannsóknastofnunar til að kanna
útbreiðslu og fjölda fiskseiða á ís-
landsmiðum í Grænlandshafi og
við Austur Grænland. Með slíkum
athugunum fæst fyrsta vísbending
um hlutfallslegan styrkleika 1983
árgangs t.d. þorsks, ýsu, loðnu og
karfa. í þessum leiðöngrum verða
einnig gerðar margskonar aðrar
rannsóknir.
A tímabilinu 8r26. ágúst mun
rannsóknaskipið Hafþór rannsaka
útbreiðslu og fjölda fiskseiða í
Grænlandshafi og við Austur-
Grænland. Þá verða athugaðar
uppeldisstöðvar karfans við Aust-
ur-Grænland, og ennfremur reynt
að mérkja þorsk í því skyni að fylgj-
ast með væntanlegum göngum milli
Austur-Grænlands og íslands.
Leiðangursstjóri á Hafþór er Vil-
helmína Vilhelmsdóttir.
Á tímabilinu 8r31. ágúst mun
rannsóKnaskipið Árni Friðriksson
kanna útbreiðslu og fjölda seiða og
ástand'sjávar við Suður^ Austur- og
Norðausturland. í þeím leiðangri
verða einnig gerðar magnmælingar
á kolmunna og er það framlag ís-
lendinga til alþjóðlegra rannsókna
á stærð kolmunnastofnsins í norð-
austanverðu Atlantshafi. í leið-
angrinum verður einnig könnuð út-
breiðsla og fjöldi síldarlirfa er klak-
ist hafa út við Suðurströndina eftir
hrygningu sumargotssíldarinnar ís-
lensku. Síðast en ekki síst er það eitt
af verkefnum þessa leiðangurs að
kanna útbreiðslu og mergð loðnu,
út af Norðausturlandi og austan-
verðu Norðurlandi allt norður und-
ir 69. breiddarbaug. Leiðangurs-
'stjóri á Árna Friðrikssyni er Sveinn
Sveinbjörnsson.
Þriðji leiðangurinn verður farinn
á Bjarna Sæmundssyni dagana 15r
31. ágúst. Þá verður hafsvæðið út af
vestur, norðvestur og vestanverðu
Norðurlandi kannað. Auk rann-
sókna á fiskseiðum verða stund-
aðar umfangsmiklar sjórannsókn-
ir, dýrasvif verður rannsakað og
síðast en ekki síst lögð mikil áhersla
á mælingar á loðnustofninum.
Leiðangursstjóri verður Hjálmar
Vilhjálmsson. I slíkum leiðangri
sem farinn var fyrir ári síðan tókst
í fyrsta skipti að mæla hve mikið
var af eins árs gamalli loðnu hér við
land og verður þetta reynt aftur.
Ekki er enn komin reynsla á þessar
mælingar á ungloðnunni en ef vel
tekst til myndu slíkar mælingar
gera Hafrannsóknastofnun kleift
að leggja fram tillögur um leyfileg-
an hámarksafla af loðnu miklu fyrr
en unnt hefur verið hingað til.
Þá verður einnig reynt að mæla
hve mikið er af eldri loðnu norð-
vestur og norður af landinu enda
þótt ágústmánuður sé ekki talinn
henta vel til slíkra rannsókna. ís-
lensku rannsóknaskipin munu því
kanna útbreiðslu og mergð þeirrar
loðnu allt norður undir 69. breidd-
arbaug en þar fyrir norðan mun
norska rannsóknaskipið G.O. SaFs
gera samskonar mælingar allt norð-
ur fyrir Jan Mayen. Þá mun fær-
e.yska rannsóknaskipið Magnús
Heinason kanna djúpslóð norð-
austur og austur af landinu. Sam-
eiginlegar niðurstöður allra þessara
rannsóknaleiðangra munu liggja
fyrir í fyrri hluta septembermánað-
ar eða fljótlega eftir að leiðöngrun-
um lýkur. Fyrirhugaðar leiðarlínur
rarlnsóknaskipanna eru sýndar á
meðfylgjandi mynd.
í þessum mánuði er r.s. Dröfn við
rannsóknir á hörpudiski sem bein-
ast að því að áætla stofnstærð og
veiðiþol á miðunum i Breiðafirði og
Norðanlands. Selarannsóknir verða
einnig stundaðar og reynt verður að
merkja lrrefnu. Leiðangursstjóri er
Hrafnkell Eiríksson.
Fundurinn lýsti ánægju sinni yf ir
því, að sjálfvirkt símasamband er
að komast á við Inn-Djúp. Hins
vegar taldi fundurinn, að ýmsar
framkvæmdir á vegum Póst- og
símamálastofnunarinnar reyndust
óþarflega kostnaðarsamar og lagði
áherzlu á, að heimamenn yrðu í
ýmsum tilvikum fengnir til að taka
að sér verkefni. Þá skoraði fundur-
inn á samgönguráðherra að sjá svo
um, að allir notendur innan síma-
svæðis 94 verði í einu og sama
gjaldskrársvæði.
Þá tók sýslunefndin til ítarlegrar
umfjöllunar málefni hins nýja
sjúkrahúss og heilsugæzlustöðvar á
Isafirði, sem sýslan á aðild að.
Formaður byggingarnefndar
sjúkrahússins, Sigurður J.
Jóhannsson, kom á fundinn og
gerði glögga grein fyrir stöðu bygg-
ingarframkvæmda, sem nú liggja í
láginni vegna fjárskorts. Sýslu-
nefndin samþykkti að verja veru-
legum hluta ráðstöfunarfjár síns á
árinu 1983 til sjúkrahússins og
heilsugæzlustöðvarinnar. Það er
eitt brýnasta hagsmunamál ísa-
fjarðarsýslu nú um stundir, að
byggingarframkvæmdum ljúki sem
fyrst og starfsemi sjúkrahúss og
heilsugæzlustöðvar á ísafirði geti
komizt í rétt horf og leitt til aðkall-
andi umbóta í hvers konar heil-
brigðisþjónustu.
Sýslunefndin ræddi um samein-
ingu sveitarfélaga og ítrekaði fyrri
áskorun sína til félagsmálaráðu-
neytisins um forgöngu fyrir samein-
ingu Sléttuhrepps hins forna og
Snæfjallahrepps. Bent var á, að
með aukinni mannvirkjagerð og
sívaxandi ásókn ferðamanna í frið-
landið á Hornströndum sk'apist æ
brýnni þörf á virkum umráðum og
stjórn kjörinnar sveitarstjórnar á
þessu landsvæði, en hún er nú
engin, enda Sléttuhreppur i eyði.
Sýslunefndin t'elur hagsmunum
Norður-ísafjarðarsýslu stefnt í
tvísýnu, ef það dregst ntjög á lang-
inn við þessar aðstæður, að kjörin
sveitarstjórn fari með málefni
Slétuhrepps hins forna undir
lögbundnu eftirliti sýslunefndar.
daglegum fata- og tískusýningum í
samvinnu við sýningarstjórn. Þetta
verða glæsilegar og íburðarmiklar
sýningar er fara fram á sérsmíðuð-
um palli er gengur fram af áhorf-
endastúkunni gegnt aðalsviði Hall-
arinnar. Milli 30-35 manns hafa
fastan starfa við sýningarnar, en á-
ætlað er að halda 2-3 tískusýningar
dag hvern meðan sýningin stendur.
Kynningarafslættir
I matvæladeildinni í anddyri
Hallarinnar gefst gestum tækifæri
á að smakka á hverskonar réttum
og kaupa varning með kynningar-
afslætti. Kynntar verða ýmsar nýj-
ungar og bakarí verður í fullum
gangi meðan sýningin stendur.
Verið að
„æfa“ vélmenni
Ljóst er að sýningin verður kröft-
ug, lífleg og afar fróðleg. Flestir
ættu að finna þar margt við sitt
hæfi. Þeir sem áhuga hafa á hvers-
konar innréttingum og húsbúnaði
fá margt að skoða. Áberandi verður
hverskonar tölvubúnaður og nú er
verið að „æfa“ vélmenni (róbot)
sem setja mun skemmtilegan svip á
sýninguna. Þarna getur einnig að
líta innlenda fiskibáta, skemmti-
báta og hraðbáta, sumarhús, kúlu-
hús- og leiktæki svo eitthvað sé
nefnt.
JC Vík, Reykjavík hefur tekið að
sér rekstur veitingasölunnar á Iðn-
sýningunni og verður þar boðið
upp á ýmsar nýjungar, t.d. rétti sem
aldrei áður hafa sést á íslenskum
matseðlum. Verðinu mun verða
stillt mjög i hóf, en áhersla verður
Iögð á fljóta og góða þjónustu og
notalegt andrúmsloft, þar sem sýn-
ingargestir geta hvílst og notið
góðra veitinga.
Inngangseyri verður mjög í hóf
stillt, kr. 100r fyrir fullorðna og kr.
40r fyrir börn (6-12 ára). Sýningin
verður opin frá kl. 15.00 til 22.00 á
virkum dögum og frá kl. 13.00 til
22.00 um helgar en sýningarsvæð-
inu verður lokað kl. 23.00 hvert
kvöld.
Formaður sýningarnefndar er
Ágúst Valfells, en framkvæmda-
stjóri sýningarinnar er Bjarni Þór
Jonsson. Auk þess eru í sýningar-
stjórn þeir Björn Kristinsson, Guð-
mundur Sigurðsson, Kristinn Guð-
jónsson og Steinar Berg Björnsson.
Hönnuður sýningarinnar er Gunn-
ar R. Bjarnason og Auglýsingastof-
an Argus sér um auglýsingar og
kynningarmál.
Heilbrigöisf ulltrúi
Tvær stööur heilbrigöisfulltrúa viö Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkursvæðis eru lausar til umsóknar.
Laun samkv. kjarasamningi starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar.
Ummenntun, réttindi og skyldurferskv. regluqerönr.
150/1983.
Æskilegt er aö umsækjendur hafi lokið háskólaprófi
í heilbrigöiseftirliti eöa hafi sambærilega menntun.
Umsóknir ásamt gögnum um menntun og fyrri störf
sendist undirrituöum, sem ásamt framkvæmdastjóra
heilbrigöiseftirlitsins veitir nánari upplýsingar, fyrir 1.
sept. 1983.
Borgarlæknirinn í Reykjavík
Alþýðuflokkurinn:
Skrifstofur Alþýðuflokksins eru opnar á virkum dögum frá
klukkan 9-17 að Hverfisgötu 8-10, 2. hæð.
Símar flokksskrifstofunnar eru: 29282 — 29273 — 29244.
Kristín Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Alþýðuflokksins.