Alþýðublaðið - 25.10.1983, Blaðsíða 1
Þriöjudagur 25. október 1983 173. tbl. 64. árg.
Gagnmerk ráðstefna Lífs og Lands:
Friðar- og öryggismál
krufin til mergjar.
Hátt á annað hundrað manns
tóku þátt í gagnmerkri ráðstefnu
samtakanna Lífs og Lands um frið-
ar- og öryggismál, sem fram fór að
Hótel Borg um helgina. Fjölmörg
erindi voru flutt, fyrirspurnir voru
margar og umræður fjörugar.
Kristinn Ragnarsson, formaður
Lífs og Lands, setti ráðstefnuna á
laugardagsmorgninum. Séra Gunn-
ar Kristjánsson fjallaði um friðar-
hreyfingar samtímans, Sigurður
Björnsson læknir um kjarnorkuvá
og heilbrigði og var það mál manna
að það hafi verið fróðlegt og hroll-
vekjandi erindi. Prófessor Ágúst
Valfells rakti sögur kjarnorkuvíg-
búnaðarkapphlaupsins, Albert
Jónsson, starfsmaður Öryggis-
málanefndar fjallaði um kenning-
una um „gagnkvæma fælingu“,
sem ógnarjafnvægi stórveldanna er
nefnt, Gunnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Öryggismálanefndar
flutti mjög gott erindi um afvopnun
og stjórnun vígbúnaðar og síðan
flutti Þórður Óskarsson stjórn-
málafræðingur erindi um stöðvun
vígbúnaðar og þær hugmyndir
helstar sem fram hafa komið þar að
lútandi, um frystingarleiðina, um
að stórveldin skuldbindi sig til að
beita ekki kjarnorkuvopnum að
fyrra bragði, um hugmyndir Palme-
nefndarinnar, um hlutlaus og
kjarnorkuvopnalaus svæði og
fleira.
Eftir hádegið var byrjað á flutn-
ingi á tónverkinu „Dona nobis
pacern" (gefið okkur frið) eftir Atla
Heimi Sveinsson fyrir fjóra sópran-
söngvara og klarinett, við ljóð
Pablo Neruta. Var verkinu fagnað
vel.
Þá flutti Geir Hallgrímsson utan-
ríkisráðherra ávarp og svaraði fyrir-
spurnum. Hann taldi hagsmuna-
mál fyrir íslendinga að ratsjár-
stöðvar yrðu endurreistar á Vest-
fjörðum og Langanesi og einnig
kom meðal annars fram í máli hans
Framh. á 3. síðu
Davíð Oddsson gekk á bak oröa sinna:
Hét Björgvin Guðmunds-
syni stuðningi í stöðu
framkvæmdastjóra BÚR
Á borgarstjórnarfundi síðastlið-
inn fimmtudag las Sigurður E.
Guðmundsson, borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins upp bréf frá
Björgvin Guðmundssyni, sem nú er
verið að bola frá Bæjarútgerð
Reykjavíkur, þar sem fram kemur,
að þegar Björgvin ráðgerði á árinu
1981 að sækja um stöðu fram-
kvæmdastjóra BÚR leitaði hann
eftir stuðningi Davíðs Oddssonar
núverandi borgarstjóra, sem full-
vissaði hann um að hann myndi
ekki leggjast gegn ráðningunni.
Sömu undirtektir fékk hann (þ.e.
Björgvin) frá öðrum sjálfstæðis-
mönnum í borgarstjórn og jafnvel
enn betri undirtektir hjá öðrum
forystumönnum sjálfstæðismanna.
Sigurður E. Guðmundsson spurði í
framhaldi þessu hvort Davíð Odds-
son hefði mælt þvert um hug sér
fyrir 20 mánuðum síðan, hvort
hann hefði i rauninni blekkt Björg-
vin Guðmundsson þá til þess að
hrekja hann úr starfi siðar. Spurn-
ingar sem þessar hlytu að vakna nú,
þegar borgarstjóri hefði ákveðið að
hrekja Björgvin Guðmundsson úr
starfi af pólitiskum ástæðum.
Borgarstjórinn Davíð Oddsson gaf
engar skýringar á framkomu sinni í
þessu máli þrátt fyrir ítrekaðar
beiðnir þar um á fundinum.
I bréfi því sem kynnt var á
borgarstjórnarfundinum kom m.a.
fram, að Björgvin Guðmundsson
ræddi áður en hann sótti um stöðu
framkvæmdastjóraáárinu 1981 við
oddvita þriggja stjórnmálaflokka
borgarstjórnar, þar á meðal við
Davíð Oddsson oddvita sjálf-
stæðismanna í borgarstjórninni.
Um þetta segir hann í bréfinu:
„Tjáði ég Davíð Oddssyni, að ég
vildi ekki segja upp æviráðnu starfi
í viðskiptaráðuneytinu og sækja
um starf hjá BÚR ef hann legðist á
móti því og Sjálfstæðisflokkurinn
yfirleitt. Davíð tók sér stuttan um-
hugsunarfrest en tjáði mér síðan,
að hann myndi ekki „leggja stein í
götu mína“ í þessu máli. Sagði
hann að þeir sjálfstæðismenn
myndu annað hvort greiða atkvæði
með ráðningu minni í stöðu fram-
kvæmdastjóra BÚR eða sitja hjá.
Sömu undirtektir fékk ég hjá öðr-
um forystumönnum Sjálfstæðis-
flokksins, er ég ræddi við og raunar
enn betri hjá öðrum“.
Björgvin Guðmundsson segir
enn fremur í bréfi sínu, að vegna
þessara góðu undirtekta borgarfull-
trúa hafi hann ákveðið að segja upp
starfi sínu í viðskiptaráðuneytinu,
ekki síst vegna undirtekta þeirra
flokksleiðtoga sem hann ræddi við.
Sigurður E. Guðmundsson sagði
í gær í viðtali við Alþýðublaðið, að
menn hlytu að undrast eftirleikinn,
þegar þessar staðreyndir væru
kunnar. Hvers vegna sagðist Davíð
Oddsson ekki myndi leggja stein i
Framh. á 3. síðu
Frá stofnfundi framkvæmdanefndar um launamál kvenna, Ijósm—GTK
Sett á laggirnar í gœr:
Framkvæmdanefnd um
launamál kvenna
Þorkell Bjarnason, hrossarœktarráðunautur:
Söluverð útfluttra hrossa
hærra en gefið er upp
„Ég tel það vitað mál að raun-
verulegt verð þeirra hrossa sem seld
eru til útlanda er aldrei gefið upp.
Öll betri hross eru seld á nokkuð
hærra verði en gefið er upp og þar
sem ákveðið hlutfall af söluverði á
að renna í stofnverndarsjóð er ein-
sýnt að töluvert fé fer forgörðum"
sagði Þorkell Bjarnason, hrossa-
ræktarráðunautur Búnaðarfélags
íslands í samtali við Alþýðublaðið.
I Búnaðarriti 1983, sem Búnað-
arfélagið gefur út, má lesa í skýrslu
Þorkels, um sölu þriggja stóðhesta,
að „hæsta verð á pappírnum var kr.
150.000“ Þorkell sagði töluvert um
að hestar væru þannig að töluverðu
leyti borgaðir undir borðið.
„Það hafa að vísu frekar fáir
hestar verið seldir hin síðustu ár,
svona 3-10 á ári og þetta á kannski
ekki við um unga og Iítt þekkta
hesta. En betri hestar eru á pappírn-
um sagðir hafa verið seldir á t.d.
100.000 kr. meðan raunverulegt
söluverð hefur verið 130-150 þús-
und. Þetta á ekkert síður við um
hryssur en stóðhesta, maður hefur
komist í þá stöðu að sjá að uppgefið
verð á hryssum sé kannski 30 þús-
und krónur, en raunverulegt sölu-
verð hefur verið 50-Ó0 þúsund krón-
ur. En þetta gerist á bak við tjöldin
og erfitt að sanna fyrir víst“
— Þetta bitnar svo á stofnlána-
sjóði?
„Já, stofnlánasjóður á að styrkja
kaup á kynbótahestum sem t.d.
annars gætu verið seldir til útlanda,
þetta er verndarsjóður gagnvart
stofninum. Við verðum að gæta
þess að stofninn verði ekki fyrir
skaða. 10% af söluverði hryssa og
20% af söluverði stóðhesta á að
renna í sjóðinn, þannig að hér er
greinilega um þúsundir króna að
ræða, fyrir utan svo skattahliðina á
málinu.
Það er mjög erfitt að stemma
stigu við þessu. Útflutningurinn á
hrossum hefur breyst töluvert, hér
Framh. á 3. síðu
í kjölfar ráðstefnu Sambands
Alþýðuflokkskvenna um launamál
kvenna á vinnumarkaðinum hafa
konur þær sem þar stóðu að tillögu
um þvcrpólitískt samstarf haldið
fundi og í gær var sett á laggirnar
Framkvæmdanefnd um launamál
kvenna. í nefndinni munu eiga sæti
18 konur úr öllum stjórnmála-
flokkunum, auk þess frá Kvenna-
framboðinu í Reykjavík, Kvenrétt-
indafélagi íslands, Bandalagi
kvenna, Kvenfélagasambandi
íslands, Jafnréttisráði, Alþýðusam-
bandi íslands, Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja, Bandalagi
Háskólamanna og Sambandi
íslenskra bankainanna.
Jóhanna Sigurðardóttir alþingis-
maður stýrði fyrsta fundi fram-
kvæmdanefndarinnar. Sagði hún í
samtali við Alþýðublaðið að tvær
konur væru byrjaðar að safna upp-
lýsingum og gögnum um launamis-
réttið og væri ætlunin að eftir 4—6
vikur yrði gefinn út bæklingur.
„Ég vænti mikils af starfi nefndar-
innar, það hefur verið svo að kraft-
ar kvenna hafa dreifst um of mikið
og því ekki skilað tilætluðum
árangri. Þannig er framkvæmda-
nefndin hugsuð fyrst og fremst sem
leið til að ná breiðri samstöðu um
aðgerðir sem skila raunverulegum
árangri".
Nú var um helgina á ráðstefnu í
Gerðubergi stofnfundur útivinn-
andi kvenna, það var ekki á vegum
ykkar hóps...?
„Stofnun þessa hóps nú um helg-
ina sýnir að það er ríkjandi mikill
áhugi á þessu málum víða í þjóð-
félaginu og því ber að fagna. Engu
að síður kom þessi stofnfundur mér
nokkuð á óvart því aðstandendur
þessarar ráðstefnu um helgina vissu
að stofnuð hefði verið þessi fram-
kvæmdanefnd um launamál
kvenna og Kvennaframboðið i
Reykjavík, sem aðallega stóð að
þessari ráðstefnu á fulltrúa í nefnd-
inni. Ég legg áherslu á að við dreif-
um ekki kröftum okkar því það er
megintilgangurinn með hinni víð-
tæku samstöðu sem náðst hefur
með skipan framkvæmdanefndar-
innar að virkja baráttukraft sem
flestra kvenna sameiginlega, til að
ná árangri í að uppræta launamis-
réttið. Ég geri mér góðar vonir um
að við getum unnið sameiginlega að
þessum málum og góð samvinna og
samráð takist milli framkvæmda-
nefndarinnar og þessa nýja starfs-
hóps sem komið var á fót um helg-
ina“, sagði Jóhanna.
Framkvæmdanefndin hefur
skipt með sér störfum og munu þrír
starfshópar vera í gangi. Einn
hópurinn sér um útgáfumál, fjár-
öflun og tengsl við fjölmiðla, annar
sér um tengsl við vinnustaði og
verkalýðshreyfingu um samstöðu
kvenna í kjarasamningum, sem og
tengsl við landsbyggðina og hinn
þriðji sér um að skipuleggja að-
gerðir. Framkvæmdanefndin fjall-
ar síðan um tillögur nefndanna og
samræmir.
Alþýðubandalagið til í
óbreytt ástand varnarmája?
Á ráðstefnu samtakanna Lifs
og Lands um friðar- og öryggis-
mál sat Ólafur Ragnar Grímsson
fyrir svörum fyrir hönd Alþýðu-
bandalagsins.
í máli hans kom meðal annars
fram, að ef tækist að koma „fryst-
ingar“—leiðinni í framkvæmd
væri hann fyrir sína parta að
minnsta kosti reiðubúinn til að
„frysta“ núverandi fyrirkomulag
í varnarmálum Islands, það er
óbreytt ástand. Alþýðublaðinu er
ekki kunnugt um hvort fleiri aðil-
ar úr forystu Alþýðubandalagsins
eru á sömu skoðun og Ólafur
Ragnar, en engu að síður hlýtur
þetta að teljast með sögulegri yfir-
lýsingum.
Ólafur Ragnar Grímsson